Morgunblaðið - 28.01.2019, Síða 21
elsku afi, vinur, takk fyrir allt,
eins og við sögðum alltaf, takk
fyrir daginn, við sjáumst á morg-
un.
Minning um yndislegan afa
lifir.
Signý.
Ég kveð afa minn í hinsta sinn
og minningarnar streyma fram,
bæði frá æskuárunum og fram á
þennan dag. Það var yndislegt að
koma til afa og ömmu sama hvar
það var, á Unnarbrautinni, í
sumó eða í Ungverjalandi. Hlýja
brosið, innilegi hláturinn og
stríðnisglottið vantaði aldrei
þegar afi var nálægt. Hann átti
endalausar sögur bæði af sjálf-
um sér og öðrum sem einstakt
var að hlusta á. Ég man hvað það
var gaman að kíkja til hans í bíl-
skúrinn og sjá hvað hann var að
bardúsa, það var alltaf eitthvað
sem hann var að búa til. Upp í
sumó fannst honum skemmtileg-
ast að vera og ekki síst þegar öll
fjölskyldan var þar samankomin.
Minningarnar um hann fyrir
framan kamínuna að kynda hús-
ið, á traktornum að slá grasið
eða leika við barnabörnin eru
margar.
Elsku afi, ég er svo þakklát
fyrir að þú hafir verið hjá okkur
eins lengi og þú varst. Ég er svo
þakklát fyrir að hafa átt svona
einstakan, góðan og duglegan
afa eins og þig sem ég get kallað
fyrirmyndina mína.
Þegar ég hugsa til baka á ég
ótal minningar sem munu seint
gleymast, þær eru mér afar dýr-
mætar og mun ég geyma þær í
hjarta mínu alla ævi.
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt!
(Jónas Hallgrímsson)
Ég á alltaf eftir að sakna þín,
afi.
Þín,
Eva Björt.
Elsku Gunnar afi.
Það er mér þungbært að koma
orðunum frá mér á þessari
kveðjustund. Hugurinn fer
ósjálfrátt í ferðalag aftur til
barnæskunnar, og ég hugsa til
samverustundanna. Það hefur
verið mér svo gæfuríkt að hafa
átt ykkur Evu ömmu að. Þessi
sterku bönd sem hafa verið til
staðar allt frá upphafi eru mér
ólýsanlega mikilvæg. Það er ekki
sjálfgefið að upplifa slíkt og lít ég
svo á að örlögin hafi spilað þar
inn í, fremur en tilviljanir. Fyrir
það verð ég ævinlega þakklát af
öllu mínu hjarta.
Afi sýndi einlægan áhuga, gaf
sér góðan tíma fyrir spjall og það
var auðséð hvað það var honum
mikilvægt að vera með á nót-
unum hvað var að gerast hjá
fólkinu sínu hverju sinni óháð
aldri eða störfum. Hann sýndi
áhuga sinn bæði í orðum og
verki allt fram undir það síðasta.
Það er einn staður sem stend-
ur upp úr þegar hugurinn leitar
til afa, það er sumó. Bryndís
María og Kormákur Hrafn voru
varla byrjuð að tala þegar þau
óskuðu þess heitast að fara upp í
sumó. Það segir allt sem segja
þarf. Í sumó er einstaklega gott
að vera og þar hefur stórfjöl-
skyldan búið sér til ótal dýrmæt-
ar minningar í gegnum árin. Á
mínum yngri árum fór ég með
afa og ömmu í sumó í öllum veðr-
um og vindum. Mér er það minn-
isstætt í þau skipti þegar það var
ófært vegna snjóþyngsla og við
notuðumst við snjósleða og
gönguskíði til að komast alla leið
að húsi. Þá kom sér vel hvað afi
var lausnamiðaður og leit á
hindranirnar með opnum og já-
kvæðum huga. Það munum við
taka með okkur í verkfærak-
istuna þegar við mætum lífsins
verkefnum. Afi var sniðugur
maður, eitt af því sem hann
kenndi mér þegar ég krakki voru
gamanvísur sem mér fundust
mjög skemmtilegar. Það var svo
eftirminnilegt hvernig afi
galdraði vísurnar fram eina af
annarri með sinni snilligáfu og
því látbragði sem fylgdi gjarnan
með. Einhverjar þeirra man ég
enn í dag og fer með fyrir börnin
mín við mikla hrifningu þeirra.
