Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Hlutverk Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins er að
tryggja að börn með alvarlegar
þroskaskerðingar sem leitt geta
til fötlunar síðar á ævinni fái
greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði
sem bæta lífsgæði þeirra, sjá nánar
á www.greining.is.
Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins er framsækin stofnun með
fjölskylduvæna starfsmannastefnu
sem býður m.a. upp á
sveigjanlegan vinnutíma. Nýir
starfsmenn fá handleiðslu og
starfsþjálfun á aðlögunartíma og
er lögð áhersla á þróun í starfi og
tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Nánari upplýsingar eru á
www.greining.is
Starf iðjuþjálfa hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Iðjuþjálfi óskast til starfa á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Um er ræða fastráðningu,
í 80-100% starfshlutfall, á svið langtímaeftirfylgdar. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti
hafið störf á vormisseri 2019 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfssvið
• Mat, ráðgjöf og eftirfylgd vegna barna og unglinga með alvarleg þroskafrávik
• Samvinna og ráðgjöf til barnanna, fjölskyldna þeirra og annarra fagaðila, varðandi
daglega færni, notkun hjálpartækja, aðgengismál og fleira
• Vinna í þverfaglegu teymi
• Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi stofnunarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
• Þekking og reynsla á iðjuþjálfun barna
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til þverfaglegs samstarfs og góð færni í samskiptum
• Reynsla í að meta þörf á hjálpartækjum, sækja um og fylgja eftir umsóknum
• Þekking og áhugi á tölvu- og tæknitengdum lausnum er æskileg
Iðjuþjálfi
Laun og kjör eru skv. gildandi kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Frekari
upplýsingar gefa Ingólfur Einarsson sviðsstjóri eða Hrönn Björnsdóttir verkefnastjóri hjá
langtímaeftirfylgd í síma 510 8400.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á ingolfur@greining.is
fyrir 1. febrúar 2019. Öllum umsóknum verður svarað.
Vegna kynjasamsetningar á vinnustaðnum eru karlmenn hvattir til að sækja um.
Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.
Verkefnastjóri
íbúatengsla
kopavogur.is
P
ip
a
r\TB
W
A
\ SÍA
Helstu verkefni:
• Ber ábyrgð á stefnumörkun á sviði
þátttökulýðræðis og innleiðingu
verkefna á því sviði.
• Skipuleggur íbúafundi eftir atvikum í
samráði við fagsvið, deildir og stofnanir.
• Stýrir verkefninu „Okkar Kópavogur“
sem snýr að þátttöku íbúa bæjarins við
ráðstöfun fjármagns til framkvæmda.
• Stýrir framkvæmd íbúakosninga.
• Ber ábyrgð á innleiðingu Heimsmarkmiðs
Sameinuðu þjóðanna nr. 16.7: Teknar
verði ákvarðanir á öllum sviðum þar sem
brugðist er við aðstæðum og víðtæk
þátttaka tryggð.
• Heldur utan um ábendingarkerfi
bæjarins í samráði við gæðastjóra.
Laust er til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra íbúatengsla. Hlutverk verkefnastjóra
er að sinna tengslum bæjarins við íbúa og halda utan um öll samskipti, önnur en þau
sem falla undir almannatengsl. Horft er til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Verkefnastjóri heyrir undir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019.
Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Páll Magnússon,
pallm@kopavogur.is, s. 441 0000. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags innan BHM.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar kopavogur.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo
sem opinber stjórnsýsla, verkefnastjórnun,
fjölmiðlafræði eða sambærilegt.
• Góð samskipta- og samstarfshæfni.
• Reynsla af kynningarmálum og/eða blaða-
eða fréttastörfum kostur.
• Framkoma á opinberum vettvangi kostur.
• Reynsla af verkefnastjórnun kostur.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni í ræðu og riti.
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
• Þekking á opinberum rekstri kostur.
• Þekking á starfsemi sveitarfélaga kostur.
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Kaupsamningum vegna
íbúðarhúsnæðis fjölgaði um
3% í fyrra miðað við árið
2017. Þar af var 5,3% aukn-
ing á höfuðborgarsvæðinu
frá árinu áður og 7,4 % í
þéttbýliskjörnum næst
höfuðborgarsvæðinu, auk
Akureyrar. Hins vegar
mælist 12,4% samdráttur á
öðrum svæðum á landinu
milli áranna 2018 og 2019.
Velta með íbúðir nam rúm-
lega 482 milljörðum króna á
árinu 2018 sem er um 6,8%
veltuaukning frá fyrra ári.
