Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mín fyrstu kynni af Sim-one de Beauvoir voruþegar mamma gaf mérunglingnum bókina
Saga af þægri stúlku, sem er sjálfs-
ævisöguleg bók sem Simone skrifaði
um uppvaxtarár sín. Ég var strax
hrifin af hennar stíl, sem er mjög
blátt áfram,“ segir Móheiður Hlíf
Geirlaugsdóttir en nýlega kom út í
þýðingu hennar bókin Pyrrhos og
Kíneas, eftir Simone de Beauvoir
hjá Lærdómsritum Hins íslenska
bókmenntafélags. Í kynningu segir
að bókin sé fyrsta heimspekiverk
Simone de Beauvoir, upphaflega út-
gefið 1944 og að þar marki hún sér-
stöðu sína sem tilvistarheimspek-
ingur og siðfræðingur með hug-
leiðingum um stöðu mannsins í
heiminum, þrotlausa leit hans að til-
gangi, grundvöll siðferðis, mannleg
samskipti, tengslamyndun og ein-
staklingsfrelsi.
„Þegar ég hóf nám í heimspeki
komast ég að því að þar var ekki tal-
að um eina einustu konu meðal
heimspekinga, ekki fyrr en ég
kynntist Sigríði Þorgeirs. Og hjá
henni skrifaði ég BA-ritgerð um sið-
fræði Simone de Beauvoir. Þá fór ég
að skoða hana sem heimspeking og
komst að því hversu merkileg hún
er. En heimspekin sem fræðigrein
er mjög karllæg og enn er verið að
skrifa greinar um heimspeki þar
sem hvergi er vitnað í kvenkyns
heimspekinga. Þær hafa verið settar
til hliðar í heimspekisögunni.“
„Maður fæðist ekki kona,
heldur verður kona“
Simone de Beauvoir var mikill
femínisti og hún skrifaði bókina Hitt
kynið, sem er grundvallarrit í kven-
réttindum enn í dag en sú bók kom
af stað annarri bylgju femínismans.
„Þessi bók var gríðarlega um-
töluð og í framhaldinu varð Simone
þekkt sem femínisti. Þegar bókin
var þýdd á ensku var hún bókstaf-
lega rifin út úr búðunum,“ segir Mó-
heiður og bætir við að í þeirri bók
hafi Simone skoðað stöðu konunnar
frá aldaöðli til nútímans.
„Hún mælir á móti eðlishyggj-
unni, að konur fæðist með einhverja
kvenlega eiginleika. Þar
setur hún fram hina
frægu setningu:
„Maður fæðist ekki
kona, heldur verður
kona,“ eða með öðrum
orðum samfélagið mótar
hana sem konu, hún er
ekki frjáls. Þetta var
mjög byltingarkennt á
sínum tíma,“ segir Mó-
heiður og bætir við að
kenningar Simone hafi
haft heilmikil áhrif á hana
sem manneskju.
„Heimspeki breytir manni allt-
af, lætur mann hugsa hlutina upp á
nýtt og frá öðrum hliðum. Það sem
Simone setur fram í siðfræðinni er
mannlegri heimspeki, um samskipti
fólks og stöðu konunnar, hvernig
staða okkar eftir kyni og stétt hefur
áhrif á það sem við teljum vera
frjálst val í lífinu. Simone hefur haft
mikil áhrif á hvernig ég hugsa. Hún
var sjálfstæð kona sem gaf út merki-
leg verk en það var alltaf litið á þau
sem einhverskonar afleiðingu af því
að hún væri kærasta annars heim-
spekings, Sartre. Sú stað-
reynd að hún var mjög
frjálsleg í ástarmálum var
talin gera hana að verri
heimspekingi.“
Hún mátti ekki fara
í æðsta háskólann
Í ljósi þess að Simone
fæddist 1908 er stór-
merkilegt hvernig lífi hún
lifði og hvaða kenningar
hún setti fram.
„Hún stríddi gegn
gömlum viðhorfum og
ruddi brautina fyrir aðrar konur.
Þegar hún fór í háskóla var það
þriðja árið sem konum í Frakklandi
var leyft að stunda háskólanám. Hún
mátti ekki fara í æðsta háskólann
þar sem Sartre sat á skólabekk, af
því að hún var kona. Þetta var veru-
leiki kvenna á þessum tíma og af-
skaplega fjarri okkur, þó að ekki sé
lengra síðan. Simone dó árið 1986 og
upplifði því gríðarlegar breytingar á
stöðu kvenna í vestrænu samfélagi á
sinni ævi.“
Móheiður segir að bókin sé
mjög aðgengileg og hugmyndirnar
alveg jafn klassískar og hugmyndir
Platós.
