Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.01.2019, Qupperneq 1
Var geggjað að koma inn á Í KÖLN Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Að sjálfsögðu var gaman að koma inn á leikvöllinn í fyrri hálfleik. Það hefur lengi verið draumur minn að leika á heimsmeistaramóti í hand- bolta með landsliðinu og ekki var það verra að draumurinn rættist í leik á móti heimsmeisturunum. Það var geggjað að koma inn á,“ sagði handknattleiksmaðurinn ungi, Haukur Þrastarson frá Selfossi, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld eftir að hann hafði leikið stóran hluta leiksins við Frakka í milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins. Haukur er aðeins 17 ára gamall og sá yngsti sem leikið hefur fyrir íslenska lands- liðið á heimsmeistaramóti. Haukur stýrði leik íslenska liðsins af festu og skoraði tvö mörk í þrem- ur skotum, í 31:22, tapi íslenska landsliðsins. „Mér gekk bara nokkuð vel og var öruggur með mig og leið vel. Hins- vegar er margt sem ég get gert bet- ur,“ sagði Haukur af yfirvegun en innkoma hans í leikinn vakti mikla athygli. Vallarþulurinn kynnti Hauk sérstaklega fyrir áhorfendum þegar hann skoraði síðara mark sitt og mátti heyra klið fara um ríflega 18 þúsund áhorfendur þegar þulurinn sagði Selfyssinginn vera aðeins 17 ára gamlan. Á tímabili í leiknum í gærkvöldi báru þrír frændur upp sóknarleik ís- lenska liðsins, Haukur, Elvar Örn Jónsson og Teitur Örn Einarsson. „Við þekkjumst vel. Fyrir utan að vera frændur þá lékum við saman með Selfoss-liðinu á síðasta keppnis- tímabili. Það hjálpar í svona leikjum að hafa menn með sér sem maður þekkir,“ sagði Haukur. „Ég er svekktur að tapa leiknum vegna þess að við gátum gert margt betur. En fyrst og fremst þá fer leik- urinn í reynslubankann. Oft skutum við alltof snemma og eins völdum við ekki réttu skotin sem varð til þess að markvörðurinn [Vincent Gerard] varði allt hvað af tók. Við getum bætt margt, sérstaklega við þeir yngri, við verðum að skoða vel leik okkar og hvað við getum gert til þess að verða betri,“ sagði Haukur Þrast- arson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld í Lanxess-Arena í Köln. Tvær breytingar Haukur var annar af tveimur leik- mönnum sem kallaðir voru inn í hóp- inn í gærmorgun eftir að Arnór Þór Gunnarsson og Aron Pálmarsson meiddust í viðureigninni við Þjóð- verja á laugardagskvöldið. Arnór tognaði á læri og Aron tognaði á nára. Útilokað var að þeir gætu haldið áfram og kaus Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálf- ari að taka Hauk og Óðin Þór Rík- harðsson, hornamann GOG í Dan- mörku, inn í hópinn í stað Arons og Arnórs. Kom Óðinn Þór með flugi frá Kaupmannahöfn snemma í gær- morgun en Haukur var þegar fyrir.  Hinn 17 ára gamli Haukur Þrastarson varð í gær yngsti leikmaður Íslands á HM í handbolta  Stjórnaði leik landsliðsins gegn heimsmeisturunum  Lék með frændum sínum Teiti og Elvari AFP Hart barist Elvar Örn Jónsson lætur finna fyrir sér í vörninni í leiknum í gær. Fyrirliðinn Ólafur Gústafsson fylgist grannt með. MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019 ÍÞRÓTTIR England Fjórum stigum munar á Liverpool og Manchester City í baráttunni um enska meistaratitil- inn. Bæði lið unnu leiki sína um helgina en leikur Liverpool og Crystal Palace var skrautlegur. 6 Íþróttir mbl.is Kristján Jónsson kris@mbl.is „Á heildina litið þá sjáum við að margt er hægt að laga hjá okkar liði, bæði í vörn og sókn. En einnig er margt gott í leik liðsins. Þetta mót er gríðarlega mikill skóli fyrir ungu leikmennina eins og oft hefur komið fram. Hægt er að byggja ofan á þetta en til þess þarf þolinmæði,“ sagði Júlíus Jónasson þegar Morg- unblaðið spurði hann álits eftir leik- inn gegn Frökkum á HM í gær. Júlíus lék á sínum tíma 288 A- landsleiki og var um tíma atvinnu- maður í Frakk- landi. „Þessi leik- ur var erfiður eins og vitað var. Við gerðum okk- ur þetta enn erf- iðara með því að lenda 6:0 undir. Ekki var það óskabyrjunin en það var gríðar- lega gott að kom- ast inn í leikinn. Þeir minnkuðu muninn í 16:14 og voru með boltann. Áttu því möguleika á að minnka muninn niður í eitt mark. Þá gáfu Frakkarnir í aftur. Þeir nýttu sér hver einustu mistök sem við gerðum og nýttu til dæmis alltaf yfirtöluna þegar við fengum brottvísanir. Frakkarnir eru í þeim gæðaflokki að þeir geta sett í næsta gír og það er talsverður styrkleikamunur á þess- um liðum. Auðvitað er fúlt að tapa en það kom ekki á óvart gegn þessum andstæðingi,“ sagði Júlíus og hann segir einkennandi fyrir frönsku leik- mennina hversu sterkir þeir séu í stöðunni maður á móti manni. „Mér fannst athyglisvert að 38 mínútur voru liðnar af leiknum þeg- ar Frakkarnir fengu sína fyrstu brottvísun og ég held að þeir hafi fengið fjórar brottvísanir í leiknum. Þetta er í raun lýsandi fyrir Frakk- ana. Þeir eru allir með það góða fóta- vinnu að þeir lenda sárasjaldan á eftir andstæðingunum heldur eru búnir að færa líkamann fyrir leik- manninn. Þeir lenda því nánast aldr- ei í því að hanga aftan í mönnum eða brjóta klaufalega af sér. Við lentum hins vegar í vandræðum í vörninni þegar Frakkarnir unnu stöðuna maður á móti manni (þá kemur rót á vörnina). Allar tímasetningar hjá þeim varðandi klippingar og rykk- ingar eru mjög góðar. Allt þetta ger- ir þeim auðveldara fyrir að komast í gegnum vörnina hjá okkur. Segja má að þetta sé skólabókardæmi um gott franskt landslið. Vörnin er gríð- arlega góð og markvarslan einnig. Ofan á það framkvæmir liðið hraða- upphlaupin frábærlega. Hefur þetta verið gegnumgangandi hjá bestu lið- unum undanfarin ár. Þau hafa ekki endilega verið bestu sóknarliðin en hafa verið best í markvörslu, vörn og hraðaupphlaupum. Þú ferð svo langt á þessu. Þegar Svíarnir voru upp á sitt besta á sínum tíma þá átti þetta einnig við,“ sagði Júlíus Jónasson í samtali við Morgunblaðið í gær. Skólabókardæmi um gott franskt landslið Júlíus Jónasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.