Morgunblaðið - 27.02.2019, Page 18

Morgunblaðið - 27.02.2019, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Allt frá því aðhryðjuverka-maður sprengdi sig í loft upp og myrti 40 ind- verska hermenn í indverska hluta Kasmír um miðjan mánuð hefur ríkt spenna milli Ind- lands og Pakistans. Indverjar sögðu þegar að þeir myndu svara fyrir sig og Narendra Modi, for- sætisráðherra landsins, kvaðst þegar hafa fyrirskipað hernum að undirbúa svarið. Það kom í gær þegar indverski herinn gerði loftárás í Pakistan. Reyndar fer tvennum sögum af því hvað gerðist. Indverjar segjast hafa varpað sprengjum á æfinga- búðir samtakanna Jaish-e- Mohammad, sem lýstu yfir ábyrgð á tilræðinu fyrr í mánuðinum. Pak- istanar segjast hafa hrakið flug- vélar Indverja á flótta og þær hafi látið sprengjurnar falla á undan- haldinu. Nú segjast Pakistanar munu svara fyrir sig, þeir muni velja tíma og stað. Kasmír hefur lengi verið bitbein milli Indlands og Pakistans og nær deilan aftur til 1947. Indlands- skaga var skipt eftir trúarbrögðum í Indland og Pakistan. Kasmír gat valið hvoru landinu það myndi til- heyra. Staðan var hins vegar sú að hinn konunglegi leiðtogi Kasmír var hindúi, en íbúarnir flestir múslimar. Hann kaus hlutleysi í upphafi, en þegar Pakistan sendi lið til að leggja Kasmír undir sig bað hann Indverja um hjálp. Það var upphafið að fyrsta stríðinu um Kasmír og ekki það síðasta. Kasmír varð form- lega hluti af Indlandi 1957. Þar hefur löngum verið ólga, en mismikil þó. Eftir að Modi varð forsætis- ráðherra hefur eftir- litið verið hert og hefur óánægja músl- ima farið vaxandi. Mun stuðningur við Jaish-e- Mohammad fara vaxandi heima fyrir og til marks um það er að til- ræðismaðurinn var heimamaður, en laumaðist ekki yfir landamærin frá Pakistan. Samtökin Jaish-e-Mohammad eru hins vegar með bækistöðvar í Pakistan. Leiðtogi þeirra er Mazood Azhar. Fyrir aldamót var hann í fangelsi á Indlandi en var látinn laus í skiptum fyrir gísla í flugráni. Skömmu síðar fékk hann að ávarpa 10 þúsund manns í Pak- istan. Tengsl Azhars við hryðju- verk eru mikil og eins er ljóst að hann hefur fengið að leika meira eða minna lausum hala óáreittur í Pakistan rétt eins og Osama bin Laden á sínum tíma og mætti nefna fleiri hryðjuverkamenn til sögunnar. Pakistönsk stjórnvöld vísa á bug öllum staðhæfingum um að vera á bak við hryðjuverk, en hljómurinn er holur. Bæði ríkin búa yfir kjarnorku- vopnum og það boðar ekki gott haldi deilan áfram að magnast. Í ljósi sögunnar er ekki sjálfgefið að Pakistanar láti af stuðningi við hryðjuverkamenn, en það er lykil- atriði og í þeim efnum geta Banda- ríkjamenn og sérstaklega Kín- verjar, sem hafa gert sér dælt við Pakistana í valdabaráttunni við Indverja, lagt sitt af mörkum. Indverjar svöruðu ódæði í Kasmír með loftárás á Pakistan og nú segjast Pak- istanar ætla að svara fyrir sig} Kjarnorkuveldi kljást Ö flugt menntakerfi er forsenda framfara og það kerfi er borið uppi af kennurum. Grunnurinn að öllum störfum í samfélaginu er lagður af kennurum og því er starf þeirra sérstaklega mikilvægt vegna þessa. Í stjórnarsáttmálanum er boðuð stórsókn í menntamálum og mikilvægur lið- ur í henni er að bæta starfsumhverfi kenn- ara og stuðla að nýliðun. Kennarafrum- varpið, ný lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda, er leið að því markmiði en frumvarpsdrög þess eru nú aðgengileg í Samráðsgátt stjórnvalda. Með kennarafrumvarpinu er ráðgert að lögfesta ákvæði um hæfni sem kennarar þurfa að búa yfir til samræmis við þá ábyrgð sem felst í starfi þeirra. Áhersla á hæfni er orðin sífellt viðameiri hluti stefnumörkunar í mennta- málum og hafa kennarar og kennaramenntunarstofn- anir meðal annars kallað eftir slíkri áherslu. Þannig gerir frumvarpið ráð fyrir skilyrðum um