Er viss um að áhugi á kveðskap
hafi kviknað í kjölfarið, sem síð-
ar varð til háfleygra ljóða-
yrkinga á unglingsárunum.
Börnin tala mikið um þig og það
á eftir að taka þau tíma að átta
sig almennilega. Þeim finnst gott
að hugsa til þess að þú vakir yfir
okkur og á kvöldin segja þau að
þú kúrir með þeim eins og
bangsarnir. Þau tala líka um það
hvað það var gaman að leika með
þér og þeim fannst sérstaklega
gott að hafa þig með á gamlárs-
kvöld.
En hér skilur leiðir í þessum
heimi. Við söknum þín sárt, í
huga og hjarta okkar fjölskyld-
unnar áttu þinn stað.
Hjartans þakkir fyrir allt,
elsku afi. Við tökum allt það góða
sem þú færðir okkur áfram inn í
lífið og erum þakklát fyrir dýr-
mætar stundir sem við áttum
með þér um síðustu jól.
Minning um þig, elsku afi, ein-
stakan, hlýjan og glaðlyndan
mann mun fylgja okkur um
ókomna tíma.
Þín ástkæru,
Jóhanna, Birkir Hrafn,
Bryndís María og
Kormákur Hrafn.
Elsku afi.
Takk fyrir allt. Allar góðu
minningarnar, allar góðu stund-
irnar sem við áttum og allt það
sem við brölluðum saman í gegn-
um tíðina. Núna ertu farinn á
annan og betri stað í faðm systk-
ina, foreldra og vina en þín verð-
ur sárt saknað hér.
Það var aldrei dauð stund hjá
okkur þegar við tókum okkur
eitthvað fyrir hendur. Hvort sem
það var að glíma við stærðarinn-
ar púsl, græja eitthvað úti í bíl-
skúr, skjótast upp í sumó eða
bara sitja niðri og spjalla um lífið
og tilveruna og rifja upp gamla
tíma yfir kaffibolla, djús eða app-
elsínu. Þessar samverustundir
voru svo sannarlega ómetanleg-
ar og eru minningar sem munu
fylgja mér út lífið.
Ég er svo óendanlega þakk-
látur fyrir allt sem þú kenndir
mér. Ein af mínum fyrstu minn-
ingum er þegar þú kenndir mér
að hjóla, settir spotta í hjólið og
hljópst svo með mig um Unn-
arbrautina þangað til mér tókst
að hjóla sjálfur. Eða þegar þú
kenndir mér að keyra upp í sumó
og sagðir mér að keyra aðeins
lengra, fyrst út að ruslagámi og
svo út að Þrastarlundi. Þú
kenndir mér að meta fallega
hönnun og list og hvernig mætti
með smá útsjónarsemi búa til
nýja hluti eða endurlífga gamla
hluti. Það þarf nefnilega ekki
alltaf að henda hlutum þó þeir
séu orðnir gamlir.
Það má segja að þú hafir
gegnt töluvert stærra hlutverki í
uppeldi mínu en bara að vera afi
minn. Þú varst mín helsta fyr-
irmynd og besti vinur. Þú hafðir
alltaf fulla trú á því sem ég tók
mér fyrir hendur sama hversu
sniðugt það var, sýndir öllu sem
ég gerði áhuga og hvattir mig
alltaf áfram. Þú sinntir öllu sem
við gerðum af fullum áhuga
hvort sem það var að smíða
playmo-kastala eða að gera upp
gamla úrið þitt svo ég gæti feng-
ið það.
