Morgunblaðið - 27.02.2019, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
„Það hafa nú ekki komið fram nein-
ar tillögur um að ráðast á tekju-
stofna sveitarfélaga. Þessu var bara
fleygt fram í umræðunni í kringum
síðustu helgi,“ segir Aldís Haf-
steinsdóttir, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, spurð um
hugmyndir sem fram hafa komið
um að sveitarfélög gætu liðkað fyrir
gerð kjarasamninga með lækkun
útsvars.
Aldís segir það sérstakt ef ætl-
unin sé að ráðast á tekjustofna
sveitarfélaga, sérstaklega þegar
haft sé í huga að ríkið er með allt
aðra og margfalt fleiri tekjustofna
en sveitarfélögin, sem eru með mjög
einhæfa tekjustofna. „Það eina sem
við höfum er útsvarið, gjöld af fast-
eignum, Jöfnunarsjóðinn og þjón-
ustugjöld sem fólk er að borga. Ég
hef hins vegar ekki tölu á öllum
tekjustofnum rík-
isins,“ segir hún.
„Með þessum
einhæfu og litlu
tekjustofnum
sem sveitar-
félögin hafa, þá
þurfum við að
standa straum af
mjög mikilvægri
nærþjónustu og
líka að mæta sí-
fellt auknum kröfum bæði íbúa og
þeim sem felast í lögum sem sam-
þykkt eru á Alþingi,“ bætir hún við.
Hvergi feitan gölt að flá
Aldís segir sveitarfélögin hafa
tekið virkan þátt í vinnu að lausnum
í húsnæðismálum. Ef vilji sé til þess
að sveitarfélögin lækki álögur, þá
þurfi líka að setjast niður og ákveða
hvaða þjónustu eigi að skera niður á
móti. Sveitarfélögin sinni mjög
mikilvægri nærþjónustu og hvergi
sé feitan gölt að flá á vettvangi
þeirra.
Aldís segir einnig að ef sveitar-
félögin eigi að koma að borðinu með
lækkun útsvars þyrfti að ræða það
mál í stærra samhengi. ,,Þá þarf að
koma til einhver önnur tekjuöflun
hjá sveitarfélögunum. Við erum al-
veg tilbúin í þær viðræður og höfum
bent á ýmislegt, t.d. að sveitar-
félögin fái hluta af auðlindagjaldinu,
þau fái hluta af tekjum sem gætu
mögulega myndast vegna fiskeldis í
sjó, þau fái frekari tekjur af raf-
orkumannvirkjum, gistináttagjaldið
o.fl. Við erum alveg tilbúin í þetta
en það yrði þá að vera hluti af um-
ræðu um tekjuskiptingu ríkis og
sveitarfélaga.“
Ekki ráðist á tekjustofna
Tilbúin í viðræður um aðra tekjuöflun og tekjuskiptingu
Aldís
Hafsteinsdóttir
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Það sem við erum að gera núna er
fyrst og fremst að reyna að róa þá
sem hafa samband við okkur og
reyna að halda sjó í von um að samn-
ingsaðilar sjái til sólar og nái að af-
stýra miklum skaða. Hver dagur
sem líður frá þeirri stöðu sem upp er
komin núna, þar sem verkföll eru
fram undan, er mjög dýr,“ segir
Friðrik Pálsson, hótelhaldari á Hótel
Rangá, um hugsanleg verkföll.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, hefur ítrekað sagt að aðgerðir
félagsins, verði þær samþykktar,
muni beinast að fyrirtækjum í ferða-
þjónustu. Verði verkfallsaðgerðir
Eflingar samþykktar í atkvæða-
greiðslu munu þær hefjast 8. mars
með hótelstarfsfólki sem sinnir þrif-
um og hreingerningu. VR mun
kynna fyrirhugaðar aðgerðir á föstu-
daginn.
„Sorglegt allra vegna að
þessi staða er komin upp “
„Mér finnst fyrst og fremst bara
ótrúlega sorglegt að við skulum
standa frammi fyrir svona máli núna.
Það má aldrei gleymast þegar verið
er að tala um ferðaþjónustuna að
gestir landsins eru upp til hópa fólk
með fjölskyldurnar sínar í fríum. Það
vill ekki láta trufla fríin sín. Þess
vegna eru þessir viðskiptavinir
gríðarlega viðkvæmir fyrir allri
truflun,“ segir Friðrik.
