Morgunblaðið - 28.01.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIð höNNum oG TeIkNum STuRTuTÆkI SpeGLAR oG LjóS
styrkur - ending - gæði
BAðheRBeRGISINNRÉTTINGAR
hÁGÆðA DANSkAR
opIð:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
Við gerum þér
hagstætt tilboð, bæði í
innréttingu, spegla, vaska
og blöndunartæki
BLöNDuNARTÆkI
Íslensk stjórnvöld hafa samiðvið OECD um að framkvæma
samkeppnismat á ferðaþjónustu
og byggingariðnaði með því að
greina regluverkið sem þessar at-
vinnugreinar búa við. Í samtali
við Morgunblaðið segir Ania
Thiemann, danskur sérfræðingur
hjá OECD, að vísbendingar séu
um að of flókið sé að fá bygg-
ingarleyfi hér á landi.
Ísland sé að þessu leyti eftir-bátur helstu nágrannalanda
og það geti tekið allt að 84 daga
að fá byggingarleyfi, sem sé
nokkuð hátt í samanburði við há-
tekjulönd.
Það er vel til fundið að fara yf-ir þessi mál hér á landi og
vel má vera að OECD muni skila
gagnlegum tillögum í því efni.
Sá böggull fylgir þó skammrifiað ætlunin er að hefja matið
á regluverkinu í mars og taka í
það átján mánuði. Ef stjórnvöld
bíða eftir niðurstöðu matsins má
ætla að nokkur ár líði þar til ár-
angur fer að líta dagsins ljós.
Í nýlegri úttekt átakshóps umhúsnæðismál var meðal ann-
ars vikið að of flóknu regluverki
vegna bygginga og hefur það oft
verið gert áður, meðal annars
hér í Morgunblaðinu.
Stjórnvöld eiga alls ekki aðbíða eftir mati OECD heldur
hefjast þegar handa við einföldun
regluverks atvinnulífsins. Það
verður vonandi til þess að skýrsla
OECD verður úrelt þegar hún
birtist eftir tæp tvö ár, sem væri
fagnaðarefni.
Óþarfi að bíða
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Á þriðjudag mun kvikmyndagerðar-
fólk á vegum Sagafilm hefja tökur á
sjónvarpsþáttaröðinni 20/20 í
Stykkishólmi. Fólkið verður þar við
tökur fram til 13. mars.
Þetta kemur fram á vef Stykkis-
hólmsbæjar en í samtali við Morgun-
blaðið segir Jakob Björgvin Jakobs-
son bæjarstjóri íbúa vera vana kvik-
myndagerðarfólki í bænum og segir
komu þess hafa góð áhrif á mannlífið.
„Þetta er skemmtilegt og lífgar
upp á tilveruna. Þetta er auðvitað
ekki hánnatími í ferðaþjónustunni
svo þegar það kemur svona stór hóp-
ur, sem bókar upp hótelin, þá kemur
ákveðin innspýting inn í ferðaþjón-
ustuna líka.“
Tekið upp í ráðhúsinu
Í fundargerð bæjarráðs Stykkis-
hólmsbæjar frá því á föstudag kemur
fram að samningur hafi verið gerður
á milli Sagafilm og sveitarfélagsins,
meðal annars um afnot af mann-
virkjum bæjarins; ráðhúsi, húsnæði
Tónlistarskóla Stykkishólms og flug-
stöð.
„Þetta er samframleiðsla með
skandinavísku framleiðslufyrirtæki.
Þeir verða að skjóta hér og þar í
bænum,“ sagði Jakob um eðli verk-
efnisins og sagðist halda að um 80-
100 manns yrðu í bænum vegna
framleiðslunnar meðan á stæði.
teitur@mbl.is
Sagafilm fyllir Stykkishólm á morgun
Framleiðsla á nýrri þáttaröð að hefjast Bæjarstjóri segir áhrifin jákvæð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hólmurinn Tökur hefjast á morgun.
Um helgina fór fram fjórða alþjóð-
lega mótið á Íslandi í herkænsku-
borðleikjum, Polar Bear, sem nefnt
er í höfuðið á 49. fótgönguliðsher-
deild Breta sem var fyrsta setuliðs-
deildin sem tók þátt í hernámi Ís-
lands í seinni heimsstyrjöldinni.
Mótið fór fram í Nexus í Glæsibæ og
tóku 16 spilarar þátt í keppninni, en
sjö þeirra komu frá útlöndum til að
taka þátt í mótinu.
„Í Polar Bear mótinu hafa allir
keppendur yfirráð yfir sínum herj-
um og hver eining innan herjanna
hefur ákveðnar reglur. Lykilatriðin í
leiknum eru bæði samsetningin á
hernum og hvernig þú spilar úr
honum,“ segir Jökull Gíslason, móts-
haldari. Hann segir að hér á landi
séu um 20 manns sem iðka her-
kænskuborðleiki en helmingur
þeirra hafi keppt á mótinu um
helgina.
Mótin sem haldin hafa verið á Ís-
landi síðastliðin þrjú ár hafa haft
seinni heimsstyrjöldina að fyrir-
mynd en í ár var sögusvið mótsins
ímynduð þriðja heimsstyrjöld árið
1985 á milli NATO og Varsjár-
bandalagsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heimsstyrjöld Sögusviðið á mótinu í ár var ímynduð 3. heimsstyrjöld.
Keppt í herkænsku
Polar Bear-mótið í Nexus er fjórða
alþjóðlega mótið á Íslandi í herkænsku