Morgunblaðið - 29.01.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.01.2019, Blaðsíða 9
Magnús Heimir Jónasson Gunnlaugur Snær Ólafsson Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráð- herra segir að menntun og þekking geti leikið stórt hlutverk í að sporna gegn falsfréttum og staðleysum á ís- lenskum samfélagsmiðlum. „Gagnrýnin hugsun er og verður einn af hornsteinum íslenska skóla- kerfisins og það er mín skoðun að þekking sé okkar öflugasta verkfæri gegn falsfréttum, staðleysum og hat- ursorðræðu. Við getum gert betur í því að fræða um einkenni, eðli og markmið falsfrétta, það er viðvarandi verkefni sem krefst aðkomu margra,“ segir Lilja spurð um við- brögð við bréfi Persónuverndar til forsætis- og dómsmálaráðherra. Í bréfinu er meðal annars varað við þeim hættum sem steðja að lýðræðis- legum kosningum vegna samfélags- miðla. Ekki náðist í forsætisráðherra og dómsmálaráðherra í gær við vinnslu fréttarinnar. Lilja segir einnig vísbendingar uppi um að rangar eða misvísandi fréttir ferðist nú hraðar og hafi meiri áhrif gegnum samfélagsmiðla en fréttir sem standast faglegar kröfur. „Falsfréttir eru vaxandi vandamál og útbreiðsla þeirra gerir auknar kröfur til okkar allra um að vera vakandi fyrir bæði beinum og óbeinum skað- legum áhrifum sem slíkur frétta- flutningur getur haft, t.a.m á lýðræð- islega umræðu.“ Óska eftir samráðsvettvangi Í bréfi til ráðherranna óskar Per- sónuvernd eftir því að þeir hafi for- göngu um að koma á fót samráðsvett- vangi allra þeirra sem koma að kosningum hér á landi, en í leiðbein- ingum Evrópusambandsins um hvernig tryggja megi sanngjarnar og frjálsar kosningar er meðal annars lagt til að stjórnvöld, stjórnmála- flokkar og fjölmiðlar grípi til aðgerða til að verja tölvu- og upplýsingakerfi sín. Vitundarvakning hefur orðið um blekkingar í kosningabaráttu í tengslum við Cambridge Analytica, bandarísku forsetakosningarnar og Brexit. Persónuvernd ákvað í kjölfar þess að hafa kynnt sér efnistök og aðferðir breskra kollega sinna við skoðun Cambridge Analytica að breikka efnistök frumathugunar stofnunar- innar vegna þingkosninganna 2016 og 2017. Þetta segir Helga Þóris- dóttir, forstjóri Persónuverndar, í samtali við mbl.is. Skýrsla Persónuverndarstofnunar Bretlands, Information Commiss- ioner’s Office (ICO), kom út síðast- liðið sumar. „Þeir komust að ýmsu vegna Cambridge Analytica, sem hefur gjörbylt sýn persónuverndar- stofnana Evrópu á það hvað er í gangi á samfélagsmiðlum og hvernig unnið hefur verið með persónu- upplýsingar með ólögmætum hætti,“ segir Helga. Upphaflega var lagt upp með að at- hugun Persónuverndar myndi snúa að félagatölum stjórnmálaflokka og segist forstjórinn ekki geta upplýst hvenær niðurstöður úr frumathugun Persónuverndar liggi fyrir. „Við erum með mjög mörg þung og stór mál og reynum ávallt að veita stærri málum forgang, þannig að það er ekkert sem ég gert sagt um á þessu stigi.“ 91% notar samfélagsmiðla Spurð hvaða máli það skipti að 91% Íslendinga notar samfélagsmiðla borið saman við 56% íbúa Evrópu- sambandsins segir hún það vera ákveðið umhugsunarefni. „Þetta er staðreynd sem við erum að velta fyrir okkur og höfum bent á að geri okkur þeim mun berskjald- aðri en önnur samfélög vegna gríðar- lega mikillar notkunar netsins og þeirrar staðreyndar að níu af hverj- um tíu fullorðnum nota sama sam- félagsmiðil,“ svarar Helga. Skólakerfið sporni við falsfréttum  Þekking öflugasta verkfærið gegn falsfréttum, segir menntamálaráðherra  Persónuvernd varar við hættum sem steðja að lýðræðinu vegna samfélagsmiðla  Íslendingar berskjaldaðri en aðrar þjóðir Ljósmynd/Thinkstock Falsfréttir Menntamálaráðherra segir vísbendingar um að falsfréttir dreifist hraðar en faglegar fréttir. Falsfréttir » Persónuvernd hefur breikkað frumathugun sína á kosning- unum 2016 og 2017. » Skýrsla breskrar persónu- verndarstofnunar um Cam- bridge Analytica hefur breytt sýn stofnunarinnar á sam- félagsmiðla. » Stjórnvöld, stjórnmála- flokkar og fjölmiðlar grípi til að- gerða til að verja tölvukerfi sín. Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tímareiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.