Morgunblaðið - 29.01.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 29.01.2019, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 Í nýrri brunavarna- áætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru tekin af öll tví- mæli um nauðsyn þess að Arnarnesvegur verði lagður. Bruna- varnaáætlunin sýnir að á álagstímum eru einungis 26% íbúa Kópavogs í ásættan- legri fjarlægð frá slökkvistöð, eða í innan við tíu mín- útna viðbragðstíma slökkviliðsins. Miðað við nýjustu íbúatölur tekur það því slökkvilið lengri tíma en tíu mínútur að ná til um 27.000 íbúa í Kópavogi. Ástandið er verst í Sala- og Kórahverfi, skást í elsta hluta Kópavogs. Samkvæmt upplýsingum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæð- inu er álagstími í umferðinni alltaf að lengjast, í takt við fjölgun á höfuðborgarsvæðinu fækkar þeim stundum þar sem umferð er lítil sem engin. Síðastliðið haust var ný sam- gönguáætlun kynnt. Þá kom í ljós að framkvæmd Arnarnesvegar hafði verið frestað, vegurinn sem var á áætlun fyrir tímabilið 2011-2022 var ekki lengur á dagskrá. Það eru skelfileg tíðindi fyrir íbúa í efri byggð- um Kópavogs og raun- ar einnig íbúa í efri byggðum Reykjavíkur, Garðabæjar og Hafnar- fjarðar. Skoðum þetta nánar. Í Kópavogi austan Reykjanesbrautar búa ríflega 14.000 manns. Þetta er fjöl- mennt svæði, íbúar í efri hluta þess, Salahverfi, Kórahverfi og Vatns- enda, þekkja vel umferðarteppu sem myndast þarna á álagstímum. Vatnsendahvarfið er eina leiðin í gegnum Vatnsendann, brattur veg- ur sem liggur í gegnum íbúðahverfi og óásættanlegur sem eina leiðin um svæðið. Um leið og Arnarnesvegur verður lagður liggur því fyrir að öryggi íbúa í efri byggðum mun aukast verulega, sem og lífsgæði þeirra. Bæði léttir á umferðinni um Vatns- endaveg, íbúum til hagsbóta, og minni tíma er varið í umferð. Það gefur augaleið að þá mun einnig umferð léttast á Reykjanesbraut þegar ferðaleiðum fjölgar. Íbúar Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Reykjavíkur munu allir njóta góðs af því. Fyrir utan þennan augljósa ávinning fyrir daglegar ferðir íbúa þá sýnir brunavarnaáætlunin svart á hvítu að vegurinn er einnig lífs- nauðsynlegt öryggistæki fyrir stór- an hluta íbúa Kópavogs, svo ég leyfi mér að einblína á íbúa bæjarins. Ég skora því á samgöngu- ráðherra og þingmenn að endur- skoða samgönguáætlun. Ég vænti stuðnings og baráttu frá þingmönn- um kjördæmisins fyrir þessu hags- munamáli. Samgöngumál höfuð- borgarsvæðisins eru gríðarlega mikilvægur málaflokkur og augljóst öllum sem kynna sér málið að Arnarnesvegur á að vera forgangs- mál í samgöngum höfuðborgar- svæðisins og landsins alls. Eftir Ármann Kr. Ólafsson »Um leið og Arnar- nesvegur verður lagður liggur því fyrir að öryggi íbúa í efri byggðum mun aukast verulega, sem og lífs- gæði þeirra. Ármann Kr. Ólafsson Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. Tryggið öryggi íbúa og látið áætlun um Arnar- nesveg standa Ljósmynd/Vilhelm Gunnarsson Gatnamót Breiðholtsbrautar og Vatnsendavegar síðdegis. Í nýlegri grein í Morgunblaðinu gerir Elín Björg Ragnars- dóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fiskútflytj- enda, athugasemdir við tæplega sjö ára gamalt viðtal Kastljóss við hana og heldur því fram að einhvers lags blekkingar hafi verið viðhafðar við vinnslu og birtingu viðtalsins. Hinu sama hefur forstjóri Vinnslu- stöðvarinnar haldið fram, ítrekað. Þetta er rangt. Fyrir það fyrsta er alrangt að Kastljós hafi á einhvern hátt not- fært sér viðtalið við Elínu eða sett það í samhengi við umfjöllun í sama þætti um þær vísbendingar sem þá lágu fyrir um meinta undirverð- lagningu Samherja til dótturfélaga sinna erlendis. Viðtölin tekin áður en rannsóknin hófst Í inngangi umfjöllunarinnar var skýrt og greinilega tekið fram að við- töl í þættinum um verðmyndun