Spurður hvort loka þurfi fyrir
starfsemi hótelsins komi til verkfalla
segist hann ekki vilja leiða hugann
að því strax. „Við upplifðum verkföll
fyrir nokkrum árum og í augnablik-
inu langar mig ekki til þess að leiða
hugann að því til hvaða ráða við
þyrftum að grípa ef og þegar til þess
kæmi. Þetta er bara afskaplega
sorglegt allra vegna að þessi staða er
komin upp. Það bara verður að leysa
hana.“
Óvissan ein og sér slæm
Helga Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri vöruþróunar, sölu- og mark-
aðssviðs Bláa lónsins, segir óvissuna
sem nú ríkir afar slæma. „Eins og
þetta lítur við okkur þá er staðan enn
óljós. Það á eftir að koma í ljós í raun
og veru hvort og þá til hvaða aðgerða
verður gripið. Auðvitað er þetta
mikil óvissa og auðvitað hefur hún
alltaf vond áhrif. Þetta er staðan
eins og hún horfir við okkur í dag en
við fylgjumst vel með,“ segir Helga.
„Á sama tíma er ábyrgð
samningsaðila mjög mikil. Það er
mikilvægt að tryggja samkeppnis-
hæfni og stöðugt rekstrarumhverfi
fyrirtækjanna annars vegar og
kaupmátt launþega hins vegar.“
Hún segir að fyrirtækið fylgist vel
með stöðunni og muni bregðast við
með viðeigandi hætti á hverjum tíma
en starfsmenn Bláa lónsins eru í
mörgum mismunandi stéttar-
félögum.
Hver dagur í
þessari stöðu
mjög dýr
Hugsanleg verkföll og óvissa hafa
slæm áhrif á fyrirtæki í ferðaþjónustu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lónið Framkvæmdastjóri Bláa lóns-
ins segist fylgjast vel með stöðunni.
Verkföll
» VR beinir verkfallsaðgerðum
sínum að fyrirtækjum í ferða-
þjónustu.
» Verkfallsaðgerðir VR verða
kynntar á föstudaginn.
» Verkfallsaðgerðir Eflingar
hefjast 8. mars, verði þær
samþykktar.
» „Afskaplega sorglegt allra
vegna að þessi staða er komin
upp og það bara verður að
leysa hana,“ segir hótelhaldari
Hótels Rangár.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Sjaldan ef nokkurn tímann hafa
fleiri launþegar en nú heyrt undir
kjaradeilur á vinnumarkaðinum sem
eru komnar á það stig að vera ýmist í
sáttameðferð hjá Ríkissáttasemjara
eða í undirbúningi verkfallsaðgerða.
Yfirstandandi deilum 16 aðildar-
félaga Starfsgreinasambandsins,
Landsambands íslenskra verslunar-
manna og samflots iðnaðarmanna
við SA hefur öllum verið vísað til
Ríkissáttasemjara og eru sáttafund-
ir boðaðir bæði í deilum SGS og SA
og LÍV og SA fyrir hádegi í dag.
Á bak við þessi félög í SGS og fé-
lög iðnaðar- og verslunarmanna eru
samtals rúmlega 53 þúsund launþeg-
ar, sem eru virkir á vinnumarkaði.
Verkalýðsfélögin fjögur sem slitu
viðræðum í seinustu viku, VR,
Efling, Verkalýðsfélag Akraness
(VLFA) og Verkalýðsfélag Grinda-
víkur (VLFG), eru með tæplega 64
þúsund félagsmenn innan sinna
raða, sem eru virkir á vinnumarkaði
skv. seinustu ársskýrslu ASÍ.
Alls eru því í kringum 117 þúsund
launþegar í þeim verkalýðsfélögum
ASÍ sem eru með kjaradeilur í sátta-
meðferð eða hafa slitið viðræðum og
hafið undirbúning atkvæðagreiðslna
um verkfallsaðgerðir.
Þær fjórar fylkingar landssam-
banda og félaga í ASÍ sem myndast
hafa í yfirstandandi kjaraviðræðum
við Samtök atvinnulífsins í vetur eru
misstórar. Tvö stærstu stéttarfélög
landsins, VR með hátt í 35 þúsund
virka félagsmenn og Efling með um
27 þúsund virka félaga, hafa þegar
slitið viðræðum við SA eins og fram
hefur komið. Félögin 16 sem fólu
Starfsgreinasambandinu samnings-
umboð sitt eru með innan sinna vé-
banda rúmlega 32 þúsund virka fé-
lagsmenn. Stærst þeirra er Eining
Iðja með um sjö þúsund virka fé-
lagsmenn og Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur með nálægt
3.700.
