Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 Veður víða um heim 26.2., kl. 18.00 Reykjavík 4 súld Hólar í Dýrafirði 2 skýjað Akureyri 5 rigning Egilsstaðir 7 skýjað Vatnsskarðshólar 7 rigning Nuuk 2 heiðskírt Þórshöfn 8 léttskýjað Ósló 5 heiðskírt Kaupmannahöfn 9 léttskýjað Stokkhólmur 6 heiðskírt Helsinki 2 léttskýjað Lúxemborg 17 heiðskírt Brussel 18 alskýjað Dublin 13 heiðskírt Glasgow 13 heiðskírt London 17 heiðskírt París 17 heiðskírt Amsterdam 16 heiðskírt Hamborg 12 heiðskírt Berlín 11 rigning Vín 12 heiðskírt Moskva 1 snjóél Algarve 16 heiðskírt Madríd 19 heiðskírt Barcelona 17 heiðskírt Mallorca 16 léttskýjað Róm 12 heiðskírt Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -23 skýjað Montreal -13 léttskýjað New York 0 heiðskírt Chicago -6 snjókoma Orlando 22 léttskýjað  27. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:43 18:39 ÍSAFJÖRÐUR 8:54 18:38 SIGLUFJÖRÐUR 8:37 18:21 DJÚPIVOGUR 8:14 18:07 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Suðaustan 3-10 m/s, en austan 10-15 við S-ströndina. Dálítil rigning um landið sunnanvert en þurrt norðan heiða. Hiti 1 til 6 stig, en kringum frostmark fyrir norðan. Suðaustlæg átt, 8-13 m/s og stöku skúrir eða slydduél S- og V-lands, en annars hægara og bjart með köflum. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst. Formlegri leit að Páli Mar Guðjóns- syni, sem talinn er hafa ekið bifreið sinni út í Ölfusá seint í fyrrakvöld, var hætt á sjöunda tímanum í gær- kvöldi. Farið var tvisvar yfir leitar- svæðið og vel á annað hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni, auk lögreglu- og slökkvi- liðsmanna og þyrlu Landhelgis- gæslunnar. Leitinni verður fram- haldið í dag. „Við höfum ekki fundið neitt sem hefur leitt okkur áfram í þessu, ein- hver plastbrot, en við vitum að bíll- inn er þarna ofan í,“ sagði Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Sel- fossi, í gærkvöldi. Páll Mar, sem er ókvæntur og barnlaus, ók bíl sínum í ána fyrir of- an Selfosskirkju um tíuleytið í fyrrakvöld. Sjónarvottar voru á staðnum og var lögregla þegar kölluð út, auk allra björgunarsveita í Árnessýslu og þyrlu Landhelgis- gæslunnar. Í gær bættist svo björg- unarsveitarfólk af suðvesturhorn- inu í hóp leitarmanna. Páls Mars Guðjónssonar, sem talinn er hafa ekið bifreið sinni út í Ölfusá í fyrrakvöld, verður áfram leitað í dag Á annað hundrað leituðu Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Fella þarf niður fundi í umhverfis- og heilbrigðisráði, skipulags- og samgönguráði og borgarráði vegna vetrarfría í grunnskólum Reykja- víkurborgar. Voru skólafrí þessi sl. mánudag og þriðjudag en halda átti fundina í dag, miðvikudag, og á morgun, fimmtudag. Mun þetta vera fylgifiskur þess að gera Reykjavíkurborg að „fjölskyldu- vænum vinnustað“ því ekki mun hafa gefist tími til að undirbúa áðurnefnda fundi. „Við erum að gera borgarstjórn og Reykjavíkurborg að fjölskyldu- vænum vinnustað. Það er vetrarfrí í skólum borgarinnar þessa vikuna,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs, í sam- tali við Morgunblaðið, og vísar til vetrarfrís grunnskólakrakka á mánudag og þriðjudag. Sigurborg Ósk segir frídagana tvo vera þá daga sem alla jafna eru nýttir til að undirbúa þá fundi sem fella þarf niður. Segir hún það myndu vera „mjög erfitt“ að halda óbreyttu plani og funda þrátt fyrir skólafríið. „Þá yrði enginn tími fyrir undir- búningsfundi og það myndi ekki teljast góð vinnubrögð,“ segir hún. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, odd- viti Viðreisnar og formaður borgar- ráðs, tekur í svipaðan streng. „Öll fundahöld í pólitíkinni eru undirbúin af starfsmönnum. Fund- ur borgarráðs á fimmtudegi er undirbúinn á mánudegi og á hádegi eru lokaskil á gögnum,“ segir hún. Aðspurð segir Þórdís Lóa ekki hægt að undirbúa fund borgarráðs á miðvikudegi. „Það hefði brotið all- ar vinnureglur um aðgang að gögn- um og tímafyrirvara,“ segir hún. Fundafall vekur athygli Vigdís Hauksdóttir, oddviti Mið- flokksins, segist vera hissa á því að fresta þurfi öllum þessum fundum. „Ég tel það ekki vera flókið verk að raða saman dagskrá og boða til fundar,“ segir hún og heldur áfram: „Ég hefði gjarnan viljað hafa fund í borgarráði [á morgun] vegna allra þessara mála sem nú eru í gangi. En þetta er auðvitað eitthvað sem meirihlutinn í borginni ákveður og við sem erum í minnihlutanum fáum engu ráðið um það. Fundafall hjá borginni í heila viku – ég set vissulega spurningarmerki við það.“ Í tilkynningu sem Reykjavíkur- borg sendi frá sér fyrir helgi vegna vetrarfrís grunnskólanna voru fjöl- skyldur meðal annars hvattar til að vera saman í vetrarfríinu. Bryngeir Arnar Bryngeirsson, forstöðumaður frístundaheimilis í Reykjavík, segir starfsfólk frí- stundaheimila þó ekki hafa fengið frí. Þurftu starfsmenn þess í stað að mæta til vinnu á sama tíma og börnin voru heima. „Þessi tími var nýttur í skipu- lagsvinnu, tiltekt og fræðslu- og dagskrárvinnu,“ segir Bryngeir og bætir við að starfsmenn frístunda- heimila hafi margir hverjir verið ósáttir við vinnuskylduna. „Þetta vekur spurningar – af hverju er þetta svona misskipt hjá borg- inni?“ Fundir frestast langt inn í vikuna Morgunblaðið/Eggert Á pásu Reykjavíkurborg vill vera fjölskylduvæn og því gafst m.a. ekki tími til að undirbúa fundi borgarinnar.  Frí í grunnskólum Reykjavíkur í upphafi viku frestar fundum borgarinnar í dag og á morgun  Gera borgina og borgarráð að „fjölskylduvænum vinnustað“  Starfsmenn frístundaheimila fengu þó ekki frí

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.