Morgunblaðið - 28.01.2019, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Nicolas Maduro, forseti Venesúela,
hafnaði í gær kröfum nokkurra Evr-
ópuríkja um að boða til forsetakosn-
inga, en Spánn, Bretland, Frakk-
land, Holland og Þýskaland kröfðust
þess öll á laugardaginn að Maduro
myndi boða til kosninga innan næstu
átta daga. Yrði hann ekki við því,
myndu þau viðurkenna embættis-
töku Juan Guaido, leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, en hann lýsti því yfir í
síðustu viku að hann væri starfandi
forseti landsins samkvæmt stjórnar-
skrá, þar sem síðustu forsetakosn-
ingar hefðu verið ólöglegar.
„Venesúela er ekki bundin Evr-
ópu. Þetta er algjör móðgun,“ sagði
Maduro í viðtali við CNN Türk,
tyrkneska anga CNN-fréttastofunn-
ar, í gær. Sakaði Maduro Bandaríkin
um að standa að valdaráni í landi
sínu, og bætti við að Guaido væri að
sínu mati að brjóta stjórnarskrána.
„Allt sem er að gerast tengist
Bandaríkjunum. Þau eru að ráðast á
okkur og halda að Venesúela sé bak-
garðurinn þeirra,“ sagði Maduro
meðal annars.
Leitar eftir stuðningi hersins
Guaido tók þátt í sérstakri messu í
gær þar sem þeirra 29 sem létust í
mótmælum í síðustu viku var minnst.
Ítrekaði Guaido þar boð sitt og þjóð-
þings landsins um sakaruppgjöf fyr-
ir þá hermenn sem afneituðu stjórn
Maduros. Er boðið liður í tilraunum
Guaidos til þess að fá herinn á sitt
band, en yfirstjórn hans hefur til
þessa stutt við bakið á Maduro.
Maduro tók þátt í heræfingu síð-
degis og skokkaði nokkurn spöl áður
en hann hélt ræðu þar sem hann
lofaði hermenn sína fyrir að vera
tryggir og trúir réttkjörnum yfir-
völdum.
Tekist á í öryggisráðinu
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði um málefni Venesúela á
laugardaginn. Mike Pompeo, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði
þar að stjórn Maduro væri hluti af
„ólögmætu mafíuríki“ sem bæri
ábyrgð á efnahagslegu hruni lands-
ins. Kallaði hann eftir því að ríki
heims hættu viðskiptum sínum við
ríkisstjórn Maduros og sakaði Rússa
og Kínverja um að halda uppi stjórn
sem hefði brugðist, í þeirri von að
með því gætu stórveldin endurheimt
eitthvað af fjárfestingum sínum í
Venesúela.
Vassilí Nebenzía, fulltrúi Rúss-
lands í öryggisráðinu sakaði Banda-
ríkjamenn á móti um ólögmæt af-
skipti af innanríkismálum
Venesúela. „Fyrirætlun Bandaríkj-
anna er að stuðla að valdaráni,“ sagði
hann. Dmitrí Peskov, talsmaður
Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta,
hafnaði hins vegar í gær fregnum um
að 400 rússneskir málaliðar væru nú
í lífvarðarsveit Maduros.
Sendiráðinu ekki lokað enn
Þá rann út á laugardaginn frestur
sem Maduro hafði gefið bandaríska
sendiráðinu í Caracas til þess að loka
dyrum sínum. Stjórnvöld í Wash-
ington segjast hins vegar ekki munu
hlýða þeirri tilskipan, þar sem hún
hafi ekki komið frá réttmætum for-
seta. Vöruðu þau jafnframt við að ef
Maduro reyndi að beita sendiráðið,
Guaido eða stjórnarandstöðuna of-
beldi yrði því svarað.
Boðar ekki til kosninga
Maduro hafnar kröfum Evrópuríkjanna og sakar Bandaríkin um tilraun til
valdaráns Guaido heitir hermönnum sakaruppgjöf í skiptum fyrir stuðning
AFP
Venesúela Juan Guaido, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, horfir hér á
Fabiönu eiginkonu sína eftir messu sem haldin var til minningar um þá sem
féllu í mótmælum gegn ríkisstjórn Nicolas Maduro í síðustu viku.
