Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 ✝ Gunnar Ingi-bergsson fæddist í Reykja- vík 4. október 1933. Foreldrar hans voru Ingi- bergur Runólfs- son, f. 30. maí 1896, d. 20. októ- ber 1981, og Sig- ríður Olga Krist- jánsdóttir, f. 22. desember 1896, d. 18. desember 1967. Gunnar var yngstur sex systkinna: Kristín, f. 14. októ- ber 1917, d. 16. september 2012. Ragnhildur, f. 15. apríl 1923, d. 1. september 2013. Þórdís, f. 27. ágúst 1924, d. 3. júlí 2015. Helga, f. 12. desem- ber 1925, d. 20. júli 2007. Ás- Börn þeirra eru Bára, Brynja og Björk. Gunnar ólst upp í Reykja- vík. Hann lærði húsgagna- smíði við Iðnskólann í Reykja- vík og lauk þar námi 1953. Hann fór síðan til Danmerkur og nam innanhús- og hús- gagnaarkitektúr í Kunst- håndværkerskolen í Kaup- mannahöfn. Að loknu námi starfaði hann hjá Sveini Kjar- val innanhúsarkitekt og fór síðan að vinna hjá Húsameist- ara ríkisins. Samhliða þeirri vinnu vann hann mikið sjálf- stætt og stofnaði eigin arki- tektastofu sem hann rak til ársins 1978. Þá fór hann aftur til Húsameistara ríkisins. Árið 1989 hóf hann störf hjá Al- þingi sem deildarstjóri fast- eigna- og húsbúnaðardeildar og sinnti því starfi þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Útför Gunnars fer fram frá Neskirkju í dag, 28. janúar 2019, klukkan 13. geir, f. 17. janúar 1928, d. 18. nóvember 2009. Eftirlifandi eiginkona Gunn- ars er Eva Jó- hannsdóttir, f. 24. febrúar 1934. Börn þeirra eru Bjarki, f. 9. apríl 1964, giftur Ólöfu Ragnhildi Sigurð- ardóttur, börn þeirra eru Eva Björt, Marinó Bessi og Rakel Hulda, fyrir á Ólöf Jóhönnu Vilborgu. Hel- ena, f. 9. apríl 1964, gift Bene- dikt Á. Guðmundssyni, börn þeirra eru Gunnar og Signý. Fyrir á Benedikt, Guðmund Snorra. Marta, f. 31. júlí 1970, gift Sæmundi Sævarssyni. Elsku pabbi, við kveðjum þig með miklum söknuði og erum þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum með þér. Pabbi var einstakur maður með stórt hjarta og hafði góða nærveru. Hjá honum voru allir jafnir og þannig ólumst við upp. Hann var ætíð tilbúinn að hlusta á okkar sjónarmið og leyfði okk- ur oftar en ekki að taka þátt í sínum störfum, t.d. þegar hann var að stilla upp fyrir sýningar, innrétta DAS húsin, smíða sum- arbústaðinn og fleira. Alltaf var pabbi til staðar fyrir okkur og hvatti okkur áfram í þeim verkefnum sem við tókum okkur fyrir hendur. Hann var alltaf tilbúinn að eyða tíma með okkur og var með eindæmum hugmyndaríkur hvort sem það var að baka með okkur úr brauð- afgöngum þegar mamma var að vinna, útbúa rúm úr Sinalco- kössum, breyta reiðhjóli í snjó- sleða eða þræða búðir með okkur til að finna frumlegustu stígvélin í bænum. Pabbi var mikill handverks- maður og þegar við systkinin stóðum í einhverjum fram- kvæmdum var hann mættur fyrstur á svæðið, í vinnufötunum. Þar var hann okkar stoð og stytta, hvort sem það var að hanna, skipuleggja eða fram- kvæma verkið og þannig var hann með okkur alveg fram á síðasta dag. Pabbi var mikill skíðamaður og kenndi okkur snemma að meta skíðaíþróttina. Við fórum ótalmargar skíðaferð- ir með honum í Jósefsdal, Skál- fell og Bláfjöll og þá skipti oft ekki máli hvort lyftur voru opnar eða ekki. Enn í dag er þetta sam- eiginlegt fjölskyldusport okkar allra. Það er ekki hægt að minnast pabba án þess að nefna sumar- bústaðinn, en þar byggði hann sína draumahöll, Sumó. Þær minningar sem við eigum þaðan eru ómetanlegar, pabbi sitjandi að skara eldinn, í vinnufötum að smíða eða laga eitthvað og í huga pabba var alltaf sól í Sumó. Sumarbústaðurinn átti hug hans allan og þar naut hann sín í faðmi fjölskyldunnar. Þar áttum við óteljandi stundir öll saman og alltaf virtist nóg pláss fyrir nýja fjölskyldumeðlimi í þessum fáu fermetrum. Að lokum viljum við þakka þér, elsku pabbi, fyrir þá ein- stöku