Morgunblaðið - 27.02.2019, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
bréfi frá Seðlabankanum vegna
þessara sinnaskipta bankans.
Í tilkynningunni sagði bankinn
sömuleiðis að ríkissaksóknari
hefði með tilvitnuðu bréfi tekið af
allan vafa um að refsiheimild
bankans hefði ekki verið til staðar
á sínum tíma.
Í fyrrnefndu bréfi ríkissaksókn-
ara frá 19. febrúar síðastliðnum
er hins vegar ítrekað að þessi af-
staða embættisins hafi legið fyrir
frá árinu 2014, annars vegar í af-
stöðubréfum embættisins frá 20.
maí það ár og hins vegar máli frá
31. ágúst sama ár. Segir í fremur
stuttaralegu svarinu að „Ríkis-
saksóknari telur ekki þörf á að
rekja það frekar“, og vísar þar til
þeirrar afstöðu sem Seðlabankinn
taldi nauðsynlegt að kalla fram
með bréfaskriftunum nú í
febrúar.
Misræmi í frásögn
Morgunblaðið/Ómar
Eftirlit Seðlabankinn hafði ekki þær refsiheimildir sem haldið var fram.
Seðlabanki segir ríkissaksóknara hafa tekið af öll tvímæli
í liðinni viku um refsiheimildir Saksóknari segir 2014
Umsvif eftirlits
» Í málaskrá gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans voru um áramót
skráð 537 mál.
» Af þeim hafði rannsókn ver-
ið hætt eða mál felld niður í
315 tilvikum.
» 113 mál voru kærð.
» Á árunum 2012-2018 lagði
eftirlitið á sektir eða innheimti
sáttagreiðslur að fjárhæð
204,3 milljónir króna.
» Af þeirri fjárhæð hefur
bankinn þurft að endurgreiða
114,2 milljónir.
» Nú bætast 40 milljónir við
þær endurgreiðslur.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í bréfi sem Sigríður J. Friðjóns-
dóttir ríkissaksóknari sendi
Seðlabanka Íslands þann 19. febr-
úar síðastliðinn ítrekar embættið
þá skoðun sína að reglur Seðla-
banka Íslands um gjaldeyrishöft,
sem í gildi voru fram að gildis-
töku laga nr. 127 frá 2011 hafi
ekki talist gild refsiheimild. Með
bréfinu var embættið að bregðast
við tveimur spurningum frá
Seðlabanka Íslands sem lagðar
voru fram í kjölfar þess að Um-
boðsmaður Alþingis skilaði áliti í
máli er varðaði kvörtun Þorsteins
Más Baldvinssonar, forstjóra
Samherja, vegna framgöngu
gjaldeyriseftirlits bankans.
Morgunblaðið hefur bréf embætt-
isins til Seðlabankans undir hönd-
um.
Ríkissaksóknari hafði lýst
afstöðu sinni um mitt ár 2014
„Hvað fyrri spurninguna varðar
skal tekið fram að í sjö afstöðu-
bréfum ríkissaksóknara frá 20.
maí 2014 kom skýrt fram það mat
ríkissaksóknara að reglur Seðla-
banka Íslands gátu ekki talist gild
refsiheimild fyrr en eftir gildis-
töku laga nr. 127/2011.“ Í tilkynn-
ingu sem Seðlabankinn sendi frá
sér í fyrradag og fjallað var um í
Morgunblaðinu í gær, var tilkynnt
að bankinn hefði óskað eftir því
við ríkissjóð að allar sektir og
sáttagreiðslur sem einstaklingar
og lögaðilar höfðu reitt af hendi
vegna ákvarðana bankans, og
byggðust á fyrrnefndri reglusetn-
ingu, yrðu endurgreiddar. Þar var
um að ræða 18 mál og 40 milljónir
króna. Munu þeir aðilar sem
greitt höfðu sektirnar og sátta-
greiðslurnar í ríkissjóð eiga von á
27. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.15 119.71 119.43
Sterlingspund 155.74 156.5 156.12
Kanadadalur 90.73 91.27 91.0
Dönsk króna 18.133 18.239 18.186
Norsk króna 13.894 13.976 13.935
Sænsk króna 12.796 12.87 12.833
Svissn. franki 119.26 119.92 119.59
Japanskt jen 1.0754 1.0816 1.0785
SDR 165.98 166.96 166.47
Evra 135.32 136.08 135.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.641
Hrávöruverð
Gull 1329.15 ($/únsa)
Ál 1890.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.97 ($/fatið) Brent
Hagnaður fjarskiptafélagsins Sím-
ans á árinu 2018 nam 282 milljónum
króna samanborið við 3.076 milljónir
króna árið 2017. Í tilkynningu frá
Símanum segir að lækkun á hagnaði
skýrist af gjaldfærslu á viðskiptavild
hjá Mílu upp á 2.990 milljónir króna.
