Morgunblaðið - 21.01.2019, Síða 5
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Spánn
Real Madrid – Sevilla............................... 2:0
Huesca – Atlético Madrid........................ 0:3
Barcelona – Leganés................................ 3:1
Staða efstu liða:
Barcelona 20 14 4 2 56:21 46
Atlético Madrid 20 11 8 1 30:13 41
Real Madrid 20 11 3 6 30:24 36
Sevilla 20 9 6 5 31:22 33
Alavés 20 9 5 6 22:23 32
Getafe 20 8 7 5 25:16 31
B-deild:
Extremadura – Real Oviedo .................. 0:2
Diego Jóhannesson spilaði fyrstu 86
mínúturnar fyrir Oviedo.
Ítalía
Frosinone – Atalanta .............................. 0:5
Emil Hallfreðsson hjá Frosinone er frá
keppni vegna meiðsla.
Frakkland
Angers – Nantes ...................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik-
mannahópi Nantes.
Bordeaux – Dijon..................................... 1:0
Rúnar Alex Rúnarsson var allan tímann
á varamannabekk Dijon.
Tyrkland
B-deild:
Hatayspor – Genclerbirligi .................... 3:1
Kári Árnason var ekki í leikmannahópi
Genclerbirligi.
Gazisehir – Denizlispor .......................... 0:1
Theódór Elmar Bjarnason spilaði síð-
ustu 12 mínúturnar með Gazisehir.
Ástralía
Adelaide United – Western Sydney ...... 1:4
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Fanndís
Friðriksdóttir eru með íslenska landsliðinu
og léku ekki með Adelaide.
Vináttulandsleikir kvenna
Suður-Afríka – Holland ........................... 1:2
Frakkland – Bandaríkin .......................... 3:1
KNATTSPYRNA
Lanxess-Arena, Köln, milliriðlakeppni
HM, fyrsti leikur laugardaginn 19.
janúar 2019.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 3:2, 5:4,
5:6, 6:6, 6:7, 9:8, 12:9, 14:10, 15:11,
17:15, 18:15, 20:16, 22:17, 24:19.
Mörk Þýskalands: Steffen Fäth 6,
Uwe Gensheimer 5/2, Paul Drux 4,
Martin Strobel 2, Kai Häfner 2, Pat-
rick Wiencek 2, Hendrik Pekeler 2,
Patrick Groetzki 1.
Varin skot: Andreas Wolff 11/2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Íslands: Arnór Þór Gunn-
arsson 6/2, Aron Pálmarsson 3,
Ólafur Andrés Guðmundsson 3, Sig-
valdi Björn Guðjónsson 2, Arnar
Freyr Arnarsson 2, Bjarki Már El-
ísson 1, Gísli Þorgeir Kristjánsson 1,
Ýmir Örn Gíslason 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gúst-
avsson 8/1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Václav Horácek og Jirí
Novotný, Tékklandi.
Áhorfendur: 19.750, uppselt.
Þýskaland – Ísland 24:19
Dagur Sigurðsson, landsliðs-
þjálfari Japans, þurfti að sætta
sig við tap í öllum sjö leikjum
liðsins á HM karla í handbolta.
Japan hafnar því í 24. og neðsta
sæti mótsins eftir 29:32-tap fyr-
ir Angóla í gær. Japanska liðið
átti fína leiki inn á milli, sér-
staklega á móti Spánverjum og
Íslandi í riðlakeppninni. Naum
töp á móti Barein, Kóreu og
Angóla hljóta hins vegar að telj-
ast ákveðin vonbrigði. Það voru sannarlega mögu-
leikar á að næla í sigur á mótinu, en Japan fór illa
að ráði sínu í lokaköflum leikja. Japanir ætla sér
stærri hluti á Ólympíuleikunum í heimalandinu á
næsta ári.
Japanir neðstir
Dagur
Sigurðsson
Patrekur Jóhannesson stýrði
Austurríki til 29:27-sigurs á
Barein í leiknum um 19. sæti á
heimsmeistaramóti karla í
handbolta í gær. Með því lauk
þátttöku Austurríkis á HM og
verður niðurstaðan að teljast
vonbrigði.
