Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 10

Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is Blár vinur í stofunni, yndislegur litur sem nýtur sín vel í flestum rýmum. Skoðaðu litaúrvalið okkar á slippfelgid.is Notalegur Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Unnið er að gerð samnings á milli Íslands, Noregs og Bretlands hvað varðar vöruviðskipti sem myndi fela í sér að núverandi tollkjör héldu í grundvallaratriðum áfram að gilda fyrir inn- og útflutning til og frá Bretlandi. Vinna við gerð samnings- ins er vel á veg komin og stefnt er á að hægt verði að beita honum ef til þess kemur að Bretland gangi úr ESB án samnings í lok mars. Í framhaldinu yrði unnið að því að bæta markaðsaðgang fyrir sjávaraf- urðir til Bretlands enn fremur til langs tíma. Bundnir af EES-regluverki Þetta er meðal þess sem fram kom í skriflegu svari Sveins Guð- marssonar, upplýsingafulltrúa utan- ríkisráðuneytisins, er hann var spurður hvort í gangi væru viðræð- ur um slíkan tímabundinn samning. Í svari ráðuneytisins kom jafnframt fram að hafa bæri í huga hagsmuni er vörðuðu heilbrigðisreglur og gagnkvæma viðurkenningu á heil- brigðisvottorðum hvað snerti við- skipti með matvæli og þá sérstak- lega sjávarafurðir sem fluttar væru til Bretlands. „Hvað varðar matvælaöryggis- reglur er Ísland bundið af reglu- verki EES-samningsins og því ekki unnt að semja um það við Breta. Aftur á móti hafa bresk stjórnvöld gefið til kynna að þau muni ekki krefjast heilbrigðisvottorða fyrir vörur frá ESB eða EES-ríkjum eftir útgöngu. Svo kann að vera að reglur í Bretlandi breytist í þessum efnum með tímanum, en það yrði þá gert með fyrirvara sem gæfi útflytjend- um færi á að aðlagast. Hvað varðar innflutning frá Bretlandi, mun Ís- land aftur á móti þurfa að beita þeim EES-reglum sem gilda um afurðir sem koma utan EES,“ segir í svari ráðuneytisins. Margvíslegar fyrirspurnir Þar kemur fram að stjórnvöld eru í nánum samskiptum við hagsmuna- aðila vegna Brexit. Fjölmennur upp- lýsingafundur var haldinn 19. des- ember 2018 og stefnt er að því að annar verði haldinn síðar í febrúar. Þá hefur fjöldi minni funda verið haldinn um tiltekin málefnasvið m.a. varðandi útflutning á sjávarafurð- um. „Upp úr áramótum og sérstak- lega eftir að útgöngusamningur Bretlands úr ESB var felldur á breska þinginu, hefur utanríkisráðu- neytið í auknum mæli sinnt fyrir- spurnum frá almennum borgurum, fyrirtækjum og öðrum hagsmunaað- ilum sem tengjast Brexit. Um er að ræða almennar fyrirspurnir um stöðu og rétt fólks og fyrirtækja en einnig atviksbundnar fyrirspurnir sem miðast að sérstökum aðstæð- um,“ segir Sveinn aðspurður hvort ráðuneytið hafi heyrt af áhyggjum kaupenda eða seljenda vegna stöð- unnar sem gæti komið upp eftir Brexit. Miðað við þær varúðarráðstafanir sem unnið sé að hafi dregið verulega úr hættu á alvarlegri röskun á við- skiptum við Bretland. Mikilvægt sé þó að hafa í huga að útganga Bret- lands úr ESB án samnings mundi hafa ýmsar breytingar í för með sér hvað varði lagalega umgjörð við- skipta Íslands og Bretlands þar sem Bretland yrði ekki lengur aðili að EES-samningnum. „Þá verður einnig að hafa í huga ytri aðstæður sem gætu haft áhrif,“ segir í svari við spurningu um hvað ráðuneytið ráðleggi sölufyrirtækj- um, t.d. í sjávarútvegi. „Mögulegt er að gengi pundsins veikist og breskt efnahagslíf al- mennt a.m.k. til skamms tíma. Þá gætu flöskuhálsar myndast við landamæri Bretlands og Frakklands fyrst um sinn sem gæti haft áhrif á flutning íslensks fisks frá Bretlandi yfir á meginland Evrópu. Hér þurfa hagsmunaaðilar og fyrirtæki sem eru í viðskiptum við Bretland að meta stöðuna og bregðast við með viðeigandi hætti en íslensk stjórn- völd eru þó ávallt reiðubúin til að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða og greiða fyrir málum þar sem hægt er.