Morgunblaðið - 14.01.2019, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019
Reykjavíkurmót karla
A-riðill:
ÍR – Fjölnir ............................................... 0:2
B-riðill:
KR – Fram ................................................ 4:0
Fylkir – Þróttur R.................................... 4:3
Reykjavíkurmót kvenna
Fylkir – Valur ........................................... 0:8
KR – HK/Víkingur ................................... 3:1
Þróttur R. – Fjölnir.................................. 4:6
Faxaflóamót kvenna
Selfoss – Breiðablik.................................. 2:4
ÍA – FH ..................................................... 4:1
Álftanes – Augnablik ............................... 0:5
Fótbolti.net mót karla
ÍA – Keflavík............................................. 4:0
Selfoss – Haukar ...................................... 1:1
Breiðablik – ÍBV....................................... 4:0
Kári – Grótta............................................. 2:3
Kjarnafæðismót karla
Völsungur – Magni................................... 1:2
KA – KA 2 ................................................. 8:0
Þór 2 – Tindastóll ..................................... 1:1
Leiknir F. – Þór........................................ 0:2
KF – Höttur/Huginn................................ 0:4
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Vestri – Höttur ..................................... 60:87
Staðan:
Þór Ak. 12 11 1 1214:974 22
Fjölnir 12 9 3 1140:990 18
Höttur 11 8 3 1003:912 16
Vestri 12 7 5 1021:952 14
Hamar 12 7 5 1175:1110 14
Selfoss 12 5 7 989:983 10
Sindri 13 1 12 984:1267 2
Snæfell 12 0 12 742:1080 0
1. deild kvenna
Tindastóll – Njarðvík .................. (frl.) 97:93
Fjölnir – Hamar ................................... 72:37
Staðan:
Fjölnir 10 8 2 763:611 16
Grindavík 8 6 2 596:531 12
Njarðvík 11 6 5 789:778 12
Þór Ak. 7 5 2 417:384 10
Tindastóll 11 4 7 785:899 8
ÍR 10 3 7 557:608 6
Hamar 9 1 8 504:600 2
Spánn
Fuenlabrada – Obradoiro .................. 84:83
Tryggvi Snær Hlinason lék í sex mínútur
með Obradorio og tók tvö fráköst.
B-deild kvenna:
Boet Mataró – Celta Zorka................. 63:75
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði
fjögur stig og tók fjögur fráköst á 20 mín-
útum með Celta sem er enn með fullt hús
stiga á toppi deildarinnar.
Þýskaland
Oldenburg – Alba Berlín .................... 84:93
Martin Hermannsson lék í 25 mínútur
með Alba, skoraði 12 stig, átti sex stoðsend-
ingar og tók þrjú fráköst.
Frakkland
Nanterre – Lyon-Villeurbanne.......... 79:78
Haukur Helgi Pálsson skoraði níu stig
fyrir Nanterre og tók 10 fráköst en hann
lék í 25 mínútur. Nanterre er í þriðja sæti, á
eftir Lyon-Villeurbanne og Elan Bearnais.
Austurríki
Vienna Timberwolves – Wels .......... 81:115
Dagur Kár Jónsson skoraði 14 stig fyrir
Wels, átti 3 stoðsendingar og tók tvö frá-
köst en hann lék í 16 mínútur. Wels er í átt-
unda sæti af tíu liðum.
NBA-deildin
LA Clippers – Detroit ...................... 104:109
Miami – Memphis ............................. 112:108
Orlando – Boston.............................. 105:103
Minnesota – New Orleans ............... 110:106
Oklahoma City – San Antonio ......... 122:112
Phoenix – Denver ............................... 102:93
Utah – Chicago ................................. 110:102
Sacramento – Charlotte..................... 104:97
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Keflavík..... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – Víkingur.................. 19.30
Hertz-höllin: Grótta – Fram U............ 19.30
Varmá: Afturelding – Valur U ............ 19.30
ÍSHOKKÍ
HM U20 karla, 3. deild:
Laugardalur: Búlgaría – S-Afríka ........... 10
Laugardalur: Kína – Nýja-Sjáland..... 13.30
Laugardalur: Ísland – Ástralía ................ 17
Laugardalur: Tyrkland – Taívan ........ 20.30
Í KVÖLD!