Austurríki tapaði fyrir Arg-
entínu á laugardag og var það
fimmti tapleikur liðsins í röð á
mótinu eftir sigur í fyrsta leik á
móti Sádi-Arabíu. Austurríki tapaði m.a óvænt fyr-
ir Síle og einnig gegn Túnis. Patrekur sagði fyrir
mót að hann stefndi á sæti í milliriðli. Liðið var
ekki nálægt því og voru allir fjórir tapleikir liðsins
í C-riðlinum með fimm mörkum eða meira.
Vonbrigði hjá Patreki
Patrekur
Jóhannesson
Lærisveinar Arons Kristjáns-
sonar í Barein höfnuðu í 20. sæti
á heimsmeistaramóti karla í
handbolta eftir 27:29-tap fyrir
Austurríki í leiknum um 19. sæt-
ið í gær. Þrátt fyrir að Barein
hafi tapað sex leikjum og aðeins
unnið einn, náði liðið fínum
sprettum á mótinu. Barein vann
góðan sigur á Japan í lokaleik
riðlakeppninnar og stóð vel í
Serbíu í næstsíðasta leik liðsins.
Barein var svo með 27:25-forystu í leiknum við
Austurríki þegar skammt var eftir. Það vantaði
því ekki mikið upp á að næla í fleiri sigra á mótinu,
gegn andstæðingum sem fyrirfram voru taldir
mun sterkari.
Fínir sprettir hjá Barein
Aron
Kristjánsson
Svíar, undir stjórn Kristjáns Andr-
éssonar, eru í mikilli baráttu um að
komast í undanúrslit á HM karla í
handknattleik og að spila þar af leið-
andi um verðlaun. Svíþjóð hefur jafn
mörg stig og Danmörk á toppi milli-
riðils II. Þar eru þrjár frændþjóðir
okkar í efstu sætunum því Norðmenn
eru með 4 stig, tveimur á eftir Dönum
og Svíum. Svíar voru ekki í vandræð-
um með Túnis á laugardaginn og
unnu 35:23 og Danir unnu því Ung-
verja 25:22. Í gær burstuðu Norð-
menn lið Egypta 32:28.
Í dag er áhugaverður leikur á dag-
skrá þegar grannarnir Svíar og Norð-
menn takast á í Herning. Danir mæta
Egyptum í kvöld og gestgjafarnir
ættu að vinna þann leik ef þeir spila af
eðlilegri getu. Í síðustu umferð í milli-
riðlinum munu Danir og Svíar eigast
við í mikilvægum leik en Norðmenn
glíma þá við Ungverja.
Leikirnir sem eftir eru hjá Krist-
jáni Andréssyni verða því mjög
áhugaverðir. Kristján fór með Svía
alla leið í úrslitaleikinn á EM í Króat-
íu fyrir ári og fékk í lok síðasta árs
sæmdarheitið Þjálfari ársins hjá
Samtökum íþróttafréttamanna á Ís-
landi.
Afar óvænt úrslit
Brasilíumenn halda áfram að koma
á óvart og varla er á neinn hallað þegar
sagt er að Brasilía sé spútniklið móts-
ins. Eftir að hafa lagt bæði Rússland
og Serbíu að velli í riðlinum tóku Bras-
ilíumenn enn stærra skref í gær og
skelltu Króötum 29:26 í milliriðli okkar
Íslendinga. Telja má líklegt að Króatía
sé sterkasti andstæðingur sem Bras-
ilía hefur lagt að velli á stórmóti karla.
Króatar komu inn í milliriðilinn í fínum
málum eftir að hafa unnið bæði Íslend-
inga og Spánverja í riðlinum.
Heimsmeistararnir frá Frakklandi
eru með 7 stig eftir fjóra leiki. Þjóð-
verjar eru með 5 stig eftir þrjá leiki.
Króatar eru með 4 stig en Spánverjar
og Brasilíumenn með 2 stig öll eftir
þrjá leiki. Tapið gegn Brasilíu er því
verulegt högg fyrir Króata í kapp-
hlaupinu við Frakka og Þjóðverja en
þeir eiga eftir reyndar að mæta báð-
um þessum liðum. Í dag mætast
Þýskaland og Króatía en einnig
Spánn og Brasilía.
