Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.01.2019, Qupperneq 32
Jón Jónsson þjóðfræðingur mun fjalla um förufólk fyrr á öldum í kaffistundinni Flakkarakaffi í Borgarbókasafninu í Spönginni í dag kl. 17.15. Fyrr á öldum flakkaði förufólk milli bæja á Íslandi og fékk húsaskjól hjá bændum. Hefur Jón rannsakað hlutskipti þessa fólks og viðhorfin til þess og gaf á dögunum út bók um það efni. »12 Sagnir um flakkara og sérkennilegt fólk MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 28. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Danir fögnuðu fyrsta heimsmeist- aratitli sínum í handbolta karla þegar þeir burstuðu Norðmenn 31:22 í úrslitaleik í Jyske Boxen Arena í Herning í gærkvöld. Danir höfðu tögl og hagldir allt frá byrj- un og áttu Norðmenn aldrei mögu- leika. Danir unnu alla 10 leiki sína á heimsmeistaramótinu og eru svo sannarlega vel að titlinum komnir. »4-5 Fyrsti heimsmeistara- titill Dana ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Novak Djokovic vann sinn sjöunda sigur á opna ástralska meistara- mótinu í tennis þegar hann vann öruggan sigur á Spánverjanum Rafael Nadal í úrslitaleik í gær í þremur settum; 6:3, 6:2 og 6:3. Djokovic hefur þar með unnið 15 risamót á ferli sínum og þrjú í röð. Í kvennaflokki vann hin japanska Naomi Osaka annað risamót sitt í röð þegar hún bar sigur- orð af Petru Kvitová í úrslitaleik í tveimur settum. »6 15. risatitillinn hjá Novak Djokovic Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Systkinin frá Hallgeirsstöðum í Jök- ulsárhlíð urðu samtals 1.000 ára í annað sinn 13. janúar síðastliðinn. Þau urðu fyrst samtals 1.000 ára 18. mars 2014. Þá voru 15 af 16 syst- kinum lifandi, en annað systkini féll frá í desember sem leið. Hjónin Lára Stefánsdóttir og Hrafnkell Aðalsteinn Elíasson, bændur á Hallgeirsstöðum til 1980, þar sem þau voru alla tíð með sauðfé og mjólkurframleiðslu til þess að framfleyta sér og barnahópnum, eignuðust 16 börn, sex stúlkur og 10 drengi, á árunum 1936 til 1959. Hrafnkell fæddist á Aðalbóli í Hrafnkelsdal 1906 en Lára fæddist að Háreksstöðum í Jökuldalsheiði 1918. Hann lést 1989 en hún 2009. Afkomendur þeirra hittast jafnan á afmælisdegi Láru, 20. janúar, bæði á Egilsstöðum og í Reykjavík, en hún hefði orðið 101 árs í ár. Benedikt Hrafnkelsson, sem býr á jörðinni og rekur Hótel Svarta- skóg, er fæddur og uppalinn á Hall- geirsstöðum fyrir utan níu ár á átt- unda áratug liðinnar aldar, þegar hann átti heima á Egilsstöðum. „Þegar aldurinn færðist yfir for- eldra okkar og þeir voru orðnir út- slitnir af þrældómi við búskap og barnauppeldi báðu þeir mig og konu mína um að koma og taka við búinu, en þeir fluttu til Egilsstaða,“ segir hann. Margt um manninn Fyrr í mánuðinum kom fram í Morgunblaðinu að fjórir núlifandi systkinahópar hefðu náð 1.000 ára samanlögðum aldri, en systkinin frá Hallgeirsstöðum eru fyrst til þess að ná 1.000 árum saman í tvígang. „Það er ekki fagnaðarefni að vera orðinn svona gamall,“ segir Benedikt, sem er þó á besta aldri, þriðji yngstur systkinanna. Bendir samt á að mið- að við fjölda þeirra ætti saman- lagður aldur ekki að koma á óvart. Benedikt segir að gaman hafi ver- ið að alast upp í fjölmenninu á Hall- geirsstöðum. Þar hafi jafnframt ver- ið heimavistarfarskóli og því hafi önnur börn úr sveitinni reglulega bæst við barnahópinn sem fyrir var. „Það var líka alltaf nóg að gera í bú- skapnum og um leið og við gátum gert gagn vorum við látin hjálpa til,“ rifjar hann upp. „Búið var stórt og flest verk handunnin enda tæknin af skornum skammti á þeim tíma.“ Einn bróðirinn, Auðun Hlíðar, bjó í Reykjavík og Sigþór á Vopnafirði, en báðir eru látnir. Eftirlifandi systkini búa öll á Austurlandi nema einn bróðir á Akureyri. Beinir af- komendur Láru og Hrafnkels eru 157 og 179 með bónusafkomendum. Börnin 16, 42 barnabörn og þrjú bónusbarnabörn, 88 barnabarna- börn og 17 að auki og 11 barna- barnabarnabörn og tvö að auki. Og þeim fer hratt fjölgandi, að sögn Benedikts. Ljósmynd/Leifur Gauti Sigurðsson Hallgeirsstaðasystkinin Efri röð frá vinstri: Haraldur 74 ára, Elís Jökull 81 árs, Benedikt 65 ára, Einar Orri 79 ára, Eiríkur Helgi 69 ára, Dvalinn 78 ára, Björgvin Ómar 60 ára og Þórarinn Valgeir 67 ára. Fremri röð frá vinstri: Auðbjörg Halldís 70 ára, Ásta Haralda 76 ára, Stefanía 83 ára, Hulda 59 ára, Alda 66 ára og Gyða 73 ára. Systkinin frá Hallgeirs- stöðum aftur 1.000 ára  Lára og Hrafnkell eignuðust sextán börn í Jökulsárhlíð Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.