sérhæfða hæfni til kennslu fyrir hvert skólastig í stað núgild- andi laga þar sem inntak og umfang menntunar kennara og skólastjórnenda er skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis. Að auki er tillaga um að framvegis verði gefið út eitt leyfisbréf til kennslu hér á landi í stað þriggja. Með þessum breytingum eru stigin mikilvæg skref í þá átt að tryggja betur réttindi og starfsöryggi kennara óháð skólastigum. Með þeim mun sveigjanleiki aukast og þekking flæða í meira mæli á milli skólastiga en áður. Við teljum að frumvarpið muni stuðla að aukinni við- urkenningu á störfum kennara og auka faglegt sjálfstæði þeirra sem og styrkja stöðu kennara í íslensku samfélagi og inn- an skólakerfisins. Frumvarpið er einn liður af mörgum í heildstæðri nálgun stjórn- valda til að efla menntun á Íslandi. Á morgun, fimmtudag, verða kynntar sér- tækar aðgerðir sem snúa að því að efla kennaranám og fjölga kennaranemum. Mig langar að þakka þeim fjölmörgu sem hafa lagt sitt af mörkum í þeirri umfangsmiklu vinnu sem býr að baki þessum frumvarpsdrögum en undirbúningur hefur staðið yfir frá því sl. haust. Frumvarpið var unnið í samráði við helstu félagasamtök íslenskra kennara, Samband íslenskra sveitarfélaga og kennaramenntunarstofnanir. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Áhersla á hæfni í menntakerfinu Höfundar er mennta- og menningarmálaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen búist er við fleiri tölvupóstum því slík svik komi yfirleitt yfir í hrinum. Senda trúverðug fyrirmæli Þessi tegund svika hefur aukist mikið eftir að gjaldeyrishöftin voru afnumin. Þrjótarnir nota einkum tvær aðferðir til að undirbúa svikin, að því er fram kom í viðtali við Há- kon Lennart Aakerlund, netöryggis- sérfæðing hjá Landsbankanum, í Morgunblaðinu í nóvember en um það leyti var Ísland í sigtinu hjá tölvuglæpamönnum. Þeir leita á vef- síðum fyrirtækja og félaga eftir upp- lýsingum um forstjóra og fjár- málastjóra, og hver annast greiðslur, nöfnum og netföngum. Einnig geta þeir komið fyrir óværu í tölvum stjórnenda. Ekki þarf tækni- kunnáttu eða að fjárfesta í dýrum búnaði til að ná árangri, aðeins að vera góður í því að semja svikapósta og senda sem víðast. Upplýsingarnar eru notaðar til að senda gjaldkerum eða fjármála- stjórum trúverðug fyrirmæli í nafni háttsetts stjórnanda um greiðslur inn á erlenda reikninga. Þetta eru gjarnan afar óformleg tölvubréf og þá sett með að þau séu send úr síma, til þess að afsaka smávægilegar villur. Oft eru netföngin höfð lík net- fangi viðkomandi stjórnanda. Beðið er um að þetta sé gert fljótt og þrýstingnum haldið áfram með ítrekunum. Ný hrina fyrirmæla- falsana er hafin Morgunblaðið/Árni Sæberg Netglæpir Ekki þarf dýran búnað eða sérstaka þekkingu til að stunda fyrir- mælafalsanir, aðeins að vera duglegur að senda trúverðuga tölvupósta. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ný hrina stjórnendasvikaeða fyrirmælafalsanavirðist vera hafin. Lög-reglan á Suðurnesjum hefur sent út viðvörun og biður fólk um að vera á varðbergi. Sömuleiðis Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) en tilraun var gerð til að svíkja út fjár- muni hjá aðildarfélagi þess. Svikin ganga út á það að glæpa- mennirnir senda fyrirmæli í nafni yfirmanns fyrirtækis eða félags til starfsmanns um að millifæra til- tekna fjárhæð inn á erlendan reikn- ing. Ef viðkomandi lætur gabbast er erfitt að endurheimta féð, og það er alls ekki hægt ef einhver tími er lið- inn frá því greiðslan var innt af hendi. Tókst að svíkja félög Hrina slíkra stjórnendasvika eða fyrirmælafalsana gekk yfir land- ið síðastliðið haust og beindist bæði að fyrirtækjum og frjálsum félaga- samtökum, þar á meðal íþrótta- og ungmennafélögum og foreldra- félögum grunnskóla. Tókst