Viðskipti með íbúðir í fjölbýli
voru um 70,2% af heildar-
íbúðaviðskiptum árið 2018,
samanborið við 67,8% árið
áður og 67,2% árið 2016.
Þetta kemur fram í nýrri
mánaðarskýrslu Íbúðalána-
sjóðs hvar farið er yfir stöðu
mála á síðasta ári.
Leiguverð hækkar
Árshækkun vísitölu leigu-
verðs á höfuðborgarsvæðinu
mældist 9,2% í nóvember í
fyrra. Til samanburðar
hækkaði vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu um 6%.
Þetta er níundi mánuðurinn í
röð sem árshækkun leigu-
verðs mælist meiri en árs-
hækkun íbúðaverðs. Leigu-
markaður reynist vera hvað
virkastur í vesturhluta höfuð-
borgarsvæðisins. Í nóvember
voru 19% allra þinglýstra
leigusamninga á landinu öllu
vegna leigusamninga á svæð-
inu vestan við Kringlumýrar-
braut að Seltjarnarnesi.
Flestir samningar á því
svæði voru vegna tveggja
herbergja íbúða.
Óverðtryggð
lán að aukast
Nýjustu tölur yfir ný
íbúðalán heimilanna sýna að
aukning í heildarupphæðum
óverðtryggðra lána frá mán-
uðinum á undan heldur
áfram, líkt og verið hefur frá
því í september. Í nóvember
síðastliðnum námu ný óverð-
tryggð íbúðalán, að frádregn-
um umfram- og uppgreiðsl-
um eldri lána, alls um 17,6
milljörðum króna. Þetta er
stærsti einstaki útlánamán-
uður slíkra lána til heimila
frá því að bankar hófu að
bjóða slík lán að einhverju
marki í byrjun árs 2010 og
lífeyrissjóðir um fimm árum
síðar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjavík Fasteignir í Vesturbænum eru alltaf vinsælar.
Útlánin að aukast
Virkur markaður í Vesturbæn-
um Samdráttur víða út um land
Óskar Vídalín hefur verið
útnefndur Mosfellingur árs-
ins 2018 af bæjarblaðinu Mos-
fellingi. Óskar hefur ásamt
fleirum stofnað Minningar-
sjóð Einars Darra og hrint af
stað þjóðarátakinu Ég á bara
eitt líf.
Óskar missti 18 ára gamlan
son sinn, Einar Darra, í maí
sl. eftir neyslu lyfseðils-
skyldra lyfja. „Ég er ótrúlega
þakklátur og tek á móti þess-
ari viðurkenningu fyrir hönd
okkar allra sem stöndum að
minningarsjóðnum. Við höf-
um fengið frábærar móttökur
alls staðar, finnum fyrir mikl-
um stuðningi og fyrir það er-
um við þakklát,“ segir Óskar.
Það eru foreldrar og systur
Einars Darra, þau Óskar Ví-
dalín, Bára Tómasdóttir,
Andrea Ýr og Aníta Rún sem
standa að sjóðnum, sem var
stofnaður með forvarna-
fræðslu í huga. Sú vinna hefst
í grunnskólum landsins í febr-
úar. Þá er verið að skipu-
leggja þjóðfund unga fólksins
í vor og er markmiðið að fá
ungt fólk alls staðar að af
landinu til að taka þátt í um-
ræðum og lausnum á þeim
vandamálum sem það stendur
andspænis. Má þar nefna
kvíða, vanlíðan og fleira. Vak-
in hefur verið athygli á mál-
staðnum með bleikum arm-
böndum, hettupeysum,
húfum og fleiru.
Verkefni í kærleika
„Við ákváðum fljótlega eft-
ir fráfall Einars Darra, þegar
við áttuðum okkur á hve
neysla lyfseðilsskyldra lyfja
væri stórt vandamál meðal
ungmenna, að stofna minn-
ingarsjóð í hans nafni. Við
vildum nálgast þetta verkefni
í kærleika því það er í anda
Einars Darra.
Markmiðið er að opna um-
ræðuna og vekja athygli á
vandamálinu því við uppgötv-
uðum hvað við vissum lítið og
hvað þetta kom okkur mikið á
óvart,“ segir Óskar Vídalín í
tilkynningu.
sbs@mbl.is
Ljósm/Raggi Óla
Mosfellingur Óskar Vídalín
tekur við viðurkenningunni
úr hendi Hilmars Gunnars-
sonar ritstjóra Mosfellings.
Í minningu Einars Darra
Mosfellingur árs-
ins Óskar Vídalín
valinn Vekja at-
hygli á vanlíðan
ungs fólks