Morgunblaðið - 06.02.2019, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
GLÆNÝ ÝSA
SALTFISKHNAKKAR
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
ÞORSKHNAKKAR
GLÆNÝ LÚÐA
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn
N FRÁ
NÝLÖGUÐ HUMARSÚPA
HROGN OG LIFUR
falda alla greiðslumiðlun. Líklega og
vonandi verður þjónustan ódýrari
þegar til lengri tíma er litið. Fram-
tíðarlausnir munu sjá til þess að
samkeppni eykst og má ímynda sér
að bankinn þinn verði e.t.v. í öðru
landi eftir einhver ár. Sé efnahags-
ástand tiltölulega stöðugt á Íslandi
ættu erlendir bankar ekki að víla
fyrir sér að hafa hér starfsemi. Það
ætti að vera auðvelt að gera fólki
kleift að eiga reikninga í erlendum
bönkum og í þeirri mynt er það sjálft
kýs. Þannig sér maður allt eins fyrir
sér að launamaður sem fær greidd
laun um mánaðamót geti breytt
krónunum sínum yfir í þann gjald-
miðil er hann kýs og geymt sinn
sparnað í hverjum þeim banka er
hefur starfsleyfi t.d. innan evrópska
efnahagssvæðisins, án þess að ég
þekki þær reglur í þaula. Hið opin-
bera þarf einnig að taka til og auð-
velda fólki að flytja lán á milli lán-
veitenda með því að afnema þann
kostnað sem því fylgir. Þannig ætti
þitt húsnæðislán að lúta sömu eigin-
leikum og þær tryggingar sem þú
kaupir.
Næsta kreppa
Það er æskilegt að hið opinbera sé
búið að draga sig frá rekstri banka,
eins og kostur er, þegar næsta
kreppa ríður yfir. Þá mun ríkisvaldið
vera í sterkari stöðu til að grípa inn
í, reynslunni ríkari og þá viðbúið.
Áratugir geta liðið án vandræða en á
meðan situr mikið af bundnu fé og
gerir litið annað en að vaxa. Fé sem
mætti nýta til greiðslu skulda, upp-
byggingar og velferðar almennt.
Skoðum það af alvöru að selja banka
í eigu hins opinbera, með opnum
huga, og látum ekki geðsveiflur úr-
tölufólks ráða allri umræðu og eðli-
legum skoðanaskiptum. Það er ávís-
un á aðgerðaleysi.
Höfundur er atvinnurekandi.
steinthorj@hotmail.com
Í Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins 25.1.
’19 er vitnað í hin
fleygu orð Snorra
Sturlusonar „út vil
ek“. Snorri hafði
fengið sig fullsaddan
á hirð Hákonar Nor-
egskonungs og heldur
heim til hinnar átaka-
sömu Sturlungaaldar.
Þar koma þeir mjög
við sögu Snorri og bræður hans
Þórður og Sighvatur, allir valda-
miklir goðorðsmenn. En Snorri
hélt heim gegn vilja konungs og
fyrir það skyldi hann drepinn en
til illverksins fást óvinir Snorra
sem ráða honum varnarlausum
bana í Reykholti í september
1241.
En Snorri var annarrar gerðar
en ólánsmennirnir banamenn
hans. Hann kom greinilega há-
menntaður frá hinu mikla fræða-
setri í Odda, í senn skáld, sagn-
fræðingur og lögsögumaður, sem
semur það meistaraverk heims-
bókmenntanna Heimskringlu. Það
eitt birtir okkur sögu Norður-
Evrópu, fróðleik um heiðin trúar-
brögð og sögu gömlu norsku kon-
ungsættarinnar. Styttan af Snorra
í Reykholti eftir Vigeland var gjöf
norsku þjóðarinnar til Íslendinga
1947, og er höfundi það minn-
isstætt frá sumarvinnu í grennd
við Reykholt.
Það var fyrst við ágæta starfs-
dvöl í Noregi að mér varð fylli-
lega ljóst hve mikinn þátt hin
glæsilega saga Snorra af Nor-
egskonungum til forna átti í eld-
móði Norðmanna í
sjálfstæðisbaráttunni
á 19. öld. Og þá hefur
Snorra-Edda að sögn
haft mikil áhrif síð-
ustu aldir á sagn-
fræði, söguskoðun og
sjálfsmynd annarra
Norðurlandabúa.
Spyrja má hvort án
Heimskringlu væri
ekki svipað með vík-
ingaskipin sem fund-
ust grafin í Noregi og
hinar óleystu gátur um Stone-
henge eða risastytturnar á Páska-
eyju.
Menning Íslendinga og íslensk
menning er tvennt aðskilið, svo
sem Sigurður Nordal bendir á.
Hið íslenska, skerfur Íslendinga
til heimsmenningarinnar, er í
fornbókmenntum og orðsins list.
Af þessu leiðir að háskólasamfélög
sem fremst standa í Evrópu og
Ameríku hafa lengi haft í sínu liði
frábæra sérfræðinga á sviði ís-
lenskra fræða. Við allmarga úr
þeim hópi hafði ég í sendiherra-
starfi afar gagnleg og ánægjuleg
samskipti. Langa greinargerð
þyrfti til að gera skil öllu því sem
þakka má þessum ágætu fræði-
mönnum og Íslandsvinum í
Frakklandi, Bretlandi, Noregi og
Bandaríkjunum. Eftir þá og for-
vera þeirra undanfarnar aldir
liggur ótrúlegur forði ritverka og
þýðinga og kennslustörfin skipta
ekki síður miklu máli. Á fjölmörg-
um erlendum háskólum hefur
lengi farið fram dýrmæt fræðsla
fyrir nemendur frá fjarlægum
löndum.
Sagan er ávallt til reiðu ef Ís-
lendingar kunna með þá auðlegð
að fara og flytja hana öðrum
þjóðum. Okkar hlutverk er varð-
veisla tungunnar og þeirra fjár-
sjóða sem hún geymir. Hætta
vegna utanaðkomandi áhrifa hef-
ur verið fyrir hendi á minni lífs-
tíð. Við eigum öflugt menntakerfi
og svo sem við risum upp úr
hruninu munum við styrkja ís-
lenskt þjóðfélag. Við eigum rétt í
senn til sjálfsforræðis og þátt-
töku, svo sem sérstaða krefst, í
samfélagi Evrópuþjóða sem nú
svo mjög stendur í sjálfsskoðun.
Sá ótvíræði réttur Ísendinga er
reistur á menningu þjóðarinnar.
Hinn norðlæga burðarás í menn-
ingargrunni Evrópu sköpuðu Ís-
lendingar og varðveittu. Án hans
er myndin ófullkomin.
Arfurinn frá Snorra
Eftir Einar
Benediktsson
Einar Benediktsson
» Sagan er ávallt til
reiðu ef Íslendingar
kunna með þá auðlegð
að fara og flytja hana
öðrum þjóðum.
Höfundur er fyrrverandi sendi-
herra.
Móttaka aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til að
opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is