Freyr Arnarsson og Ólafur Gúst-
afsson, stundum fyrir harla litlar sak-
ir. Að minnsta kosti ekki meiri sakir
en leikmenn spænska liðsins fengu að
komast upp með hinum megin vall-
arinns. Eins sýndu dómarar leiksins
Spánverjum einstaka þolinmæði í
sóknarleiknum en ítrekað fengu þeir
að vera í sókn í um tvær mínútur.
Voru að elta frá upphafi
Íslenska liðið lenti snemma þremur
til fjórum mörkum undir í leiknum og
var hreinlega að elta frá upphafi. Í
síðari hálfleik áttu Íslendingar tvö
álitleg áhlaup, annað í upphafi þegar
þer skoruðu tvö fyrstu mörk hálfleiks-
ins og áttu þess kost í kjölfarið að
minnka muninn í tvö mörk, 19:17, en
allt kom fyrir ekki.
Upp úr miðjum síðari hálfleik varð
síðara áhlaupið en þá minnkaði ís-
Köln. Eins og staðan er í dag þá eru
sennilega helmingslíkur á að íslenska
liðið nái áfram inn í milliriðil og forðist
þátttöku í forsetabikarnum.
Í gær kom fljótt í ljós að íslenska
landsliðið átti við ofurefli að etja.
Spánverjar eru með vel spilandi sam-
æft og reynslumikið lið sem hefur sér-
stakt lag á að stýra hraða leiksins eft-
ir þörfum sínum. Ekki bætti úr skák
að nokkrir leikmenn íslenska lands-
liðsins náðu sér ekki fullkomlega og
gerðu sig seka um mörg mistök, mis-
tök sem spænska liðið refsaði mis-
kunnarlaust fyrir. Til að bæta gráu of-
an á svart þá voru dómarar leiksins
fremur óhagstæðir. Engir vafadómar
féllu íslenska liðinu í hag, því var óhik-
að refsað með brottrekstum og áður
en fyrri hálfleikur var úti voru að-
almennirnir í miðju varnarinnar búnir
að fá tvo brottrekstra hvor, Arnar
lenska liðið muninn í 27:24, eftir að
hafa verið sex mörkum undir. Því mið-
ur náði liðið ekki nær og Spánverjar
bættu við forskot sitt á nýjan leik.
Björgvin Páll Gústavsson náði sér
bærilega á strik í síðari hálfleik og
varði á tíðum ágætlega. Mikið mæddi
á Aroni Pálmarssyni og enda dró
verulega af honum þegar á leið. Sömu
sögu er að segja um Ólaf Guðmunds-
son sem var markahæsti leikmaður ís-
lenska liðsins að þessu sinni. Elvar
Örn Jónsson var ekki nema skugginn
af sjálfum sér í gærkvöld eftir góðan
leik gegn Króötum á föstudaginn.
Hann virtist lenda á spænska veggn-
um að þessu sinni.
Ágúst Elí Björgvinsson byrjaði í
markinu og varði nokkur góð skot á
upphafsmínútunum en tapaði síðan
þræðinum og var skipt af velli eftir 18
mínútur fyrir Björgvin Pál sem átti
góðan sprett um skeið í síðari hálfleik.
Þrír leikmenn fengu að koma við
sögu í fyrsta sinn á stórmóti, Gísli
Þorgeir Kristjánsson, Teitur Örn Ein-
arsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson
sem lék allan síðari hálfleikinn. Teitur
Örn var með í 40 mínútur og var
ákveðinn og skoraði tvö góð mörk.
Gísli Þorgeir átti hinsvegar hreint frá-
bæra innkomu. Ekki var að sjá að
hann væri aðeins 19 og að leika í
fyrsta sinn á stórmóti. Hann sprengdi
spænsku vörnina hvað eftir annað
með hraða sínum, varð óhikandi og
sókndjarfur gegn framúrskarandi
varnarliði.
