Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 6
6 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 2019 gömlu liðsfélögum en samfélagið í Vestmannaeyjum syrgir nú Kolbein Aron Arnarson, fyrrverandi mark- mann karlaliðs ÍBV í handknattleik, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Vestmannaeyjum, 24. desember síðastliðinn. „Þetta var mjög skrítinn leikur fyrir mig að spila og ég var öðruvísi stressuð fyrir hann en aðra leiki. Ég dvaldi í Vestmannaeyjum á milli jóla og nýárs og var mikið með stelp- unum í ÍBV þá. Við vorum óvinkonur í sextíu mínútur en svo var það bara búið, strax að leik loknum. Það var vissulega erfitt að horfa upp á sínu gömlu liðsfélaga og þjálfara í sárum en maður huggaði sig við það að Kolli hefði sagt öllum að hætta þessu væli og halda áfram að spila handbolta.“ Sandra hóf handboltaferilinn með stórliði Füchse Berlin í Þýskalandi en faðir hennar, Erlingur Birgir Richardsson, þjálfaði karlalið félags- ins á árunum 2015 til ársins 2016. Dýrmæt reynsla í Þýskalandi „Ég mun alltaf búa vel að því að hafa spilað með Füchse Berlin í Þýskalandi, þótt ég hafi verið algjör kjúklingur á þeim tíma. Ég heppin með það að gera að hópurinn hjá lið- inu var afar þunnur á þessum tíma og ef einhver meiddist þá var ég næst inn. Stemningin á leikjunum úti er meiri en hér heima og þýska deildin snýst meira um líkamlega styrkinn. Stelpurnar sem spila þar eru stærri en hér heima á meðan boltinn á Íslandi er hraðari og það er virkilega gaman að hafa fengið tæki- færi til þess að prófa að spila þarna.“ Sandra er í sambandi með Daníel Þór Ingasyni, leikmanni Hauka í Ol- ísdeild karla, en Daníel var valinn í íslenska landsliðshópinn sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu 2019 sem fram fer í Danmörku og Þýska- landi. „Ég fylgist mjög vel með mínum manni í Þýskalandi en á sama tíma er ég sjálf að æfa á fullu og ég kemst þar af leiðandi ekki út til þess að fylgjast með mótinu. Ég vona inni- lega að hann fái tækifæri á mótinu því ég er ansi heppin að hafa kynnst honum. Ég fæ reglulega mat hjá tengdamóður minni sem kemur að- eins í staðinn fyrir matinn hjá mömmu. Það er vissulega mikið rætt um handbolta á okkar heimili en við tölum við líka um aðra hluti, inn á milli,“ sagði Sandra enn- fremur. 11. umferð í Olís-deild kvenna 2018-2019 Markahæstir Lið umferðarinnar Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfossi 75 Martha Hermannsdóttir, KA/Þór 68 Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram 66 Arna Sif Pálsdóttir, ÍBV 65 Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Stjörnunni 65 Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi 60 Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram 60 Steinunn Björnsdóttir, Fram 58 Lovísa Thompson, Val 54 Díana Kristín Sigmarsdóttir, HK 52 Maria Ines Da Silva Pereira, Haukum 52 Berta Rut Harðardóttir, Haukum 48 Greta Kavaliuskaite, ÍBV 45 Sólveig Lára Kristjánsdóttir, KA/Þór 45 Katrín Vilhjálmsdóttir, KA/Þór 41 Sandra Erlingsdóttir, Val 41 Ester Óskarsdóttir, ÍBV 40 Karen Helga Díönudóttir, Haukum 37 Sigríður Hauksdóttir, HK 36 Elísabet Gunnarsdóttir, Stjörnunni 32 Olgica Andrijasevic KA/Þór Hulda Bryndís Tryggvadóttir KA/Þór Sandra Erlingsdóttir Val Ragnheiður Júlíusdóttir Fram Þórey Anna Ásgeirsdóttir Stjörnunni Þórey Rósa Stefánsdóttir Fram Sigríður Hauksdóttir HK Varamenn: Íris Björk Símonardóttir, 7 Val Karen Helga Díönudóttir, Haukum Hekla Rún Ámundadóttir, 7 Haukum Arna Sif Pálsdóttir, 8 ÍBV Rakel Dögg Bragadóttir, Stjörnunni Hversu oft leik - maður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 4 3 5 5 Erfitt að fá ekki mat hjá mömmu á hverjum degi  Líður vel á Hlíðarenda  Telur Valsliðið geta barist um Íslandsmeistaratitilinn Morgunblaðið/Hari Eyjastúlkan Sandra Dís Erlingsdóttir er næstmarkahæst Valskvenna í deildinni í vetur og er í þriðja sinn í liði umferðarinnar. 11. UMFERÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Sandra Erlingsdóttir átti frábæran leik fyrir Val gegn sínum gömlu liðs- félögum í ÍBV þegar liðin mættust í toppslag 11. umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik á Hlíðarenda í síðustu viku. Sandra var markahæst í liði Vals með sex mörk en Sandra gekk til liðs við Val frá ÍBV, síðasta sumar. Valskonur sitja á toppi deild- arinnar með 17 stig og hafa tveggja stiga forskot á ÍBV og Fram sem eru í 2.-3. sæti deildarinnar með 15 stig. „Ég er mjög ánægð með þann stað sem liðið er á í dag. Við erum búnar að vera spila mjög vel og höfum verið að finna taktinn, hægt og rólega, í undanförnum leikjum. Við vorum að- eins að hiksta, sóknarlega, í upphafi tímabilsins en að sama skapi hefur varnarleikurinn alltaf verið öflugur. Íris hefur svo varið mjög vel þannig að það mætti kannski segja að varn- arleikur og markvarsla hafi haldið okkur á floti, fyrstu mánuðina. Sókn- arleikurinn hefur svo verið að koma hægt og rólega og við erum byrjaðar að finna hver aðra mun betur en við gerðum í fyrstu leikjunum.“ Sandra gekk til liðs við Val síðasta sumar eftir tvö ár með ÍBV í Vest- mannaeyjum. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að flytja út frá mömmu og pabba en hún er fædd ár- ið 1998. Stórt skref að stíga „Það var stórt skref fyrir mig að flytja frá Vestmannaeyjum og flytja út frá mömmu og pabba. Þess vegna var ég ekki að stressa mig of mikið á því að fyrstu leikirnir hjá mér hafi kannski ekki gengið alveg jafn vel og ég hefði viljað. Ég þurfti aðeins að venjast því að fá ekki mömmumat á hverjum degi en þetta er allt að koma og mér leið eins og ég væri að ganga inn í ÍBV-heimilið, þegar að ég mætti fyrst í Valsheimilið, því mér hefur verið tekið mjög vel hjá félaginu. Ég þekkti vel til nokkurra stelpnanna í Valsliðinu áður en ég skrifaði undir á Hlíðarenda og þótt við séum flestar á mismunandi aldri náum við mjög vel saman og mórallinn í liðinu er frá- bær.“ Sandra telur að Valskonur séu með lið til þess að berjast um Íslands- meistaratitilinn í vor. „Það var alltaf vitað mál að það myndi taka smá tíma fyrir mig að komast inn í nýtt lið en ég er að finna mig betur og betur. Ég er sátt með mína spilamennsku til þessa og ef við höldum áfram á sömu braut tel ég okkur vel í stakk búnar til þess að berjast um Íslandsmeistartitilinn. Skrítið að mæta ÍBV Sandra viðurkennir að það hafi verið erfitt að spila gegn sínum Lionel Messi skráði nafn sitt enn og aftur í sögubækurnar er hann skoraði annað mark Barcelona í sannfærandi 3:0-sigri á Eibar á heimavelli í 1. deild spænska fótboltans í gærkvöld. Messi er nú búinn að skora 400 deildarmörk fyrir Barcelona og er hann fyrsti leikmaðurinn sem nær þeim áfanga í fimm stærstu deildum Evrópu með einu og sama liðinu. Messi hefur skorað mörkin í 435 leikjum. Cristiano Ronaldo er með 409 deildamörk fyrir Manchester United, Real Madrid og Juventus í 507 leikjum. Luis Suá- rez skoraði fyrsta og þriðja mark Barcelona í leiknum. Barcelona er með 43 stig og fimm stiga forskot á Atlético Madríd á toppi deildarinnar. johanningi@mbl.is