Morgunblaðið - 29.01.2019, Síða 27
létu af störfum vegna aldurs. „Við
erum ennþá eigendur að fyrir-
tækinu en börnunum og okkur
fannst gott að þau tækju við rekstr-
inum.“
Hjördís lék handbolta með Ár-
manni og einnig með liði Kvenna-
skólans og reyndist það lið frámuna
sigursælt. Félagsstörf hafa löngum
átt hug Hjördísar og var hún lengi í
Sinawik en hefur undanfarin rúm 25
ár verið í Oddfellow.
„Áhugamál mín hafa verið garð-
yrkjustörf – einkum við sumar-
bústað fjölskyldunnar við Norðurá í
Borgarfirði en undanfarin 25 ár hef
ég stundað golf af kappi, ekki síst í
sólarlöndum þar sem við hjónin
höfum dvalið langdvölum.“
Fjölskylda
Eiginmaður Hjördísar er Krist-
mann Örn Magnússon, f. 30.5. 1937,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Pfaff
hf. Foreldrar: Magnús Þorgeirsson,
stórkaupmaður og stofnandi Pfaff, f.
1902, d. 1983, og Ingibjörg Kaldal
Jónsdóttir, 1903, d. 1986, húsfreyja.
Börn: 1) Magnús Ingi, f. 9.3. 1958,
þjónustustjóri Pfaff hf. Hann er
giftur Rebekku Kristjánsdóttur og
búa þau á Stekkjarhóli í landi Grjót-
eyrar við Meðalfellsvatn. Börn:
Kristmann Örn, f. 28.4. 1990, starfar
við sölustörf í ELKO, og Sólveig
Eva, f. 12.12. 1991, starfar við leik-
list og módelstörf í New York 2)
Margrét Þóra, framkvæmdastjóri
Pfaff hf., f. 24.2. 1962. Hún er gift
Sigurjóni Alfreðssyni, innkaupafull-
trúa hjá Íslenskum aðalverktökum.
Börn: Sindri Már Kaldal, f. 22.5.
1992, hugbúnaðarverkfræðingur og
starfar hjá WOW og er í sambúð
með Helgu Þórðardóttur, og Birta
Dís Kaldal, f. 8.5. 1995, er í fram-
haldsnámi í viðskiptafræði; 3) Birgir
tölvufræðingur, f. 4.8. 1969, hugbún-
aðarfræðingur hjá Centara. Hann
er giftur Ingu Birnu Eiríksdóttur,
fagstjóra sérkennslu við Lindaskóla
í Kópavogi. Börn: Salka Kaldal, f.
7.10. 2005, nemi í Garðaskóla, og
Sölvi Kaldal, f. 22.8. 2007, nemi í
Hofsstaðaskóla
Hálfsystkini: Guðrún Egilsdóttir
húsmóðir, Alda María Magnús-
dóttir, kirkjuvörður við Árbæjar-
kirkju, Sævar Magnússon (látinn),
og Gunnar Magnússon, fyrrverandi
sjómaður. Uppeldissystkini: Magn-
ea J. Þorsteinsdóttir (látin), Sig-
urður Hólm Þorsteinsson (látinn),
Guðmundur Þorsteinsson (Immi)
(látinn).
Foreldrar: Anna M. Þorbergs-
dóttir, f. 25.5. 1919, d. 5.7. 1975, hús-
freyja í Reykjavík, og Magnús
Benjamínsson, f. 31.3. 1918, d. 17.10.
1948, sjómaður í Reykjavík, drukkn-
aði. Fósturforeldrar: Hjónin Mar-
grét S. Magnúsdóttir, f. 25.11. 1909,
d. 27.1. 1993, húsfreyja í Reykjavík,
og Þorsteinn B. Jónsson málari, f.
19.7. 1908, d. 16.7. 1984, málari í
Reykjavík.