Það er erfitt að horfa til baka
og hugsa til þess að þessar góðu
stundir verði ekki fleiri að sinni.
En minningarnar lifa áfram og
ég mun gera mitt besta til að lifa
eftir þeim lífsgildum sem þú
kenndir mér. Ég lofa að passa
uppá ömmu og halda stólnum
þínum heitum. Þó að leiðir okkar
skilja í bili þá er það víst að við
tökum upp þráðinn yfir kaffi-
bolla eða djús næst þegar við
hittumst.
Þinn nafni,
Gunnar Ben.
Það er ekki hægt að minnast
Gunnars móðurbróður míns
nema með hlýju, en móðir mín
Kristín og Gunnar voru sam-
mæðra. Gunnar var yngstur af
fimm hálfsystkinum mömmu og
það var mjög kært á milli þeirra.
Hann var heimagangur hjá for-
eldrum mínum. Honum fannst
gott að koma í hádegi á sunnu-
dögum þegar við borðuðum
lambalæri og emmess ís með nið-
ursoðnum ávöxtum, því þá bjó
hann einn og fannst gott að fá
góðan mat. Hann gantaðist við
okkur og gat verið stríðinn.
Hann kom með líf og gleði á
vespunni sinni og síðar á drapp-
litum litlum bíl. Stundum kom
hann með ömmu Sigríði Olgu
aftaná vespunni og hún klædd í
peysuföt með flaksandi pilsfald
og skotthúfu og þau bæði jafn
sæl.
Það var alltaf bjart í kringum
Gunnar.
Gunnar lærði smíðar og fór
síðar til Kaupmannahafnar og
lærði innanhússarkitektúr. Hann
er einn af áhrifavöldunum að því
að ég fetaði svipaðar slóðir. Þeg-
ar Gunnar kom í heimsókn þá
var hann oft með góðar hug-
myndir um hvernig best væri að
hagræða og breyta heimilinu svo
öllum liði betur. Eftir heimsókn-
ir hans gat allt heimilið verið
breytt og hann og mamma jafn
ánægð með niðurstöðuna. Þegar
pabbi kom síðan heim, spurði
hann: „Var Gunnar í heimsókn?“
Þetta voru skemmtilegar heim-
sóknir og gáfu mér sem barni þá
sýn að það væri alltaf hægt að
finna betri lausnir.
Gunnar vann lengi hjá Húsa-
meistara ríkisins. Þegar ég fór í
framhaldsnám vann ég í sumar-
vinnu á sama stað og fékk að
vera við hliðina á Gunnari. Hann
tók mér vel og fræddi mig um
eitt og annað sem gott var að
vita, fór með mig á framkvæmd-
arstaði og þar sá ég hvernig
hann nálgaðist alla aðila með
sama jákvæða viðmótinu og
hann var alltaf til í að finna góð-
ar lausnir.
Gunnar tókst á við lífið með
jákvæðu hugarfari, það var ekki
alltaf auðvelt, en vandi og mót-
læti voru til að sigrast á. Hann
sá það góða í umhverfinu og í
fari fólks og ástæðulaust að
staldra við annað. Gunnar hafði
góða nærveru, mér leið alltaf vel
í návist hans. Hugarfar hans var
með þeim hætti.
Ég minnist Gunnars móður-
bróður míns með hlýju og þakk-
læti og við Ólafur sendum Evu
og fjölskyldunni allri innilegar
samúðarkveðjur.
Þórdís Zoëga.
Í dag kveðjum við Gunnar
Ingibergs, góðan vin til margra
ára.
Þegar við vorum að byggja í
Bökkunum árið 1974, keyptu
Gunnar og Eva fokhelt raðhús í
götunni fyrir neðan okkur og
nánast á fyrsta degi hófust hin
góðu kynni sem hafa enst fram á
þennan dag.
