Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ríkissjóður greiddi í fyrra þol-
endum ofbeldisbrota rúmlega 116
milljónir kr. í bætur í alls 426 mál-
um sem komu til afgreiðslu bóta-
nefndar. Málin voru þó enn fleiri á
árinu 2017 eða 447 alls og þá voru
þolendum brota greiddar rúmlega
294 milljónir kr. í bætur.
Á sjö ára tímabili eða frá 2012
hefur ríkið greitt rúmlega milljarð
eða samtals 1.081.391.389 kr. til
þolenda í bætur vegna alls 2.421
mála sem bárust á þessum árum,
skv. yfirliti sem fékkst hjá bóta-
nefnd vegna þolenda afbrota.
2017 var metár í fjölda mála
Fjöldi mála hefur sveiflast nokk-
uð í gegnum árin en veruleg fjölg-
un átti sér stað á seinustu tveimur
árum. Árið 2005 bárust 208 mál,
sem var met á þeim tíma. Á árinu
2017 bárust 447 mál sem er mesti
fjöldi sem borist hefur að sögn
Halldórs Þormars Halldórssonar,
ritara bótanefndar.
Hann segir að þar sem málin
berist oft bótanefnd á fyrstu stig-
um, komi bætur oft ekki fyrr en að
rannsókn og dómsmeðferð lokinni
sem kunni að vera tveimur árum
síðar eða enn lengur. Bætur sem
voru greiddar á síðasta ári eru því
mikið vegna mála sem bárust 2015
og 2016. Greiðsla bóta vegna 2017
og 2018 verður mest á næstu
tveimur til þremur árum. Hann
segir að ástæða þeirrar sérstæðu
fjölgunar mála sem átti sér stað á
síðustu tveimur árum sé ekki alveg
kunn.
Halldór bendir á í svari til
Morgunblaðsins að ríkissjóður hafi
allt frá árinu 1996 greitt skaðabæt-
ur til þolenda afbrota. Almennt séð
séu skilyrðin fyrir greiðslu bóta að
viðkomandi hafi orðið fyrir afbroti
sem varðar við almenn hegningar-
lög og brotið hafi verið framið inn-
an íslenskrar lögsögu. Þá er það
líka skilyrði að að minnsta kosti
annað hvort brotaþoli eða sá sem
fremur brotið sé búsettur á Íslandi
eða íslenskur ríkisborgari eða hafi
einhver tengsl við landið.
„Ef t.d. ferðamaður brýtur á
öðrum ferðamanni verða ekki
greiddar bætur. Sá sem verður
fyrir afbroti þarf ekki að kanna
fyrst hvort sá sem framdi brotið
getur eða vill greiða bæturnar,
heldur getur viðkomandi snúið sér
strax til ríkissjóðs og óskað eftir
greiðslu. Bætur af þessu tagi eru
greiddar í flestum ríkjum í vest-
rænum heimi,“ segir Halldór.
Fyrirkomulagið er mismunandi
á milli ríkja en þó eru nokkur at-
riði sem eru eins eða mjög svipuð
víðast hvar og að sögn Halldórs
var Ísland síðast af Norðurlönd-
unum til að taka upp þessa löggjöf,
eða árið 1996, en Svíar hafa t.d.
greitt bætur til þolenda afbrota
síðan 1972.
Oft erfitt að innheimta bætur
hjá afbrotamönnum
,,Rökin fyrir því að ríkið komi að
bótagreiðslum með þessum hætti
eru þau að brotaþoli verður oft
fyrir miklu tjóni af afbroti og sá
sem það fremur er ólíklegur til að
greiða bætur vegna þess tjóns sem
hann er valdur að. Þá getur verið
mjög erfitt fyrir brotaþola að inn-
heimta bætur frá einstaklingi sem
braut á honum,“ segir hann.
Bætur eru einkum greiddar
vegna ofbeldisbrota, þ.e. líkams-
árásar, manndráps, ólögmætrar
frelsissviptingar, kynferðisbrota og
svo framvegis, en t.d. ekki vegna
efnahagsbrota eða eignaspjalla, að
sögn Halldórs.
,,Þær bætur sem eru greiddar
eru miskabætur og bætur fyrir
líkamstjón, þ.m.t. varanlegt
líkamstjón (vegna örorku og
varanlegs miska). Það er bóta-
nefnd sem tekur ákvörðun í hverju
máli fyrir sig. Það er heimilt að
greiða bætur þrátt fyrir að brot sé
óupplýst, eða sá sem það framdi
finnist ekki vegna þess að hann sé
týndur eða farinn af landi brott,
eða ef sá sem fremur brotið er
ósakhæfur, hvort sem það er
vegna aldurs eða andlegra ann-
marka. Þegar sú staða er uppi er
enginn ákærður eða dæmdur og
því þarf bótanefndin að meta hvort
brot hefur verið framið eða ekki.
Skrifstofa nefndarinnar hefur
frá 1. ágúst 2006 verið á Siglufirði
og þangað ber að beina öllum um-
sóknum. Allur meginþorri um-
sókna kemur frá lögmönnum í um-
boði brotaþola, eða yfirleitt um
98-99% þeirra. Það er þó ekki nein
skylda að lögmaður sendi umsókn-
ina inn, heldur getur hvaða brota-
þoli sem er gert það. Það er um
1/3 þeirra mála sem eru afgreidd
sem er vegna óupplýstra brota,“
segir Halldór ennfremur í svari til
blaðsins við fyrirspurn um stöðu
þessara mála.
Bætur geta hæst verið átta
milljónir
Takmarkanir eru á því sem
ríkissjóður greiðir og að sögn Hall-
dórs þarf höfuðstóll bótakröfu að
vera að lágmarki 400.000 kr. til
þess að eitthvað verði greitt. Fram
til ársins 2009 var þessi fjárhæð
100.000, en var breytt í kjölfarið
vegna efnahagsástandsins.