Rúmlega 10.000 manns gengu fylktu liði um götur Par-
ísarborgar í gær til þess að mótmæla framgöngu „gulu
vestanna“ svonefndu í mótmælum síðustu vikna. Gekk
fólkið um með borða þar sem þess var krafist að ofbeld-
ið yrði stöðvað. Þá heyrðust slagorð á borð við „Já við
lýðræði, nei við byltingu“. Mótmælin gegn gulu vest-
unum eru kennd við rauða trefla, og skörtuðu margir
göngumanna slíkum flíkum á göngu sinni um París.
AFP
Um 10.000 manns mótmæltu „gulu vestunum“ í París
Rauðir treflar gegn gulum vestum
Stjórnvöld í Þýskalandi og Rúss-
landi tilkynntu í gær að Þjóðverjar
ætluðu að borga 12 milljónir evra
til fólks sem lifði af umsátur Þjóð-
verja um borgina Leníngrad. Þess
var minnst í gær að 75 ár voru liðin
frá því að umsátrinu var hrundið,
en fleiri en 800.000 manns létust á
meðan því stóð.
Um 86.000 manns sem lifðu um-
sátrið búa nú í borginni, sem í dag
nefnist St. Pétursborg. Lásu Heiko
Maas og Sergei Lavrov, utanríkis-
ráðherrar þjóðanna, upp sameigin-
lega yfirlýsingu um ákvörðun
þýsku ríkisstjórnarinnar.
Vegleg hátíðahöld voru í St. Pét-
ursborg í tilefni dagsins og hrósaði
Vladimír Pútín íbúum borgarinnar
fyrir þann baráttuanda sem þeir
hefðu sýnt meðan á umsátrinu stóð.
Þá var einnig haldin hersýning í
miðbænum, en Pútín ákvað að
sækja hana ekki, heldur færði hann
blómvönd að minnismerki um um-
sátrið meðan á sýningunni stóð.
Umsátrið hófst 8. september
1941 og lauk ekki fyrr en 872 dög-
um síðar, hinn 27. janúar 1944.
Borga fórnarlömb-
um umsátursins
RÚSSLAND
AFP
Hersýning Endaloka umsátursins var
minnst með ýmsum hætti í gær.
Að minnsta kosti átján manns létust
og fjöldi særðist þegar tvær
sprengjur sprungu með stuttu milli-
bili í kaþólskri kirkju á eyjunni Jolo,
sem er sunnarlega á Filippseyjum.
Ríki íslams lýsti yfir ábyrgð sinni á
ódæðinu, en Frans páfi fordæmdi of-
beldi gegn kristnum mönnum í kjöl-
far þess.
Hryðjuverkið í gær er eitt hið
mannskæðasta sem skekið hefur
Filippseyjar á undanförnum árum.
Íslamskir vígamenn hafa haft sig í
frammi undanfarin ár, en fólk sem
aðhyllist íslam er fjölmennt sunnar-
lega á Filipps-
eyjum, sem ann-
ars eru að mestu
leyti kaþólskt
land.
Einungis er lið-
in vika frá at-
kvæðagreiðslu
sem gaf Jolo og
nærliggjandi eyj-
um aukna sjálfs-
stjórn, en vonin var að með því
myndi takast að koma til móts við
sjónarmið íslamskra aðskilnaðar-
sinna.
Frans páfi, sem var í opinberri
heimsókn í Panama, fordæmdi
hryðjuverkið og harmaði það að enn
einu sinni hefði hinu kristna sam-
félagi verið steypt í sorg.
Angelito Lampon, biskup á Fil-
ippseyjum, sagði við AFP-frétta-
stofuna að árásir á þessa tilteknu
kirkju væru ekki óalgengar, en að
engin þeirra hefði verið eins mann-
skæð og nú. Hétu stjórnvöld á Fil-
ippseyjum því að þau myndu finna
þá sem bæru ábyrgð á hryðjuverk-
inu og láta þá svara til saka.
sgs@mbl.is
Átján látnir eftir sprengingu
Frans páfi
Ríki íslams lýsir yfir ábyrgð á hryðjuverki á Filippseyjum