„Það sem er svo skemmtilegt
við heimspekina er að það skiptir
ekki máli þó að við lifum í allt öðru-
vísi samfélagi en var fyrir tvö þús-
und árum. Við erum enn að lesa tvö
þúsund ára heimspeki af því að við
getum enn rætt og rökrætt þessa
hluti sem varða okkur sem mann-
eskjur í samfélagi við aðrar men-
neskjur. En mér finnst það gera
heimspekina fátækari hversu hug-
myndir kvenna innan hennar hafa
verið útilokaðar,“ segir Móheiður
sem útskrifaðist úr þýðingarfræðum
í meistaranámi sínu fyrir nokkrum
árum en lokverkefnið hennar þar
var fyrrnefnd þýðing á bókinni Pyrr-
hos og Kíneas.
„Björn Þorsteinsson sem þá var
ritstjóri hjá Hinu íslenska bók-
menntafélagi sagði strax já við því
að gefa bókina út. Eyja Margrét
Brynjarsdóttir tók svo við sem rit-
stjóri og ýtti þessu verkefni úr vör,
en hún hefur verið öflug í útgáfu
verka eftir konur. Í fyrra kom t.d. út
ritið Konur í nýaldarheimspeki.“
„Ég á fjársjóð, ljóðsjóð“
Móheiður hefur undanfarið
unnið í því að koma fyrir heima hjá
sér ljóðabókasafni föður síns heitins,
ljóðskáldsins Geirlaugs Magn-
ússonar.
„Pabbi átti gríðarlega stórt
bókasafn og stór hluti þess er ljóða-
bækur. Þarna er meirihluti allra ís-
lenskra ljóðabóka sem komu út
seinni hluta tuttugustu aldar. Ég er
hægt og rólega að safna þessu sam-
an og flytja heim til mín. Hann átti
svo mikið af bókakössum að ég mun
aldrei geta haft allar þær bækur inni
hjá mér, en læt duga að taka ljóða-
bækurnar, enda hef ég ástríðu fyrir
ljóðum, rétt eins og pabbi. Það er
mjög gaman að fara í gegnum þetta,
þarna er allt sem Gyrðir hefur gefið
út enda voru þeir góðir vinir, einnig
bækur Óskars Árna og fleiri ljóð-
skálda. Mér fannst gaman að sjá
ljóðaþýðingar úr samísku sem ég
vissi ekki að hefðu komið út. Ég bók-
staflega veggfóðra einn vegg heima
hjá mér með þessum ljóða-
bókahillum sem eru að fyllast. Pabbi
var svo bókelskur að hann lánaði
mjög sjaldan bækurnar sínar. Þetta
var ríkidæmið hans,“ segir Móheið-
ur og bætir við að henni finnist æðis-
legt að vera á kafi í bókasafni föður
síns, en þar sjái hún þó nokkurn
kynjahalla, meiri hluti ljóðabókanna
sé eftir karla.
„Ég finn alveg fyrir því sem
kemur fram í nýju bókinni hennar
Auðar Övu, Ungfrú Ísland, þar sem
karlar fæddust skáld en ekki konur.
En auðvitað eru kvenhöfundar
þarna inni á milli.“
Móheiður segir að bækurnar
geymi lykt föður hennar, sterka
reykingalykt.
„Fyrir vikið finnst mér hann
næstum vera viðstaddur og þetta
getur verið tilfinningaþrungið á köfl-
um. Mér líður eins og ég sé inni í
hans heimi. Á heimili hans voru
bækur bókstaflega úti um allt, inni í
eldhússkápum og bókahrúgur alls
staðar, alltaf nokkrar bækur opnar á
stofuborðinu. Þessar ljóðabækur eru
því mín tenging við pabba og minn-
inguna um hann. Ég á fjársjóð, ljóð-
sjóð.“
Heimspeki breytir manni alltaf
Hinn magnaði heimspek-
ingur, rithöfundur og
femínisti, Simone de
Beauvoir, hafði áhrif á
hugsun Móheiðar, rétt
eins og flestra sem henni
hafa kynnst. Móðheiður
þýddi bók eftir hana en
hún er líka að garfa í
ljóðabókasafni föður síns
heitins, Geirlaugs Magn-
ússonar ljóðskálds.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Heimspekingur og þýðandi Móheiður segir Simone de Beauvoir hafa haft heilmikil áhrif á hana sem manneskju.
Ljósmynd/Ólafur K. Magnússon
Heimspekingur og rithöfundur
Simone de Beauvoir á Íslandi 1951.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vinir og skáld Geirlaugur Magnússon faðir Móheiðar með vini sínum Gyrði
Elíassyni í grallaralegu snjókasti í göngutúr árið 1992.
„Pabbi var svo
bókelskur að hann
lánaði mjög sjaldan
bækurnar sínar. Þetta
var ríkidæmið hans.“
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
AIR OPTIX® COLORS
Linsur í lit