Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, og Donald
Trump Bandaríkjaforseti komu til Hanoi í Víetnam í
gær vegna tveggja daga fundar þeirra í borginni. Gert
er ráð fyrir að leiðtogarnir ræði saman í kvöldverðar-
boði í dag og að formlegar samningaviðræður þeirra
fari fram á morgun.
Trump kom til Hanoi með þotu forsetaembættisins
en Kim ferðaðist með lest frá Norður-Kóreu um Kína,
um 4.000 kílmetra leið. Hámarkshraði lestarinnar mun
vera um 60 km/klst og ferðin tók hátt í þrjá sólar-
hringa. Tekið var á móti einræðisherranum með
heiðursverði hermanna á lestarstöð bæjarins Dong
Dang, við landamærin að Kína.
Þetta er í fyrsta skipti sem leiðtogi Norður-Kóreu fer
til Víetnams frá því að afi einræðisherrans, Kim Il-
sung, fór þangað í heimsókn árið 1964.
AFP
Kim Jong-un og Trump í Hanoi
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, hét því í gær að neðri
deild breska þingsins fengi tækifæri
til að greiða atkvæði um hvort fresta
ætti útgöngu landsins úr Evrópu-
sambandinu ef deildin hafnar brexit-
samningi bresku stjórnarinnar við
ESB.
May sagði að lokaatkvæðagreiðsla
þingdeildarinnar um brexitsamning-
inn ætti að fara fram 12. mars og ef
hann yrði felldur færi fram atkvæða-
greiðsla daginn eftir um hvort þing-
deildin styddi útgöngu úr ESB án
samnings. Ef deildin hafnaði brexit
án samnings færi fram atkvæða-
greiðsla 14. mars um hvort fresta
ætti útgöngunni í „skamman og tak-
markaðan“ tíma. May tók fram að
hún væri enn þeirrar skoðunar að
bresk stjórnvöld ættu að stefna að
því að útgangan tæki gildi 29. mars.
„Frestun fram yfir lok júnímánaðar
fæli í sér að Bretar tækju þátt í kosn-
ingum til Evrópuþingsins,“ sagði
hún. „Hvaða skilaboð myndi það
senda til þeirra rúmlega 17 milljóna
manna sem greiddu atkvæði með út-
göngu fyrir tæpum þremur árum?“
May tilkynnti ákvörðun sína eftir
að sex ráðherrar og aðstoðarráð-
herrar í stjórn hennar hótuðu að
segja af sér ef forsætisráðherrann
hafnaði ekki útgöngu án samnings
29. mars. The Mail segir að allt að
fimmtán ráðherrar og aðstoðarráð-
herrar séu tilbúnir að segja af sér ef
brexit tekur gildi án samnings.
Corbyn gaf eftir
Daginn áður hafði Jeremy Corb-
yn, leiðtogi Verkamannaflokksins,
sagt að flokkurinn myndi styðja aðra
þjóðaratkvæðagreiðslu um brexit ef
þingdeildin hafnaði tillögu hans um
að Bretland yrði áfram í tollabanda-
lagi ESB eftir útgönguna. Litið var á
ákvörðun Corbyns sem kúvendingu
vegna þess að hann hafði verið treg-
ur til að fallast á annað þjóðar-
atkvæði um málið og sagt að virða
bæri niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar í júní 2016 þegar út-
gangan var samþykkt með 51,9% at-
kvæða. Corbyn hefur alltaf verið
mjög gagnrýninn á Evrópusam-
bandið en andstæðingar brexit í
Verkamannaflokknum höfðu lagt
fast að honum að samþykkja annað
þjóðaratkvæði. Níu þingmenn höfðu
sagt sig úr flokknum, m.a. vegna
stefnu Corbyns í brexitmálinu, og
talið er að hann hafi séð sig knúinn til
að samþykkja annað þjóðaratkvæði
til að koma í veg fyrir að fleiri þing-
menn segi sig úr flokknum.
Ákvörðun Corbyns gæti orðið til
þess að stuðningurinn við brexit-
samninginn ykist meðal þingmanna
Íhaldsflokksins sem eru hlynntir út-
göngu úr ESB og andvígir því að
málið verði borðið aftur undir
þjóðaratkvæði.
Segir þingið
geta frestað
útgöngunni
May ljær nú máls á atkvæðagreiðslu
um að fresta útgöngu Bretlands úr ESB
AFP
Brexit Tafarlausrar útgöngu Bret-
lands úr ESB krafist í London.