Dag einn þegar við vorum að
skafa mótatimbur kom Gunnar
að máli við mig og sagðist öfunda
mig af þessum duglega strák í
grænu úlpunni sem var alltaf að
hjálpa mér í byggingunni. Þá
fékk ég ekki varist brosi og sagði
að þetta væri hún Lára mín.
Meðan á framkvæmdum stóð
komu upp mörg mál sem þurfti
að ræða og leysa og var þá
gjarnan gripið fyrsta lausa blað-
ið sem var við höndina. Því auð-
veldara var að rissa vandamálið
upp en bara að tala um það. Oft-
ar en ekki var það Morgunblaðið
sem varð fyrir valinu og varð það
svo útkrotað að Eva kvartaði yfir
að hún hefði ekki verið nógu fljót
að ná blaðinu meðan hægt var að
lesa það.
Þegar byggingum var að
mestu lokið og báðar fjölskyld-
urnar fluttar inn fórum við að
fara saman í leikhús og gerum
það enn. Eftir leiksýningu skipt-
umst við á að halda kaffisamsæti
með veglegum veitingum og
skemmtilegum umræðum. Einn-
ig höfum við farið saman í ferðir
til fjarlægra landa og eru það
ógleymanleg ævintýri.
Gunnar var skemmtilegur og
kær vinur sem við söknum sárt.
Við vottum Evu og fjölskyld-
unni okkar dýpstu samúð
Lára og Jón Leifur.
Þegar Gunnar Ingibergsson
innanhúsarkitekt kveður, 85 ára
gamall, eftir allnokkur veikindi,
er rétt og skylt að þakka góð
áratuga kynni og samstarf. Sam-
vinna við Gunnar Ingibergsson
var ávallt ánægjuleg og gefandi,
enda þolinmæði hans, skilningur
og lipurð einstæð, svo og hið
létta skap sem honum var áskap-
að. Það var ótvírætt sammæli
allra sem unnu með Gunnari
Ingibergssyni á skrifstofu Al-
þingis að þar færi ljúfur maður
og greiðvikinn, og öllum þótti
vænt um hann. Ég veit ekki til
að nokkur maður þar á bæ hafi
nokkurn tíma hallmælt honum
eða átt í útistöðum við hann og
áttum við þó öll mikið undir hon-
um komið hvernig okkur leið í
vinnunni og hvaða aðstæður okk-
ur voru búnar á vinnustað.
Þegar Gunnar hafði lokið
námi sínu í innanhúsarkitektúr í
Danmörku réðst hann til húsa-
meistara ríkisins og kom þá
brátt í hlut hans með öðru að
sinna Alþingi um verklegar
framkvæmdir, viðhald húsa og
húsbúnaðar, lagfæringar í þing-
sal, viðbótarhúsnæði fyrir nefnd-
ir og þingmenn og önnur verk-
efni sem þingið færðist á hendur,
Norðurlandaráðsþing, lýðveldis-
hátíð, forsetainnsetningar og svo
framvegis. Yfir þessu var Gunn-
ar vakinn og sofinn og öll við-
fangsefni leysti hann af hendi
svo að sómi var að og við hæfi
Alþingis. Gunnar var listamaður
en líka hófsmaður að öllu leyti,
praktískur og útsjónarsamur.
Þegar embætti húsameistara rif-
aði seglin og það var síðar lagt
niður réðst Gunnar til Alþingis í
fast starf sem umsjónarmaður
húseigna þess og innanhúsarki-
tekt.
Verka Gunnar Ingibergssonar
sér víða stað, en mest þó í Al-
þingishúsinu og öðrum bygging-
um þess. Húsbúnaður í þingsaln-
um er hans verk, þótt vissulega
sé byggt á gamalli hefð. Ég átti
leið um fundaherbergi ríkis-
stjórnarinnar nýlega og viti
menn: hinir eftirsóttu stólar við
það borð eru eftir Gunnar!
