Morgunblaðið - 08.02.2019, Page 4

Morgunblaðið - 08.02.2019, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þ að er afar ánægjulegt að hafa lokið þessu samn- ingaferli og nú getum við hafist handa,“ segir Ei- ríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Slippsins. Skipasmíðastöðin Vard, sem er í Álasundi, hefur yfirumsjón með smíði togarans en Eiríkur segir útgerðina hafa sérstaklega valið Slippinn til að útvega milli- dekkið. Spurður hvernig það hafi komið til nefnir Eiríkur að fyr- irtækið hafi ný- lega skilað af sér verkefnum í Noregi tengdum skipunum Berlin og Cuxhaven, sem eru í eigu DFFU, dótt- urfélags Samherja. Opnaði dyr fyrir önnur verk „Við komum að gerð millidekkj- anna fyrir bæði skipin, í gegnum skipasmíðastöðina Kleven. Okkar aðkoma að þeim verkefnum tókst virkilega vel og ég tel að jákvæð reynsla af þeim verkum leiki stórt hlutverk í því að við séum síðan beðin um að koma að þessu verk- efni,“ segir Eiríkur. „Það er ljóst að vinnan í kringum Berlin og Cuxhaven hefur opnað dyr fyrir okkur.“ Hann bendir á að á und- anförnum fimm árum hafi Slipp- urinn afhent sex millidekk í frysti- togara. „Við höfum lagt aukna áherslu á þennan þátt starfsem- innar, það er framleiðslu vinnslu- búnaðar, og í raun blásið í hann nýju lífi. Flest þessara verkefna höfum við unnið í nánu samstarfi við Samherja eða dótturfélög Samherja og sameiginleg þekking okkar hefur gert það að verkum að lausnirnar okkar verða sífellt betri.“ Sjá um heildarlausnina Verkefnið fyrir Vard og Nergård Havfiske felur þá nýjung í sér að í fyrsta sinn sér Slippurinn alfarið um hönnun og uppsetningu milli- dekksins. „Við kaupum þannig fjölda íhluta frá ýmsum framleiðendum og skipuleggjum millidekkið alveg frá grunni. Við sjáum því um heildarlausnina,“ segir Eiríkur. Hingað til hafi Slippurinn til að mynda aðeins séð um helming eða þriðjung millidekks. Fjölmargir aðilar koma að verk- inu að sögn Eiríks. Marel, Stranda, Baader, Intech og Hol- mek, svo dæmi séu tekin. Ákvörðun Nergård Havfiske um að leita til Slippsins hefur þegar vakið athygli, jafnt hér innanlands sem á erlendri grundu, segir Ei- ríkur. „Við erum því afskaplega ánægð með að hafa fengið þetta verkefni, því það sýnir að við erum komin á þennan stað og að við ráðum vel við verk af þessari stærðargráðu frá upphafi til enda. Í þessu felst klár gæðastimpill fyrir okkur.“ Unnið í heimagarði Norðmanna Hönnun millidekksins er nú lokið og fyrir norðan er starfsfólk Slippsins byrjað að panta íhluti héðan og þaðan til að geta hafið smíðina. „Við stefnum að því að setja búnaðinn um borð í skipið úti í Noregi í september. Þetta er norskt fyrirtæki og það fylgir því hagræðing að klára uppsetningu millidekksins í þeirra heimagarði.“ Starfsemi Slippsins er tvískipt, þar sem annars vegar fer fram framleiðsla og hönnun vinnslubún- aðar. „Og hins vegar erum við að sjálfsögðu slippur. Við sjáum um allra handa þjónustu og viðhald á öllum tegundum af skipum. Svo höfum við í auknum mæli, og þá má í raun tala um þriðju hlið fyr- irtækisins, sinnt þjónustu við virkjanir og stóriðju.“ Leita líka á önnur mið Endurnýjun íslenska fiskiskipa- flotans undanfarin ár hefur ekki farið framhjá neinum, en henni hafa fylgt ýmiss konar verkefni fyrir íslensk tæknifyrirtæki. Spurður hvort hann sjái fram á fleiri verkefni innanlands á næstu árum segir Eiríkur að eðli fyr- irtækisins vegna sé málið tvíbent. „Þessi endurnýjun flotans hefur vissulega gert það að verkum að við fáum ákveðin smíðaverkefni í upphafi, þar sem annar armur fyr- irtækisins er mjög iðinn við að vinna með aðilum að nýsmíðinni. En endurnýjunin kemur svo að einhverju leyti niður á þjónustu- hlutanum okkar, þar sem flotann skipa sífellt nýrri og færri skip, sem þýðir að ef til vill verður minna að gera í viðhaldi en áður. Samhliða þessari þróun þá er við- haldshluti fyrirtækisins að færast að vissu leyti í viðhaldsverkefni inni í landi þar sem við bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu.“ Mannskapurinn fjársjóður Eiríkur segist finna fyrir því við- horfi innan geirans að það skipti útgerðirnar miklu máli að geta komið á einn stað, fengið viðhald á skip og eftir atvikum ný tæki á millidekk eða jafnvel algjöra yf- irhalningu á millidekki. „Í þessu felst okkar sérstaða,“ segir hann og bætir við að sú þekking sem verði til í viðhaldinu nýtist ekki síst þegar komið sé að smíðaverkefnum. „Það sem við státum einna helst af er sá mannskapur sem við höf- um á að skipa. Margir hafa unnið hér virkilega lengi og hér hefur byggst upp gríðarmikil þekking sem er að mínu mati ómetanleg. Þegar ný skip eru að koma og nýjar vélar þá sækjum við enda mikið í að fræðast um alla þeirra eiginleika. Við lítum á þekkinguna sem ákveðinn fjársjóð sem við nýtum í allri okkar vinnu, og með hana að vopni getum við sinnt við- skiptavinum okkar hratt og örugg- lega.“ Stærsta verkefnið til þessa Slippurinn Akureyri hefur gengið frá samningi við norsku skipasmíðastöðina Vard um smíði á milli- dekki fyrir nýjan togara útgerðarinnar Nergård Havfiske. Samningurinn er virði tæplega 700 millj- óna króna en um er að ræða stærsta einstaka verk- efnið sem norðlenska fyrirtækið hefur tekið að sér. Tölvuteikning/Vard Tölvuteikning af hönnun nýja skipsins. Stefnt er að því að setja búnaðinn um borð í skipið í Noregi í september á þessu ári. Slippurinn Akureyri var stofnaður árið 2005 en byggir þó á gömlum grunni, þar sem núverandi eigendur tóku við Slippstöðinni hf., sem hafði verið starf- rækt frá árinu 1952. Árið 2007 keypti Slippurinn fyrirtækið DNG og var rekst- urinn sameinaður undir nafni Slippsins. Í dag starfa um 150 til 160 manns hjá fyrirtækinu – allir á Akureyri. „Síðari ár höfum við í auknum mæli sent mannskapinn í verkefni um allt land. Ekki er loku fyrir það skotið að við munum koma okkur upp starfs- stöðvum annars staðar,“ segir Eiríkur. „Við höfum fundið fyrir áhuga á slíku, svo maður bregði nú fyrir sig orðfæri stjórnmálamanna,“ bætir hann við og hlær. Útiloka ekki fleiri starfsstöðvar Hjá Slippnum starfa um 150 til 160 manns, allir á Akureyri. Eiríkur S. Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.