Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 4
Internetnotkun á Íslandi og í ESB-löndum Netnotkun árið 2018 Netnotkun á Íslandi Netnotkun á Íslandi og í ESB-löndum Nota netið fyrir tölvupóst Hlusta á tónlist á netinu Nota netsíma (t.d. Skype) Horfa á sjónvarpsefni Nota netið fyrir samfélagsmiðla Horfa á vídeó á netinu (t.d. YouTube) Hlutfall íbúa sem notuðu Internetið síðustu 3 mánuði Hlutfall Íslendinga sem notuðu Internetið síðustu 3 mánuði 2003-2018 100 95 90 85 80 75 Heimild: Eurostat Ísland Danmörk Noregur Lúxemborg Holland Bretland Finnland Þýskaland Svíþjóð Eistland Belgía Frakkland Tékkland Austurríki Spánn ESB Lettland Kýpur Írland Malta Slóvakía Litháen Slóvenía Pólland Ungverjaland Portúgal Króatía Ítalía Grikkland Rúmenía Búlgaría 99% 98% 97% 97% 95% 95% 94% 92% 92% 89% 89% 88% 87% 87% 86% 85% 84% 84% 82% 81% 80% 80% 80% 78% 76% 75% 75% 74% 72% 71% 65% 81% 99% 73% 95% ESB Ísland 42% 55% ESB Ísland 56% 91% ESB Ísland 57% 83% ESB Ísland 36% 64% ESB Ísland 48% 81% ESB Ísland 2003 2008 2013 2018 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Íslendingar verma enn efsta sætið í netnotkun meðal Evrópuþjóða líkt og mörg undanfarin ár sam- kvæmt tölum sem Eurostat, hag- stofa Evrópusambandsins, hefur birt um notkun á netinu meðal 16 til 74 ára íbúa á seinasta ári. Ná tölurnar til landa ESB auk Ís- lands, Noregs og Sviss. Nú teljast 99% Íslendinga á þessum aldri nota netið reglulega en fast á hæla þeirra koma Danir (98%) og Norðmenn (97%). Að meðaltali sögðust 85% íbúa í lönd- um ESB hafa notað netið á síðustu þremur mánuðum. Netnotkunin hefur vaxið ört í Evrópu en árið 2007 sögðust 57% nota netið reglulega og hlutfallið var komið í 73% árið 2012. Íslend- ingar voru snemma komnir í fremstu röð þjóða í netnotkun en árið 2003 fóru 83% Íslendinga reglulega á netið, samkvæmt könnunum á þeim tíma. 95% nota netið fyrir tölvupóst Íslendingar geta státað af því að nota netið meira en aðrar þjóðir til ýmissa hluta, m.a. notar engin þjóð netið meira en Íslendingar til að senda og taka á móti tölvupósti en hér sögðust 95% gera það. Danir og Norðmenn eru þó á svip- uðum slóðum en í þeim löndum nota 94% íbúanna tölvupóst á net- inu. Meðaltalið í löndum Evrópu- sambandsins er aftur á móti mun lægra eða 73% en í umfjöllun Eurostat um þessar tölur kemur fram að Evrópubúar noti netið að jafnaði mest fyrir tölvupóst. Næst mesta notkun netsins í löndum Evrópu er til að leita upplýsinga um vörur og þjónustu á netinu (70%). Meirihluti íbúa Evrópu- landa fer líka inn á netið til að horfa á myndskeið og nota sam- félagsmiðla. Íslendingar skera sig úr þegar spurt er um hlustun á tónlist á netinu. Hér segjast 81% streyma tónlist á netinu. Næstir koma Finnar en þar er hlutfallið 71% en að meðaltali notar innan við helm- ingur íbúa eða 48% í löndum ESB netið til að hlusta á tónlist, sam- kvæmt tölum Eurostat, en notk- unin er þó ólík eftir löndum. Notkun netbanka mest hér Netbankaþjónusta hefur aukist hratt á seinustu árum en þar eru Íslendingar einnig í fararbroddi meðal Evrópuþjóða í að notfæra sér hana og tróna á toppinum í samanburði Eurostat. 94% 16-74 ára Íslendinga notuðu netbanka í fyrra. Norðmenn eru í 2. sæti en þar er hlutfallið 93% og Danir, Hollendingar og Finnar eru í 3. sæti (89%). Íslendingar eru einnig ötulastir Evrópubúa í notkun samfélags- miðla. 91% Íslendinga fer á netið til að nota samfélagsmiðla en næst duglegastir í notkun samfélags- miðla eru Norðmenn en þar er hlutfallið 82%.