Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti, þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður, skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum. Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum. Nýr Dacia Duster Gerðu virkilega góð kaup! Verð frá: 3.690.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 2 0 2 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 /www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Seðlabanka Íslands tókst ekki að sýna fram á nauðsyn þess að leggja stjórnvaldssekt á Samherja með vís- an til ákvarðana í sambærilegum málum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinargerð bankaráðs Seðlabankans vegna dóms Hæsta- réttar í máli Samherja gegn Seðla- bankanum. Þá telur bankaráð að ekki verði hjá því komist að ráðast í heildar- endurskoðun á allri stjórnsýslu Seðlabanka Íslands, meðferð mála innan hans og því með hvaða hætti bankinn hefur á umliðnum árum far- ið með það opinbera vald sem honum hefur verið falið lögum samkvæmt, einkum við gjaldeyriseftirlit. Framganga yfirstjórnar skoðuð Greinargerðin var gerð opinber í gær en Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra óskaði eftir henni í nóvember, fjórum dögum eftir að Hæstiréttur felldi niður fimmtán milljóna króna sekt sem Seðlabank- inn lagði á Samherja vegna gjald- eyrislagabrota. Forsætisráðherra óskaði sérstaklega eftir skýringu á því hvers vegna bankinn tók málið upp á ný eftir að héraðssaksóknari endursendi bankanum erindið í ann- að sinn. Í greinargerðinni segir að þær skýringar sem Seðlabankinn hefur gefið á því hvaða ástæður eða sjónar- mið lágu að baki þeirri ákvörðun bankans að endurupptaka mál Sam- herja 30. mars 2016 og leggja stjórn- valdssektir á fyrirtækið í framhald- inu standist ekki. Að mati höfunda greinargerðar- innar hlýtur Alþingi, í ljósi þeirra lýs- inga sem koma fram í áliti Umboðs- manns Alþingis á samskiptum hans við Seðlabankann, sem fjallað er um í greinargerðinni, að taka framgöngu yfirstjórnar bankans í samskiptum sínum við Umboðsmann til sér- stakrar umfjöllunar og skoðunar. Stjórnsýsla SÍ verði endurskoðuð  Skýringar bankans standast ekki Morgunblaðið/Árni Sæberg Seðlabanki Íslands Í greinargerðinni segir að skýringar bankans á ástæð- um þess að endurupptaka mál Samherja og leggja á sektir standist ekki. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Maxim Baru, sviðsstjóri félagssviðs Eflingar, sagði Ístak eiga það á hættu að verkfallsaðgerðir félagsins myndu beinast gegn fyrirtækinu í kjölfar þess að það tilkynnti stéttarfélaginu að það neyddist til að segja upp 31 fastráðnum starfsmanni og segja upp samningi við 25 aðra starfsmenn sem aðkomu hafa haft að verkefnum fé- lagsins í gegnum starfsmannaleigu. Þetta fullyrðir Karl Andreassen, for- stjóri Ístaks, í samtali við Morgun- blaðið. Morgunblaðið leitaði viðbragða Sólveigar Önnu Jónsdóttur, for- manns Eflingar, við þessu í gær- kvöldi. Sagði hún að fyrirtækinu hefði ekki verið hótað verkfallsaðgerðum. „Hins vegar er félagið ekki undir neinni friðarskyldu núna. Við teljum Ístak ekki hafa uppfyllt skyldur sínar um samráð við starfsfólk sitt vegna uppsagnanna. Fyrirtæki halda að þau geti fundað með okkur til að fá þann stimpil að þau hafi gert allt rétt, en þannig er það bara ekki.“ Spurð út í hvað hún ætti við með því að félagið væri ekki undir friðarskyldu vildi hún ekki skýra það nánar. Stórum verkefnum að ljúka Karl segir að uppsagnir fyrirtækis- ins séu komnar til af því að stærri verkefnum sé að ljúka og verkefna- staðan framundan sé óljós. „Umræðan síðustu misseri hefur verið sú að nægt framboð sé á verk- efnum á byggingarmarkaði, að verk- takar hafi nóg að gera og geti illa tek- ið að sér fleiri verkefni. Þetta er auðvitað misjafnt og átti kannski að mestu við um verktaka sem eru að byggja og selja eigin íbúðir á mark- aði, en það er einnig að dragast sam- an á því sviði.“ Hann segir að útboðsmarkaðurinn sem verktakar starfi einnig á sveiflist mjög upp og niður. „Í því sambandi má benda á að mörg fyrirhuguð stærri verkefni skila sér seint inn í útboð eða er einfaldlega slegið á frest. Væntingar útboðs- markaðarins eru því langt umfram framboðið sjálft.“ Karl segir að hann vonist til að hægt verði að draga uppsagnirnar til baka en það ráðist af því hvenær þau verkefni sem Ístak hafi verið lægst- bjóðandi í, verði samþykkt og sett í gang. „Þar munar mest um Hús ís- lenskra fræða, en einnig önnur verk sem verkkaupar eiga erfitt með að setja í gang og bera fyrir sig erfiðari markaðsaðstæður en lagt var upp með.“ Ístak var lægstbjóðandi í síðast- nefnda framkvæmd. Tilboðið var þó talsvert yfir kostnaðaráætlun. Þannig gerði ríkissjóður ráð fyrir að fram- kvæmdin myndi kostar ríflega 3,7 milljarða króna. Tilboð Ístaks hljóð- aði hins vegar upp á ríflega 4,5 millj- arða og næsthæsta tilboðið upp á tæpa 4,6 milljarða. „Það sem hefur stór áhrif á fram- gang verkefna er rétt kostnaðarmat verkkaupa í upphafi útboðs,“ segir Karl. „En hér er mikill misbrestur á og lægstu tilboðum oft hafnað af verkkaupa vegna þessa. Þessi mis- munur hefur verið útskýrður sem „græðgi verktaka á yfirþöndum markaði“ en það er ekki rétt og það er auðvelt að skoða ársreikninga þeirra verktaka sem starfa eingöngu á út- boðsmarkaði og bera saman við þann mismun kostnaðaráætlana og tilboða. Rangt kostnaðarmat verkkaupa leiðir yfirleitt til seinkunar framkvæmda og þá yfirleitt með sama eða meiri kostnaði en í fyrstu var talinn of hár.“ Hótuðu verkfallsað- gerðum gagnvart Ístaki  Fækkar um 56 í starfsliði sínu sökum verkefnastöðu Morgunblaðið/Ómar Uppsagnir Allt stefnir í að margir missi vinnu sína hjá Ístaki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.