“ Mikil viðskipti Vöruútflutningur frá Íslandi til Bretlands nam 49 milljörðum króna (£353m) árið 2017. Verðmæti út- flutnings þangað náði hámarki 2015, en samhliða styrkingu krónunnar og veikingu pundsins tók útflutnings- verðmæti að dragast saman til árs- ins 2017, og á sama tíma jukust inn- flutningsverðmæti. Rúmlega 60% af vöruútflutningnum samanstanda af sjávarafurðum en Bretland er stærsti útflutningsmarkaður Íslend- inga fyrir sjávarafurðir. Í svarinu kemur fram að á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2018 sjáist glöggt að útflutningsverðmætin hafi aukist á ný, bæði af sjávarafurðum og iðnaðarvörum. Upplýsingar um heildarvöruviðskipti Íslands og Bretlands árið 2018 liggja ekki fyrir. Vinna við samn- ing um tollkjör er langt komin  Viðræður Breta, Íslendinga og Norð- manna  Yrði hægt að beita samningn- um ef til útgöngu kæmi án samnings AFP Brexit Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur staðið í ströngu að undanförnu. Myndin er tekin fyrir utan Downing-stræti 10 í gær. Vöruviðskipti milli Íslands og Bretlands Útflutningur til Bretlands 2017 Inn- og útflutningur 2010-2017, milljarðar kr. Útflutningur Innflutningur 80 60 40 20 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 Heimild: Hagstofa Íslands Milljónir kr. Sjávarafurðir Aðallega þorskur og rækja 30.608 Iðnaðarvörur Ál og álafurðir 14.973 Landbúnaðarvörur Eldislax og sauðfjárafurðir 1.619 Aðrar vörur 1.397 63% 31% 3% 3% 2017 Einn virðulegasti bíll héraðsins var á ferðinni á götum Akureyrar í gær. Elsta slökkvibíl Slökkviliðs Akur- eyrar var ekið með kistu Gunnlaugs Búa Sveinssonar slökkviliðsmanns frá Akureyrarkirkju, þaðan sem út- för hans var gerð, að Kirkjugarði Akureyrar. Gunnlaugur Búi fór ungur til starfa hjá Slökkviliði Akureyrar og þar var hans ævistarf. Slökkvibíllinn er af gerðinni Ford F750 „Big Job“, árgerð 1953 og er merktur slökkviliðinu með stöfunum SA-1. Slökkviliðið fékk hann nýjan og á Akureyri var sett á hann slökkvidæla, vatnstankur og annar búnaður. Bíllinn var í fyrstu línu slökkviliðsins í nærri fimm ára- tugi, eða til ársins 1999. Fordinn er kominn á „eftirlaun“ því eftir að hann var tekinn úr notkun var hann gerður upp og er til sýnis í slökkvistöðinni. Hann er stundum notaður til að flytja slökkviliðsmenn síðasta spölinn og á dögunum var hann í forystu bíla- lestar sem ók um Vaðlaheiðargöng við formlega opnun ganganna. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Forysta Gamla slökkviliðsbílnum var ekið með kistu Gunnlaugs Búa Sveins- sonar slökkviliðsmanns sem borinn var til grafar á Akureyri í gær. Með slökkvibílnum síðasta spölinn Í Noregi hefur síðustu daga talsvert verið fjallað um út- göngu Breta úr Evrópusam- bandinu án samnings, og þá um leið Evrópska efnahagssvæð- inu, og samskipti við Norð- menn. Í grein í Aftenposten um helgina var ljósinu varpað á sjávarútveg og þar komu fram áhyggjur af þróun mála í Bret- landi. Þar segir að óvissan sé mikil og skynsamlegt geti verið að tryggja að vörur séu komnar til Bretlands fyrir 29. mars. Hvað varði ferskan fisk séu möguleikarnir þó takmarkaðir eðli málsins samkvæmt. Auk fyrrnefnds tímabundins fríverslunarsamnings kemur fram í blaðinu að Norðmenn eigi einnig í viðræðum við Breta um sambærilegan samning vegna flutninga- og farþegaskipa, olíu- starfsemi og hafnaþjónustu. Áhyggjur í Noregi RÆÐA FLEIRI ÞÆTTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.