Morgunblaðið - 08.02.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.02.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Skúli Halldórsson sh@mbl.is S amtökin funduðu í jan- úarmánuði með fulltrúum Fiskmarkaðs Suðurnesja, Fiskmarkaðs Íslands, Fiskmarkaðs Vestfjarða, Fiskmarkaðs Norðurlands og Reiknistofu Fiskmarkaða, þar sem málefni fiskmarkaða landsins voru rædd og um leið mikilvægi þeirra fyrir aukna verðmætasköpun í sjáv- arútvegi. Segir Arnar fundarmenn hafa ver- ið sammála um að skora þyrfti á stjórnvöld, þar sem með breyttu fyr- irkomulagi megi tryggja að hæsta mögulega verð fáist fyrir þennan hluta auðlindarinnar, að sjálfstæðar fiskvinnslur hafi greiðan aðgang að hráefni og þjóðarhagur sé þar með hámarkaður. Um sé að ræða allan þann afla sem ekki kemur til vinnslu hjá samþættum útgerðarfyr- irtækjum. Orsakasamhengið einfalt „Við byggjum þessa áskorun meðal annars á niðurstöðum nokkurra helstu hag- og viðskiptafræðinga landsins, sem komist hafa að því að stóru útgerðarfyrirtækin sem sam- þætta vinnslu og veiðar séu okkur Íslendingum gríðarlega mikilvæg. Þess vegna tölum við ekki lengur um að við viljum fá allan fisk á fisk- markað, þar sem það er í dag al- mennt talið óraunhæft. Hins vegar finnst okkur undarlegt, þegar sala á afla fer fram á milli ótengdra aðila, að menn vilji ekki selja aflann sinn á hæsta mögulega verði,“ segir Arnar. „Þegar öllu er á botninn hvolft hlýtur markmiðið alltaf að vera að hámarka þjóðarhag og við teljum það alveg ljóst að verði farið eftir þessari áskorun muni sjávarútveg- urinn færast nær því markmiði,“ bætir hann við og útskýrir: „Það er þekkt staðreynd að hæsta fiskverðið fæst með sölu afurða á fiskmörkuðum. Það er engin ástæða til að ætla neitt annað en að hærra fiskverð endurspegli hærra virði auðlindarinnar. Og eftir því sem af- urðaverðið er hærra, þeim mun hærra hlýtur virði auðlindarinnar að vera. Þetta er einfalt orsaka- samhengi sem allir ættu að geta gert sér grein fyrir.“ Byggist á vinnslunni líka Hann bendir á að samkvæmt gögn- um Verðlagsstofu skiptaverðs sé af- urðaverð í sölu á milli tengdra aðila, eða innan samþættra útgerðarfyr- irtækja, í nær öllum tilvikum tugum prósenta lægra en á fiskmörkuðum á sama tíma. „Við teljum að arðsemin í sjávar- útvegi byggist ekki eingöngu á veið- unum, heldur hljóti hún að byggjast á vinnslunni líka. Það er ríkjandi krafa frá hagfræðingum að framlag sjávarútvegs til þjóðarhags aukist, og sú getur ekki orðið raunin ef við förum í auknum mæli að flytja hrá- efnið óunnið úr landi. Þá mun engin virðisaukning eiga sér stað hér á landi. Framleiðni í sjávarútvegi get- ur þess vegna aðeins orðið með auk- inni vinnslu hérlendis. Þess vegna finnst okkur afar und- arlegt að ekkert sé gert til að sporna við beinum útflutningi á óunnum fiski. Það er ekkert sem tryggir það að fiskurinn komi fyrst til sölu inn- anlands, áður en hann rennur beint úr landi.“ Hann segist þó hafa ákveðinn skilning á því ef fiskvinnsla á Íslandi getur ekki keppt við fiskvinnslu er- lendis. „Þá er erfitt að mæta því og ef menn vilja hindra útflutning á óunnu hráefni þá þarf það að gerast á pólitíska sviðinu. Fyrst og fremst erum við að biðja um það að borin sé virðing fyrir þessum markaði hér innanlands með hráefni.