Morgunblaðið - 28.01.2019, Side 23

Morgunblaðið - 28.01.2019, Side 23
háskóla Íslands. Hún hefur alla tíð lagt stund á málun og hönnun ýmiss konar og gerir enn, auk þess að sækja námskeið víða, t.d. til Banda- ríkjanna og Japans. Í dag vinnur Sigurborg eingöngu sjálfstætt að eigin myndlist á vinnu- stofu sinni á Grensásvegi. Um þess- ar mundir stendur yfir sýning á klippimyndum Sigurborgar í Hall- grímskirkju en sú sýning stendur til 3. mars. Af hönnunarverkefnum má nefna bókarkápur, merki, kort, klúta, slæður, púða og fleira. Fyrirferðar- mest eru þó Bókverkin en Sigurborg hefur framleitt mikinn fjölda bók- verka í gegnum tíðina, ýmist með eða án texta og hafa verkin verið á sýningum víðs vegar um heiminn. Þann 1. febrúar næstkomandi held- ur hún til San Francisco, þar sem hún mun ásamt sjö öðrum íslenskum listakonum taka þátt í stærstu bók- verkamessu sinnar tegundar, Codex Polaris 2019. Sigurborg er einn stofnenda „Bókverkahópsins Arkir“ sem hefur verið starfræktur í yfir 20 ár og eru félagar hans 11 listakonur, sem vinna jöfnum höndum að ýmiss konar bókverkum. Sigurborg hefur haldið 17 einka- sýningar á verkum sínum, oftast málverkum, á Íslandi, í Danmörku og á Ítalíu auk þess að taka þátt í fjölda samsýninga víðs vegar um heim. Hún hefur gefið út eina ljóða- bók „Rökkurmoð“ 2012. Sigurborg sat um árabil í stjórn Samtaka hönnuða – Form Ísland. Hún er einn stofnfélaga í „Göngum saman félaginu“ sem styrkir grunn- rannsóknir í brjóstakrabbameini. Þá er hún í lesklúbbi, því hún er ástríðufullur lesandi. Sigurborg hef- ur ferðast mjög víða og var búsett annars vegar á Spáni 2000-2001 og hins vegar í Vancouver í Kanada 2013-2014. Um þessar mundir er hún stödd á ferðalagi um Nýja- Sjáland. Fjölskylda Eiginmaður Sigurborgar er Mekkinó Björnsson, f. 20.3. 1953, flugstjóri. Foreldrar: Hjónin Gunn- hildur Jóhannsdóttir, f. 23.10. 1929, skrifstofumaður, og Björn Mekk- inósson, f. 23.5. 1926. d. 17.5. 1998, heildsali. Þau voru bús. í Kanada og Reykjavík. Fyrri maki Sigurborgar var Daní- el Helgason, f. 24.4. 1959, verkfræð- ingur. Börn Sigurborgar og Daníels eru 1), Grímur Daníelsson, f. 10.3. 1985, B.S. í verkfræði, bús. í Reykja- vík; 2) Anna Daníelsdóttir, f. 29.12. 1990, lögfræðingur, bús. í Reykja- vík; 3) Sölvi Daníelsson, f. 17.4. 1999, nemi í Háskólanum í Reykjavík. Börn Mekkinós eru Björn Mekk- inósson, f. 22.1. 1981, hljóðupptöku- maður í Los Angeles, og Stefán Mekkinósson, f. 2.8. 1990, kvik- myndagerðarmaður í Reykjavík. Systkini Sigurborgar eru Sigur- karl Stefánsson, f. 22.11. 1956, líf- fræðingur í Reykjavík, og Anna Kristín Stefánsdóttir, f. 19.10. 1960, bókasafns- og upplýsingafræðingur í Reykjavík. Foreldrar: Hjónin Stefán Sig- urkarlsson, f. 12.7. 1930. d. 17.12. 