Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Cuero Mariposa
Hönnuðir: Bonet, Kurchan & Ferrari
Hannaður 1938
Íslenskt lambaskinn
Stóll verð 209.000,-
Þegar frost
er á fróni
Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Heimkaup
Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Lífland, Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði
Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga
Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði • Þernan, Dalvík
Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
100% Merino
ullarnærföt
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.run.is
Karlmaður hefur verið dæmdur í
héraðsdómi í tveggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og til að greiða
fyrrverandi sambýliskonu sinni 300
þúsund krónur ásamt 1,9 milljónum í
málskostnað fyrir stórfelldar æru-
meiðingar. Hann var hins vegar
sýknaður af ákæru um brot gegn
blygðunarsemi.
Maðurinn tók mynd af fyrrverandi
sambýliskonu sinni þar sem hún var
sofandi ásamt öðrum karlmanni og
dreifði myndinni til þriggja annarra
einstaklinga á Facebook. Hafði
maðurinn búið með konunni í um-
ræddri íbúð, en deilt var um hvort
sambúð þeirra hefði verið lokið á
þessum tímapunkti.
Gekkst maðurinn við því að hafa
tekið myndirnar og sent þær á þrjá
vini sína. Sagði hann fyrir dómi að
ætlun sín hefði ekki verið að móðga
konuna. Þá hefði háttsemi hans ekki
stjórnast af lostugu athæfi, heldur
hefði honum verið brugðið og hann
viljað eiga myndina ef konan skyldi
þræta fyrir að annar maður hefði
gist hjá henni.
Móðgaði og smánaði konuna
Segir í dóminum að með hinni
heimildarlausu myndatöku af brota-
þola, hálfnakinni, og nöktum karl-
manni, þar sem þau lágu sofandi
saman í rúmi, og sendingu myndar-
innar í kjölfarið hafi maðurinn móðg-
að og smánað konuna. Hafi mann-
inum hlotið að vera þetta ljóst og
telur dómurinn skýringar hans á
verknaðinum haldlitlar.
Dómur í málinu féll í Héraðsdómi
Reykjavíkur í byrjun ársins, en var
fyrst birtur á vef dómstólsins í gær-
dag.
Morgunblaðið/Þorkell
Héraðsdómur Maðurinn var fund-
inn sekur um ærumeiðingar.
Dæmdur fyrir stór-
felldar ærumeiðingar
Smánaði fyrrverandi sambýliskonu
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Í niðurstöðum skýrslu um hrygn-
ingu makríls er sýnt fram á að mak-
ríll klekst út, vex og dafnar á ís-
lensku hafsvæði þó aðeins sé um lítið
brot af heildarhrygningu makríls að
ræða. Jafnframt er dregin sú álykt-
un að ungviði makríls dvelji á Ís-
landsmiðum yfir vetrartímann og
uppvaxtarsvæði makríls séu að
stækka. Björn Gunnarsson, sjávar-
líffræðingur á Hafrannsóknastofn-
un, segir það athyglisvert að einhver
ár hafi makríll klakist og vaxið upp
innan íslenskrar lögsögu. Mest hefur
fundist af makrílungviði undan suð-
austurströndinni, mest árin 2010 og
2014.
Rannsóknin var unnin af sérfræð-
ingum Hafrannsóknastofnunar í
samvinnu við Háskóla Íslands.
Stuðst var við niðurstöður úr fjöl-
þjóðlegum rannsóknarleiðöngrum á
vegum Alþjóðahafrannsóknaráðsins
(ICES) á hrygningu makríls í Norð-
austur-Atlantshafi árin 2010 og 2013.
Nýhrygnd egg suður af Eyjum
Í lok júní 2010 var fjallað um
hrygningu makríls í íslenskri lög-
sögu í Morgunblaðinu. Í eggjaleið-
angri 2013 fundust makrílegg í enn
meiri mæli í íslenskri lögsögu og
mun vestar og norðar en áður hafði
sést. Þá fundust nýhrygnd egg um
40 mílur suður af Vestmannaeyjum.
Árið 2016 var á ný farið í eggja-
leiðangur og í maímánuði höfðu
Færeyingar hafsvæðið suðaustur af
landinu á sínu verksviði. Þéttleiki
makríleggja var mestur við lögsögu-
mörkin suðaustur af landinu og
hrygningin þar meiri heldur en
nokkru sinni áður. Færeyingar náðu
hins vegar ekki að mæla núllpunkt í
vestur, sem þótti benda til að hrygn-
ingin hefði teygt sig vel inn í íslenska
lögsögu.
Á þriggja ára fresti
Farið er í þessa evrópsku eggja-
leiðangra á þriggja ára fresti og er
verkefni ársins að hefjast við Spán
og Portúgal. Ísland hafði tilkynnt
þátttöku og var áætlað að fara í verk-
efnið með vorinu.„Vegna niður-
skurðar hefur verkefnið hins vegar
verið slegið af af hálfu Hafrann-
sóknastofnunar,“ segir Björn.
Hann segir það bagalegt vegna
þess að eggjaleiðangrar skili mikils-
verðum upplýsingum og breytingar
séu að verða á göngum makríls.
Þannig hafi minna af makríl gengið
inn í íslenska lögsögu í fyrra heldur
en árin á undan og síðustu tvö árin
hafi ungviði ekki sést í makrílafla.
Beinar veiðar á makríl hófust hér
við land árið 2007 og áratuginn á eft-
ir gekk makríll bæði norðar og vest-
ar en áður og magnið jókst. Þetta er
talið tengjast hlýnun sjávar og þétt-
leikaháðum áhrifum samfara stækk-
un stofnsins.
Makríllinn byrjar að hrygna í
febrúar við strendur Spánar og
Portúgals og síðan flyst hrygningin
smám saman norður með Evrópu
fram á vor með hækkandi hitastigi.
Hrygningin nær venjulega hámarki í
apríl-maí úti fyrir vesturströnd Ír-
lands og suðvesturströnd Englands,
en á sama tíma er töluverð en dreifð-
ari hrygning allt frá Biskajaflóa og
norður fyrir Færeyjar.
Hafstraumar kortlagðir
Á nyrstu svæðunum hefst hrygn-
ingin seinna og stendur fram í júlí.
Frá árinu 2004 hefur orðið vart við
makrílungviði við suður- og vestur-
strönd Íslands, segir í kynningu á
niðurstöðum skýrslu um hrygningu
makríls á heimasíðu Hafrannsókna-
stofnunar.
Í rannsókninni voru hafstraumar
við suðurströnd landsins kortlagðir
með aðstoð hafstraumalíkansins
CODE sem þróað hefur verið við
Háskóla Íslands. Makrílseiði af Ís-
landsmiðum voru aldursgreind og
líkt var eftir reki ungviðis frá veiði-
svæði að klak- og hrygningarsvæði
með því að reikna út rek með
straumum aftur á bak í tíma.
Makríll dafnar
í lögsögunni
Bagalegt að ekki verði farið í eggja-
leiðangur í vor vegna niðurskurðar
Rannsóknir Björn Gunnarsson um borð í Bjarna Sæmundssyni í rannsókna-
leiðangri 2016, á töluskjánum má sjá makrílegg á ýmsum þroskastigum.