“ Engin bein tiltrú til staðar Arnar segir fáa þora að tala um þró- un sem átt hafi sér stað á Íslandi undanfarin ár, það er að veiddur afli sé í auknum mæli fluttur óunninn úr landi í gámum. „Ég held að margir átti sig þó á þeirri staðreynd að við erum að helt- ast úr lestinni, vegna þess að í evrum og bandaríkjadölum talið erum við einfaldlega langt á eftir hvað varðar vinnslukostnað. Launakostnaður á hvert unnið kílógramm er orðinn töluvert hærri en í löndunum í kring- um okkur og það blasir þess vegna við að við munum missa ákveðinn hluta af fiski úr landi,“ segir hann og nefnir lönd á borð við Lettland, Litháen og Pólland, sem boðið geti ódýrari vinnslu afurðanna. „Með auðveldari flutningsleiðum gætum við séð fram á fiskinn fara í enn meiri mæli úr landi til vinnslu. Og það er afar undarlegt hvernig það virðist ríkja ákveðið þegjandi samkomulag um þessa þróun. Engin bein tiltrú virðist vera til staðar á að hægt sé að auka verðmæti auðlind- arinnar með vinnslu hér innanlands. Það lítur út fyrir að allt slíkt tal sé sparað fyrir tyllidaga, þegar nóg heyrist af því.“ „Erum að falla á prófinu“ Hann segist vilja ítreka þá framtíð- arsýn að Íslendingar veiði ekki að- eins fiskinn heldur vinni hann líka. „Almenna reglan er sú að um helm- ingur fisksins sé hausar og bein. Af hverju ættum við að vera að flytja út að hálfu leyti hráefni sem verður engum að gagni sem við þeim tekur, á okkar kostnað? Markmið okkar á að vera að hámarka verðmæta- sköpun hérna heima áður en varan er flutt út.“ Hann kallar eftir því að sett verði stefna um að auka virði íslenskra sjávarafurða. „Við erum að falla á prófinu í markaðssetningu vörunnar okkar. Við erum að missa stöðu á er- lendum mörkuðum vegna lítillar markaðssetningar. Við erum að missa það forskot sem við höfðum áður vegna gæða afurðanna okkar. Ég kalla eftir því að sett verði gegn- heil markmið en ekki bara einhver yfirborðskennd markmið þar sem ekkert býr að baki.“ Segja megi að íslenskur sjávar- útvegur sé orðinn fórnarlamb eigin velmegunar. Vilji til að gera enn þá betur „Atvinnugreinin hefur verið fram- úrskarandi en það sem mér finnst vanta á þessum tímapunkti er vilji til að gera enn þá betur. Margir virðast halda að staðan sé nógu góð eins og hún er í dag og spyrja hvort við þurf- um nokkuð að gera betur. Eins og hagfræðingar hafa bent á þá er ekki nóg að viðhalda hagvexti byggðum á sjávarútvegi, heldur þarf hann að aukast á komandi misserum og árum. Það verður ekki að veru- leika nema við gerum meira úr hverju kílógrammi auðlindarinnar, eins og ég hef þegar bent á. En við virðumst ekki vera að færast í þá átt.“ Undarlegt að vilja ekki hæsta verðið Íslenskur fiskur er í sífellt auknum mæli fluttur óunninn úr landi í gámum, án þess að unnin hafi verið úr honum nokkur verðmæti. Þegjandi samkomulag virðist ríkja innan atvinnugreinarinnar um þessa þróun, segir Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleið- enda og -útflytjenda, sem skorað hafa á stjórnvöld að tryggja að allur sá afli, sem seldur er á milli ótengdra aðila, verði boðinn til sölu í uppboðskerfi fiskmarkaðanna. Horft yfir Fiskmarkað Suðurnesja. Fulltrúar fiskmarkaða funduðu með SFÚ í janúar um málefni markaðanna og mikilvægi þeirra fyrir verðmætasköpun í sjávarútvegi. Morgunblaðið/Hari Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda, kallar eftir stefnu um að auka virði íslenskra sjávarafurða. Spurður hver tilfinning fulltrúa fiskmarkaðanna á fundinum hafi verið, segir Arnar að dökk ský séu ávallt við sjóndeildarhringinn. „Fiskmarkaðskerfið er álíka gamalt og kvótakerfið og það hafa oft verið, og eru enn, miklar hrakspár um fiskmarkaðina. Samt virðast þeir alltaf halda velli sem hlýtur að benda til þess að mikilvægi þeirra sé meira en menn vilja vera láta. Búið er að byggja upp feiknasterkt flutnings- net og þegar allt er talið er þessi birgir gríðarlega stór.“ Á síðasta ári hafi þannig verið seldur fiskur fyrir rúma 24 millj- arða króna í gegnum fiskmark- aðskerfið. „Það er enginn smá birgir sjávarafurða sem selur fyrir 24 milljarða. Samt ber þetta of- ursjaldan á góma.“ Feikna- sterkt flutn- ingsnet

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.