2016, lyfjafræðingur og apótekari í Stykkishólmi, Akranesi og síðast í Reykjavík, og Anna Guðleifsdóttir, f. 22.02.1933, starfsmaður í apóteki, bús. í Kópavogi. Sigurborg Stefánsdóttir Jensína Kristín Jónsdóttir kennari á Dröngum Eyjólfur Stefánsson bóndi á Dröngum á Skógarströnd Sigurborg Eyjólfsdóttir húsmóðir í Reykjavík Anna Guðleifsdóttir starfsmaður í apóteki Guðleifur Bjarnason símvirki í Reykjavík Nikolína Tómasdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Bjarni Kristjánsson sjómaður í Hafnarfirði Bjarni Guðleifsson fv. prófessor í plöntulíffræði irgitta Stefánsdóttir kennari og húsfr. í Hvítárhlíð og Gröf í Bitru, Strand. BStefán Gíslason umhverfisstjórnunarfr. og framkvæmdastj. í Borgarnesi Engilbertína Hafliðadóttir húsfreyja í Reykjavík Guðjón Guðmundsson vélgæslumaður í Reykjavík Sigríður Guðjónsdóttir húsmóðir í Reykjavík Sigurkarl Stefánsson stærðfræðingur í Reykjavík Anna Eggertsdóttir bóndakona á Kleifum Stefán Eyjólfsson bóndi á Kleifum í Gilsfirði Úr frændgarði Sigurborgar Stefánsdóttur Stefán Sigurkarlsson apótekari í Reykjavík Hjónin Mekkinó og Sigurborg. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 90 ára Þór Hjaltason 85 ára Guðjón V. Sigurgeirsson Pétur Kjartansson Þórður Guðmundsson 80 ára Ásdís Vébjörg Jónsdóttir Ingólfur Georgsson Reynir Björnsson 75 ára Anna Lárusdóttir Guðleif Sveinsdóttir Hólmfríður Rósa Jóhannsdóttir Sigríður Sveinsdóttir Vilborg Bjarnadóttir 70 ára Ásbjörn Guðjónsson Áskell Agnarsson Helgi Þorsteinsson Hólmgeir Hreggviðsson Oddný Hrönn Björgvinsdóttir Páll Svavarsson Sigurbjörn Theódórsson 60 ára Andrés Jónsson Estelita Elín Buenaventura Guðbjörg Ingileif Jónasdóttir Guðbjörn Þorsteinsson Hólmfríður Gunnlaugsdóttir Jacoba Adames Santos Kristín Sigfríður Garð- arsdóttir Magni Rúnar Þorvaldsson Sigurborg Stefánsdóttir Sigurður Ólafur Gröndal Þórarinn Einarsson 50 ára Díana Hrönn Sigurfinnsdóttir Gunnlaugur Rafn Björnsson Hjalti Pálmason Ingunn Sigurrós Bragadóttir Jónas Bragi Jónasson Jón Fannar Hafsteinsson Linda Vernharðsdóttir Sæbjörg Anna Bjarnadóttir Þórveig Benediktsdóttir 40 ára Anna Sveinsdóttir Björn Valsson Edna Sólrún F. Birgisdóttir Fanney Steinsdóttir Heiður Margrét Björnsdóttir Laufey Elíasdóttir Mindaugas Pavinksnis Pawel Matysko Skírnir Sigurbjörnsson Þórdís V. Þórhallsdóttir 30 ára Ágúst Júlíusson Bjarney Bjarnadóttir Bjarni Gautur Eydal Tómasson Bjarni Þór Sigurbjörnsson Heiða Björk Ingimarsdóttir Hildur Boga Bjarnadóttir Hlífar Vatnar Stefánsson Jón Anton Bergsson Karlotta H. Margrétardóttir Kolbrún Fjóla Rúnarsdóttir Marcin Wojciech Stefanko Melkorka Bjartmarz Arnórsdóttir Oddur Ingi Guðmundsson Olgeir Óskarsson Stefán Gísli Stefánsson Urszula Malgorzata Piliszek Til hamingju með daginn 40 ára Björn er frá Egils- stöðum en býr í Reykja- vík. Hann útskrifaðist frá Kvikmyndaskóla Íslands og er útsendingarstjóri hjá Sjónvarpi Símans. Maki: Ellen Ösp Víkings- dóttir, f. 1987, hjúkrunarfr. á Landspítalanum. Börn: Emelía Ebba, f. 2013, og Matthildur Eva, f. 2016. Foreldrar: Valur Ingvars- son, f. 1951, og Filippía Ólöf Björnsdóttir, f. 1952. Björn Valsson 40 ára Fanney er Siglfirð- ingur en býr á Akureyri. Hún er