fisk- afla á Íslandi við Elínu Björgu, Guð- mund Þ. Ragnarsson, formann Félags vélstjóra og málmtækni- manna, og Friðrik J. Arngrímsson, þáverandi framkvæmdastjóra LÍÚ, voru öll tekin áður en rannsókn á meintum brotum Samherja á gjald- eyrislögum hófst. Um það átti því enginn að þurfa að velkjast í vafa. Hin almenna umfjöllun um tvö- falda verðmyndun á fiski var að því leytinu aðskilin umfjöllun um gögn frá Verðlagsstofu skiptaverðs sem sýndu rökstuddan grun um að Sam- herji seldi dótturfélögum sínum er- lendis tiltekinn afla á tilteknu tíma- bili á lægra verði en í viðskiptum annarra útgerðarfélaga við óskylda aðila. Þau gögn voru eins og fram kom ekki fengin frá Seðlabanka Ís- lands, heldur Verðlagsstofu skipta- verðs, opinberri eftirlitsstofnun um fiskverð. Umrædd umfjöllun í Kastljósi snerist því öðru fremur um gagnrýni sjómanna, sjálfstætt starfandi fisk- verkana og fleiri, á tvöfalda verð- myndun á fiski. Verð á afla er breyti- legt allt eftir því hvort hann er keyptur af sömu útgerð og rekur veiðiskipin eða seldur ótengdum að- ila. Þá staðreynd höfðu fyrrgreindir aðilar, ekki síst Samtök fiskútflytj- enda, gagnrýnt harðlega. Og gerðu síðast opinberlega í liðinni viku. Þessa sömu gagnrýni hafði Elín Björg sjálf sett fram í störfum sínum fyrir samtökin og sagt að breytingar á þessu fyrirkomulagi væru helsta baráttumál samtakanna. Þessu var framkvæmdastjóri LÍÚ ekki sam- mála. Sjónarmið beggja voru reifuð í umræddum Kastljósþætti, meðal annars áhyggjur Elínar Bjargar og samtaka hennar af því að með litlu eftirliti og ríkjandi fyrirkomulagi kæmi fátt ef nokkuð í veg fyrir að út- gerðir gætu flutt fisk úr landi til dótturfélaga sinna erlendis og tekið hagnað af viðskiptunum út erlendis. Orðrétt sagði Elín þetta í þættinum: „Eins og við sjáum oft getur fyrir- tækið líka átt erlent sölufyrirtæki og selt áfram á lágmarksverði frá fisk- vinnslunni yfir í erlenda fyrirtækið – sölufyrirtækið, og tekið arðinn af allri greininni út í erlenda fyrirtæk- inu. Og hvort menn eru að leika þennan leik læt ég ósagt en allavega möguleikinn er þarna til staðar. Og auðvitað ættu menn að skoða þetta.“ Elín Björg beðin um rökstuðning Elín Björg segir í grein sinni, nú sjö árum síðar, að með orðum sín- um hafi hún alls ekki verið að lýsa öðru en löglegri leið fyrirtækja sem vert væri að skoða og breyta. Það er einfaldlega ekki rétt hjá Elínu Björgu. Um bann við því að færa hagnað úr landi með þeim hætti sem hún lýsti er sérstaklega fjallað í lögum og hefur verið um langa hríð, samanber ákvæði 57. greinar tekjuskattslaga og sambærileg þá- gildandi lög um gjaldeyrisviðskipti. Þess vegna – og eðlilega – var gengið á Elínu í umræddu viðtali og hún krafin um dæmi um þau ís- lensku fyrirtæki sem léku þann leik sem hún lýsti. Hún fékkst ekki til þess þótt hún hefði gefið í skyn að hún þekkti slík dæmi. Það var því sjálfsagt og eðlilegt að biðja Elínu Björgu um að rök- styðja mál sitt með dæmum í um- ræddu viðtali, og þekkist víðast hvar sem fagleg vinnubrögð í blaðamennsku. Viðtalið var því hvorki tekið né flutt á villandi eða rangan hátt. Vitaskuld er Elínu Björgu frjálst að leita til siðanefndar RÚV með erindi sitt nú, nærri sjö árum eftir að viðtalið birtist. Spurningin er hins vegar sú hvers vegna hún gerði það ekki mun fyrr? Erindið sem hún segist hafa sent daginn eftir umfjöllunina var athugasemd sem krafðist frekari skýringa af hennar hálfu og henni fylgdi hvorki ósk um birtingu né leiðréttingu. Eftir að Elín sendi umrædda at- hugasemd var árangurslaust reynt að ná sambandi við hana til að óska frekari skýringa. Lýsing hennar á málavöxtum er því ekki sannleikanum samkvæm. Grein Elínar má skilja svo að umrætt viðtal, sem tekið var nokkru áður en umfjöllunin var birt, hefði verið einu samskipti hennar við fréttamenn Kastljóss og