Morgunblaðið - 28.01.2019, Page 4
Internetnotkun á Íslandi og í ESB-löndum
Netnotkun árið 2018 Netnotkun á Íslandi
Netnotkun á Íslandi og í ESB-löndum
Nota netið
fyrir tölvupóst
Hlusta á tónlist
á netinu
Nota netsíma
(t.d. Skype)
Horfa á sjónvarpsefni
Nota netið fyrir
samfélagsmiðla
Horfa á vídeó á netinu
(t.d. YouTube)
Hlutfall íbúa sem notuðu Internetið
síðustu 3 mánuði
Hlutfall Íslendinga sem notuðu Internetið síðustu 3 mánuði 2003-2018
100
95
90
85
80
75
Heimild: Eurostat
Ísland
Danmörk
Noregur
Lúxemborg
Holland
Bretland
Finnland
Þýskaland
Svíþjóð
Eistland
Belgía
Frakkland
Tékkland
Austurríki
Spánn
ESB
Lettland
Kýpur
Írland
Malta
Slóvakía
Litháen
Slóvenía
Pólland
Ungverjaland
Portúgal
Króatía
Ítalía
Grikkland
Rúmenía
Búlgaría
99%
98%
97%
97%
95%
95%
94%
92%
92%
89%
89%
88%
87%
87%
86%
85%
84%
84%
82%
81%
80%
80%
80%
78%
76%
75%
75%
74%
72%
71%
65%
81%
99%
73%
95%
ESB Ísland
42% 55%
ESB Ísland
56%
91%
ESB Ísland
57%
83%
ESB Ísland
36%
64%
ESB Ísland
48%
81%
ESB Ísland
2003 2008 2013 2018
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Íslendingar verma enn efsta sætið
í netnotkun meðal Evrópuþjóða
líkt og mörg undanfarin ár sam-
kvæmt tölum sem Eurostat, hag-
stofa Evrópusambandsins, hefur
birt um notkun á netinu meðal 16
til 74 ára íbúa á seinasta ári. Ná
tölurnar til landa ESB auk Ís-
lands, Noregs og Sviss.
Nú teljast 99% Íslendinga á
þessum aldri nota netið reglulega
en fast á hæla þeirra koma Danir
(98%) og Norðmenn (97%). Að
meðaltali sögðust 85% íbúa í lönd-
um ESB hafa notað netið á síðustu
þremur mánuðum.
Netnotkunin hefur vaxið ört í
Evrópu en árið 2007 sögðust 57%
nota netið reglulega og hlutfallið
var komið í 73% árið 2012. Íslend-
ingar voru snemma komnir í
fremstu röð þjóða í netnotkun en
árið 2003 fóru 83% Íslendinga
reglulega á netið, samkvæmt
könnunum á þeim tíma.
95% nota netið fyrir tölvupóst
Íslendingar geta státað af því að
nota netið meira en aðrar þjóðir til
ýmissa hluta, m.a. notar engin
þjóð netið meira en Íslendingar til
að senda og taka á móti tölvupósti
en hér sögðust 95% gera það.
Danir og Norðmenn eru þó á svip-
uðum slóðum en í þeim löndum
nota 94% íbúanna tölvupóst á net-
inu. Meðaltalið í löndum Evrópu-
sambandsins er aftur á móti mun
lægra eða 73% en í umfjöllun
Eurostat um þessar tölur kemur
fram að Evrópubúar noti netið að
jafnaði mest fyrir tölvupóst. Næst
mesta notkun netsins í löndum
Evrópu er til að leita upplýsinga
um vörur og þjónustu á netinu
(70%). Meirihluti íbúa Evrópu-
landa fer líka inn á netið til að
horfa á myndskeið og nota sam-
félagsmiðla.
Íslendingar skera sig úr þegar
spurt er um hlustun á tónlist á
netinu. Hér segjast 81% streyma
tónlist á netinu. Næstir koma
Finnar en þar er hlutfallið 71% en
að meðaltali notar innan við helm-
ingur íbúa eða 48% í löndum ESB
netið til að hlusta á tónlist, sam-
kvæmt tölum Eurostat, en notk-
unin er þó ólík eftir löndum.
Notkun netbanka mest hér
Netbankaþjónusta hefur aukist
hratt á seinustu árum en þar eru
Íslendingar einnig í fararbroddi
meðal Evrópuþjóða í að notfæra
sér hana og tróna á toppinum í
samanburði Eurostat. 94% 16-74
ára Íslendinga notuðu netbanka í
fyrra. Norðmenn eru í 2. sæti en
þar er hlutfallið 93% og Danir,
Hollendingar og Finnar eru í 3.
sæti (89%).
