Morgunblaðið - 28.01.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 28.01.2019, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 ICQC 2018-20 Útivist & ferðalög NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir mánudaginn 28. janúar. SÉRBLAÐ Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Útivist og ferðalög föstudaginn 1. febrúar Meira fyrir lesendur » DanshöfundurinnAnna Kolfinna Kur- an fyllti Mengi af kon- um föstudagskvöldið síðastliðið með nýjasta gjörningi sínum, „Konulandslag“. Er hann hluti af sam- nefndu langtímarann- sóknarverkefni Önnu en í því skoðar hún, skapar og ber kennsl á hin ýmsu landslög kvenna í samfélaginu, eins og hún orðar það, og vinnur með hug- myndir um rými og kvenlíkamann. Gjörningurinn „Konulandslag“ framinn í menningarhúsinu Mengi Kátar Sanna og Júlía voru meðal gesti í Mengi. Glaðbeittar Dögg og Ragna nutu listarinnar og kvöldsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hópurinn Konur eignuðu sér rýmið í Mengi þetta kvöld. Taílenski kvikmyndaleikstjórinn og myndlistarmaðurinn Apichatpong Weerasethakul hlýtur Artes Mundi- myndlistarverðlaunin í ár og fær 40 þúsund sterlingspund í verðlaunafé, jafnvirði tæpra 6,3 milljóna króna. Verðlaunin eru ein þau virtustu í flokki myndlistar í Bretlandi og var tilkynnt um þau undir lok síðustu viku. Þau eru veitt annað hvert ár fyrir pólitíska myndlist hvaðanæva úr heiminum. Weerasethakul er þekktur kvik- myndagerðarmaður og hlaut aðal- verðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2010 fyrir kvikmynd sína Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives. Í verkum sínum kann- ar leikstjórinn oftar en ekki þver- sagnir í samfélagi heimalands síns, m.a. kapítalísma og kúgunarstjórn. Listamenn sækja um Artes Mundi- verðlaunin, leggja inn verk og verkið sem leikstjórinn hlaut þau fyrir er 12 mínútna löng stuttmynd sem nefnist Invisibility og er nú til sýnis í Lista- safni Cardiff þar sem einnig má sjá önnur verk sem lögð voru inn til keppni. Í frétt dagblaðsins Guardian segir að dómnefnd verðlaunanna lofi listamanninn fyrir rannsóknir sínar á kvikmyndagerð, frásagnarlist og samfélagslegri og pólitískri stöðu listamannsins. AFP Verðlaunahafi Taílenski listamaðurinn Apichatpong Weerasethakul. Weerasethakul hlaut Artes Mundi-verðlaunin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.