Morgunblaðið - 28.01.2019, Side 26

Morgunblaðið - 28.01.2019, Side 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 Tvær sýningar opnaðar í Hafnarborg Morgunblaðið/Arnþór Una Björg Magnúsdóttir og María Ólafsdóttir. Hildigunnur Ólafsdóttir og Haukur Ólafsson. SAMSTARFSAÐILI Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVAR SEM ÞÚ ERT Ð VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Haraldur V. Sveinbjörnsson gantast með það að þegar hann fer að eldast og tekur að hægjast um hjá honum gefist honum vonandi meiri tími til að sinna eigin tónsmíðum. Undanfarin ár og misseri hefur Haraldur nefni- lega verið önnum kafinn við útsetn- ingarverkefni af ýmsum toga, og út- setti m.a. verk Skálmaldar fyrir eftirminnilega tónleika með Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Bubbi, Bagga- lútur, Megas, Páll Óskar, Nýdönsk og ótal aðrir listamenn hafa leitað til Haralds til að útsetja jafnt stór sem smá tónverk. Haraldur er ekki sá eini sem hefur í nógu að snúast við útsetningar, og þegar litið er yfir tónleikaframboð undanfarinna ára mætti halda að ein- hvers konar útsetningarbylting væri í gangi. Þegar hann er spurður hver ástæðan gæti verið segir Haraldur að ein skýring sé hve fjölbreytt tón- listarsenan er orðin og hve mikið hljómsveitir og kóra þyrstir í að flytja eitthvað nýtt. „Þá getur reynst vel að leita fanga í öðrum tónlistarstefnum og t.d. útsetja gott popplag eða djass- slagara fyrir kór, eða færa þunga- rokk í búning sem fellur að fullskip- aðri sinfóníuhljómsveit.“ Eins og að þýða bók Enginn ætti samt að halda að starf útsetjarans sé létt. Þvert á móti kall- ar vönduð útsetning á mikla næmni og listfengi. Mætti líkja áskoruninni við það að þýða bók af einu tungumáli á annað: ekki dugar að þýða hvert orð fyrir sig heldur þarf að fanga stílinn og blæbrigðin, og láta þau falla að nýju máli þar sem gilda mögulega allt aðrar reglur: „Það fyrsta sem þessi verkefni kalla á er mikil virðing fyrir verkinu sem á að útsetja. Þá þarf útsetjarinn að gefa sér góðan tíma og hafa gott eyra til að greina hvað það er sem skiptir meira máli og hvað skiptir minna máli. Loks þarf tónlistarfólkið að vera reiðubúið að hlusta á ráð út- setjarans og breyta til í flutningnum ef þess reynist þörf.“ Haraldur hefur m.a. annast útsetn- ingar fyrir tónleika popptónlistar- fólks með Sinfóníuhljómsveit Íslands og segir hann að þar verði að gæta þess að útkoman verði ekki klén og ýkt. Það að hafa heila sinfóníuhljóm- sveit sem liðsauka getur skapað mergjaða upplifun en ekki gengur, að mati Haralds, að láta allan kraft 50- 100 hljóðfæra dynja viðstöðulaust á áheyrendum: „Þvert á móti gæti þurft að tempra kraftinn, og bæta hljóðfærum inn sparlega frekar en að „blasta“ öllu í einu. Sinfóníuhljóm- sveitin þarf að vera eins og nátt- úruleg framlenging af tónlistinni og tónleikagestir mega helst ekki verða varir við nein samskeyti.“ Fjölhæfni íslensks tónlistarfólks Haraldur hefur komið víða við á löngum ferli. Hann þreytti burtfarar- próf í píanóleik 1997, nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk mastersnámi í tónsmíðum frá Háskólanum í Lundi 2004. Hann skortir ekki fjölhæfnina; hafandi ver- ið bassaleikari í Buffi, gítarleikari Dead Sea Apple, hljómborðsleikari hjá Mönnum ársins, allrahanda flytj- andi með Red Barnett og aukamaður hjá Dúndurfréttum. Hann hefur unn- ið sem upptökustjóri, hélt utan um Myrka músíkdaga og Norræna mús- íkdaga, og hefur fengið fjölda verð- launa, viðurkenninga og