Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Sagan segir að bandarískurstjórnmálamaður, sem síðar
varð forseti, hafi eitt sinn lagt til
að komið yrði af stað vafasömum
orðrómi um andstæðing sinn, sem
var svínabóndi. „Já, en það er
ekki satt,“ á aðstoðarmaður hans
að hafa sagt. „Auðvitað ekki, en
látum helvítið neita því,“ var
svarið.
Þessi saga kemur upp í hugannþegar fylgst er með kjarabar-
áttu Eflingar. Fyrst var hóteleig-
andi sakaður um að hafa vísað út-
sendurum Eflingar frá þegar þeir
mættu
óboðaðir til
þess að
gefa starfs-
mönnum
hótelsins
kost á að
kjósa um verkfallsboðun. Lítið var
gefið fyrir það þegar stjórnandinn
sagði að hann hefði einfaldlega
sagt að ekki stæði vel á en þeim
væri velkomið að koma tveimur
tímum síðar.
Í gær var því síðan slegið upp aðá öðru hóteli hér í bær héngi
„skammarlisti“ uppi á vegg þar
sem veikindadagar starfsmanna
væru skráðir og sýnilegir öðrum
starfsmönnum. Þessar upplýsingar
hefði Efling haft undir höndum
frá því í upphafi mánaðar. Sagði
formaður Eflingar þetta sýna að
atvinnurekendur litu á starfsmenn
sem „einnota drasl“. Frá hótelinu
bárust hins vegar þau svör að
engir slíkir listar héngju uppi á
vegg. Auk þess hefði Efling ekki
leitað til hótelsins til að spyrjast
fyrir um málið og hefði þó haft
upplýsingarnar frá því í upphafi
mánaðar.
Er ástæðan sú að beita á sömuaðferð og bandaríski stjórn-
málamaðurinn forðum og láta
andstæðingana neita?
Látum helvítið
neita
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Líklegt er að um eða upp úr helgi fari skip í
samvinnu Hafrannsóknastofnunar og útgerða
uppsjávarskipa til vöktunar á loðnu og til að
kanna hvort vestanganga geti hugsanlega verið á
ferðinni inn. Byrjað verði í Víkurál og síðan leit-
að norður og austur eftir veðri og fréttum af
miðunum. Veðurspá er vond fyrir Vestfjarðamið.
Þetta var meðal þess sem rætt var í samráðs-
hópi fyrrnefndra aðila í gær. Að sögn Þorsteins
Sigurðssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Haf-
rannsóknastofnunar, kom á fundinum fram sam-
eiginleg sýn um að halda vöktun áfram. Þá er
einnig líklegt að skip verði sent til að kanna
loðnugönguna sem er á leiðinni með suður-
ströndinni og hvort hún sé ekki á svipuðu róli og
í mælingum fyrir austan land nýlega. Hvorki
skip né fjármagn hafði í gær verið tryggt í þessi
verkefni, en rannsóknaskipin eru að hefja þátt-
töku í togararalli.
Fregnir bárust í gær frá togara um loðnutorfu
á Sléttugrunni út af Melrakkasléttu. Þorsteinn
sagði að fljótt á litið virtist þetta ekki vera ný
ganga, sem ekki hefði verið mæld í loðnuleið-
öngrum vetrarins. aij@mbl.is
Vilja kanna mögulega vestangöngu
Sameiginleg sýn um að
halda loðnuvöktun áfram
Morgunblaðið/Hanna
Óvissa Enginn kvóti hefur verið gefinn út og því
ekki enn verið bleytt í loðnunót í vetur.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Guðrún Sigríður Tryggvadóttir,
varaformaður Bændasamtaka Ís-
lands, tekur við formennsku í sam-
tökunum á föstudaginn, en Sindri
Sigurgeirsson, núverandi formaður,
hefur óskað eftir að fá að stíga til
hliðar.
Í fréttatilkynningu frá samtökun-
um segir að Sindri taki í apríl við
nýju starfi sem svæðisstjóri Arion-
banka á Vesturlandi með aðsetur í
Borgarnesi, og því hafi hann ákveðið
að láta af öllum trúnaðarstörfum fyr-
ir samtök bænda. „Þau sex ár sem ég
hef verið formaður Bændasamtak-
anna hafa verið annasöm og krefj-
andi en umfram allt skemmtilegur
tími. Oft hefur blásið hressilega á
móti í umræðu um landbúnaðarmál
en alltaf er jafn ánægjulegt að sjá
hvað velvild almennings er mikil
gagnvart íslenskum bændum,“ segir
Sindri í tilkynningunni, auk þess
sem hann þakkar samstarfsfólki sínu
fyrir frábært samstarf.
Guðrún er bóndi í Svartárkoti í
Bárðardal í S-Þingeyjarsýslu. Hún
er menntaður kennari en rekur
sauðfjárbú í Svartárkoti með systur
sinni og fjölskyld-
um þeirra.
„Þetta leggst
vel í mig, það eru
mörg og mikil-
væg verkefni
framundan sem
íslenskir bændur
þurfa að takast á
við,“ segir Guð-
rún. „Mikilvæg-
ast er að bændur
þétti raðirnar fyrir þær áskoranir
sem fram undan eru.“
Guðrún verður fyrsta konan til
þess að gegna formennsku í heildar-
samtökum bænda á Íslandi allt frá
því að hin fyrstu þeirra, Suðuramts-
ins húss- og bústjórnarfélag, voru
stofnuð árið 1837. Guðrún bendir á
að konur hafi oft gegnt formennsku í
búgreinasamböndum og í búnaðar-
samböndum. Hins vegar hafi verið
orðið tímabært að kona tæki við for-
mennsku í heildarsamtökum bænda.
„Við höfum verið að vinna að því
að auka þátttöku kvenna í fé-
lagsstörfum bænda og ef þær konur
sem eru í starfinu eiga að fá fleiri
konur inn verðum við bara að taka
slaginn alla leið,“ segir Guðrún að
lokum.
Guðrún tekur við
bændasamtökunum
Sindri Sigurgeirsson stígur til hliðar
Guðrún Sigríður
Tryggvadóttir