Morgunblaðið - 06.02.2019, Blaðsíða 26
Hjónin Fríða og Guðmundur hafa
gaman af því að fara á skíði.
F
riðbjörg Matthíasdóttir
fæddist 6. febrúar 1969
á Patreksfirði. „Ég ólst
þó að mestu upp í Vest-
urbænum í Reykjavík á
heimili móður minnar Kolbrúnar
Karlsdóttur og stjúpföður Gísla
Ragnarssonar, og gekk í Melaskóla
og Hagaskóla. Frá því að ég man
eftir mér hef ég alltaf verið kölluð
Fríða.
Sem ung stúlka dvaldi ég gjarnan
að sumarlagi hjá ömmu minni og afa
á Póst- og símstöðinni í Borgarnesi
og síðar hjá ömmu minni og afa á
Bíldudal. Fór snemma að vinna á
sumrin með skóla og þá var nú gott
að geta leitað vestur á firði, þar sem
næga vinnu var að hafa.“
Fríða útskrifaðist úr Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla og hóf þegar
nám við viðskiptafræðideild Há-
skóla Íslands, en þaðan útskrifaðist
hún árið 1998 með cand.oecon.-próf.
Síðar lauk hún einnig prófi til
kennsluréttinda fyrir framhalds-
skóla.
„Fyrsta starf mitt eftir háskóla-
nám var hjá Eimskipafélagi Íslands,
þar sem ég kynntist mörgu
skemmtilegu fólki og fékk tækifæri
til að starfa í krefjandi umhverfi.
Landsbyggðarþráin hjá okkur hjón-
um var þó farin að gera vart við sig
og ákváðum við að flytja okkur um
set til Grundarfjarðar. Þar gegndi
ég starfi skrifstofustjóra Grundar-
fjarðarbæjar frá 2001-2003 og síðar
hóf ég störf sem framkvæmdastjóri
Heilsugæslustöðvarinnar á Grund-
arfirði í hlutastarfi og tók einnig að
mér kennslu viðskiptagreina í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga.
Árið 2005 var eiginmaður minn
ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska
kalkþörungafélagsins á Bíldudal og
fluttum við í framhaldi af því vestur
sumarið 2007, með allt okkar hafur-
task. Ég fékk starf sem umsjónar-
maður framhaldsdeildar Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga á Patreksfirði og
tók þátt í uppbyggingu hennar
fyrstu fjögur árin. Árið 2010 voru
kaflaskil er ég bauð mig fram í
sveitarstjórnarkosningum fyrir
sjálfstæðismenn og óháða í Vestur-
byggð. Við fengum meirihluta í
þeim kosningum og héldum honum
til 2018. Árið 2011 tók ég við sem
forseti bæjarstjórnar og sinnti því
verkefni til 2018, ásamt því að leysa
af Ásthildi Sturludóttur, þáverandi
bæjarstjóra, er hún fór í fæðingar-
orlof.
Þegar ég tók að mér að vera for-
seti bæjarstjórnar, árið 2011, þá
ákvað ég að láta af starfi deildar-
stjóra framhaldsdeildar Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga. Mér þótti ein-
faldlega ekki rétt að halda því starfi
áfram vegna tíðra ferðalaga og
Friðbjörg Matthíasdóttir, frkvstj. og bæjarfulltrúi – 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Eva Lind, Guðmundur, Magnús Hringur, Fríða, Ólafur Helgi og Matthías Karl árið 2015.
Ferðaþjónusta er lífsstíll
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
KRINGLU OG SMÁRALIND
HERRASKÓR
SKECHERS RELMENT VATNSHELDIR HERRASKÓR
MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
STÆRÐIR 41-47,5. FÁST LÍKA SVARTIR.
14.995
Sú var tíðin að ég hafði meiningar á pólitík. Það reyndist misskiln-ingur, því á daginn kom að ég hafði í raun fremur áhuga á því aðskilja þetta síbreytilega fyrirbæri sem pólitíkin er. Fyrir lýðræð-
ið er samt mikilvægt að fólk taki þátt, láti sig málin varða og segi sína
meiningu, segir Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskólann á Bifröst, sem er fimmtugur í dag.
„Afmælisdagurinn sjálfur verður líkast til lágstemmdur en innan tíð-
ar stendur til að kalla saman nánustu fjölskyldu og fáeina vini. Ég
hlakka til, enda er ég umvafinn sérdeilis góðu fólki,“ segir Eiríkur sem
er úr Breiðholtinu í Reykjavík. „Hverfið var enn í byggingu þegar ég
var að alast þarna upp, foreldrar unnu gjarnan úti og krakkarnir
gengu því sjálfala að miklu leyti. Þetta voru ævintýralegir tímar.“
Eftir stúdentspróf las Eiríkur stjórnmálafæði við Háskóla Íslands og
fór seinna í framhaldsnám í Kaupmannahöfn. Í fræðunum hefur hann
sinnt fjölbreyttum verkefnum en nú er gangurinn sá að Eiríkur kennir
á haustin en helgar sig að öðru leyti rannsóknum, sem flestar eru á al-
þjóðavísu. Nú er fókusinn einkum á þjóðernishyggju; eðli hennar og
inntak. Eiríkur hefur sent frá sér á annan tug bóka á fræðasviði sínu.
„Í mínum tilviki eru starf og áhugamál samofin; áhugi minn í lífinu er
að kryfja samspil samfélaga á þessari kringlu okkar og lífshugmyndir
mismunandi heimshorna. Margir eiga sér tvöfalt líf; viðurværið og svo
eitthvert sport en í mínu tilviki vefst það saman í eina heild, sem fyrir
mér er frábært,“ segir Eiríkur sem á fjögur börn og nýfætt barnabarn.
Kona hans er Aino Freyja Järvelä, forstöðumaður Salarins í Kópavogi.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Fræðimaður Starf og áhugamál eru samofin, segir Eiríkur í viðtalinu.
Síbreytileg pólitík
Eiríkur Bergmann er fimmtugur í dag
Reykjavík Maria Magda-
lena Skurska fæddist 19.
desember 2017 kl. 13.35.
Hún vó 3.490 og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Magdalena Maria Duda
Skurska og Krzysztof
Skurski.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is