Íslendingar eru einnig ötulastir
Evrópubúa í notkun samfélags-
miðla. 91% Íslendinga fer á netið
til að nota samfélagsmiðla en næst
duglegastir í notkun samfélags-
miðla eru Norðmenn en þar er
hlutfallið 82%.Í Danmörku er hlut-
fallið 79%. Að jafnaði er samfélags-
miðlanotkun meðal Evrópusam-
bandslanda 56%.
Íslendingar standa líka fremstir
í röðinni þegar kannað er í hvaða
mæli Evrópubúar nota netið til að
leita að vörum og þjónustu. Hér er
hlutfallið 92% en meðaltalið í ESB-
löndum er 70% eins og áður segir.
Þá verma Íslendingar efsta sæti
í áhorfi á VOD þjónustur eða pönt-
unarsjónvarp á netinu (65%) en
Norðmenn mælast í öðru sæti
(59%). Íslendingar standa þó aftar
mörgum öðrum þjóðum við ýmsa
aðra netnotkun. Eru í 6. sæti (63%)
þegar spurt er hvort menn sæki
sér heilsufarsupplýsingar á netinu.
Hollendingar, Danir, Norðmenn og
Finnar eru þar í fararbroddi.
Í 16. sæti þegar spurt er um
spilun tölvuleikja á netinu
Þá vekur athygli að Íslendingar
eru aftarlega í röðinni þegar kann-
að er í hversu ríkum mæli íbúar
Evrópulanda spila tölvuleiki á net-
inu eða hlaða niður leikjum. Þar er
Ísland í 16. sæti en 26% Íslendinga
fara í tölvuleiki eða hlaða niður
leikjum á netinu, sem er undir
meðaltalinu innan ESB (29%).
Kaup á vörum og þjónustu á net-
inu hefur farið ört vaxandi á
undanförnum árum. Ekki koma
fram upplýsingar um vörukaup á
netinu í tölum Eurostat en fram
kemur hins vegar að innan við
helmingur íbúa í öllum Evrópu-
löndunum notar netið til að selja
sjálfir vörur og þjónustu. Þar
stendur Ísland í 6. sæti og er hlut-
fallið hér á landi 28%.
Þá er ekki mjög algengt hér á
landi að menn fari á netið til að
panta tíma hjá sérfræðingum.
Finnar nota netið mest þjóða til
þessa eða 44% en 15% Íslendinga
segjast gera það, sem setur í Ís-
land í 14. sæti í samanburðinum.
Íslendingar í toppsæti í netnotkun
Fremst í
streymi tónlistar
og notkun sam-
félagsmiðla
Getty Images/Thinkstock
Almenn netnotkun Nú teljast 99% Íslendinga nota netið reglulega, meðal annars til að leita að vörum og þjónustu.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019
595 1000
Dubrovnik
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
f
25. apríl í 3 nætur
Ein fegursta höfnin við DalmatíuströndKróatíu
Verð frá kr.
124.495
Flugsæti frá kr.
89.900
Veður víða um heim 27.1., kl. 18.00
Reykjavík -3 alskýjað
Hólar í Dýrafirði 1 skýjað
Akureyri -13 heiðskírt
Egilsstaðir -17 heiðskírt
Vatnsskarðshólar 0 alskýjað
Nuuk -5 léttskýjað
Þórshöfn 1 léttskýjað
Ósló -8 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 skúrir
Stokkhólmur -5 skýjað
Helsinki -18 heiðskírt
Lúxemborg 4 rigning
Brussel 4 rigning
Dublin 3 skúrir
Glasgow 5 léttskýjað
London 5 rigning
París 5 rigning
Amsterdam 5 skýjað
Hamborg 5 rigning
Berlín 5 skýjað
Vín 0 heiðskírt
Moskva -8 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 10 rigning
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -25 alskýjað
Montreal -7 snjókoma
New York 6 heiðskírt
Chicago -16 léttskýjað
Orlando 12 rigning
28. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:21 17:02
ÍSAFJÖRÐUR 10:44 16:48
SIGLUFJÖRÐUR 10:28 16:30
DJÚPIVOGUR 9:55 16:26
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Norðaustan 10-18 m/s og víða snjó-
koma eða él, hvassast nyrst á Vestfjörðum og úti við
SA-ströndina, en yfirleitt léttskýjað S- og V-lands.
Frost 0 til 10 stig, minnst við sjávarsíðuna.
Gengur í norðaustan 13-18 á Vestfjörðum og við SA-ströndina en hægara annars staðar. Víða snjókoma eða él og frost 0 til 10 stig,
minnst syðst.