Um skeið voru þeir Teitur Örn,
Elvar Örn og Gísli Þorgeir saman í
sókninni. Meðalaldur þeirra eru 20 ár
sem undirstrikar enn þau kyn-
slóðaskipti sem eru að eiga sér stað.
Á brattann að sækja á
Íslenska landsliðið þarf að vinna þrjá næstu leiki sína á HM til að komast í milli-
riðla Of fátt gekk upp gegn Spánverjum í Ólympíuhöllinni í München í gærkvöld
Króatía og Makedónía unnu sína leiki
eins og við mátti búast gegn Japan og
Barein í B-riðli heimsmeistaramóts
karla í handknattleik í München í gær
og eru því með fjögur stig, eins og
Spánverjar, eftir fyrstu tvær umferð-
irnar í riðlinum.
Barein, lið Arons Kristjánssonar
sem mætir Íslandi klukkan 14.30 í dag,
stóð ágætlega í Makedóníu lengst af.
Lokatölur urðu 28:23 eftir 12:8 í hálf-
leik, en Makedónía skoraði fjögur síð-
ustu mörk fyrri hálfleiks og náði for-
skoti sem Barein ógnaði ekki eftir það.
Kiril Lazarov skoraði átta mörk fyr-
ir Makedóníu og sló heildarmarkamet
heimsmeistarakeppninnar. Hann hefur
nú gert 311 mörk í lokakeppni HM,
einu meira en Kyung-Shin Yoon gerði
fyrir Suður-Kóreu á árunum 1993 til
2007. Hinn 37 ára gamli Lazarov gefur
ekkert eftir og er kominn með 16 mörk
á mótinu eftir tvo leiki.
Husain Alsayyad skoraði sex mörk
fyrir Barein og Aron sagði við Morg-
unblaðið eftir leikinn að lið sitt hefði
komist ágætlega frá fyrstu tveimur
leikjunum. „Líkamlegur styrkur okkar
er ekki eins mikill og hjá bestu liðunum
á þessu móti og breiddin er heldur ekki
sú sama,“ sagði Aron.
Króatar sigruðu Japan vandræðalít-
ið, 35:27, og Lino Cervar þjálfari þeirra
leyfði sér að hvíla hinn snjalla Luka
Cindric. Dagur Sigurðsson og hans
menn áttu aldrei möguleika eftir að
hafa lent 7:1 undir eftir tíu mínútur en
Króatar voru mest ellefu mörkum yfir.
Zlatko Horvat skoraði átta mörk
fyrir Króata og Luka Stepancic fimm
en Shinnosuke Tokuda skoraði sex fyr-
ir Japan.
Frökkum og Þjóðverjum ekki
ógnað í Berlín
Keppnin í A-riðlinum í Berlín virðist
ætla að fara að mestu leyti eftir bók-
inni en þar var önnur umferðin leikin á
laugardaginn. Frakkar og Þjóðverjar
eru með fjögur stig og fátt ógnar þeim í
tveimur efstu sætunum. Rússar eru
með þrjú stig og Serbar eitt í barátt-
unni um þriðja sætið en Brasilíumenn
gætu þó blandað sér í þá keppni. Við-
ureign Serbíu og Brasilíu í dag er gríð-
arlega þýðingarmikil.
Frakkar völtuðu yfir Serba í seinni
hálfleik og unnu stórsigur, 32:21.
Ludovic Fabregas og Nedim Remili
skoruðu fimm mörk hvor fyrir Frakka
en Bogdan Radivojevic sex fyrir Serba.
Þjóðverjar voru ekki í vandræðum
með Brasilíumenn sem virtust
sprungnir eftir hörkuleikinn við
Frakka. Lokatölur urðu 34:21 og Uwe
Gensheimer var þar í aðalhlutverki
með 10 mörk. José Toledo skoraði
fimm fyrir Brasilíu.