hlýju sem þú umvafðir okkur og fjölskyldu okkar fram á síðasta dag. Minning þín lifir. Bjarki, Helena og Marta. Elsku Gunnar, tengdafaðir minn. Það er óraunverulegt að núna sé komið að kveðjustund, en ég er lánsöm að eiga góðar minn- ingar og að hafa fengið að kynn- ast ykkur Evu og allri fjölskyld- unni. Það er mér enn í dag ljóslifandi þegar ég hitti ykkur fjölskylduna í fyrsta skipti á sól- ríkum sumardegi í fallega sum- arbústaðnum ykkar í Grímsnesi. Tekið var á móti okkur mæðgum eins og við hefðum alltaf verið hluti af fjölskyldunni. Jóhanna var þá fimm ára og genguð þið Eva henni um leið í afa og ömmu stað. Upp frá því átti hún eftir að eyða mörgum dögum með ykkur á uppáhalds stað fjölskyldunnar, í sumó þar sem fjölskyldan hefur átt ómetanlegan tíma saman. Það voru ekki páskar nema að fara í sumó og öll stórfjölskyldan saman, enda mikill fjölskyldu- maður og samheldni í fjölskyld- unni skipti þig og Evu miklu máli. Þú varst góður afi og ákaf- lega stoltur af barnabörnunum og barnabarnabörnunum. Eftir sitja góðar minningar sem börn- in og við foreldrarnir höfum gaman af að rifja upp og eru þá nefnd lögin sem þú söngst með krökkunum, sögurnar sem þú sagðir þeim og svo uppátækin sem voru mörg og þú hafðir gaman af. Alltaf varstu tilbúinn til þess að taka þátt í þeim verkefnum sem fjölskyldan tók sér fyrir hendur og sýndir því mikinn áhuga. Við nutum góðs af því hversu handlaginn þú varst og af þekkingu þinni í hönnun enda innanhússarkitekt að mennt. Þú varst mikill fagurkeri og það endurspeglaðist í þeim verk- um sem þú tókst þér fyrir hend- ur og þar kom rennibekkurinn við sögu eftir að þú komst á ald- ur, þar naust þú þín vel og gerðir fallega hluti sem prýða heimili okkar. Eitt af því fyrsta sem þú gerð- ir eftir að ég kom inn í fjölskyld- una var að kenna mér á skíði sem ég er svo óendanlega þakk- lát fyrir. Enda mikill skíðamaður frá unga aldri og skíðaáhugi þinn hefur endurspeglast hjá afkom- endunum sem öll eru skíða- iðkendur í dag. Elsku Gunnar minn, ég kveð þig og vil þakka þér fyrir allar samverustundirnar sem við átt- um saman. Þín mun verða sárt saknað en minning þín mun lifa. Guð blessi þig. Þín tengdadóttir Ólöf. Eftir um 30 ára kynni af Gunnari tengdaföður mínum, kveð ég hann með þökk fyrir allt. Gunnar og Eva tóku einstak- lega vel á móti mér þegar ég kom inn í fjölskylduna. Með okk- ur Gunnari tókst afar góður vin- skapur. Hann hjálpaði okkur Mörtu að innrétta okkar fyrstu íbúð sem var rétt rúmlega fok- held. Eftir á að hyggja var þetta þolinmæðisverk fyrir Gunnar þar sem strákurinn var jú bara rétt rúmlega tvítugur og kunni nú ekki til allra verka, en með góðri leiðsögn tókst það. Honum var mikið í mun að við fyndum út hvernig við vildum hafa hlutina en ekki bara segja okkur til sem hefði verið auð- veldast fyrir hann. Góðar minningar á ég um okk- ur þegar við hittumst stundum í hádeginu til að skauta á Tjörn- inni, fórum í Kerlingarfjöll á skíði, snjósleðaferðir, göngu- skíði, jeppaferðir og svo náttúru- lega í bústaðinn. En þar undi hann sér best við að byggja hann upp, viðhalda og gróðursetja. Það tók mig næstum 10 ár að fá hann til að aka Vesturlandsveg norður til Akureyrar í stað þess að keyra austur yfir Hellisheiði í Grímsnesið. Hann var sáttur við ferðina en hafði á orði að þetta væri býsna löng leið miðað við að fara upp í bústað. Gunnar var mikill græjukall og hafði einstakan áhuga á tækj- um og tólum í eldhúsið, sem erf- itt er að skilja þar sem kunnátta hans í eldhúsinu takmarkaðist við að sjóða pylsur. Á heimili þeirra var til brauðvél, kartöflu- skrælari (rafmagns) og eggja- suðutæki svo eitthvað sé nefnt. Síðustu ár höfum við ferðast mikið saman til Ungverjalands eftir að hann og Eva eignuðust þar íbúð og eins og í bústaðnum leið honum alltaf best ef sem flestir úr fjölskyldunni voru í kringum hann. Gunnar átti góða og hamingjuríka ævi og er hægt að óska sér einhvers betra? Farðu í friði, kæri vinur. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margt að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Sæmundur. Elsku afi okkar. Við finnum fyrir mikilli sorg á þessum tímum en það gleður okkur að hugsa um hvað þú varst góðhjartaður og hlýr. Það var alltaf jafn gaman að koma niður á Unnarbraut og heim- sækja þig og ömmu, amma að baka lummur og þú að spjalla við okkur á meðan. Eitt af mörgu sem þú hefur kennt okkur er að samgleðjast öðrum og þú vildir alltaf öllum það besta. Það var alltaf fjör í kringum þig og þú varst einstaklega lag- inn við að gleðja alla. Eins og þegar þú sagðir okkur að það þyrfti að hringja í kallinn í hlið- inu, við sumó og við trúðum þér í langan tíma að það væri kall sem þyrfti að opna hliðið í hvert skipti sem maður kom að því. Þú varst alltaf góður í að redda hlutunum og varst ekki mikið fyrir vesen, eins og þegar við vorum í Ungverjalandi í flottu óþægilegu skónum. Þá varst þú nú ekki lengi að leysa það vandamál og keyptir bara innlegg í skóna til að laga þá svo hægt væri að halda áfram með daginn. Elsku besti afi, takk fyrir allar þær góðu minningar sem þú hef- ur gefið okkur og við eigum allt- af eftir að muna. Við munum allt- af sakna þín en vitum að þú ert með okkur og að fylgjast með. Góða skemmtun í ferðalaginu þínu. Bless, elsku afi. Þínar afastelpur, Bára, Brynja og Björk Sæmundsdætur. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég kom í heimsókn og við fórum beint út í bílskúr til afa. Þar var hann að vinna við að búa til hluti í rennibekknum sínum, alveg kominn í sinn eigin heim. Það var auðvelt að detta inn í þann heim með honum. Það var ekki hægt að fá leiða á því að horfa á hann vinna og hann kenndi mér margt um hitt og þetta. Ég fór heldur aldrei tóm- hent heim eftir að hafa setið með honum í bílskúrnum að vinna. Afi var þannig maður að hann heillaðist af því sem hann vann að og líka af því sem við gerðum. Honum fannst ekkert skemmti- legra en að sjá eða vita hvað við vorum að gera. Hann hvatti okk- ur alltaf áfram í því sem við vor- um að gera. Afi var stoltur mað- ur og hann var líka stoltur af okkur öllum. Afi var líka maður með sínar brellur, hann reddaði einhvern veginn öllu og sá aldrei hlutina sem flókna, hann fann sínar leiðir til að leysa það sem þurfti. Elsku afi, takk fyrir allar þær minningar sem þú gafst mér. Ég mun alltaf muna eftir þeim. Þín, Rakel. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til afa og ömmu og gista hjá þeim þegar ég var lítill. Einu sinni þegar ég var yngri og var í heimsókn í nýjum buxum, þá sagði afi við mig: „Marinó, fötin klæða suma, en þú klæðir fötin“ ég mun aldrei gleyma þessu hrósi, það hefur fylgt mér öll þessi ár og mun halda áfram að gera það. Ég man líka hvað afi elskaði sumó mikið, sérstaklega þegar öll fjöl- skyldan var þar yfir helgi. Ég minnist afa þar sem hann sat við kamínuna og bætti eldiviði í ofn- inn til að passa upp á að halda hita í húsinu, svona var afi alltaf að passa upp á að öllum liði vel og vildi hafa það notalegt. Afi var mikill dundari og fann sér nóg að gera í bústaðnum og ég fékk að vera þátttakandi í því sem hann var að gera. Mér fannst alltaf gott að sjá afa og ömmu þegar þau komu á tón- leika hjá mér og hlustuðu á mig spila á gítarinn. Afi var stoltur af því sem ég gerði og hrósaði óspart. Ef ég get verið hálfur maðurinn sem hann var, þá verð ég á grænni grein. Elsku afi minn, takk fyrir all- ar góðu stundirnar og minning þín mun lifa. Mér þykir svo vænt um þig. Hvíldu í friði. Þinn, Marinó Bessi. Elsku afi, Það er erfitt að hugsa til þess að nú sé kominn tími til þess að kveðja, því þú varst ekki bara