Kristján í baráttunni
AFP
Sigur Kristján Andrésson og sænska landsliðið eru með fullt hús stiga á HM
Svíar, Danir og Norðmenn berjast
um tvö sæti í undanúrslitum á HM
Geysisbikar kvenna
8-liða úrslit:
Stjarnan – Skallagrímur...................... 71:49
Snæfell – Haukar.................................. 72:68
Breiðablik – ÍR ..................................... 80:44
Keflavík – Valur.................................... 71:89
1. deild kvenna
Tindastóll – Þór Ak .............................. 80:89
Hamar – Grindavík .............................. 53:79
Staðan:
Fjölnir 11 9 2 838:673 18
Grindavík 9 7 2 669:584 14
Þór Ak. 8 6 2 506:464 12
Njarðvík 11 6 5 789:778 12
Tindastóll 12 4 8 865:988 8
ÍR 11 3 8 619:683 6
Hamar 10 1 9 557:673 2
Spánn
Obradoiro – Unicaja Málaga.............. 89:86
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 7 stig,
tók 4 fráköst og gaf 3 stoðsendingar á 17
mínútum hjá Obradoiro.
B-deild kvenna:
Celta Zorka – Cortegada.................... 72:57
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 9
stig og tók 5 fráköst fyrir Celta.
Þýskaland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Frankfurt – Alba Berlín ................... 70:105
Martin Hermannsson skoraði 7 stig og
gaf 3 stoðsendingar á 19 mínútum hjá Alba
Berlín.
Frakkland
Nanterre – Chalon/Seone .................. 81:78
Haukur Helgi Pálsson skoraði 2 stig, tók
3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu fyrir Nan-
terre.
Austurríki
Oberwart Gunners – Flyers Wels ..... 78:60
Dagur Kár Jónsson skoraði 4 stig, tók 2
fráköst og gaf 1 stoðsendingu á 17 mínútum
með Flyers Wels.
NBA-deildin
Philadelphia – Oklahoma City......... 115:117
Charlotte – Phoenix ......................... 135:115
Detroit – Sacramento....................... 101:103
Indiana – Dallas.................................. 111:99
Orlando – Milwaukee ....................... 108:118
Atlanta – Boston............................... 105:113
Toronto – Memphis ............................ 119:90
Chicago – Miami ............................... 103:117
Houston – LA Lakers .............. (frl.)138:134
Denver – Cleveland.......................... 124:102
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Geysisbikar karla, 8-liða úrslit:
Hertz-hellirinn: ÍR – Skallagrímur .... 19.15
Ljónagryfjan: Njarðvík – Vestri......... 19.15
DHL-höllin: KR – Grindavík............... 19.15
Í KVÖLD!
Ívar Benediktsson
Köln
Íslenska landsliðið í handknattleik
karla tapaði fyrir þýska landsliðinu
með fimm marka mun, 24:19, í
fyrsta leik sínum í milliriðlakeppni
HM í handknattleik í Lanxess-
Arena á laugardagskvöldið. Þjóð-
verjar voru fjórum mörkum yfir í
hálfleik, 14:10.
Íslenska liðið en það þýska fyrstu
20 mínúturnar fyrir framan 20 þús-
und áhorfendur í rífandi góðri
stemningu í keppnishöllinni. Liðið
var með yfirhöndina, 6:5 og 7:6. Síð-
ustu tíu mínútur fyrri hálfleiks hall-
aði undan fæti. Aron Pálmarsson
meiddist eftir um 20 mínútur og
kom ekkert meira við sögu. Við
brottför hans dró úr biti sóknar-
leiksins auk þess sem illa var farið
með marktækifæri. Þjóðverjar
gengu á lagið í stemningunni og
náðu yfirhöndinni í leiknum.
Íslenska liðið gerði áhlaup rétt
fyrir miðjan síðari hálfleik og náði
að minnka muninn í tvö mörk, 17:15
og 18:16. Nær komst það ekki.
Ofan á meiðsli Arons tognaði
Arnór Þór Gunnarsson í læri eftir
um tíu mínútur í síðari hálfleik
AFP
Vörn Ólafur Guðmundsson í klónum á Jannik Kohlbacher.
Góðar 20 mínút-
ur og tveir úr leik