Morgunblaðið - 28.01.2019, Side 22

Morgunblaðið - 28.01.2019, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 Gunnlaugur Rafn Björnsson, flugstjóri hjá Icelandair, á 50 áraafmæli í dag. Hann er með mikla bíla- og hjóladellu og kepptiá enduro-hjólum. Hann fór á heimsmeistaramótið í enduro- keppni árið 2012 og keppti þar fyrir Íslands hönd. Núna er Gunn- laugur með belti undir enduro-hjólunum og notar þau aðallega þannig. „Ég er nýlega hættur að keppa en er í þessu núna mér til ánægju og yndisauka. Ég er kominn á kaf í buggy-bílana, sem er nýjasta sportið. Þetta eru nokkurs konar „matchbox“-bílar sem eru litlir bílar en eru orðnir hálfgerðir jeppar. Þeir náðu að fara úr því að vera farartæki fyrir verktaka í að verða alvöru rallökutæki. Það er orðin algjör sprenging í þessum farartækjum.“ Gunnlaugur hélt 80 manna grillveislu í Kerlingarfjöllum um næst- síðustu helgi í tilefni afmælisins en var aftur á leið upp í Kerlingarfjöll um nýliðna helgi á árlegt þorrablót þegar blaðamaður spjallaði við hann á föstudaginn. Hann verður í fríi í dag en verður kominn heim og ætlar að eyða afmælisdeginum með fjölskyldunni. „Maður kom reyndar oft heim úr þessum helgarferðum á miðvikudegi en þeim skiptum fer fækkandi með stækkandi dekkjum.“ Kona Gunnlaugs er Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Ice- landair, og börn þeirra eru Birna Katrín, f. 1999, Húni Páll, f. 2003 og Ólafía Bjarney, f. 2010. Á enduro-hjóli Gunnlaugur á þeysireið í Reykjarfirði á Ströndum. Hélt 80 manna veislu í Kerlingarfjöllum Gunnlaugur Rafn Björnsson er fimmtugur S igurborg Stefánsdóttir fæddist 28. janúar 1959 í Reykjavík en flutti fjög- urra ára til Stykkis- hólms, þar sem hún dvaldi fram að menntaskólaaldri. Sigurborg varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1979 og flutti til Kaupmannahafnar 1980. Hún var þar í læri hjá mál- aranum Hans Chr. Høier og stund- aði nám við Skolen for Brugskunst, (nú Kunstacademiets Designskole, KADK) í teikni- og grafíkdeild skól- ans, auk þess að bæta við sig einu ári í textíldeild skólans. Eftir að Sigurborg hafði lokið prófi 1987 fór hún að vinna m.a. á bókaforlaginu Rhodos. Sigurborg flutti aftur til Íslands 1989 og hóf þá kennslu við Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands og síðar Lista- Sigurborg Stefánsdóttir myndlistarkona – 60 ára Myndlistarsýning Nú stendur yfir sýning á klippimyndum Sigurborgar í Hallgrímskirkju. Bókverkin fyrirferðar- mikil í listsköpuninni Myndlistarkonan Sigurborg á vinnustofu sinni í Reykjavík. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Guðrún Friðrikka Vífilsdóttir, Sóley María Óttarsdóttir og Elísabet Ósk Jóns- dóttir söfnuðu flöskum á Akureyri til styrktar Rauða krossinum. Þær afhentu Eyjafjarðardeild Rauða krossins söfnunarféð, sem var samtals 6.000 krónur. Hlutavelta Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.