Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fyrir mér er algjörlega sjálf- sagt að klukkunni verði breytt – og mér hefur alltaf fundist ein- kennilegt að hún fylgi ekki hnattstöðu,“ segir Karl Ægir Karlsson prófessor í taugavís- indum við Háskólann í Reykja- vík. Á síðustu árum hafa verið gerðar fjölmargar rannsóknir sem allar sýna mikilvægi þess að sólin og klukkan fylgist að. Það er líkamanum mikilvægt að nýta geisla morgunsólarinnar sem best á morgnana, því árla dags eru hraðar bylgjur í sólarljósinu ríkjandi; blátt ljós sem kallað er í daglegu tali. Það ljós nema frumur í augum okkar og heila svo hægir á svefnvirkni og fram- leiðslu melatóníns. Í raun má segja að þessir ferlar núllistilli lífsklukkuna okkar og segi að dagur sé risinn og tími kominn til að fara á fætur. Þrír valkostir Sú spurning hvort breyta eigi gangi Íslandsklukkunnar er stór og áleitin. Að mati vísinda- manna sem á síðasta ári unnu greinargerð um málið fyrir stjórnvöld hefur það neikvæðar afleiðingar að miða við of fljótan staðartíma. Í einföldustu mynd eru málavextir þeir að þegar klukk- an á Íslandi slær 12.00 á sólin enn eftir klukkustund í hádegis- stað. Að gera breytingu sem þessu nemur er einn þeirra kosta sem landsmenn hafa um að velja á svonefndri samráðsgátt á netinu. Hinir eru óbreytt staða, það er að klukkan sé áfram einni klst. fljótari en hnattstaða segir, en þá komi til fræðsla þar sem fólk sé hvatt til að ganga fyrr til náða á kvöldin. Þriðji möguleikinn er sá að engu verði breytt, en skólar, fyrirtæki og stofnanir hefji starfsemi sína seinna á morgnana, þannig að fólk jafnan fari til daglegra verka sinna þegar skíma er kom- in á himininn. Í áratugi og allt fram til 1968 gilti á Íslandi að klukkunni var flýtt fram um eina klukku- stund í apríl ár hvert en svo aft- ur seinkað um þetta sama fyrsta vetrardag, það er seint í októ- ber. Allt var þetta gert til að nýta birtuna vel. Tíðni áfalla og slysa eykst „Fólk taldi á sínum tíma mikilvægt að Ísland væri á sama tíma og helstu viðskiptalönd okkar, til dæmis Bretland þar sem tíminn er sá sami yfir vetur- inn en Norðurlöndin klukku- stund á undan okkur. Vissulega eru þetta rök en með netvæð- ingu og sjálfsafgreiðslu á svo mörgu skiptir þetta minna máli en áður. Svo verður líka að halda til að haga að í Evrópu þar sem er sumartími og klukk- an röng á sumrin, til þess að lengja birtuna yfir daginn, þá gerist það fyrstu mánuðina eftir breytingu eykst jafnan tíðni heilablóðfalls, hjartaáfalla og bíl- slysa. Að sofa er einfaldlega lífs- spursmál fyrir okkur mann- fólkið. Skertur svefn, eins og rannsóknir sýna, eykur tíðni hjarta- og æðasjúkdóma, Alz- heimer, elliglapa, þunglyndis og kvíða svo eitthvað sé nefnt.“ Hin hliðin á því að seinka klukkunni um eina klukkustund svo við njótum morgunbirtunnar betur er að sólarljóss nýtur þá skemur í hinn endann. Öll þekkj- um við sumarkvöldin fögur; notalegar stundir á veröndinni þegar ágústnóttin nálgast. Eða þann gæðatíma sem krakkarnir hafa til útleikja og ævintýra á björtum kvöldum þegar ómögu- legt er inn að sofa. Karl Ægir segir þetta allt skiljanleg sjónar- mið en minnir á vísindin. „Í lífeðlisfræðinni skiptir sólarljósið að kvöldi litlu fyrir líf okkar og líðan, það er morgun- birtan sem öllu máli skiptir. Líkamsklukkan er þannig gerð af skaparanum að hringurinn er 25 klukkustundir og ef vísbend- inga frá sólarljósi nýtur ekki við erum við að setja lífið í ójafn- vægi. Á Íslandi þarf fólk einfald- lega að fylgja ljósinu og sofa meira; skv. nýjum tölum sofa ungmenni á Íslandi rétt rúmar 6 klukkustundir á sólarhring, sem er allt of lítið. Og haldi þessu áfram blasir við okkur eftir 20 ár eða svo faraldur þeirra sjúk- dóma, eins og ég nefni hér að framan. Svefn hefur líka mikil áhrif á efnaskipti í líkamanum og er skammur svefn þekkt or- sök að sykursýki 2 sem í dag nálgast að vera heimsfaraldur. Mér finnst því í raun einboðið að gera breytingar á klukkunni. Mér finnst ekki valkostur að fara í flókið og dýrt samfélags- átak með óljósum markmiðum til þess eins að viðhalda rangri klukku – því rökin fyrir breyt- ingum sem lúta að heilsu eru al- veg skýr. Þurfum að sofa meira og breyting á klukkunni sjálfsögð, segir vísindamaður Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þekking Í lífeðlisfræðinni skiptir sólarljósið að kvöldi litlu fyrir líf okk- ar og líðan, segir Karl Ægir um bollaleggingar um breytta klukku. Mikilvæg morgunbirta  Karl Ægir Karlsson er fædd- ur 1971 og er með PhD-gráðu í taugavísindum frá University of Iowa. Karl hóf störf á tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og hefur verið pró- fessor þar frá 2015. Karl stofn- aði ásamt Haraldi Þorsteins- syni sprotafyrirtækið 3Z sem starfar á sviði lyfjaskimana og lyfjaþróunar. Rannsóknir Karls hafa að mestu snúist um taugalíf- eðlisfræði og þroska svefns.  