birting umfjöllunarinnar því komið henni í opna skjöldu. Það er einnig rangt. Fréttamaður átti í samskiptum við Elínu um efnið fyrir og ekki síð- ur eftir að viðtalið var tekið, í því skyni að afla frekari upplýsinga. Elínu var allan tímann ljóst að viðtalið sem tekið var við hana yrði birt í umfjöllun um gagnrýni á tvö- falda verðmyndun á fiski og það samkeppnisforskot sem útgerðir, sem einnig áttu eigin sölufyrirtæki erlendis, hefðu af þeim sökum. Og nákvæmlega þannig birtist viðtalið. Snerist um deilur milli áhafnar skips og Vinnslustöðvarinnar Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að í umfjöllun Kastljóss um verðmyndun sjávarafla og vís- bendingar um undirverðlagningu sjávarafla úr landi var því aldrei haldið fram að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sætti rannsókn eða lægi undir grun um slík brot hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Íslands. Þær fullyrðingar og sam- særisbrigsl forstjóra Vinnslu- stöðvarinnar í ítrekuðum viðtölum hans við sjálfan sig á vef Vinnslu- stöðvarinnar og í greinum í Morgunblaðinu undanfarinn mán- uð eru annaðhvort hugarburður eða furðulegur misskilningur hans. Kastljós hafði aldrei upplýs- ingar um að Vinnslustöðin sætti neinni slíkri rannsókn og hélt því aldrei fram. Umfjöllun um gagnrýni sjó- manna á verðmyndun Vinnslu- stöðvarinnar snerist um deilur sem komið höfðu upp milli áhafnar skips og Vinnslustöðvarinnar vegna uppsjávarafla sem Vinnslu- stöðin keypti og seldi áfram til dótturfélags síns í Rússlandi. Aldrei var fjallað um viðskipti Vinnslustöðvarinnar með ufsa, eins og forstjórinn hefur haldið fram, heldur snerist sá þáttur um verðmyndun og skort á gegnsæi í viðskiptum Vinnslustöðvarinnar eins og kom fram í viðtali við for- ystumenn stéttarfélaga sjómanna, í Eyjum og á landsvísu, og for- stjóri Vinnslustöðvarinnar svaraði. Deilur um fyrirkomulag fisksölu Vinnslustöðvarinnar standa í raun enn, samanber forsíðufrétt Morgunblaðsins frá því stuttu fyr- ir jól, og frásögn fyrrverandi stjórnarmanns í fyrirtækinu af ár- angurslausum tilraunum sínum til að afla svara við þeim. Lýsing sem fer þvert á raunveruleikann Að þessu sögðu er athyglisvert að verða vitni að því samráði sem Elín Björg Ragnarsdóttir og for- stjóri Vinnslustöðvarinnar virðast hafa haft um greinarskrif sín, eins og þau lýsa bæði. Forstjórinn hafði enda, viku áður en grein El- ínar Bjargar birtist, boðað að stór og mikil tíðindi væru væntanleg. Einkum er samráðið forvitnilegt í ljósi þess að grein Elínar Bjargar birtist sama dag og til stóð að birta skýrslu um skoðun Ríkis- endurskoðunar á eftirliti Fiski- stofu með veiðum, löndun og vinnslu sjávarafurða. Skýrslu sem beinlínis gefur stofnun sem treyst hefur verið fyrir mikilvægu hlut- verki algjöra falleinkunn. Elín Björg Ragnarsdóttir er ekki bara lögmaður úti í bæ eins og ætla má af grein hennar heldur hefur hún starfað sem verkefna- stjóri hjá þessari sömu Fiskistofu og meðal annars komið fram og haldið ræður um meint öflugt starf sitt og stofnunarinnar við eftirlit. Lýsing sem fer þvert á raunveru- leikann sem nú blasir við. Á sama tíma hefur hún þó gefið sér tíma til að setjast niður með forstjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum til að reyna að endurskrifa sjö ára gamalt viðtal Kastljóss við hana. Það er áhugavert, svo ekki sé fastar að orði kveðið. En þó kannski svo lýsandi. Eftir Helga Seljan og Sigmar Guðmundsson »Hún hefur gefið sér tíma til að setjast niður með forstjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum til að reyna að endurskrifa sjö ára gamalt viðtal Kast- ljóss við hana. Það er áhugavert. Helgi Seljan Helgi er fyrrverandi fréttamaður Kastljóss. Sigmar er fyrrverandi ritstjóri Kastljóss. Rangfærslum svarað Sigmar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.