Úr frændgarði Hjördísar Magnúsdóttur
Hjördís Magnúsdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
húsfreyja í Rvík
Jens Jörgen Þórðarson
sjómaður í Rvík
Sigríður Jensdóttir
húsfreyja í Rvík
Anna M. Þorbergsdóttir
húsfreyja í Rvík
Þorbergur Halldórsson
verkamaður í Rvík
Sigurbjörg Oddleifsdóttir
húskona í Vogaseli og Króki í Garði
Halldór Benjamín Jónsson
sjómaður á Akranesi
Kjartan Benjamínsson skrifstofumaður í Rvík
Sigríður Þor-
bergsdóttir
húsfreyja í Rvík
Auður
Sigfriedsdóttir
húsfreyja í Rvík
Bryndís
Scheving
kennari í
Hörðu-
vallaskóla
ónína Þorbergsdóttir
húsfreyja í Rvík
JHans Jenssonsaxófónleikari í
Lúdó sextettinum
Gísli
Benjamínsson
múrari í Rvík
ára Margrét
ísladóttir fv.
ritari í Rvík
L
G
Guðlaug Ágústa
Halldórsdóttir
athafnakona
í Rvík
Hörður
Benjamín
Þorbergsson
sjómaður í
Rvík
Sævar Halldórsson barnalæknir
Þorbergur
alldórsson
. formaður
ÍR
H
fv
Halldór Benjamín
Þorbergsson
framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnu-
lífsins
Margrét Kristjánsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Sveinbjörn Þorvarðsson
sjómaður á Akranesi
Margrét Sveinbjörnsdóttir
húsfreyja í Rvík
Benjamín Jón Gíslason
múrari og skipstjóri í Rvík
Þórunn Guðrún Benjamínsdóttir
húsfreyja í Rvík
Gísli Pétur Magnússon
múrarameistari í Rvík
Magnús Benjamínsson
sjómaður í Rvík Hjónin Hjördís og Kristmann.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019
Ég sleit krossbönd
og fór í fimm
liðþófaaðgerðir.
Samt hljóp ég
hálft maraþon
í sumar verkjalaust.
Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
Snorri Jónsson fæddist í janúar1683, en ekki er vitað um nán-ari dagsetningu eða hvar
hann fæddist.
Hann var sonur Jóns Magnús-
sonar, f. 1662, d. 7.12. 1738, prests í
Hjarðarholti og síðar sýslumanns í
Dalasýslu. Foreldrar Jóns voru
hjónin Magnús Jónsson prestur á
Kvennabrekku, síðar sýslumaður í
Dalasýslu, og Guðrún Ketilsdóttir
húsfreyja og var Snorri því bróður-
sonur Árna Magnússonar prófess-
ors. Snorri var launsonur Jóns og
var móðir hans vinnukona, Katrín
Snorradóttir, f. 1650, og var hún
vinnukona hjá Jóni sýslumanni í
Búðardal í manntalinu 1703. For-
eldrar hennar voru hjónin Snorri
Guðmundsson, bóndi á Hnapps-
stöðum í Laxárdal, og Guðrún
Snorradóttir.
Snorri ólst upp með föður sínum
en fór í Skálholtsskóla 19 ára að
aldri og varð stúdent 1705. Hann var
síðan í þjónustu Jóns Vídalín bisk-
ups en fór út í nám í Kaupmanna-
hafnarháskóla 1708, tók guðfræði-
próf og fékk 2. einkunn.
Snorri kom svo heim og varð kon-
rektor á Hólum 1711 og rektor 1714.
Hinn 2.7. 1717 var hann vígður
prestur að Helgafelli en þurfti að af-
salaði sér því vegna of bráðrar barn-
eignar með konu sinni. Hann fékk
uppreisn 1718 og fékk Helgafell aft-
ur í september 1719, en gegndi rekt-
orsstöðunni til 1720. Það ár fluttist
hann í Helgafellssveit og gegndi
prestsembættinu á Helgafelli allt til
1753. Hann var prófastur í Snæfells-
nesprófastsdæmi 1720-1738.
Snorri þótti vel lærður, var latínu-
skáld og stundaði lækningar.
Kona Snorra var Kristín Þorláks-
dóttir, f. 1683, d. 1752, dóttir Þorláks
Ólafssonar prests á Miklabæ í
Blönduhlíð. Þau áttu fjölda barna,
þar á meðal Jón Snorrason sýslu-
mann í Hegranesþingi, Gísla
Snorrason prófast í Odda og Gunn-
laug Snorrason prest og skáld á
Helgafelli.
Snorri lést 29. janúar 1756.
Merkir Íslendingar
Snorri
Jónsson
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Helgafellskirkja á Snæfellsnesi.
90 ára
Kári Pálsson Þormar
85 ára
Eyrún Óskarsdóttir
Guðbjörg Salvör Júlíusd.