tilnefninga fyrir tónsmíðar sínar og upptökur. Dagvinnan er hjá Tónlistarskóla Kópavogs, þar sem Haraldur kennir raftónlist í hlutastarfi. „Kennslan skapar ákveðinn stöðugleika en svo bætast við útköll út um allar trissur – og sjaldan sem ég neita góðu verkefni þegar það býðst,“ segir Haraldur og bendir á að það sé eitt af sérkennum íslenska tónlistarheimsins að það þyki fullkomlega eðlilegt að fólk starfi í mörgum ólíkum kimum tón- listarflórunnar. „Ég man að í náminu úti í Svíþjóð skar ég mig úr hópnum fyrir að hafa komið úr rokkinu yfir í klassískar tónsmíðar, og þegar ég spurði samemendur mína hvað þeir gætu hugsað sér að gera eftir útskrift þá voru þeir allir á því að verða tón- skáld af klassísku sortinni – að gera eitthvað annað til hliðar kom hrein- lega ekki til greina.“ Kannski skýrir smæð samfélagsins hvers vegna íslenskir tónlistarmenn afmarka sig ekki endilega við þröng svið. Og hver veit nema að sá bræð- ingur sem af því hlýst eigi þátt í þeim árangri sem margt íslenskt tónlistar- fólk hefur náð. Alltént segir Haraldur að það hafi komið sér vel fyrir hann sem útsetjara að hafa hlustað á Met- allicu og Slayer á sínum yngri árum. Fjölbreytnina sér Haraldur dag- lega í tónlistarskólanum enda koma raftónlistarnemendurnir úr öllum áttum: sumir eru ungir og á kafi í raf- poppinu á meðan aðrir eru eldri og koma inn í raftónlistina með klass- ískan bakgrunn, til að öðlast ný verk- færi sem flytjendur og höfundar. Segir Haraldur að það sé einmitt eitt það skemmtilegasta við að vera tón- listarkennari að starfið býður upp á mjög gott útsýni yfir það sem er að gerast í íslensku tónlistarlífi hverju sinni. Raftónlistin sigrar heiminn Raftónlistarnámið sem þróað hef- ur verið við Tónlistarskóla Kópavogs er það eina sinnar tegundar á land- inu. Mikill áhugi er á náminu og segir Haraldur að ástæðan sé meðal ann- ars sú að raftónlist hefur aldrei verið aðgengilegri – með réttu forritunum megi jafnvel nota lítið annað en snjallsímann til að semja góða raf- tónlist. Um leið standi raftónskáldum til boða að flytja verk sín fyrir alla heimsbyggðina í gegnum gáttir eins og YouTube og Spotify: „Mig grunar að ef að tekin væri stikkprufa úr dæmigerðum bekk í íslenskum fram- haldsskóla þá hafi a.m.k. þriðji hver nemandi einhvern áhuga á að semja raftónlist og hafi fiktað í nokkrum forritum,“ segir Haraldur og bendir á hvernig raftónlistin ýtir undir það að unga fólkið skapi ný verk frekar en að endurflytja verk annarra. „Að læra raftónlist er ólíkt t.d. því að læra píanó- eða gítarleik því nemandinn er farinn að semja um leið og hann byrj- ar, og þarf ekki fyrst af öllu að eyða nokkrum árum í að ná valdi á hljóð- færinu.“ En skýtur það ekki skökku við að kenna raftónlist? Er ekki um að ræða listform sem byggir á því að fikta og prófa sig áfram? „Ég líki mínu hlut- verki við sóparana í curling: þeir kasta ekki steininum út á ísinn en sópa og sópa til að reyna að koma honum á réttan stað,“ segir Har- aldur. „Kennslan í raftónlistinni snýst að mestu leyti um að hjálpa nemendunum að skerpa á tónsmíð- unum og veita þeim aukna þekkingu Krefjandi starf að útsetja verk  Þegar kemur að því að útsetja popptónlist fyrir sinfóníuhljómsveit kemur sér vel fyrir Harald Sveinbjörnsson að hafa mjög fjölbreyttan bakgrunn í tónlist  Hann kennir raftónlist við Tónlistarskóla Kópavogs og finnst ánægjulegt hvernig allir geta fundið sína hillu í alþjóðlegri og tæknivæddri tónlistarsenu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.