svika- hröppunum í einstaka tilvikum að svíkja út háar fjárhæðir á mæli- kvarða þessara félaga. UMFÍ gaf af því tilefni út leið- beiningar til aðildarfélaga sinna sem felast ekki síst í því að minna við- komandi starfsmann á að hringja í yfirmann sinn þegar hann fær fyrir- mæli um að millifæra fjármuni á er- lenda reikninga og spyrja hvort hann hafi örugglega sent póstinn. Lögreglan á Suðurnesjum biður fólk um að grandskoða tölvupóstana því þótt þeir séu alla jafna innihaldslitlir megi oft sjá málfarsvillur í þeim. Á undanförnum dögum hafa nokkur þannig mál komið inn á borð lögreglunnar á Suðurnesjum. Einn af svikapóstunum, sem nú er í gangi, gengur út á það að gefa starfsmanni ungmennafélags fyrirmæli um að millifæra rúmlega 28 þúsund evrur sem svara til um 3,8 milljóna kr. inn á reikning í spænskum banka. Kem- ur þetta fram í frétt á vef UMFÍ. Engu virtist skipta þótt viðtakand- inn hefði svarað fyrstu beiðni í tölvu- pósti, hann fékk ítrekun á íslensku, skrifaða með íslenskum stöfum. Samkvæmt upplýsingum frá UMFÍ er þetta eina tilvikið sem vit- að er um innan raða þess núna en Hagnaður netþrjóta í heiminum á síðasta ári er áætlaður jafn- virði 190.000 milljarða króna. Í ár þykir líklegt að hagnaður af netglæpum verði í fyrsta sinn meiri en hagnaður af fram- leiðslu ólöglegra fíkniefna. Kom þetta fram í viðtali Morgun- blaðsins við Hermann Þ. Snorrason, sérfræðing hjá Landsbankanum, í síðasta mán- uði. Áætlanirnar voru kynntar á ársþingi öryggisfyrirtækisins RSA. Engar upplýsingar liggja fyrir um umfang slíkra svika á Ís- landi, hvorki hjá lögreglu né fjármálafyrirtækjum, en fram hefur komið að þau skipta örugglega hundruðum milljóna. Sú mikla fjölgun tilrauna til netsvika sem orðið hefur sýnir að glæpamennirnir telja eftir miklu að slægjast hér. Netglæpir taka fram úr fíkniefnum MIKILL HAGNAÐUR Í fréttum gær-dagsins birtist algjörlega ein- stæður áfellis- dómur Bankaráðs SÍ yfir yfirstjórn bankans. Í fréttinni segir: „Seðlabanka Ís- lands tókst ekki að sýna fram á nauð- syn þess að leggja stjórnvalds- sekt á Samherja með vísan til ákvarðana í sambærilegum mál- um. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinargerð bankaráðs Seðlabankans vegna dóms Hæstaréttar í máli Sam- herja gegn Seðlabankanum. Þá telur bankaráð að ekki verði hjá því komist að ráðast í heildarendurskoðun á allri stjórnsýslu Seðlabanka Íslands, meðferð mála innan hans og því með hvaða hætti bankinn hefur á umliðnum árum farið með það opinbera vald sem honum hefur verið falið lögum samkvæmt, einkum við gjaldeyriseftirlit. Greinargerðin var gerð opin- ber í dag en Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra óskaði eftir henni í nóvember, fjórum dögum eftir að Hæstiréttur felldi niður fimmtán milljóna króna sekt sem Seðlabankinn lagði á Samherja vegna gjaldeyris- lagabrota. For- sætisráðherra ósk- aði sérstaklega eftir skýringum á því hvers vegna bankinn tók málið upp á ný eftir að héraðs- saksóknari endursendi bank- anum erindið í annað sinn. Í greinargerðinni segir að þær skýringar sem Seðlabank- inn hefur gefið á því hvaða ástæður eða sjónarmið lágu að baki þeirri ákvörðun bankans að endurupptaka mál Samherja 30. mars 2016 og leggja á hann stjórnvaldssekt í framhaldinu standist ekki. Að mati höfunda greinar- gerðarinnar hlýtur Alþingi, í ljósi þeirra lýsinga sem koma fram í áliti umboðsmanns Al- þingis á samskiptum hans við Seðlabankann, sem fjallað er um í greinargerðinni, að taka framgöngu yfirstjórnar bankans í samskiptum sínum við um- boðsmann til sérstakrar um- fjöllunar og skoðunar.“ Fáránlegt er að aug- lýsa stöðu banka- stjóra SÍ þegar endurmeta þarf stjórnskipun hans og sameina hann og Fjármálaeftirlit.} Þungur áfellisdómur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.