Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 7 Embætti héraðssaksóknara óskar eftir að ráða skjala- stjóra til starfa. Um verkefni héraðssaksóknara er vísað til heimasíðu embættisins; www.hersak.is. Helstu verkefni og ábyrgð skjalastjóra eru: • Skjalastjórn embættisins; ábyrgð, skipulag og umsjón með þróun skjalastefnu og verklags við skjalastjórn. • Dagleg skráning innkominna erinda, umsjón með frágangi í skjalasafn og eftirfylgni með skjalaskráningu. • Ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn. • Framfylgd laga og reglna er gilda um opinber skjalasöfn. • Umsjón með vinnslu tölfræði úr málaskrám embættisins. • Umsjón með ytri og innri vef embættisins. • Vinna við útgáfu- og upplýsingamál. • Umsjón með bókasafni embættisins. Hæfniskröfur til starfsins eru: • Háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræðum. • Reynsla af skjalastjórn er nauðsynleg. • Starfsreynsla á þessu sviði hjá opinberri stofnun er kostur.              • Reynsla af vefumsjón er kostur.            • Skipulags- og samskiptahæfni.    !   "   # $  og hlutaðeigandi stéttarfélags. Um er að ræða fullt starf og !   # !%   &#   "  "$   Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 21. janúar 2019 og skal umsókn berast embætti héraðssaksóknara, Skúlagötu 17, 101 Reykjavík. Einnig má senda umsókn með tölvupósti á netfangið starf@hersak.is og skal póstur- inn merktur „Umsókn um starf skjalastjóra“. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í '   # " () #   "   *    umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, í síma 444-0150. Skjalastjóri hjá embætti héraðssaksóknara Viltu búa í öflugu sveitarfélagi í nágrenni við náttúruperlur? Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Forstöðumaður óskast til starfa á í nýrri þjónustumiðstöð Langanesbyggðar á Þórshöfn. Leitað er að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og kraftmiklum einstaklingi til að takast á við ögrandi og spennandi verkefni. Hlutverk forstöðumanns þjónustumiðstöðvar Langanesbyggðar: • Stýrir og ber ábyrgð á starfi þjónustumiðstöðvar og mannahaldi • Hefur yfirumsjón með verklegum framkvæmdum í sveitarfélaginu • Undirbýr fjárhagsáætlanir og þriggja ára áætlanir stofnunarinnar • Gerir tillögu að verkefnum, forgangsröðun og gerir kostnaðaráætlanir • Er yfirmaður húseigna sveitarfélagsins • Hefur umsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins • Önnur störf svo sem verkstjórn á vinnusvæðum og útivinna Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun á sviði mannvirkjagerðar æskileg • Góð þekking á undirbúningi verkefna og eftirfylgni • Skipulagsfærni og færni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli • Góð þekking á forritum svo sem EXCEL, WORD og Navision • Sjálfstæð vinnubrögð, talnaskilningur og rökfesta Nánari upplýsingar veitir: Elías Pétursson, sveitarstjóri S: 468 1220 og 892 0989 - elias@langanesbyggd.is Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2019, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Umsókn um starfið skal senda í netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is og skal henni fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitarfélag með spennandi framtíðarmögu- leika. Í Langanesbyggð eru tveir byggðar- kjarna; Þórshöfn og Bakkafjörður. Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskyldu- vænu umhverfi en í sveitarfélaginu öllu eru tæplega 500 íbúar. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn þjónusta. Á staðnum er góður grunnskóli, leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð með sundlaug. Í þorpinu er mikið og fjölbreytt félagslíf, s.s. leikfélag, kirkjukór, öflugt ungmennafélag, björgunar- sveit, kvenfélag o.m.fl. Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Í sveitarfélaginu eru margar helstu náttúru- perlur landsins og ótal spennandi útivistar- möguleikar, s.s. fallegar gönguleiðir og tækifæri til stang- og skotveiði. Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af báðum kynjum, með margs konar menntun og reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Dreifingardeild Morgun- blaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Hressandi morgunganga www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.