Iðnaðarmannafélögin standa sam-
an í kjaraviðræðunum við SA. Virkir
launþegar á vinnumarkaði í þessum
félögum eru rúmlega 16 þúsund
talsins. Þar á meðal eru aðildarfélög
landssambandanna Samiðnar með
hátt í sjö þúsund virka félagsmenn
og Rafiðnaðarsambandsins með á
fimmta þúsund félaga, og stéttar-
félög með beina aðild að ASÍ á borð
við VM, með um þrjú þúsund fé-
lagsmenn, og Matvís með tæplega
tvö þúsund félagsmenn.
Landssamband íslenskra versl-
unarmanna hefur samningsumboð
fyrir félög og deildir sem ekki áttu
samleið með VR í viðræðunum við
SA og ákvað það fyrir helgi að vísa
kjaradeilu sinni við SA til ríkissátta-
semjara. Virkir félagsmenn í þess-
um félögum eru á sjötta þúsund
talsins.
„Allt í góðu ferli“
Iðnaðarmannafélögin hafa á sein-
ustu dögum fært Ríkissáttasemjara
tilkynningar um vísun kjaradeiln-
anna og var greint frá vísun samflots
iðnaðarmanna og SA á vef Ríkis-
sáttasemjara í gærkvöldi. Kristján
Þórður Snæbjarnarson, formaður
RSÍ, kvaðst í gærdag gera ráð fyrir
fyrsta sáttafundi á næstu dögum og í
gærkvöldi var svo búið að tímasetja
fundinn kl. níu í fyrramálið. Samn-
inganefnd iðnaðarmanna hefur átt
fjölda funda með atvinnurekendum
á umliðnum vikum um hin ýmsu mál
sem sagðir eru ganga ágætlega og
sum mál komin töluvert langt á veg
að sögn Kristjáns. Hann segir vísun
deilunnar til sáttasemjara ekki
breyta því að rætt verði eftir sem áð-
ur um ýmis verkefni utan formlegra
sáttafunda ,,en þetta mun auka skil-
virknina og formfestuna í viðræðun-
um,“ segir hann. „Þetta er allt í góðu
ferli þó að við séum að stíga þetta
skref.“
Fylkingar í kjaradeilum
LÍV
Landssamband
íslenzkra
verzlunarmanna
43.027
félagsmenn í
4 félögum og
7 deildum
RSÍ
Rafiðnaðarsam-
band Íslands
4.512
félagsmenn í
8 félögum
Samiðn
Samband
iðnfélaga
7.550
félagsmenn í
6 félögum og
5 deildum
SGS
Starfsgreina-
samband Íslands
68.076
félagsmenn í
19 félögum
SSÍ
Sjómannasam-
band Íslands
1.591
félagsmenn í
4 félögum og
13 deildum
Félög með
beina aðild
8.220
félagsmenn í
7 félögum
132.976 félagsmenn
119.995 eru virkir á vinnumarkaði
Landssambönd:
ASÍ
Alþýðusamband Íslands
VR Samiðn (6 félög)
RSÍ
(8 félög)16 aðildarfélög FHS, Grafía, Matvís, VM3 aðildarfélög
(7 deildir)
Efling
VLFA
VLFG
Hafa slitið viðræðum/
undirbúa verkföll
Á vinnumarkaði: 63.652
Hafa vísað til
Ríkissáttasemjara
Á vinnumarkaði: 32.120
Hafa vísað til
Ríkissáttasemjara
Á vinnumarkaði: 5.177
Samflot iðnaðarmanna hafa
vísað til Ríkissáttasemjara
Virkir á vinnumarkaði: 16.026
Slitið eða vísað fyrir
117 þúsund launþega
Fyrstu sáttafundir SGS og LÍV með SA boðaðir í dag
Morgunblaðið/Hari
Viðræður Samninganefnd SGS.
Kjaradeilur
Ferðafélag Íslands
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S. 568 2533 | www.fi.is
Aðalfundur
Ferðafélags Íslands
verður haldinn fimmtudaginn 7. mars
kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6.
Hefðbundin aðalfundarstörf
Stjórnin.