Hann segir að það sé einnig há-
mark á því sem ríkissjóður greiðir,
sem eru þrjár milljónir og fimm
milljónir kr. vegna varanlegs
líkamstjóns. Hæsta fjárhæðin geti
því verið átta milljónir. Fram til
ársins 2012 voru hámarksgreiðslur
mun lægri að sögn Halldórs eða
600.000 kr. í miskabætur og 2,5
milljónir fyrir varanlegt líkams-
tjón.
,,Á þeim tíma var komin upp sú
staða að mjög stór hluti þeirra sem
urðu fyrir alvarlegum brotum fékk
dæmdar hærri fjárhæðir í miska-
bætur en 600.000 kr. og var því
stór hluti tjóns þeirra óbættur. Nú
eru aðeins í fáeinum tilvikum
dæmdar hærri bætur en hámarki
nemur. Þessar hámarksfjárhæðir
bóta eru mun lægri hér á landi en
víða annarsstaðar, þótt það sé alls
ekki fortakslaust. Hámarksbætur í
Noregi eru t.d. 70-80 milljónir
króna og í Svíþjóð 20-30 milljónir
króna,“ segir Halldór.
Ýmis skilyrði eru sett fyrir því
að ríkissjóður greiði bætur, m.a. að
brot hafi verið kært án ástæðu-
lauss dráttar, gerð sé krafa um
skaðabætur úr hendi þess sem
brotið framdi og að umsókn um
bætur berist bótanefnd innan
tveggja ára frá því brotið var
framið. Víkja má frá þessum skil-
yrðum, sérstaklega þegar brota-
þolar eru börn, að sögn hans. Litið
hefur verið svo á að ástæðulaus
dráttur feli í sér sex mánaða frest.
Í Danmörku er hann 48 klukku-
stundir, en löggjöf þessa efnis í
Danmörku er mjög lík því sem er
hér á landi. Þar er þó ekkert þak á
bótunum, heldur ráðast hámarks-
bætur af ákvæðum dönsku skaða-
bótalaganna. Þessi tveggja ára
frestur er víðast hvar í lögum, þótt
útfærslan sé ekki alltaf sú sama,
að sögn Halldórs.
Rúmur milljarður í bætur á 7 árum
Bótanefnd ríkisins sem ákveður bætur til þolenda afbrota fékk 873 mál á seinustu tveimur árum
Mikil fjölgun bótamála vegna líkamstjóns og miska þolenda ofbeldisbrota á árunum 2017 og 2018
Morgunblaðið/ÞÖK
Ofbeldi Bætur eru greiddar fyrir líkamstjón og miska þolenda ofbeldisbrota,
s.s. vegna líkamsárása, manndráps og kynferðisbrota. Myndin er sviðsett.
Skaðabætur til þolenda afbrota 2012-2018
Fjöldi mála og fjárhæðir
Ár Fjöldi mála Fjárhæð
2012 264 92.406.628 kr.
2013 362 95.910.975 kr.
2014 338 188.317.603 kr.
2015 291 155.361.739 kr.
2016 293 138.986.099 kr.
2017 447 294.347.838 kr.
2018 426 116.060.507 kr.
Heimild: Bótanefnd vegna þolenda afbrota
Aukin flokkun úrgangs mun hafa al-
gjöran forgang í starfi sveitarfélaga
á Suðurlandi næstu mánuði, sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá Sorp-
stöð Suðurlands. Segir þar að vönd-
uð flokkun sé forsenda þess að hægt
sé að lágmarka magn og kostnað
vegna úrgangs sem senda þarf utan
til brennslu en vonir standa til að
hægt verði að hefja útflutning sorps
frá Suðurlandi í sumarbyrjun.
Í fréttatilkynningunni kemur
fram að í framhaldi af því að Sorpa
hafnaði beiðni Sorpstöðvar Suður-
lands um tímabundna móttöku úr-
gangs til urðunar í Álfsnesi sé undir-
búningur fyrir útflutning brennan-
legs úrgangs kominn í fullan gang.
„Þessi breytta staða gerir það að
verkum að nú verður enn mikilvæg-
ara en fyrr að úrgangur frá heim-
ilum og fyrirtækjum á svæðinu verði
flokkaður eins mikið og hægt er og
komið í endurvinnslu,“ segir í til-
kynningunni.
Þá segir að Gámaþjónustan og Ís-
lenska gámafélagið séu nú að koma
sér upp pökkunarvélum og öðrum
búnaði til þess að gera sorpið út-
flutningshæft auk þess sem þau séu
að útvega þau leyfi sem þurfi til þess
að flytja sorpið út. Tekið er fram að
endanlegar kostnaðartölur vegna út-
flutnings sorps frá Suðurlandi liggi
ekki fyrir, en að ljóst sé að þessi til-
högun hafi aukinn kostnað í för með
sér. Vönduð flokkun sé lykilforsenda
til að halda kostnaðinum í lágmarki.
„Það er von stjórnar Sorpstöðvar
Suðurlands og sveitarstjórna á
svæðinu að íbúar, fyrirtæki og sum-
arhúsaeigendur á svæðinu bregðist
vel við ákalli um aukna flokkun úr-
gangs og stuðli þannig að betri nýt-
ingu auðlinda og lækkun kostnaðar
sem annars lendir á íbúum, fyrir-
tækjum, sumarhúsaeigendum og
sveitarfélögum,“ segir að lokum.
Sunnlendingum
sagt að flokka
Sorpútflutingur gæti hafist í sumarbyrjun
Sorp Sunnlendingar eru hvattir til
að flokka úrgang betur á næstunni.