Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 4
dk iPos snjalltækjalausn fyrir verslun og þjónustu Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri 510 5800, dk@dk.is, www.dk.is dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar. Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu. 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019FRÉTTIR Samskip eru í miklum sóknarhug og kynnti félagið nýtt leiðarkerfi í lok síðasta árs. Þórunn Inga tók þar nýlega við stöðu markaðs- stjóra og hefur í mörg horn að líta hjá umsvifamiklu alþjóðlegu félagi. Hverjar eru helstu áskor- anirnar í rekstrinum þessi misserin? Sú áskorun sem við glímum helst við hér heima er krafan um meiri tíðni í flutningi á ferskum afurðum svo þær komist sem fyrst á erlendan markað. Við höf- um breytt siglingaáætluninni okkar m.a. til að mæta óskum viðskiptavina. En þessu tengt þá er ýmislegt að breytast sem snýr að kauphegðun sem kallar á nýja nálgun fyrir okkur í flutninga- geiranum, hér er að nefna „track and trace“-lausnir sem eru við- skiptunum nauðsynlegar svo hægt sé að fylgja vörunni eftir. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Simon Sinek og Sheryl Sand- berg eru í uppáhaldi. Ég mæli með bókunum þeirra Start With Why og Lean In, einnig er gott að hlusta á þau þegar maður er að keyra, elda eða á æfingu. Hver myndi leika þig í kvik- mynd um líf þitt og afrek? Mig hefur alltaf langað til að storka hefðbundnum hug- myndum og uppgötva nýja vinkla þannig að ég sæi fyrir mér að karl myndi leika mig, t.d. Christi- an Bale – kannski ekki síst vegna þess að ég veit að hann myndi taka sér tvö ár í undirbúning til að setja sig inn í hlutverkið og raunverulega breyta sér í mig. Hver myndi ekki vilja sjá þá út- komu. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég hef reynt að sækja mér ein- hverja nýja þekkingu eða skerpa á ákveðnum hlutum sirka einu sinni á ári. Árið 2015 fannst mér ég þurfa að bæta við mig námi og auka þekkingu mína. Ég ákvað að fara í MBA-nám í Háskóla Ís- lands, það nám er bæði hagnýtt og krefjandi. Þegar ég hef ekki verið í námi með vinnu hef ég sótt ýmis styttri námskeið eins og td. hjá Dale Carnegie og þykir nauðsynlegt að fara út fyrir þæg- indarammann af og til. Hugsarðu vel um líkamann? Já, ég reyni það en auðvitað mætti ég vera duglegri að gera styrktaræfingar og teygja. Ég hef mjög gaman af því að prufa eitthvað nýtt og núna eru það hjólatímar í World Class, skíði og göngur. Ég reyni að tvinna sam- verustundir með fjölskyldu og vinum saman við útiveru og hreyfingu, það finnst mér lang- skemmtilegast. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Draumastarfið er starf þar sem nóg er um að vera, með góðri liðsheild þar sem allir fá tækifæri til að láta sínar hugmyndir blómstra og láta gott af sér leiða. Við í Samskipum vorum til dæm- is að senda frá okkur í vikunni 36 góðar borðtölvur, 17 góðar far- tölvur, 12 skjái og lyklaborð til Síerra Leóne í þróunarstarf. Atli og Egidijus í hugbúnaðardeild- inni hafa lagt sig mikið fram við að gera tölvurnar notendavænar og tilbúnar til notkunar þegar þær koma til Afríku, í samstarfi við Aurora Foundation. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Það sem er erfiðast við ís- lenska rekstrarumhverfið til lengri tíma eru sveiflur í hagkerf- inu, sem hafa áhrif á ýmsan iðn- að. Þurfum meiri stöðugleika fyr- ir fyrirtækin í landinu almennt. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Umgengst skemmtilegt, fjöl- breytt og gefandi fólk, spyr mikið og sæki mér þekkingu hingað og þangað. Svo held ég að lykillinn að þessu öllu saman sé að leika sér með vinum sínum og fjöl- skyldu í frítíma og auðvitað hvíla sig líka, þá mætir maður fullur af orku til vinnu. SVIPMYND Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, markaðsstjóri Samskipa á Íslandi Bregðast við kröfunni um tíðari siglingar Morgunblaðið/Hari Þórunn kveðst reyna að tvinna hreyfingu og útiveru saman við samveru með fjölskyldu og vinum. NÁM: Diplóma í markaðs- og alþjóðaviðskiptum frá EHÍ 2008; MBA frá Háskóla Íslands 2017. STÖRF: Sölustjóri Nike (Icepharma) 2005 til 2009 og vörumerkj- astjóri 2009 til 2013; framkvæmdastjóri íþróttasviðs Altis (Under Armour á Íslandi) 2013-2018; markaðsstjóri Samskipa á Íslandi frá 2019. FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er í sambúð með Steinþóri Einarssyni. Ég á þrjú börn og eina tengdadóttur. Sonur minn er 20 ára og stelpurnar mínar eru átta og ellefu ára gamlar. Við erum líka með einn eins árs gamlan hund. ÁHUGAMÁL: Ég vil hafa mikið að gera og þrífst best þegar nóg er fyrir stafni. Finnst gaman að hjóla, í golfi, veiða, skíða og ganga á fjöll með fjölskyldu eða í góðra vina hópi. Stefnan er tekin á Hvannadalshnjúk í ár með góðum hópi. HIN HLIÐIN GRÆJAN Töluverður munur getur verið á fæti íþróttamanns þegar hann smeygir sér í skó fyrir æfingu, og þegar hann er búinn að hreyfa sig af krafti í stundarfjórðung: fóturinn tútnar út svo að skórnir sem áður pössuðu vel eru allt í einu orðnir þröngir. Það má svosem gera hlé á leiknum eða æfingunni og laga reimarnar, en verkfræðingar Nike vita að enginn nennir að standa í þannig stússi. Þeir hafa því hannað skóinn Adapt BB sem ýmist stækkar eða minnkar til að tryggja að alltaf fari vel um fótinn, og skórinn sé ná- kvæmlega eins þröngur og hann á að vera. Í skónum er öflugur lítill mótor sem sér um alla vinnuna og hægt að gera skóinn þrengri eða víðari með því að ýta á takka á hlið sól- ans – eða í gegnum snjallsímaforrit sem tengist skónum þráðlaust. Adapt BB man hversu þétt not- andinn vill að skórinn falli að fæt- inum, og meira að segja er hægt að forrita inn mismunandi stærðir eft- ir því hvort notandinn er að gera upphitanir, er í miðjum leik, eða situr á varamannabekk. Var Adapt BB hannaður sér- staklega með þarfir körfuknatt- leiksfólks í huga en Nike stefnir að því að bjóða upp á fleiri skó með sömu eiginleika, sérsniðna að öðr- um íþróttagreinum og til almennr- ar útivistar. Ætti ekki að koma á óvart að tæknin kostar sitt, og selur Nike skóinn á 350 dali vestanhafs. ai@mbl.is Not má snjallsímann til að „reima“ nýja Nike-íþróttaskóinn þráðlaust. Skórinn sem passar alltaf vel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.