Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 15FÓLK Í dag ætti öllum að vera ljóst hversu dýrmæt tækifæri eru fólgin í bálkakeðjutækninni. En að sama skapi sýndi bitcoin-bólan að rafmyntir geta verið óstöðugar, og ekki heppilegt að nota greiðslumiðil sem sveiflast getur í verði um marga tugi prósenta frá einni viku til annarrar. Íslenskt sprotafyrirtæki vinnur að því að þróa áhugaverða lausn sem sameinar þá tæknilegu eig- inleika sem bálkakeðjan býr yfir og þann stöð- ugleika sem fylgir þjóðargjaldmiðlum. Jón Helgi Egilsson er stjórnarformaður og einn af stofnendum Monerium, og segir hann ágætis lýsingu á þjónustu fyrirtækisins að þar eru hefðbundnir gjaldmiðlar bálkakeðjuvæddir. „Með bálkakeðjunni má í mörgum tilvikum sleppa milli- liðum í viðskiptum og t.d. forrita viðskipti þannig að afhending fari sjálfkrafa fram þegar tilteknum skilyrðum er fullnægt – án þess að banki eða kortafyrirtæki komi við sögu,“ útskýrir hann. „Á grunni bálkakeðja er auðvelt að eiga milliliðalaus viðskipti þvert á landamæri, og jafnvel hægt að kaupa og selja hlutabréf og skuldabréf án aðkomu uppgjörs- og verðbréfamiðstöðva.“ Sveinn Valfells, framkvæmdastjóri Monerium og meðstofnandi, bendir á að með bálkakeðju eigi í raun að vera jafn auðvelt að færa verðmæti frá einum reikningi yfir á annan og að senda tölvu- póst eða SMS-skilaboð. „Notendur eiga einfald- lega sitt rafræna veski og auðkenni, og geta greitt yfir netið á jafn handhægan hátt og ef þeir réttu peningseðil yfir afgreiðsluborð í verslun.“ Bálkakeðjubanki Á margan hátt svipar starfsemi Monerium til banka, nema hvað ekki þarf að starfrækja útibú, gefa út greiðslukort og ekki einu sinni halda úti vefsíðu. Notendur einfaldlega hlaða gjaldmiðlum inn á rafrænan reikning á bálkakeðju og eignast þar með rafrænt ígildi reiðufjár í þessum sama gjaldmiðli. Þjónusta af þessu tagi er leyfisskyld og tekjumódel Monerium svipað og hjá hefð- bundnum banka, því ekki má taka gjald fyrir þjónustuna nema til að standa undir kostnaði, en fyrirtækinu er leyfilegt að afla fjármagnstekna með því að nota innistæður til fjárfestinga. „Lögin skilgreina hvernig má ráðstafa innistæðunum og t.d. gerð sú krafa að aðeins sé fjárfest í hágæða og auðseljanlegum skuldabréfum gefnum út af ríkisstjórnum eða fyrirtækjum,“ útskýrir Sveinn og bætir við að munur sé á rafmyntum, s.s. bitco- in, og rafeyri líkt og Monerium vinnur með. „Raf- eyrir er mjög vel skilgreint hugtak í lögum og birtist íslenskum lagabókum snemma á þessari öld. Rafeyrir á greiðslukortum er notaður víða í Evrópu , en við skiptum plastkortum út fyrir raf- rænt veski tengt bálkakeðju.“ Fyrr í mánuðinum var greint frá því að Mo- nerium hefði lokið nýrri fjármögnunarlotu í sam- vinnu við Crowberry Capital, ConsenSys og Hof Holdings, og hafa fjárfestar þá samtals lagt fyr- irtækinu til jafnvirði tveggja milljóna bandaríkja- dala. Næstu skref snúast einkum um áframhald- andi þróun þjónustu Monerium samhliða því að tryggja fyrirtækinu þau leyfi sem það þarf til að geta starfað sem fjármálafyrirtæki innan Evr- ópska efnahagssvæðisins. Að baki félaginu stendur öflugur hópur fólks með mikla reynslu úr fjármála og hugbúnaðar- geiranum, og eru meðstofnendur Jóns Helga og Sveins þeir Gísli Kristjánsson og Hjörtur Hjart- arson. Aðrir starfsmenn eru Árni Guðjónsson verkfræðingur og Jón Gunnar Ólafsson lögfræð- ingur. Aðgangur að stóru vistkerfi Fyrstu lausnir Monerium byggjast á Ether- eum-bálkakeðjunni en þeir Jón Helgi og Sveinn segja að i Monerium geti stutt við aðrar bálka- keðjur sem reynast hentugar fyrir þessa tegund þjónustu, þegar þær hafi náð nægilega góðri út- breiðslu. Notkunarmöguleikarnir eru víðtækir og bendir Jón Helgi á að margar sniðugar lausnir hafi verið þróaðar fyrir rafmyntir á borð við bitcoin og et- her, sem megi yfirfæra á þann rafeyri sem Mo- nerium er að þróa. Næstu skref, þegar öll leyfi hafa fengist, verði einmitt að ná útbreiðslu í gegnum bálkakeðju-vistkerfið. „Þar mun m.a. gagnast okkur að núna er fyrirtækið ConsenSys komið í hóp hluthafa en það var stofnað af sömu aðilum og settu ether rafmyntina á laggirnar og eru leiðandi í þróun lausna fyrir bálkakeðjur á heimsvísu. Í gegnum þá eigum við greiðan að- gang að stóru vistkerfi fyrirtækja og einstaklinga sem eru að þróa vörur og þjónustu fyrir bálka- keðju.“ Munu bálkakeðjuvæða hefðbundna gjaldmiðla Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Teymið á bak við Monerium, frá vinstri: Sveinn, Árni, Jón Helgi, Jón Gunnar, Gísli og Hjörtur. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Monerium lauk fjármögnunarlotu fyrir skemmstu og hefur nú aflað tveggja milljóna dala. Meðal fjárfesta eru stofnendur ether rafmyntarinnar. VISTASKIPTISPROTAR Samtök verslunar og þjónustu Sara Dögg Svanhild- ardóttir hefur verið ráðin í starf skrif- stofustjóra hjá sam- tökunum. Hún mun m.a. hafa um- sjón með mennta- og fræðslumálum. Sara Dögg hefur langa reynslu af stjórnun og menntamálum. Hún kom að uppbyggingu tveggja grunnskóla hjá Hjallastefnunni og stofnun og stjórnun Arnarskóla. Þá hefur hún starfað sem ráðgjafi á sviði menntamála og haft umsjón með fræðslumálum fyrir ýmis fé- lagasamtök. Sara Dögg er með grunnskólakennarapróf frá Kenn- araháskóla Íslands. Tekur við nýju starfi skrifstofustjóra LOGOS Halldór Brynjar Hall- dórsson hefur bæst í hóp eigenda lögfræðistofunnar LOGOS lögmanns- þjónustu. Hann hefur starfað á stofunni frá árinu 2007 en útskrif- aðist með ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009. Hann lauk framhaldsnámi í evrópskum samkeppnisrétti frá Kings College í London árið 2017. Helstu starfssvið hans eru sam- keppnisréttur, stjórnsýsluréttur, Evrópuréttur, kröfuréttur, málflutn- ingur fyrir dómstólum og gjald- þrotaréttur. Nýr í hópi eigenda lög- fræðistofunnar Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.