Einnig segir að ef ekki hefði komið
til gjaldfærslu á viðskiptavild hefði
hagnaður aukist um tæpar 200 millj-
ónir króna milli ára.
EBITDA félagsins nam 8.752
milljónum og jókst um 145 milljónir
milli ára. EBITDA-hlutfallið reynd-
ist 30,7%.
Eignir Símans námu í lok ársins
rúmlega 58,8 milljörðum króna en
það er þriggja prósenta lækkun frá
árinu á undan þegar eignir námu
60,6 milljörðum. Eigið fé Símans
nemur 35,2 milljörðum króna en nam
í lok árs 2017 36,3 milljörðum. Eigin-
fjárhlutfall félagsins var 59,8% í lok
árs 2018.
Orri Hauksson, forstjóri Símans
segir í tilkynningunni að rekstur
samstæðunnar hafi verið sterkur ár-
ið 2018. Heildartekjur hafi aukist
lítillega og numið rúmum 28,5 millj-
örðum, en ólíkt árunum á undan hafi
verið myndarlegur vöxtur í smásölu-
tekjum. Helsta ástæða þess að sögn
Orra er fjölgun viðskiptavina.
Þá segir í tilkynningunni að sjón-
varpsþjónusta Símans hafi verið í
mikilli sókn árið 2018 og að við-
skiptavinir með Sjónvarp Símans
Premium séu nú yfir 40 þúsund. Þá
hafi viðskiptavinum í farsíma fjölgað
og í fyrsta skipti frá því samkeppni
hófst í farsíma á Íslandi árið 1998
hafi fleiri viðskiptavinir flutt síma-
númer sín til Símans frá öðrum þjón-
ustuveitendum en öfugt.
tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Vöxtur Viðskiptavinir Sjónvarps Símans eru komnir yfir 40 þúsund.
Síminn hagnaðist
um 282 milljónir
Milljarða viðskiptavild gjaldfærð
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Stjórn félagsins ákvað á fundi
sínum í gær að leggja fram á að-
alfundi þann 26. mars nk. tillögu
um endurkaup á eigin hlutum
sem nemi allt að 550 m.kr. að
markaðsvirði, eða 35% af hagn-
aði, en það er í samræmi við arð-
greiðslustefnu félagsins.
tobj@mbl.is
Olíufélagið Skeljungur hagnaðist
um tæplega 1.573 milljónir króna
á síðasta ári, sem er 37,6% meiri
hagnaður en árið á undan. Þetta
kemur fram í tilkynningu félags-
ins til Kauphallar Íslands.
Vörusala félagsins á síðasta ári
nam 47,6 milljörðum og dróst
saman um tæpa 8 milljarða
króna. Sala jókst í öllum teg-
undum eldsneytis, nema flugvéla-
eldsneytis. Þannig jókst sala
skipaeldsneytis sem fór úr 10,2
milljörðum í 14,7 milljarða og
bensín og dísel fór úr 18,7 millj-
örðum í 21,7 milljarða. Flugvéla-
eldsneytið lækkaði hins vegar úr
20,8 milljörðum í 4,3 milljarða. Á
sama tíma og salan dróst saman
jókst framlegðin umtalsvert. Fór
úr 7,2 milljörðum 2017 í 7,8 millj-
arða í fyrra.
Eignir félagsins námu tæplega
24,8 milljörðum í lok ársins en við
lok 2017 námu eignirnar um 21
milljarði króna. Eigið fé félagsins
nemur rúmum níu milljörðum
króna, samanborið við 7,9 millj-
arða árið á undan. Eiginfjárhlut-
fall er 36,4% í árslok 2018. Þá
kemur fram í tilkynningunni að
EBITDA-framlegð ársins 2018
hafi verið 41,8% en hún var 36,4%
árið á undan.
Skeljungur hagnað-
ist um 1,6 milljarða
37,6% meiri hagnaður en 2017
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Olía Skeljungur hagnaðist vel í fyrra.