afi minn, þú varst miklu meira en það, þú varst vinur minn. Ég hugsa oft til þess hvað ég var ótrúlega heppin að hafa alist upp á hæð- inni fyrir ofan ykkur ömmu, það gerði lífið og tilveruna miklu skemmtilegri. Þú varst alltaf til staðar og fylgdist með því sem ég gerði af miklum áhuga. Sama hvað það var sem ég tók mér fyrir hendur. Ég man hvað mér fannst gaman að hlaupa niður og sýna þér þeg- ar ég keypti mér eitthvað fallegt, þú sýndir því alltaf áhuga. Þú varst alltaf að gera eitt- hvað sniðugt, eins og dúkkuhúsið sem þú bjóst til. Þetta er falleg- asta dúkkuhús sem ég hef séð og lengi vel var það jafn stórt ef ekki stærra en ég. Síðan fékkst þú hugmyndina að gera það stærra, þannig að við límdum spegil inn í húsið svo það leit út fyrir að vera ennþá stærra en það var. Það var líka notalegt að kíkja niður og spjalla, við spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Mér fannst alltaf skemmtilegt þegar þú sagðir mér sniðugar sögur frá því þegar þú varst lítill, eftirminnileg saga sem þú sagðir mér var þegar þú skrópaðir í skólanum og fórst á skauta á tjörninni og veifaðir síðan til kennarans þegar hann leit út um gluggann. Ég sakna þess mest af öllu að kíkja niður til þín og ömmu á kvöldin og spjalla og fá okkur ávaxtadjús. Það voru mínar uppáhaldsstundir, að sitja niðri, spjalla og drekka djús. Dagurinn var ekki búinn fyrr en við vorum búin að fá okkur djús, djúsinn sem var, eins og við sögðum allt- af, „betri í dag en í gær“. Núna er víst kominn tími til þess að kveðja og það er ótrú- lega erfitt að hugsa til þess. En ég er líka svo þakklát fyrir allar samverustundirnar sem við átt- um og ég mun geyma þessar minningar í hjarta mínu alla ævi. Ég veit samt að einn daginn munum við hittast aftur og þá fáum við okkur djús og tökum gott spjall, en þangað til lofa ég að passa upp á ömmu. Bless, Gunnar Ingibergsson Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag. Nú er hún Stella farin í sína hinstu för, ferðina sem við öll förum þegar okkar tími kemur. Við kveðjum hana með virðingu, þakklæti og söknuði. Stella var kennari við Öldu- túnsskóla í Hafnarfirði nær all- an sinn starfsaldur, meira en hálfa öld. Hún var virt og vel liðin af öllum, nemendum sem samstarfsfólki, laginn og þolin- Sigríður Ingibjörg Þorgeirsdóttir ✝ Sigríður Ingi-björg Þorgeirs- dóttir fæddist 29. júlí 1937. Hún lést 28. desember 2018. Útför Sigríðar fór fram 8. janúar 2019. móður kennari, frá- bær íslenskumann- eskja, sem gott var að leita til með margs konar álita- mál. Auk þess var hún vel skáldmælt og lifa mörg ljóða hennar og texta, sem hún samdi fyr- ir kórinn í skólan- um okkar og bera smekkvísi hennar og hæfileikum fagurt vitni. Stella var andlega leitandi og næm, var á árum áður virk í Guðspekifélaginu og Samfrí- múrarareglunni og trúði einlæg- lega á mátt bænarinnar. Fyrir aldarfjórðungi stofnuðum við fjórar konur í Öldutúnsskóla bænahring og smám saman bættust aðrar fjórar í hópinn. Lengst af hittumst við vikulega heima hjá Stellu á litla notalega heimilinu hennar að Öldutúni 7. En allar helgar og öll sumur var hún heima á Hæringsstöð- um, þar sem hjarta hennar sló og ræturnar lágu. Aðstoðaði hún foreldra sína og síðar bróður við bústörfin, óþreytandi að annast blessaðar skepnurnar. Síðustu árin voru Stellu erfið sökum heilsubrests og dvaldi hún á sjúkrastofnunum og þráði það heitast að komast heim á bæinn sinn þó ekki væri nema í stutta heimsókn, en af því varð ekki. Nú er Stella laus við þján- ingar og fjötra líkamans og get- ur liðið frjáls um sína ástkæru átthaga. Við vottum Sólveigu systur hennar og öðrum að- standendum samúð. Guð blessi minningu Sigríðar Þorgeirs- dóttur. Edda, Guðrún A., Guð- rún G., Halla, Katrín, Kristín og Sigríður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.