Halla Magnúsdóttir
80 ára
Bjarni Þjóðleifsson
Helga Þórólfsdóttir
Hjördís Magnúsdóttir
Steinn Magnússon
Valdimar Ólafsson
75 ára
Ingimundur Ingimundarson
Ingvi Ingiþórs Ingason
Jeanette Anna Snorrason
Sigrún Sigurðardóttir
70 ára
Ásdís Sigurgestsdóttir
Halldór I. Stefánsson
Kristján Gestsson
Ólöf Jóhannsdóttir
60 ára
Ásta Ástþórsdóttir
Bergur Bjarni Karlsson
Bjarni Eyjólfur Olgeirsson
Björn Jónsson
Boguslawa Anna Florczak
Emilía Kristín Gunnþórsd.
Friðrik Björnsson
Guðrún Jóhannsdóttir
Hafdís Gísladóttir
Maria Magdalena Sissing
Páll Rafnsson
Sigurður Óli Björgólfsson
Svanur Ólafsson
Viðar Eysteinsson
50 ára
Alma Jóhanna Árnadóttir
Ástríður Ásgeirsdóttir
Baldur A. Sigurvinsson
Bragi Baldursson
Bryndís Malla Elídóttir
Eiður Baldursson
Finna Guðrún Ragnarsd.
Guðmundur H. Friðbjörnss.
Guðrún Pálína Jóhannsd.
Hjalti Elís Einarsson
Ilva Petersone
Jóhanna S. Vilbergsdóttir
Ómar Svavarsson
Ragna Björk Ragnarsdóttir
Sumarliði Kristján Jónsson
Vignir Þór Bjarnason
40 ára
Anna Sigríður Grétarsdóttir
Anna Ýr Sveinsdóttir
Árný Þórarinsdóttir
Brynhildur Elvarsdóttir
Elísa Sóley Magnúsdóttir
Erna Guðmundsdóttir
Eva Gunnarsdóttir
Guðrún Erla Sigurðardóttir
Halldór Vilberg Torfason
Kjartan T. Hjörvar
Kristín Björg Jakobsdóttir
Ólöf Helga Sigurðardóttir
Ragna Kristín Árnadóttir
Romas Raudonis
Ulrika Palts
30 ára
Atli Rafn Meldal Hreinsson
Bjarni Freyr Rúnarsson
Dariusz Sobolewski
Erla Dröfn Kristjánsdóttir
Hrannar Árni Barkarson
Íris Fönn Pálsdóttir
Kamila Józefowicz
Robert Alexander
Askew
Rögnvaldur L. Magnússon
Shafagh Pirouz
Símon Bergur Sigurgeirss.
Viktoras Pikevicius
Þorsteinn Björnsson
Þórir Rafnar Rúnarsson
Til hamingju með daginn
40 ára Árný er Reykvík-
ingur og er arkitekt hjá
STÁSS arkitektum.
Maki: Ragnar Jónsson, f.
1979, einn eigenda aug-
lýsingastofunnar Tvist.
Börn: Iðunn, f. 2005,
Þórdís, f. 2009, og Una, f.
2014.
Foreldrar: Þórarinn
Klemensson, f. 1947, við-
skiptafræðingur, og Ásdís
Sigurgestsdóttir, f. 1949,
kennari. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Árný
Þórarinsdóttir
40 ára Brynhildur ólst
upp á Húsavík en býr á
Akureyri. Hún er bráða-
hjúkrunarfr. á bráða-
móttökunni á Akureyri.
Maki: Friðrik Jónsson, f.
1975, sjúkraflutninga- og
slökkviliðsmaður.
Börn: Nína Björk, f. 1998,
Katla Björk, f. 2005, og
Leó, f. 2007.
Foreldrar: Elvar Elíasson,
f. 1958, bús. á Akranesi,
og Brynja Björk Halldórs-
dóttir, f. 1962, bús. í Kjós.
Brynhildur
Elvarsdóttir
40 ára Ragna er Keflvík-
ingur og er leikskólakenn-
ari í Vesturbergi.
Maki: Jóhann Víðir
Númason, f. 1968, bygg-
ingartæknifr. hjá Víðsjá.
Börn: Agnes Lovísa, f.
2011, Tómas Árni, f. 2015.
Stjúpsynir: Óskar Freyr, f.
2000, og Guðjón Fannar,
f. 2005.
Foreldrar: Árni Ingi-
mundarson, f. 1950, d.
2013, og Kristbjörg Jón-
ína Magnúsdóttir, f. 1959.
Ragna Kristín
Árnadóttir