Rússar unnu Kóreu allörugglega,
34:27, þar sem Daniil Shiskarev gerði
sjö mörk fyrir Rússa en Jeongu Kang
og Kwangsoon Park fjögur hvor fyrir
sameinað Kóreuliðið sem á þar með
nær enga möguleika á að fara áfram.
Komist Ísland í milliriðil verða and-
stæðingar þar þrjú efstu lið A-riðils.
Hreinar línur í riðli Íslands
Króatía og Makedónía sigruðu Japan og Barein örugglega og eru með fjögur stig
Lazarov orðinn markahæstur á HM frá upphafi Frakkar fóru létt með Serba
AFP
Lykilmaður Husain Alsayyad er markahæsti leikmaður Barein í fyrstu
tveimur leikjunum á HM og hér taka Makedóníumenn vel á honum.
Olympiahalle, München, lokakeppni
HM, B-riðill, sunnudag 13. janúar.
Gangur leiksins: 2:0, 3:4, 5:5, 8:6,
9:8, 13:9, 16:13, 19:14, 19:16, 25:19,
27:20, 27:24, 30:24, 32:25.
Mörk Spánar: Ferrán Solé 5/1, Daniel
Sarmiento 4, Raúl Entrerríos 4, Aleix
Gómez 4/1, Julen Aguinagalde 3, Án-
gel Fernández 3, Aitor Arino 3, Joan
Canellas 2, Daniel Dujshebaev 2, Adriá
Figueras 2.
Varin skot: Rodrigo Corrales 7, Gon-
zalo Pérez de Vargas 4/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Spánn – Ísland 32:25
Mörk Íslands: Ólafur Guðmundsson
6, Aron Pálmarsson 5, Arnór Þór
Gunnarsson 3/3, Bjarki Már Elísson 3,
Teitur Örn Einarsson 2, Sigvaldi Björn
Guðjónsson 2, Stefán Rafn Sigur-
mannsson 1, Arnar Freyr Arnarsson 1,
Gísli Þorgeir Kristjánsson 1, Ómar Ingi
Magnússon 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
10, Ágúst Elí Björgvinsson 5.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Václav Horácek og Jirí Nov-
otný, Tékklandi.
Áhorfendur: 12.000.
Í MÜNCHEN
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Íslenska landsliðið er komið í þá stöðu
á HM í handknattleik karla að það
verður að vinna þrjá síðustu leiki sína
í riðlakeppninni til þess að komast í
milliriðla og ná þar með fyrsta mark-
miði sínu. Þetta varð ljóst eftir óþarf-
lega stórt tap fyrir Spánverjum í Ól-
ympíuhöllinni í München í gærkvöldi,
32:25, í leik þar sem íslenska liðið átti
á brattann að sækja á flestum víg-
stöðvum frá fyrstu mínútu til þeirrar
síðustu. Staðan í hálfleik var, 19:14,
Spánverjum í vil.
Næsti leikur liðsins verður í dag
gegn landsliði Barein og þar mega
landsliðsmenn Íslands ekki misstíga
sig þrátt fyrir að fá stutta hvíld en
þeir léku síðasta leik riðilsins í gær-
kvöldi og eiga síðan fyrsta leik dagins
í dag sem hefst klukkan 14.30 í Ól-
ympíuhöllinni. Það lá svo sem fyrir áð-
ur en mótið hófst að þessi staða gæti
komið upp að leikirnir þrír í lokin
skæru úr um hvort íslenska landsliðið
næði markmiði sínu eða ekki. Hins-
vegar er miði alltaf möguleiki og
menn ólu með sér þann draum að geta
náð vinningi úr öðrum hvorum af
tveimur fyrstu leikjunum, gegn Kró-
atíu og Spáni, ekki síst þeim fyrri.
Reyndar er sagan ekki með íslenska
landsliðinu gegn báðum þjóðum á
stórmótum.
Íslenska landsliðið er því komið í þá
stöðu sem flestir reiknuðu með og við-
ureignin við Makedóníu á fimmtudag
verður úrslitaleikur um hvor þjóðin
sendir lið til milliriðlakeppninnar í