Karl er í sambúð með Björk Eiðsdóttur, blaðamanni og rit- stjóra. Eiga þau sex börn og vænta þess sjöunda, og fyrsta sameiginlega, í maí. Hver er hann? Hópur fólks kom saman á Austur- velli í gær til þess að mótmæla þingmönnunum sem tóku þátt í ósæmilegum umræðum á barnum Klaustri stuttu fyrir jól. „Mér finnst að þeir eigi allir að víkja sem eiga hlut að máli,“ sagði Jó- hann Torfason, einn mótmælenda, í samtali við mbl.is. Þá sagði Anna María Lind Geirsdóttir, annar mótmælenda, að enginn Klausturs- þingmanna hefði sýnt neina iðrun. Meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum var Bára Halldórsdóttir, aðgerðasinni og öryrki sem tók upp samtal þingmannanna. „Við höfum sömu skoðanir og við höfð- um 1. desember. Við þurfum meiri úrlausn en þessir menn eru til- búnir að gefa okkur akkúrat núna,“ sagði hún við mbl.is. Spurð hvort hún héldi að mótmælin ættu eftir að skila einhverju sagði hún að baráttunni yrði haldið áfram uns eitthvað gerðist. Snæbjörn Brynjarsson, vara- þingmaður Pírata, var einnig ræðumaður á fundinum. Um fundarstjórn sá Ninna Karla Katrínardóttir. Mótmæli vegna Klaustursmáls Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Ósátt Ef gengið var hjá Austurvelli um tvöleytið í gær mátti sjá þar hóp af vel klæddum mótmælendum. Umhverfisstofnun hefur fyrir sitt leyti fallist á umsókn Hestamanna- félagsins Geysis um að byggja áning- arhólf fyrir hesta innan friðlandsins að Fjallabaki. Fram kemur í umsögn Umhverfis- stofnunar að markmiðið með fram- kvæmdinni sé að stýra því hvar ferðamenn á hestum stoppi hrossa- rekstra innan svæðisins og minnka þannig rask á viðkvæmu landi. Árið 2018 höfðu viðkomu í Landmanna- helli um 30 hópar hestamanna með alls um 1.275 hross á leið sinni í Landmannalaugar. Segir stofnunin, að slíkur fjöldi hrossa geti valdið þó- nokkru raski á svæðinu og við- kvæmur gróður svæðisins þoli illa slíkan ágang. Stefnt er að því að setja upp hólfið í sumar við Frostastaðavatn en skipulögð reiðleið liggur þar um. Ná- kvæm staðsetning liggur ekki fyrir, en miðað verður við að setja hólfið niður þar sem lítill eða enginn gróð- ur er fyrir. Hólfið verður 15x15 metrar að stærð. Reknir verða niður 10 járnstaurar og lína strengd á milli þeirra sem verður fjarlægð yfir vetrartímann. Telur Umhverfis- stofnun að uppsetning á áningarhólfi við Frostastaðavatn muni ekki hafa veruleg neikvæð áhrif á svæðið og með þessari framkvæmd sé verið að bæta stýringu á umferð hesta á svæðinu. Um sé að ræða varanlegt mannvirki sem Umhverfisstofnun telur að sé ekki líklegt til að raska ásýnd svæðisins verulega og sé afturkræft. Á rauðum lista Umhverfisstofnun gefur út lista á tveggja ára fresti yfir þau svæði sem veita þarf sérstaka athygli og hlúa sérstaklega að. Flokkast svæði á rauðan lista og appelsínugulan lista. Á hinum fyrrnefnda eru svæði sem Umhverfisstofnun telur að séu undir miklu álagi sem bregðast þurfi strax við og er friðland að Fjallabaki talið þar á meðal vegna ágangs ferða- manna. Stofnunin segir að í friðlandinu sé stórbrotið og fjölbreytt landslag, sérstakt en viðkvæmt lífríki, öræfa- auðn og kyrrð. Veikleikar svæðisins sé lífríkið sem sé viðkvæmt. Sam- felld gróðursvæði fá, endurheimt gróðurs sem spillist hæg og vaxtar- tími gróðurs stuttur. Svæðið verji sig illa sjálft fyrir hvers konar umferð. Friðlandið er mikið sótt af ferða- mönnum og er í dag vinsælasti við- komustaður ferðamanna á hálendi Íslands. Stjórnunar- og verndar- áætlun fyrir friðlandið liggur ekki fyrir en vinna við hana stendur yfir. Byggja áningar- hólf að Fjallabaki  Farið með 1.275 hross um svæðið í fyrra Morgunblaðið/Hari Að Fjallabaki Landslagið á frið- landinu er stórbrotið og fjölbreytt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.