Eins og öðrum ríkisstarfs-
mönnum bar Gunnari að hætta
um sjötugt, en svo fór að hann
var með okkur á skrifstofunni í
ráðum og með umsjón verkefna
alveg fram á síðustu ár. Fyrir
fjórum árum eða svo hannaði
hann nýjan og endurgerðan
ræðustól í þingsalinn svo að fatl-
aðir kæmust þangað líka. Við
munum seint gleyma fasi hans
og framkomu þar sem hann
stendur einbeittur með málband-
ið í hendi, skimar í kringum sig
eftir hagkvæmum lausnum, hall-
ar sér fram og gerir skissu á
smjörpappír til að undirbúa
hreinteiknun. Svo réttir hann úr
sér og brostir sínu hlýlega brosi
með öllu andlitinu. Úrlausnin var
alltaf smekkleg enda hafði hann
unun af góðri hönnun.
Þegar Gunnar Ingibergsson
hverfur til moldarinnar hvarflar
hugurinn til hans elskulegu og
umhyggjusömu eiginkonu, Evu,
og myndarlegra barna þeirra og
annarra afkomenda og aðstand-
enda. Þau eiga samúð okkar
samverkamanna hans. Gott er
góðra að minnast.
Helgi Bernódusson.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 21
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Óska eftir að annast bókhaldsvinnu
og fleira þess háttar.
Upplýsingar í síma 831-8682.
Bátar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30.
Félagsvist kl. 13. Útskurður kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.
Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið
fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt
á könnunni. Allir velkomnir. S. 535 2700.
Boðinn Bingó kl. 13. Leikfimi með Önnu Kristínu kl. 10.30. Myndlist
kl. 12.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bústaðakirkja Stóri kótilettu-dagurinn, miðvikudaginn 30. janúar,
Þorragleði í safnaðarheimili Bústaðakirkju. Húsið opnað kl. 12 og
matur hefst kl. 12.30. Kótilettur með gamla laginu og meðlæti. Kaffi
og konfekt í eftirrétt. Verð 1500 kr. fyrir manninn. Guðni Ágústsson er
gestur okkar. Takmörkuð sæti og skráning í kirkjunni í síma 553 8500.
Söngur, gleði og gaman.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Opin handverks-
stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /8.15 /15. Kvennaleikfimi
Sjálandi kl. 9.30. Liðsstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfmi Ásgarði
kl. 11.15. Stólajóga kl. 11. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í
Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Út-
skurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leik-
fimi Helgu Ben. kl. 11-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30. Handavinna / brids kl.
13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl.
12.30-14. Jóga kl. 14.15-15.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun kl. 13, frjáls spilamennska kl.
13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdags-
kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í
Listasmiðju kl. 9-12, byrjendanámskeið í línudansi kl. 10, létt ganga kl.
10.15. Hádegismatur kl. 11.30, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zop-
honíasd. kl. 12.30-15.30, Handavinnuhornið kl. 13-15, félagsvist kl. 13,
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari upplýs-
ingar í síma 411 2790.
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju, Borgum og inni í Egils-
höll. Félagsvist kl. 13 í Borgum. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum. Tré-
útskurður kl. 13 í Borgum, kóræfing Korpusystkina kl. 16 í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, gönguhópurinn kl. 14, bíó á 2. hæð kl.
15.30. Uppl í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Söngstundin sem vera átti í salnum í dag kl. 12 fellur
niður. Spilað í króknum kl. 13.30 og brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Ath.
Þeir sem skráðir eru í þorrablótið í safnaðarheimili kirkjunnar í kvöld:
þá hefst það kl. 18.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba-byrjendur kl. 9.30, Zumba
gold framhald kl. 10.20, Sterk og liðug leikfimi kl. 11.30. Tanya leiðir
alla hópana. Tölvunámskeið kl. 13.30.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is