Morgunblaðið - 29.01.2019, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þýskir kvikmyndadagar hefjast í
Bíó Paradís á föstudaginn, standa
yfir í tíu daga og eru nú haldnir í
tíunda sinn. Allar myndir hátíð-
arinnar, sjö talsins, verða sýndar
með enskum texta. Bíó Paradís
heldur hátíðina í samstarfi við
Goethe-stofnunina í Danmörku og
þýska sendiráðið
á Íslandi.
Það verður líf
og fjör í bíóinu á
tíu ára afmælis-
hátíðinni og þá
m.a. á lokavið-
burðinum þegar
bíóinu verður
breytt í þýskan
teknóklúbb. Opn-
unarmynd hátíð-
arinnar er
Mackie Messer - Brechts Drei-
groschenfilm eða Makki hnífur -
þrískildingskvikmynd Brechts og
verður hún sýnd á fimmtudagskvöld
en lírukassaleikari leikur fyrir gesti
fyrir og eftir sýningu.
„Í kjölfar gífurlegrar velgengni
Túskildingsóperunnar, nýjasta
söngleiks Bertolts Brechts sem
slær í gegn í Berlín árið 1928, renn-
ur kvikmyndabransinn fljótt á lykt-
ina og leitar á náðir meistarans til
að færa verkið í kvikmyndaform.
En Brecht neitar að fara eftir
þeirra leikreglum þar sem hans eig-
in sýn á kvikmyndina er óhefð-
bundin, róttæk og rammpólitísk,
eitthvað sem kvikmyndafram-
leiðslufyrirtæki mun aldrei sam-
þykkja,“ segir um myndina í til-
kynningu frá Bíó Paradís og að hún
sé margrómuð og fersk bíómynd
sem hrífi áhorfendur með sér í anda
meistara Brecht. Kvikmyndin er
ekki sannsöguleg, svo því sé haldið
til haga.
Vinsælasta dagskrárefnið
„Bíóið var stofnað haustið 2010 og
þetta voru fyrstu kvikmyndadag-
arnir og jafnframt er þetta vinsæl-
asta dagskrárefni sem Bíó Paradís
hefur boðið upp á frá upphafi,“
segir Hrönn Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri kvikmyndahússins.
En hvað heldur hún að valdi þess-
um vinsældum Þýskra kvikmynda-
daga? „Ég held að það sé bara það
að fólk kann að meta þýska kvik-
myndalist. Þjóðverjar eru með ótrú-
lega mikla, fjölbreytta og vandaða
starfsemi á öllum sviðum kvik-
myndalistar, reka heilu stúdíóin og
eru með frábæra kvikmyndaskóla.
Frá Þýskalandi koma ótrúlega
margar spennandi og skemmtilegar,
fyndnar og listrænar myndir, alls
konar myndir. Og það er svo sjald-
gæft að geta séð þær í bíó,“ svarar
Hrönn.
Spurð að því hvað valdi, hvers
vegna þýskar myndir séu sjaldan
sýndar hér á landi, segir Hrönn að
markaðurinn sé lítill á Íslandi en
Bíó Paradís dreifi helst evrópskum
kvikmyndum hér á landi og þar af
leiðandi stundum þýskum. „En það
er alveg hafsjór af kvikmyndum
sem kemur aldrei út á Íslandi en er
samt fullkomlega þess virði að sjá
og sumar af stærstu myndum ársins
eru þýskar.“
Sýningar fyrir
framhaldsskólanema
Þó Bíó Paradís eigi í samstarfi við
Goethe-stofnunina og þýska sendi-
ráðið hefur bíóið dagskrárvaldið og
hefur alltaf haft, að sögn Hrannar.
„Það gerir dagana líka svona góða
því við fáum svolítið frjálsar hendur
og förum mikið eftir því áhugaverð-
asta sem við sjáum, t.d. á kvik-
myndahátíðinni í Berlín. Þar eru
margar þýskar kvikmyndir og ein af
þeim sem við ætlum að sýna í ár er
Transit. Hún var í keppni í Berlín í
fyrra, er eftir Christian Petzold,
einn frægasta kvikmyndagerðar-
mann Þjóðverja um þessar mundir
og er frábær ádeila á fasistaríki,“
segir Hrönn.
Ein heimildarmynd verður sýnd á
Þýskum kvikmyndadögum, Denk
ich an Deutschland in der Nacht
eða Ég hugsa um Þýskaland á
nóttunni. Hún fjallar um teknó-
tónlist í Þýskalandi og að lokinni
seinni sýningu á myndinni, 9. febr-
úar, mun teknó-plötusnúðahópurinn
Plútó halda uppi stuðinu í „dúndr-
andi sveittu teknópartíi“, eins og
Hrönn orðar það.