viðskiptalögfr. hjá Ríkisskattstjóra. Maki: Kristinn Þórir Ingi- björnsson, f. 1979, versl- unarstj. í Húsgagnahöllinni. Börn: Katrín Ósk, f. 1999, Thelma Rut, f. 2003, Tinna, f. 2007, og Júlía Guðlaug, f. 2012. Foreldrar: Steinn Elmar Árnason, f. 1954, og Guð- laug Guðmundsdóttir, f. 1954, bús. á Siglufirði. Fanney Steinsdóttir 30 ára Hildur ólst upp í Grafarvogi og tvö ár í Nor- egi en býr í Garðabæ. Hún er hárskeri á Quest á Laugavegi 178 í Reykjavík. Bróðir: Samúel, f. 1986, húsgagnasmiður. Foreldrar: Bjarni Þór Ingvarsson, f. 1958, húsa- smíðameistari í Hokksund í Noregi, og Boga Kristín Kristinsdóttir, f. 1963, sjálfstætt starfandi leið- sögumaður, bús. í Garða- bæ. Hildur Boga Bjarnadóttir Michael Juhl hefur varið doktors- ritgerð sína í eðlisfræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin heitir Skaut- unargreining með fylki örloftneta. Leiðbeinandi í verkefninu var dr. Kristján Leósson hjá Nýsköpunar- miðstöð Íslands. Í ritgerðinni er rannsökuð hönnun nýstárlegra yfirborða til greiningar á skautunarástandi rafsegulbylgju fyrir nær-innrauðar bylgjulengdir, sér- staklega þær bylgjulengdir sem nýtt- ar eru í nútíma ljósleiðarasamskipta- tækni. Yfirborðin eru samsett úr fylkjum örloftneta þar sem hvert loft- net um sig er um fjórðungur úr bylgjulengd að stærð (um 250 nanó- metrar). Saman dreifa loftnetin litlum hluta ljóssins sem lendir á yfir- borðinu í ákveðnar stefnur, eftir því hvert upprunalegt skautunarástand þess er. Með því að mæla ljósdreif- inguna má þannig fá heildarmælingu á skautunarástandi ljósbylgjunnar. Skautunarmælar byggðir á örloft- netum voru hannaðir og smíðaðir með það fyrir augum að þá mætti nýta í ljósleiðarasamskiptakerfum. Fræðilegt líkan af útgeislun yfirborðs- ins var leitt út og niðurstöður þess voru bornar saman við tölvuhermanir. Mæliná- kvæmnin í skautunar- greiningunni var metin og fræðileg lík- ön þróuð til að lýsa kerfis- bundnum mæliskekkj- um. Í verk- efninu var einnig sýnt fram á möguleika á smækkun skautunarmælanna með því að flytja þá yfir á þverskorinn gler- kjarna hefðbundins ljósleiðara en sá kjarni er um 1/10 af hársbreidd í þver- mál. Í þeim tilgangi var þróuð sérstök aðferð til yfirfærslu örloftneta af kísilskífum yfir á endaflöt ljósleiðara. Sýnt var fram á að þannig megi fram- kvæma skautunarmælingar beint í ljósleiðaranum sjálfum án þess að fórna mælinákvæmni en jafnframt beina stærstum hluta ljósmerkisins aftur inn í annan ljósleiðara. Verkefnið var unnið í samstarfi Ný- sköpunarmiðstöðvar Íslands, ör- tæknikjarna Háskóla Íslands og Harvard háskóla. Michael Juhl Michael Juhl lauk meistaraprófi í verkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) árið 2003 og vann eftir það m.a. sem verkefnastjóri við tækniþróun hjá Alight Technologies A/S. Hann vinnur nú að rannsóknum á notkun gervigreindar í ljóstækni hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Doktor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.