Morgunblaðið - 27.02.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
• Peysur
• Tunikur
• Skyrtur
• Kjólar
• Bolir
• Jakkar
• Buxur
• Pils
NýttNýtt
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr
einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp
að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ERT ÞÚ MEÐ
HÁLSBÓLGU?
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
Formenn í félagasamtökum bænda
leggjast alfarið gegn frumvarps-
drögum Kristjáns Þórs Júlíussonar,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, sem felur í
sér heimild til
þess að flytja inn
hrátt ófrosið kjöt.
Alls skrifuðu 42
formenn í félaga-
samtökum bænda
undir áskorun til
ríkisstjórnar Ís-
lands þar sem
hún er hvött til
þess að endur-
skoða EES-samninginn og „semja
um breytingar sem heimila íslensku
þjóðinni að viðhalda sérkennum ís-
lensks landbúnaðar“.
Frumvarpið er viðbrögð stjórn-
valda við tveimur dómum Hæsta-
réttar Íslands og EFTA-dómstóls-
ins, sem hafa dæmt núverandi
leyfisveitingarkerfi ólögmætt.
Einar Freyr Elínarson, formaður
Félags sauðfjárbænda í Vestur-
Skaftafellssýslu, sem stóð fyrir
undirskriftasöfnuninni, segir hana
sýna að það sé mikill samhugur með-
al bænda gegn frumvarpinu. „Þetta
er eindregin skoðun þessa hóps, að
nú þurfi bara að draga línu í sandinn.
Ég lít þannig á að ef frumvarpinu er
hafnað þá þurfi að taka upp EES-
samninginn. Það er ekki verið að tala
um að segja honum upp en það er
talað um að semja,“ segir Einar.
Áttu góðan fund með ráðherra
Um 250 manns sóttu opinn fund
Kristjáns Þórs, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, í félagsheim-
ilinu Þingborg í Hraungerðishreppi
á mánudaginn. „Þetta var góður
fundur og vel mætt á hann. Ég held
að þessi undirskriftasöfnun með
þessari áskorun endurspegli hljóðið í
bændum, sem er mjög þungt núna,“
segir Einar.
Hann segir ráðherra hafa farið yf-
ir sitt mál og bent á að sér væri ekki
stætt á að gera ekki neitt. „Það er al-
veg rétt hjá honum. Enda held ég
ekki að nokkur maður ætlist til þess
að hann geri ekki neitt. Við viljum að
hann fari erfiðu en réttu leiðina í
þessu. Hann sagði að vísu á fund-
inum að það væri ekki stefna ríkis-
stjórnar að taka upp EES-samning-
inn, en ég tel að ef þingið hafnar
þessu frumvarpi sé ríkisstjórninni
varla stætt á öðru. Það er mitt mat,“
segir Einar að lokum. mhj@mbl.is
Vilja endurskoða
EES-samninginn
Áskorun frá félagasamtökum bænda
Einar Freyr
Elínarson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Deilur húseiganda í Hveragerði og
eiganda heimilisgróðurhúss sem
stendur á baklóð hans hafa valdið því
að Hveragerðisbær hefur ekki treyst
sér til að láta rífa gróðurhúsið og hús-
kofa sem stendur við það þrátt fyrir
að húsin séu í niðurníðslu. Nú hafa
eigendur húsa í næsta nágrenni ítrek-
að kvörtun sína um að eitthvað verði
gert í málinu en þeir segja að slysa-
hætta og óþrifnaður stafi af gróður-
húsinu og húskofanum.
Nágrannarnir krefjast þess að
Hveragerðisbær og Heilbrigðiseftir-
lit Suðurlands fari eftir eigin lögum
og reglugerðum um viðhald húsa og
lóða í Hveragerði. Í bréfi þeirra kem-
ur fram að þeir eru orðnir langþreytt-
ir á ástandi þessara niðurníddu eigna,
sem þeir segja að séu slysagildra fyrir
börn og dýr. Þá stafi mikill óþrifnaður
af þeim, drasl hafi fokið úr húsunum í
mörg ár ásamt þak- og veggjaplötum
og inn á lóðir og á hús þeirra. Villi-
kettir hafi haft aðsetur í umræddum
húsum. Þá eru ótalin áhrif eigna í
þessu ástandi á útlit gatna, ímynd
bæjarins og verðgildi nærliggjandi
eigna.
Bæjarráð Hveragerðis bókaði,
þegar erindið var lagt fram, að það
hefði skilning á því að langlundargeð
nágranna væri á þrotum en ljóst væri
að flókið eignarhald hefði staðið úr-
bótum fyrir þrifum. Bæjarráð fól
byggingar- og mannvirkjafulltrúa að
ræða við Heilbrigðiseftirlit Suður-
lands um mögulegar leiðir til úrbóta.
Enn fyrir dómstólum
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði, segir að málið hafi áður
komið til kasta bæjaryfirvalda. Þá
hafi bærinn krafið eigendur um-
ræddra eigna um úrbætur. Þeir hafi
ekki orðið við þeim en bærinn hafi
ekki treyst sér til að láta rífa húsin á
sína ábyrgð þar sem deilur eigenda
húsanna hafi verið fyrir dómstólum
og bærinn átt á hættu að fá bótakröf-
ur og lenda í málaferlum. Telur hún
að málið sé enn fyrir dómstólum.
Aldís segir að þegar einbýlishúsið
fór á nauðungaruppboð fyrir mörgum
árum hafi gróðurhúsið verið selt sér
án þess að gengið hafi verið frá
skiptayfirlýsingu eða stofnuð sérstök
lóð fyrir það. Telur hún að þar hafi
sýslumaður gert mistök sem séu
grunnurinn að þessum vandamálum.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur
ekki hafið aðgerðir vegna málsins í
Hveragerði. Sigrún Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri segir að heil-
brigðiseftirlitið hafi heimild til að láta
taka til á lóðum á kostnað lóðarhafa.
Fyrst þurfi að krefjast þess að lóðar-
hafi geri það sjálfur og síðan ítreka
það með lokafresti. Það taki sinn tíma.
Undirbúa hreinsunarátak
Sigrún segir að ekki hafi oft reynt á
þessa heimild. Nú er heilbrigðiseftir-
litið að undirbúa mikið hreinsunarátak
um allt Suðurland. Fulltrúar sveitar-
félaganna samþykktu það á síðasta að-
alfundi eftirlitsins og segir Sigrún að
verið sé að undirbúa ráðningu starfs-
manns til að vinna að verkefninu. Full
þörf sé á hreinsun. Hún leggur
áherslu á að fyrst verði eigendum gef-
inn kostur á að hreinsa sjálfir.
Geta ekki fjarlægt niðurnídd hús
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blómstrandi bær Hveragerði er snyrtilegur bær en þar eru þó ýmis
vandamál, ekki síst vegna gróðurhúsa og annars atvinnuhúsnæðis.
Deilur eigenda einbýlishúss og gróðurhúss á sömu lóð í Hveragerði valda því að Hveragerðisbær
treystir sér ekki til að hreinsa Nágrannar kvarta undir hættum og óþrifnaði vegna niðurníddra húsa