Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Eftir að neðri deild breska þingsins hafnaði Brexit-samningi Theresu May með miklum meirihluta þykja bresk sjávarútvegsfyrirtæki í sér- deilis erfiðri stöðu. Fréttamiðillinn Seafood Source greinir frá að út- ganga úr ESB án samnings þyki að margra mati versta mögulega nið- urstaðan fyrir breskan sjávarútveg enda helstu kaupendur breskra sjávarafurða á meginlandi Evrópu. Ekki er nóg með að þurft gæti að greiða háa tolla af breskum sjávaraf- urðum sem seldar eru til Evrópu heldur eru aðfangakeðjur líka í húfi og von á að flutningar muni ekki ganga eins greiðlega og þeir gera í dag. Bresk stjórnvöld hafa m.a. gefið út leiðbeiningar til fiskútflytjenda þar sem tekið er fram að ef ekki tekst að semja um útgöngu þurfi öll- um fiski að fylgja þar til gert vottorð frá stjórnvöldum sem m.a. sannar að fiskurinn hafi verið veiddur með lög- legum hætti. Vanti þetta vottorð má vænta hárra sekta. Einnig munu bresk skip sem hyggjast landa afla í evrópskum höfnum þurfa að fram- vísa sams konar vottorði. Flækjur og leyfi Seafish, helstu hagsmunasamtök breskra sjávarútvegsfyrirtækja, hafa gefið út leiðarvísi um hvernig má standa að útflutningi og t.d. breyta merkingum á umbúðum sem framleiddar hafa verið með evrópsk- um stimplum og innsiglum. Segir Seafish að allir þeir sem vilja selja breskar sjávarafurðir til ESB muni fyrst þurfa að hljóta vottun frá evr- ópska matvælaeftirlitinu. Að sögn Undercurrent News má vænta þess að án samnings muni breskur þorskur, ufsi og skötuselur bera 7,5-18% toll, makríll 15-20% toll og síld 15-18% toll. Þá gæti verið lagður allt að 24% tollur á breskan túnfisk. ai@mbl.is Breskur sjávarútvegur óttast afleiðingar Brexit Í kringum 7,5% til 20% toll- ur yrði lagður á algengar fisktegundir og útflutningur yrði mun flóknari ef ekki verður samið um útgöngu. AFP Sjómaður landar rækjum á Skotlandi. Ef engir samningar nást mun verða töluvert erfiðara að selja breskar sjávarafurðir til ESB-landanna. www.heild.isfyrirspurn@heild.isGarðastræti 37, 101 Reykjavík, sími 568 6787 HEILD fasteignafélag Iðnaðar/lagerhúsnæði til leigu í bakhúsi við Grensásveg 14. Lofthæð er um 4,5 metrar. Húsnæðið er að mestu eitt opið vinnusvæði en þó eru kaffistofa og skrifstofur stúkaðar af. Góðar innkeyrsludyr með nýrri lagerhurð. Planið framan við nýtist vel sem athafnasvæði. • 642 m2 • Iðnaðar/lagerhúsnæði • Laust Grensásvegur 14 Stjórn Eimskipafélags Íslands hefur ráðið Vilhelm Má Þorsteinsson í starf forstjóra félagsins, samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Vilhelm hefur verið fram- kvæmdastjóri fyrirtækja- og fjár- festasviðs Íslandsbanka hf. undan- farin ár, en hann hefur starfað hjá bankanum í tuttugu ár. „Í störfum sínum hefur hann öðlast víðtæka þekkingu og reynslu á fjármála- mörkuðum og í fyrirtækjarekstri, sem mun nýtast vel í nýju starfi hjá Eimskip.“ Vilhelm segist í tilkynningunni þakka traustið sem honum er sýnt, og kveðst hlakka til starfans. „Ég hef átt frábær ár hjá Íslandsbanka þar sem starfsemin hefur tekið stöð- ugum breytingum í gegnum árin. Ég tek með mér mikilvæga reynslu úr þeim störfum þegar ég sný mér nú að nýjum verk- efnum, sem fela meðal annars í sér að byggja upp starfsemi Eim- skips á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið.“ Þeir Vilhelm og Baldvin Þor- steinsson, stjórnarformaður Eim- skips, eru þremenningar. Baldvin getur sérstaklega um það í tilkynn- ingunni að afar þeirra Vilhelms hafi verið bræður og feður þeirra, þeir Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, og Þorsteinn Vil- helmsson fjárfestir, hafi stofnað saman útgerðarfélagið Samherja. Einhugur var um ráðninguna í stjórn Eimskipafélagsins. Vilhelm nýr forstjóri Eimskipafélagsins Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vilhelm hyggst byggja Eimskip upp á traustum grunni sem lagður hefur verið. Vilhelm Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.