Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara - 15.12.1998, Side 3

Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara - 15.12.1998, Side 3
Fra stjorn FISÞ Pistill formanns í desember 1998 „Góð þjónusta - árangursrík meðferð - skráning - upplýsingamiðlun“. Þegar þessi orð eru skrifuð eru flestir félagsmenn væntanlega komnir með hugann við jólahald og á fullu í jólaundir- búningi. Vonandi eru margir félagsmenn og böm þeirra að skemmta sér saman í dag á jólatrésskemmtun félagsins. Mikilvægi skráningar Pistill minn í dag fjallar þó ekkert um jólaundirbúning og jólahald heldur langar mig að ieiða hugann að öðrum málum sem brenna á mér en það eru: Mikilvægi skráningar í sjúkraþjálfun og fagmennska. Ég hef áður fjallað nokkuð um skoðun mína á mikilvægi skráningar í sjúkraþjálfun og minni á pistil minn frá í desember 1996. Því miður virðist enn vera þörf á brýningu í þessum efnum. Allar breytingar virðast gerast hægt, jafnvel breytingar til batnaðar. Lœknamtr kvörtuðu Vorið 1997 stóðu fagnefnd og gæðanefnd félagsins að könnun meðal sjúkraþjálfara og lækna um samskipti þessara aðila. Niðurstöður könnunarinnar sýndu ótvírætt að skráningu var víða verulega ábótavant og kvörtuðu læknamir sérstak- lega undan því hversu sjaldan þeir fengju upplýsingar frá sjúkraþjálfúrum um árang- ur meðferðar. í kjölfar þessarar könnunar var sett á stofn tölvunefnd félagsins til að vinna að skráningu í sjúkra- þjálfún á tölvutæku formi í samvinnu við fagnefhd. Vinna við tölvutæka skráningu er enn í gangi í samvinnu við Gagnalind hf, fyrirtæki sem hefúr unnið að gerð sjúkraskráningarkerfis fyrir heilsugæsluna í samvinnu við Heilbrigðisráðuneytið. Megum ekki bíða róleg Fagnefnd hefúr verið falið að gera tillögur um stefnu félagsins varðandi skráningu. Á meðan þessi vinna stendur yfir er ljóst að sjúkraþjálfarar mega ekki bíða í róleg- heitum þar tii skráningarkerfið og reglur þar að lútandi verður tilbúið. Allir sjúkra- þjálfarar verða að gera skýrslur um sjúkl- inga sína, skrá árangur meðferðar og senda tilvísandi lækni upplýsingar um meðferðina. TR telur átaks þörf Stjóm FÍSÞ hefur nýlega borist bréf frá Sigurði Thorlacius tryggingayftriækni þar Að mínu mati eigum við ekki að þurfa ábendingu frá trygginga- yfirlcekni til að bæta skráningu og skýrslugerðir okkar. Við eigum ekki að bíða eftir að heilbrigðisyfirvöld setji okkur reglur varðandi skráningu. Skráning er nauðsynlegur og eðlilegur hluti afstarfi okkar. sem fram kemur að við skoðun á sjúkraskrám í heimsóknum samráðsnefnd- ar FÍSÞ og TR á stofur sjúkraþjálfara að undanfömu hafi komið í ljós að viða sé skráningu verulega ábótavant. Tiygginga- yfiriæknir beinir því til stjómar FISÞ að átak verði gert til að bæta skráningu meðal sjúkraþjáifara. Að mínu mati eigum við ekki að þurfa ábendingu firá tryggingayftriækni tii að bæta skráningu og skýrslugerðir okkar. Við eigum ekki að bíða eftir að heilbrigð- isyfirvöld setji okkur reglur varðandi skráningu. Skráning er nauðsynlegur og eðlilegur hiuti af starfi okkar. Við verðum að geta sýnt fram á að sú meðferð sem við veitum sé gagnleg. Án skráningar og upplýsingamiðlunar til lækna komumst við ekki langt. Beram ábyrgð sem fagstétt Sjúkraþjáifarar leggja áherslu á faglegt sjálfstæði sitt. Mikil ábyrgð hvílir á okkur sem faglega sjálfstæð stétt. Við verðum ávallt að hafa fagmennsku í fyrirrúmi í starfi okkar. Meðal megineinkenna fagstéttar er sér- hæfð þekking og siðaregiur sem fagaðilar þurfa að fýlgja. Sjúkraþjálfarar sem og aðrar löggiltar og viðurkenndar fagstéttir í heilbrigðisþjónustunni þurfa einnig að fylgja lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum og reglum um réttindi og skyldur heiibrigðisstarfsmanna, lögum um réttindi sjúklinga og öðrum lögum sem lúta að heilbrigðisþjónustunni. Sjúkraþjálfarar þurfa einnig að fylgja lögum um sjúkra- þjálfún, siðareglum og iögum félagsins og siðareglum og stefnuyfirlýsingum Heims- sambands sjúkraþjálfara um sjúkraþjálfun. Sjúkraþjálfurum er skylt að þróa hæfni og auka þekkingu stna, bæði í formlegu og óformlegu námi. Sjúkraþjálfún er stöðugt nám til að viðhalda, efla og auka faglega hæfni. Sönnum gildi meðferðar Stöðugar framfarir og nýjungar koma fram innan heilbrigðiskerfisins. Lögð eráhersla á að nýjar aðferðir/meðferð byggi á vís- indalegum grunni („Evidence based“). Meðferð verður ávallt að vera örugg fyrir sjúklinga og vera metin árangursrík. Sjúkraþjálfun er þar ekki undanskilin. í sjúkraþjálfún er stöðugt meiri áhersia lögð á að við getum sannað gildi þeirrar með- ferðar sem við veítum og að meðfetð byggi á vísindalegum grunni. Ábytgð hvílir á okkur varðandi þróun nýrra aðferða. Notum viöurkenndar aðferðir Við verðum einnig að meta hvar mörkin liggja milli meðferðar sem telst innan sjúkraþjálfunar og hvað ekki. Við megum ekki sem löggilt heilbrigðisstétt stunda FRÉTTABRÉF FÍSÞ - Tíundi árgangur 1998 3

x

Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara
https://timarit.is/publication/1331

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.