Hrönn nefnir einnig þann fasta
lið hin síðustu ár að sýna framhalds-
skólanemum í þýsku eina kvikmynd
án endurgjalds og að þessu sinni er
það Das schweigende Klassenzim-
mer eða Hin þögla skólastofa.
„Grípandi sönn saga um ótrúlegt
hugrekki einstaklinga á tímum
pólitískrar kúgunar og valdníðslu í
kommúnistaríki. Heill framhalds-
skólabekkur í Þýska alþýðulýð-
veldinu ákveður að sýna samstöðu
sína við fórnarlömb ungversku upp-
reisnarinnar árið 1956 með því að
halda tveggja mínútna þögn í einni
kennslustund. Þetta tiltæki veldur
mun meiri usla en búist var við og
kemur þeim upp á kant við bæði
skólann og stjórnvöld, en ákvörðun-
in mun breyta lífi nemendanna að
eilífu,“ segir um myndina á vef kvik-
myndahússins.
Hrönn segir Goethe-stofnunina
útvega framhaldsskólanemum
kennsluefni á þýsku sem tengist
myndinni og hún segir kvikmyndina
sérlega áhugaverða. „Hún þykir
mjög vel gerð og hefur fengið frá-
bæra dóma alls staðar. Hún hefur
verið gefin út um öll Norðurlönd,“
segir Hrönn.
Þykist vera nasistaforingi
Hrönn er spurð að því hvort
greina megi einhvern rauðan þráð í
dagskránni í ár. „Nei, ég myndi
segja að þetta væri gott bland í
poka,“ svarar hún. „Við erum alltaf
með einhverja mynd sem fjallar um
nasista og erum með eina sem notið
hefur gífurlegra vinsælda um allan
heim. Hún heitir Der Hauptmann,
eða Kafteinninn, og byggist á sannri
sögu ungs hermanns sem er lið-
hlaupi í lok seinni heimsstyrjaldar-
innar og kemst yfir búning nasista-
foringja. Hann klæðir sig í hann til
að halda á sér hita en fer svo að
leika þennan foringja, breytir um
karakter og fer að fremja hin ýmsu
ódæði sem þessi nasistaforingi.
Þetta er mögnuð mynd sem ég hvet
alla til að sjá,“ segir Hrönn.
Hún ítrekar að á hátíðinni í ár
megi finna mjög gott bland í poka
og nefnir einnig kvikmyndina In My
Room sem fjallar um iðjuleysingj-
ann Armin sem vaknar dag einn við
þann vonda draum að allt mannkyn
er horfið og hann einn í heiminum
eins og Palli forðum. „Hann er eins
og Adam í Paradís og þetta er rosa-
lega flott og heimspekileg mynd,“
segir Hrönn og bætir hryllings-
mynd við upptalninguna. Hagazussa
– Der Hexenfluch heitir sú eða
Hagazussa – bölvun nornarinnar.
„Það er sjaldgæft að ná í góðar
hryllingsmyndir og þessi fjallar um
norn á miðöldum í Þýskalandi,
nornaofsóknirnar sem tíðkuðust í
Evrópu á miðöldum og hvað er satt
og hvað hystería,“ útskýrir Hrönn.
Aðdáendur margir
„Það ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi,“ segir Hrönn
um dagskrána og segist, eðlilega,
geta mælt með öllum myndunum á
dagskránni. „Það verður mikið um
dýrðir,“ segir hún, full tilhlökkunar.
„Ég hvet alla þá sem hafa áhuga á
fjölbreyttum kvikmyndum og vilja
prufa að ferðast án þess færast úr
stað, til að mæta og líka þá sem
hafa áhuga á Þýskalandi – og ekki,“
segir Hrönn kímin. Aðdáendur
Þýskra kvikmyndadaga séu margir
og verði absalútt að mæta og svo
auðvitað hinir líka. „Við hvetjum
fólk til að kynna sér þetta,“ segir
Hrönn að lokum en það er hægt að
gera á vef kvikmyndahússins,
www.bioparadis.is.
Opnunarmynd Úr Mackie Messer - Brechts Dreigroschenfilm sem verður opnunarmynd Þýskra kvikmyndadaga.
Þýskt bland í poka
Þýskir kvikmyndadagar verða haldnir í Bíó Paradís í tíunda sinn 1.-10. febrúar Bertolt Brecht,
nasistar, teknóteiti og hugrakkir framhaldsskólanemar á meðal þess sem finna má á dagskránni
Hrönn
Sveinsdóttir
Hugrekki Úr Das schweigende Klassenzimmer. Voðaverk Úr Der Hauptmann, Kafteininum.
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun