Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 AFP Átök Gedeón Guardiola og Joan Canellas reyna að stöðva Aron Pálmarsson í leiknum í München í gær en Ýmir Örn Gíslason er við öllu búinn á línunni. á flestum vígstöðvum Danir og Norðmenn munu sigla áreynslu- lítið áfram úr C-riðli heimsmeistaramóts- ins í handknattleik eins og við var að búast en slagurinn um þriðja sætið í riðlinum tók óvænta stefnu á laugardaginn þegar önn- ur umferðin var leikin í Herning á Jót- landi. Danir burstuðu Túnisbúa 36:22 og hafa unnið fyrstu tvo leikina með samtals 37 marka mun. Norðmenn fóru létt með Sádi- Araba, 40:21, og spurningin verður bara hvort Danir eða Norðmenn vinna riðilinn og fara með fjögur dýrmæt stig með sér í milliriðilinn. En það voru Sílebúar sem stálu senunni á kostnað Patreks Jóhann- essonar og hans lærisveina í liði Austurríkis. Fyrirfram var búist við baráttu Austurríkis og Túnis um þriðja sætið og eftir að Síle tapaði 16:39 fyrir Danmörku voru Suður- Ameríkustrákarnir nánast afskrif- aðir, eins og þeir voru í raun fyrir mótið. En þeir fóru á kostum í seinni hálf- leik, unnu Austurríki 32:24 eftir að hafa verið undir í hálfleik, 14:15, og allt í einu eru fyrirsjáanlegir afar áhugaverðir leikir Túnisbúa við bæði Austurríki og Síle.  Erwin Feuchtmann skoraði níu mörk fyrir Síle og Emil Feuchtmann og Sebastian Ceballos sex hvor en Robert Weber gerði sex mörk fyrir heillum horfna Austurríkismenn.  Magnud Rod skoraði níu mörk fyrir Norðmenn og Espen Lie Han- sen átta í stórsigrinum á Sádi- Aröbum.  Rasmus Lauge og Mikkel Han- sen skoruðu sjö mörk hvor fyrir Dani í sigrinum á Túnisbúum. vs@mbl.is Síle Erwin Feuchtmann skoraði níu mörk gegn Austurríki. Síle galopnaði baráttuna í C-riðlinum AFP Svíar, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, virð- ast ætla að sigla vandræðalítið í gegnum D-riðil heimsmeistaramóts karla í handknattleik á „heimavelli“ sínum á Amager-eyju í Kaup- mannahöfn. Þeir unnu auðveldan sigur á Arg- entínu í annarri umferðinni í gærkvöld, 31:16, og skutu Suður-Ameríkumeistarana niður á jörðina en þeir höfðu gert mjög óvænt jafntefli við Ung- verja í fyrstu umferðinni. Eftir jafnræði í 20 mínútur náðu Svíar að slíta sig frá Argentínumönnum og voru yfir í hálfleik, 15:10. Þeir argentínsku skoruðu aðeins þrjú mörk á fyrstu 20 mínútunum í seinni hálfleik og sex mörk alls og stórsigur Svía varð nið- urstaðan. Mattias Zachrisson skoraði 6 mörk fyrir Svía og Nicklas Ekberg 5. Andreas Palicka varði 16 skot og Kristján gat dreift álaginu vel á sína menn. Federico Fernández skoraði 6 mörk fyrir Argentínumenn. Þó Ungverjar hafi misstigið sig aðeins í fyrsta leik má telja fullvíst að þeir fylgi Svíum áfram í milliriðilinn. Þeir tóku sér tak í gær og unnu Angóla auðveldlega, 34:24, eftir að staðan var 18:8 í hálfleik. Bendeguz Boka skoraði 5 mörk fyrir Ungverja, Gábor Csaszar, Zsolt Balogh og Iman Jamali 4 hvor, en Edvaldo Ferreira skor- aði 5 mörk fyrir Angóla. Katar komst á sigurbraut með því að vinna Egypta nokkuð örugglega, og rétti því sinn hlut eftir tapið óvænta gegn Angóla. Lokatölur urðu 28:23 og Egyptar eiga nú erfitt verk fyrir hönd- um, ætli þeir að vera með í slagnum um þriðja sætið. Öll fjögur liðin eru í raun ennþá með í þeim slag og hvert stig og mark í innbyrðis leikjum þeirra getur ráðið úrslitum. Youssef Ali skoraði 9 mörk fyrir Katar í leiknum en Ahmed Elahmar gerði 6 mörk fyrir Egypta. Staðan í riðlinum mun skýrast eitthvað í dag þegar Ungverjar mæta Katar og Argentína leik- ur við Egyptaland. Svíar eiga væntanlega léttan leik fyrir höndum gegn Angóla. vs@mbl.is AFP Þjálfarinn Kristján Andrésson hvetur sænska liðið til dáða í leiknum við Argentínu í gærkvöld. Svíar á siglingu  Unnu stórsigur á Argentínumönnum á Amager EHF-bikar kvenna Storhamar – Esbjerg .......................... 28:28  Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Es- bjerg sem er með þrjú stig eftir tvo leiki í riðlakeppninni. Þýskaland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Thüringer – Dortmund....................... 24:19  Hildigunnur Einarsdóttir leikur með Dortmund. Danmörk Aarhus United – Aalborg ................... 28:22  Birna Berg Haraldsdóttir skoraði ekki fyrir Aarhus United sem er í sjötta sæti af 14 liðum í deildinni. Frakkland Bourg de Peage – Toulon................... 32:29  Mariam Eradze skoraði ekki fyrir Tou- lon sem er í níunda sæti af 12 liðum í deild- inni. Svíþjóð Boden – Kristianstad .......................... 28:23  Hafdís Renötudóttir varði fjögur skot í marki Boden sem er með fimm stig í 11. og næstneðsta sæti.  Andrea Jacobsen skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad sem er með þrjú stig á botni deildarinnar. Forkeppni EM karla Írland – Bretland.................................. 26:32 Aserbaídsjan – Georgía ....................... 25:30 Búlgaría – Lúxemborg......................... 17:36 Malta – Kýpur....................................... 20:38 Kýpur – Georgía ................................... 25:24 Írland – Búlgaría .................................. 28:35 Aserbaídsjan – Malta ........................... 27:24 Lúxemborg – Bretland ........................ 29:19  Lúxemborg og Kýpur tryggðu sér keppnisrétt á næsta stigi forkeppninnar fyrir EM 2022 en þau mæta liðum sem verða neðst í undanriðlum EM 2020. Hin sex liðin fá annað tækifæri í Evrópukeppni smáþjóða næsta sumar. Vináttulandsleikir karla Sviss – Pólland...................................... 32:28 Slóvakía – Rúmenía.............................. 23:22 Slóvakía – Rúmenía.............................. 27:20 HANDBOLTI A-RIÐILL: Rússland – Kórea ................................. 34:27 Þýskaland – Brasilía ............................ 34:21 Frakkland – Serbía .............................. 32:21 Staðan: Þýskaland 2 2 0 0 64:40 4 Frakkland 2 2 0 0 56:43 4 Rússland 2 1 1 0 64:57 3 Serbía 2 0 1 1 51:62 1 Brasilía 2 0 0 2 43:58 0 Kórea 2 0 0 2 46:64 0 Leikir í dag: 14.30 Serbía – Brasilía 17.00 Rússland – Þýskaland 19.30 Frakkland – Kórea B-RIÐILL: Makedónía – Barein ............................ 28:23  Aron Kristjánsson þjálfar Barein. Króatía – Japan ................................... 35:27  Dagur Sigurðsson þjálfar Japan. Spánn – Ísland ...................................... 32:25 Staðan: Spánn 2 2 0 0 65:48 4 Makedónía 2 2 0 0 66:52 4 Króatía 2 2 0 0 66:54 4 Ísland 2 0 0 2 52:63 0 Barein 2 0 0 2 46:61 0 Japan 2 0 0 2 56:73 0 Leikir í dag: 14.30 Ísland – Barein 17.00 Króatía – Makedónía 19.30 Spánn – Japan C-RIÐILL: Austurríki – Síle .................................. 24:32  Patrekur Jóhannesson þjálfar Austur- ríki. Noregur – Sádi-Arabía ........................ 40:21 Danmörk – Túnis.................................. 36:22 Staðan: Danmörk 2 2 0 0 75:38 4 Noregur 2 2 0 0 74:45 4 Síle 2 1 0 1 48:63 2 Austurríki 2 1 0 1 53:54 2 Túnis 2 0 0 2 46:70 0 Sádi-Arabía 2 0 0 2 43:69 0 Leikir í dag: 14.00 Túnis – Síle 16.30 Noregur – Austurríki 19.15 Danmörk – Sádi-Arabía D-RIÐILL: Katar – Egyptaland ............................. 28:23 Ungverjaland – Angóla........................ 34:24 Svíþjóð – Argentína ............................ 31:16  Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð. Staðan: Svíþjóð 2 2 0 0 58:40 4 Ungverjaland 2 1 1 0 59:49 3 Angóla 2 1 0 1 48:57 2 Katar 2 1 0 1 51:47 2 Argentína 2 0 1 1 41:56 1 Egyptaland 2 0 0 2 47:55 0 Leikir í dag: 14.30 Ungverjaland – Katar 17.00 Argentína – Egyptaland 19.30 Svíþjóð – Angóla HM2019

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.