Í Danmörku er hlut- fallið 79%. Að jafnaði er samfélags- miðlanotkun meðal Evrópusam- bandslanda 56%. Íslendingar standa líka fremstir í röðinni þegar kannað er í hvaða mæli Evrópubúar nota netið til að leita að vörum og þjónustu. Hér er hlutfallið 92% en meðaltalið í ESB- löndum er 70% eins og áður segir. Þá verma Íslendingar efsta sæti í áhorfi á VOD þjónustur eða pönt- unarsjónvarp á netinu (65%) en Norðmenn mælast í öðru sæti (59%). Íslendingar standa þó aftar mörgum öðrum þjóðum við ýmsa aðra netnotkun. Eru í 6. sæti (63%) þegar spurt er hvort menn sæki sér heilsufarsupplýsingar á netinu. Hollendingar, Danir, Norðmenn og Finnar eru þar í fararbroddi. Í 16. sæti þegar spurt er um spilun tölvuleikja á netinu Þá vekur athygli að Íslendingar eru aftarlega í röðinni þegar kann- að er í hversu ríkum mæli íbúar Evrópulanda spila tölvuleiki á net- inu eða hlaða niður leikjum. Þar er Ísland í 16. sæti en 26% Íslendinga fara í tölvuleiki eða hlaða niður leikjum á netinu, sem er undir meðaltalinu innan ESB (29%). Kaup á vörum og þjónustu á net- inu hefur farið ört vaxandi á undanförnum árum. Ekki koma fram upplýsingar um vörukaup á netinu í tölum Eurostat en fram kemur hins vegar að innan við helmingur íbúa í öllum Evrópu- löndunum notar netið til að selja sjálfir vörur og þjónustu. Þar stendur Ísland í 6. sæti og er hlut- fallið hér á landi 28%. Þá er ekki mjög algengt hér á landi að menn fari á netið til að panta tíma hjá sérfræðingum. Finnar nota netið mest þjóða til þessa eða 44% en 15% Íslendinga segjast gera það, sem setur í Ís- land í 14. sæti í samanburðinum. Íslendingar í toppsæti í netnotkun  Fremst í streymi tónlistar og notkun sam- félagsmiðla Getty Images/Thinkstock Almenn netnotkun Nú teljast 99% Íslendinga nota netið reglulega, meðal annars til að leita að vörum og þjónustu. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 595 1000 Dubrovnik Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án f 25. apríl í 3 nætur Ein fegursta höfnin við DalmatíuströndKróatíu Verð frá kr. 124.495 Flugsæti frá kr. 89.900 Veður víða um heim 27.1., kl. 18.00 Reykjavík -3 alskýjað Hólar í Dýrafirði 1 skýjað Akureyri -13 heiðskírt Egilsstaðir -17 heiðskírt Vatnsskarðshólar 0 alskýjað Nuuk -5 léttskýjað Þórshöfn 1 léttskýjað Ósló -8 snjókoma Kaupmannahöfn 1 skúrir Stokkhólmur -5 skýjað Helsinki -18 heiðskírt Lúxemborg 4 rigning Brussel 4 rigning Dublin 3 skúrir Glasgow 5 léttskýjað London 5 rigning París 5 rigning Amsterdam 5 skýjað Hamborg 5 rigning Berlín 5 skýjað Vín 0 heiðskírt Moskva -8 snjókoma Algarve 17 léttskýjað Madríd 11 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 10 rigning Aþena 11 léttskýjað Winnipeg -25 alskýjað Montreal -7 snjókoma New York 6 heiðskírt Chicago -16 léttskýjað Orlando 12 rigning  28. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:21 17:02 ÍSAFJÖRÐUR 10:44 16:48 SIGLUFJÖRÐUR 10:28 16:30 DJÚPIVOGUR 9:55 16:26 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Norðaustan 10-18 m/s og víða snjó- koma eða él, hvassast nyrst á Vestfjörðum og úti við SA-ströndina, en yfirleitt léttskýjað S- og V-lands. Frost 0 til 10 stig, minnst við sjávarsíðuna. Gengur í norðaustan 13-18 á Vestfjörðum og við SA-ströndina en hægara annars staðar. Víða snjókoma eða él og frost 0 til 10 stig, minnst syðst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.