Morgunblaðið - 27.02.2019, Side 15

Morgunblaðið - 27.02.2019, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Með gildistöku nýrra laga um raf- rettur og rafrettuvökva verður ekki bannað að blanda rafrettuvökva með nikótíni til eigin nota, eins og skilja mátti af fyrirsögn fréttar í Morgun- blaðinu í gær. Eins og kom fram í fréttinni má hins vegar ekki blanda slíkan vökva til markaðssetningar og sölu nema varan hafi áður verið til- kynnt til Neytendastofu og skráð í sameiginlega aðgangsgátt EES- ríkjanna. Það á bæði við um einstak- linga og fyrirtæki sem blanda raf- rettuvökva með nikótíni til sölu. Getur flokkast sem eiturefni Umhverfisstofnun (UST) hefur eftirlit með því að reglugerð um flokkun og merkingu hættulegra efna og efnablandna sé framfylgt. Nikótín yfir ákveðnum styrk flokk- ast sem eiturefni og er merkt sem slíkt, það er með hauskúpumerki. Björn Gunnlaugsson, teymisstjóri á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar hjá UST, sagði að neysluskammtar mættu að hámarki vera 20 mg/ml sem er um 2% styrkur. Rafrettu- vökvi sem inniheldur nikótín af þeim styrk flokkast ekki sem eiturefni. Björn sagði að finna mætti nikótín- vökva í erlendum netverslunum með allt að 98% styrk og það væri klár- lega eiturefni og merkt sem slíkt. Ef slíkur vökvi er notaður í atvinnu- skyni, t.d. til framleiðslu á neyslu- skömmtum af rafrettuvökva, þarf eiturefnaleyfi frá Vinnueftirlitinu fyrir þann sem starfar við það og síð- an að skrá vöruna hjá Neytenda- stofu. Björn sagði að miðað við núgild- andi lög og reglugerðir væri ekkert sem bannaði einstaklingi að blanda sér rafrettuvökva með nikótíni til eigin nota. En um leið og slíkur vökvi væri markaðssettur þyrfti að skrá hverja einustu gerð blöndu, bæði hvað varðar bragð og nikótínstyrk, hjá Neytendastofu. Björn benti á að nikótín væri fíkni- efni og eiturefni væri það yfir ákveðnum styrkleikamörkum. Ef til vill þyrfti að skoða betur reglur um innflutning og notkun einstaklinga á efninu í ljósi þess hve eitrað það væri. Bragðefni og búnaður Netverslunin cloudhouse.is er á meðal þeirra sem selja vörur og bún- að til að blanda eigin rafrettuvökva. Á heimasíðunni kemur fram að fyrir- tækið hafi ekki leyfi, samkvæmt nú- gildandi lögum, til að selja nikótín. Hins vegar er bent þar á að einstak- lingar megi á 100 daga fresti flytja inn allt að 100 ml af nikótínvökva að styrk allt að 36 mg/ml svo fremi sem varan sé pöntuð frá EES-landi. Auk þess er bent á hóp á Facebook þar sem nikótín mun vera selt á milli manna. Morgunblaðið/Hari Í skýjunum Notkun á rafrettum er orðin mjög útbreidd. Margir nota tækin í stað þess að reykja tóbak. Ný lög um rafrettur og áfyllingar breyta ýmsu. Leyft að blanda til eigin nota Lög um rafrettur » Lög um rafrettur og áfyll- ingar fyrir rafrettur taka gildi föstudaginn 1. mars. » Tilkynna þarf rafrettur og áfyllingar til Neytendastofu áður en þær eru markaðs- settar hér.  Skrá þarf rafrettuvöur sem á að selja Starfsmenn Bjössa ehf. hafa unnið baki brotnu í hlý- indunum undanfarið við jarðvegsskipti á Víkingsvell- inum í Víkinni í Fossvogi. Samkvæmt samkomulagi Víkings og Reykjavíkurborgar verður gervigras lagt á keppnisvöll félagsins með tilheyrandi lýsingu, hita- lögnum, vökvunarbúnaði og girðingum. Ekki eru nema tveir mánuðir þar til Íslandsmótið í knattspyrnu hefst og leika Víkingar fyrstu heimaleiki sína í Pepsi-deild karla á velli Þróttar í Laugardal gegn FH, Stjörnunni og KR. Þann 14. júní er hins veg- ar komið að heimaleik í Víkinni þegar Fossvogsliðin Víkingur og HK eiga að mætast á gervigrasinu. Lið HK-Víkings í efstu deild kvenna byrjar Íslandsmótið hins vegar í Kórnum. aij@mbl.is Boltinn á að rúlla á gervigrasi í Víkinni TAKTU ÍSINNMEÐ TRUKKI Fallegar tækifærisgjafir U Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.