Morgunblaðið - 28.01.2019, Page 14
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hér um bil alls staðar var sagan sú
sama í janúar. Jafnt í Sjanghaí,
Frankfúrt, New York og São Paulo
ruku hlutabréfavísitölurnar upp
með látum. Viðsnúningurinn var
ekki síst áberandi í Bandaríkjunum,
þar sem verð hlutabréfa hafði fikr-
ast svo langt niður á við seinni
hluta síðasta árs að stóru hluta-
bréfavísitölurnar þrjár römbuðu á
barmi dumbungsmarkaðar.
Virðist eins og markaðurinn hafi
náð að spyrna sér frá botninum og
hefur t.d. Dow Jones-vísitalan
hækkað í fimm vikur í röð. Sam-
kvæmt mælingum S&P hefur hluta-
bréfaverð á heimsvísu hækkað sam-
tals um rösklega 3.000 milljarða
dala í mánuðinum, en lækkaði á síð-
asta ári um 6.800 milljarða.
Keyptu á góðu verði
Markaðsgreinendur nefna ýmsar
ástæður fyrir því að verð hlutabréfa
tók nýja stefnu. Virðast t.d. sumir
fjárfestar binda vonir við að Seðla-
banki Bandaríkjanna muni hægja á
hækkun stýrivaxta, og að takist að
finna farsæla lausn á viðskiptadeil-
um Bandaríkjanna og Kína.
En WSJ bendir á að uppsveiflan í
janúar sé ekki endilega vegna þess
að horfurnar hafi batnað, heldur
stafi af því að fjárfestar hafi ein-
faldlega sætt færis og keypt hluta-
bréf á góðu verði eftir mikla lækk-
un í desember. Veruleikinn í
atvinnulífinu sé enn sá sami og hag-
tölur héðan og þaðan bendi áfram
til þess að tekið sé að hægja á al-
þjóðahagkerfinu.
Himnarnir eru ekki að hrynja en
bæði í Evrópu, Bandaríkjunum og
Kína er eins og kröftugasti
spretturinn sé að baki.
Finna t.d. mörg bandarísk iðn-
fyrirtæki greinilega fyrir tolla-
stríðinu við Kína, og sjá líka fram á
að hægari hagvöxtur þar í landi
muni hafa neikvæð áhrif á þá við-
skiptamöguleika sem þeim eiga eft-
ir að bjóðast í framtíðinni.
Viðburðarík vika fram undan
Þeir sem leita vísbendinga um
hvert markaðurinn mun stefna á
árinu eiga von á óvenjutíðindasamri
viku. Þannig verður haldinn vaxta-
ákvörðunarfundur hjá Seðlabanka
Bandaríkjanna, birtar nýjar tölur
um þróun bandaríska vinnumark-
aðarins, og samningafundur haldinn
í viðskiptadeilu Kína og BNA. Ekki
nóg með það heldur munu m.a.
Apple, Amazon, Microsoft, Face-
book og Tesla birta ársfjórðungs-
uppgjör sín.
Ef litið er til sögulegrar þróunar
markaðarins ætti ekki að reikna
með að uppsveiflan í janúar gefi
tóninn fyrir allt árið. Hefur það alla
jafna tekið S&P 500-vísitöluna um
63 mánuði að ná nýjum toppi eftir
meira en 20% lækkun.
Hækkanir janúar gefa ekki
endilega tóninn fyrir árið
AFP
Tíðindavika Von er á flóði vaxtaákvarðana og ársfjórðungsuppgjöra í Bandaríkjunum í vikunni. Frá NYSE.
Hlutabréfamarkaðir víða um heim voru á mikilli siglingu á fyrsta mánuði ársins
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Li Keqiang, for-
sætisráðherra
Kína, segir stjórn-
völd vera þess
fullviss að takast
muni að viðhalda
góðu hagvaxtar-
stigi á þessu ári,
þrátt fyrir fjöl-
margar áskoranir
og áhættuþætti.
Reuters greinir frá þessu en ummæl-
in lét Li falla á föstudag þegar hann
ávarpaði samkomu erlendra sér-
fræðinga sem starfa í Kína. Ríkis-
fréttastofan Xinhua greindi fyrst
frá.