Reynir að vinna tíma
» Stjórnmálaskýrandi BBC
segir að loforð May um að
þingið fái tækifæri til að hafna
útgöngu úr ESB án samnings
og fresta brexit sé mikil tilslök-
un af hálfu forsætisráð-
herrans, sem vilji vinna tíma.
» Talið er að með loforðinu
vilji May hindra að margir þing-
menn og ráðherrar Íhalds-
flokksins styðji tillögur um að
útiloka útgöngu án samnings
og fresta brexit í atkvæða-
greiðslum sem fara fram í dag.
Norski herinn
hóf í gær
björgun frei-
gátunnar Helge
Ingstad sem
sökk í firði ná-
lægt Björgvin
eftir árekstur
við olíuskip
fyrir þremur
mánuðum.
Fjórir kranar
og tveir prammar eru notaðir
við björgunina sem talið er að
taki nokkra daga, að sögn
norska hersins. Setja á herskipið
á annan prammanna, fjarlægja
vopn þess og flytja það til hafn-
ar þar sem kannað verður hvort
hægt er að gera við það.
Freigátan var á leiðinni til
hafnar eftir æfingu á vegum Atl-
antshafsbandalagsins þegar
áreksturinn varð, líklega fyrir
mistök stýrimanns. Átta sjóliðar
slösuðust lítilsháttar.
NOREGUR
Freigátu bjargað
af sjávarbotni
Kranar eru notaðir
við björgunina.
Kviðdómur í Ástralíu hefur fundið
kardinálann George Pell sekan um
kynferðisbrot gegn tveimur kór-
drengjum. Kardinálinn er fjármála-
stjóri Páfagarðs og hæst setti
embættismaður kaþólsku kirkj-
unnar sem hefur verið sakfelldur
fyrir barnaníð.
Pell er nú 77 ára og var sakfelldur
fyrir kynferðisofbeldi gegn piltunum
í skrúðhúsi dómkirkju í Melbourne á
síðasta áratug aldarinnar sem leið
þegar þeir voru tólf og þrettán ára.
Refsidómur verður kveðinn upp síð-
ar og kardinálinn á allt að 25 ára
fangelsisdóm yfir höfði sér ef áfrýj-
un hans verður hafnað. Pell hefur
alltaf neitað sök.
Annar kórdrengjanna dó af völd-
um of stórs skammts af fíkniefnum
árið 2014 og fjölskylda hans rekur
örlög hans til sálræna áfallsins sem
hann varð fyrir vegna árásarinnar.
Hitt fórnarlambið
sagðist hafa fund-
ið til „skammar,
einmanaleika,
þunglyndis og
innri baráttu“ í
mörg ár eftir
árásina.
Pell varð kard-
ináli árið 2003 og
Frans páfi skip-
aði hann fjármálastjóra Páfagarðs
2014. Hann er íhaldssamur í sam-
félagsmálum, hefur m.a. tekið harða
afstöðu gegn hjónaböndum samkyn-
hneigðra og látið í ljós efasemdir um
að heiminum stafi hætta af loftslags-
breytingum af mannavöldum. Ástr-
alski blaðamaðurinn David Marr
segir að Pell hafi einnig beitt sér
mjög gegn getnaðarvörnum, hjóna-
skilnuðum og fóstureyðingum. Hann
hafi lagt mikla áherslu á skírlífi
presta sem hann hafi lýst sem heil-
agri skyldu, fórn í þágu Krists og
sönnun fyrir ást þeirra á Guði.
Sakaðir um þúsundir
kynferðisbrota
Rannsóknarnefnd á vegum ríkis-
stjórnar Ástralíu komst að þeirri
niðurstöðu að um 7% presta kaþ-
ólsku kirkjunnar í landinu hefðu ver-
ið sökuð um kynferðisbrot gegn
börnum á árunum 1950 til 2010 en
ásakanirnar voru ekki rannsakaðar.
Yfirmenn kirkjunnar fengu ábend-
ingar um 4.444 meint kynferðisbrot
presta gegn börnum.
Nefndin yfirheyrði Pell um barna-
níð presta í biskupsdæminu Ballarat
þar sem hann starfaði á áttunda og
níunda áratugnum. Hann sagði þá
að hann minntist þess ekki að hafa
fengið upplýsingar um barnaníð
presta á þessum tíma. bogi@mbl.is
Skírlífispostulinn sak-
felldur fyrir barnaníð
George Pell