Morgunblaðið - 28.01.2019, Síða 9

Morgunblaðið - 28.01.2019, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 Matvælastofnun gerði athugasemd- ir á grundvelli laga um velferð dýra vegna sauðfjár í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, segir að ábend- ingin hafi verið vegna sauðfjár á lausagangi. „Matvælastofnun bárust sem sagt ábendingar um að sauðfé sé á lausagangi í þjóðgarðinum og það var farið fram á að það yrði hand- samað og því komið rétta leið.“ Ásta segir að brugðist verði við ábendingunni hið snarasta. „Fjallskilanefnd og yfirmenn þjóðgarðs munu funda í vikunni og skipuleggja handsömun á þessum rollum.“ Aðspurð segir hún ekki óvenju- legt að sauðfé verði eftir í þjóð- garðinum. „Það gerist öðru hvoru. Það er smalað þarna reglulega en eitthvað hefur orðið eftir.“ ragnhildur@mbl.is Sauðfé vanrækt  Sauðfé á lausa- gangi á Þingvöllum Morgunblaðið/Eggert Sauðfé Það gerist stöku sinnum að sauðfé verði eftir á Þingvöllum. Viðræður um sameiningu SORPU og Kölku nálgast nú lokastig. Á fundi stjórnar Sorpu nýlega var samþykkt að vísa ákvörðun um framhald málsins til bæjarstjórna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Rætt hefur verið um sameiningu Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf., Kölku, sem er í eigu sveitarfélaga á Suðurnesjum og SORPU bs. í eigu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, frá miðju ári 2016, og auk viðræðunefnda hafa ráð- gjafar frá Capacent og stjórnir fyrirtækjanna komið að málum. Í fundargerð stjórnar SORPU frá því í síðustu viku kemur fram að málið sé nú komið á það stig að góðar upplýsingar og hugmyndir liggi fyrir um á hvaða grundvelli hægt sé að kynna mögulega sameiningu fyrir bæjarstjórnum sveitarfélaganna. Það yrði síðan eigenda SORPU og Kölku að ákveða næstu skref. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur verið rætt um að við sameiningu myndi eignarhlutur skiptast svipað og íbúafjöldi. Eignarhlutur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu yrði um 90% og eignarhlutur sveitarfélaganna á Suðurnesjum 10%. aij@mbl.is Viðræður um sameiningu sorpstöðva á lokastigi Morgunblaðið/Þórður Kalka Sorpbrennsla undirbúin í sorpeyðingarstöðinni Kölku á Suðurnesjum.  Eigendur Kölku og SORPU ákveða framhaldið Jarðskjálfti sem mældist 3,7 stig varð laust eftir klukkan 10 í gær- morgun á Torfajökulssvæðinu, um átta km vestnorðvestur af Hrafn- tinnuskerjum. Skjálftans varð vart í Fljótshlíð. Tugir minni skjálfta fylgdu í kjöl- farið á sama svæðinu en þeir voru allir undir tveimur stigum. Skjálftinn varð á vesturhluta Torfajökulsöskjunnar, en hún er sú stærsta á Íslandi. Veðurstofan segir, að jarðskjálftavirkni sé viðvarandi á þessu svæði en fátítt er að skjálftar mælist yfir 3,5 að stærð. Síðast mældust skjálftar af svipaðri stærð í ágúst 2018, rúmlega fimm km austar en skjálftinn í gær. Jarðskjálfti við Torfajökul Sindri Þór Stefánsson, sem var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelldan tölvu- þjófnað úr gagnaverum, hefur ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar. Þetta staðfestir lög- maður hans, Þorgils Þorgilsson, við mbl.is. Matthías Jón Karlsson, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna málsins, hefur einnig ákveð- ið að áfrýja dómum. Guðni Jósep Einarsson, verjandi Matthíasar Jóns, staðfesti þetta við mbl.is. Áfrýja til Landsréttar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.