Messi kominn með 400 Lionel Messi Ísland mætir Ástralíu klukkan 17 í dag í fyrsta leiknum í 3. deild heimsmeistaramóts- ins í íshokkí pilta U20 ára en mótið fer fram í Skautahöllinni í Reykjavík og lýkur næsta sunnudag. Ísland er einnig með Taívan og Tyrklandi í riðli en í hinum riðlinum eru Kína, Nýja-Sjáland, Búlgaría og Suður- Afríka. Sigurliðið vinnur sér sæti í 2. deild B. „Ég fékk alla sem ég vildi fá í verkefnið, það er enginn meiddur eða neitt slíkt. Ég held að þetta sé besta liðið sem við getum stillt fram á ísnum. Eina sem við stefnum að er að fara í alla leiki með það að markmiði að vinna þá,“ sagði Jussi Sippo- nen þjálfari íslenska liðsins en ítarlegt viðtal við hann er að finna á mbl.is/sport. HM hefst í Laugardal Jussi Sipponen SA vann þægilegan 8:0-sigur á Reykjavík í 5. umferð Hertz-deildar kvenna í íshokkíi á Ak- ureyri í fyrrakvöld. SA er búið að vinna alla fimm leiki liðanna á tímabilinu, en þetta eru einu liðin í deildinni á leiktíðinni. Staðan var markalaus eftir fyrsta leikhluta en í öðrum leikhluta komst SA á bragðið. Sunna Björg- vinsdóttir, Ragnhildur Kjartansdóttir, Silvía Björgvinsdóttir og Kolbrún Garðarsdóttir skoruðu allar í leikhlutanum og var staðan fyrir þriðja og síðasta leikhlutann 4:0. Anna Einisdóttir, Arndís Sigurðardóttir og Eva Karvelsdóttir skoruðu í síðasta leikhlutanum og breyttu stöð- unni í 7:0. Sunna Björgvinsdóttir bætti svo við sínu öðru marki og áttunda marki SA í blálokin og þar við sat. johanningi@mbl.is Átta marka sigur SA Sunna Björgvinsdóttir  Hin 17 ára gamla Iveta Ivanova úr Fylki vann á laugardag enn einu sinni til verðlauna á alþjóðlegu móti. Hún sigraði þá í 53 kg flokki í unglinga- flokki á móti í Nürburgring í Þýska- landi. Hún vann allar fimm viðureignir sínar og sigraði Jill Auger, sem er í ell- efta sæti heimslistans í flokknum, í úr- slitaviðureigninni. Sex Íslendingar tóku þátt í mótinu og Samuel Josh Ramos náði í bronsverðlaun í 63 kg flokki pilta.  Mauricio Poc- hettino knatt- spyrnustjóri Tott- enham sagði eftir ósigurinn gegn Manchester Unit- ed í ensku úrvals- deildinni í gær (sjá bls. 2) að hann óttaðist að ökkla- meiðsli sem Harry Kane varð fyrir undir lok leiksins myndu halda fyrirlið- anum og markaskoraranum frá keppni á næstunni. Staðan væri sérstaklega slæm vegna þess að Son Heung-min væri á förum til að spila með Suður- Kóreu í Asíukeppninni.  Los Angeles Rams tryggði sér í fyrrinótt sæti í úrslitaleik Þjóðardeild- arinnar í NFL-deildinni í amerískum ruðningi. Rams hafði þá betur gegn Dallas Cowboys á heimavelli, 30:22. Kansas City Chiefs komst af öryggi í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar með 31:13-sigri á Indianapolis Colts á heimavelli.  Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í 49. sæti af 56 keppendum á fyrsta móti ársins á Evrópumótaröð kvenna í golfi, Fagima Bink Mubarak mótinu í Abu Dhabi, sem lauk á laugardaginn. Hún lék þá sinn besta hring, á 73 höggum, eftir afleitt gengi tvo fyrstu dagana, og spilaði samtals á 14 höggum yfir pari.  Haukur Helgi Pálsson tryggði Nan- terre sigur á efsta liðinu, Lyon- Villeurbanne, 79:78, í toppslag í frönsku A-deildinni í körfuknattleik í fyrrakvöld. Haukur gerði tvö síðustu stig leiksins af víta- línunni í blálokin en hann skoraði alls 9 stig og tók 10 frá- köst fyrir Nanterre í leiknum. Lið hans styrkti stöðu sína í þriðja sæti en Lyon er með 26 stig, El- an Bearnais 22 og Nanterre 20 stig. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.