Sagði Li að hagkerfi Kína byggi
yfir mikilli þrautseigju og getu. Full-
yrti hann að heilmikið svigrúm væri
fyrir hagkerfið til að vaxa áfram
enda innanlandsmarkaður Kína risa-
stór og enginn hörgull á vinnuafli
hjá nær 1,4 milljarða manna þjóð.
Nýlega voru birtar tölur sem sýna
að hagvöxtur í Kína mældist 6,6% ár-
ið 2018 og hefur ekki verið minni síð-
an 1990. Skoðanakönnun Reuters
bendir til að hagfræðingar vænti
þess að hagvöxtur í Kína fari niður í
6,3% á þessu ári. ai@mbl.is
Segir von á
„viðunandi“
hagvexti
Li Keqiang
Matsfyrirtækið S&P Global Ratings
áætlar að bandaríska hagkerfið hafi
tapað að lágmarki 6 milljörðum dala
undanfarinn mánuð vegna lokunar
ríkisstofnana þar í landi. Stafar tapið
bæði af því að vinnuframlag stórs
hóps ríkisstarfsmanna fór í súginn
sem og af þeim áhrifum sem skert
þjónusta stofnana hafði á fyrirtæki.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
tilkynnti á föstudag að hann myndi
gera tímabundið hlé á lokuninni sem
þá hafði varað í 35 daga. Eins og
greint hefur verið frá neitar Trump
að samþykkja fjárheimildir til opin-
berra stofnana þar til þingið hefur
samþykkt að láta
5,7 milljarða dala
af hendi rakna til
að reisa vegg á
landamærunum
að Mexíkó.
Reuters hefur
eftir S&P að þó
svo að ríkisstofn-
anir verði opn-
aðar að nýju virð-
ist fátt benda til
að Trump og leiðtogar þingsins
komist að samkomulagi, og líklegt
að fyrirtæki og fjárfestar haldi að
sér höndum á meðan. ai@mbl.is
Lokun ríkisstofnana kost-
aði a.m.k. 6 milljarða dala
Donald
Trump
Ítölsk stjórnvöld hafa gert Kering
SA, móðurfélagi Gucci, að greiða 1,4
milljarða evra í skatt af hagnaði
tískufyrirtæksins á árunum 2011 til
2017. Rekstur Gucci hefur gengið
mjög vel undanfarin ár og á Kering
að hafa beint hagnaðinum af starf-
seminni til dótturfélagsins Luxury
Goods International í Sviss, enda
leggja Svisslendingar töluvert lægri
skatta á fyrirtæki. Segir skattstjóri
Ítalíu að hagnaður Gucci hafi orðið
til á Ítalíu og eigi því að greiða af
honum skatt þar í landi. Að sögn
WSJ hefur Kering mótmælt ákvörð-
un skattstjórans.
Ítölsk skattyfirvöld hafa haft fleiri
tískurisa í sigtinu að undanförnu.
Þannig sætti Giorgio Armani skatt-
rannsókn, sem og hjónin Miuccia
Prada og Patrizio Bertelli, eigendur
Prada-veldisins. Eins voru hönn-
uðirnir Domenico Dolce og Stefano
Gabbana á sínum tíma dæmdir til 20
mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa
notað félag í Lúxemborg til að lág-
marka skattbyrði sína en hæstirétt-
ur Ítalíu ógilti þann dóm. ai@mbl.is
Eigendur Gucci fá
risareikning frá Ítalíu
28. janúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.44 120.02 119.73
Sterlingspund 156.08 156.84 156.46
Kanadadalur 89.57 90.09 89.83
Dönsk króna 18.121 18.227 18.174
Norsk króna 13.939 14.021 13.98
Sænsk króna 13.151 13.229 13.19
Svissn. franki 119.89 120.55 120.22
Japanskt jen 1.087 1.0934 1.0902
SDR 166.15 167.15 166.65
Evra 135.32 136.08 135.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.0571
Hrávöruverð
Gull 1279.75 ($/únsa)
Ál 1850.0 ($/tonn) LME
Hráolía 61.13 ($/fatið) Brent