Morgunblaðið - 27.02.2019, Page 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Með innblæstri frá birtunni í Provence, skapaði L’OCCITANE hið nýja
Immortelle Reset sem býr yfir kröftugri blöndu náttúrulegra
innihaldsefna. Gullin hylki sem búa yfir kröftum Immortelle
ilmkjarnaolíunnar, fljóta í einstöku serumi úr kryddmæru sem hjálpar
húð þinni að endurnýja sig eftir erilsaman dag.
Sýnilegan mun má sjá á húðinni sem virðist ÚTHVÍLD og FERSK.
loccitane.com
ÚTHVÍLD OG ENDURNÆRÐ
VAKNAÐU MEÐ FERSKA OG GEISLANDI HÚÐ
#HelloGoldMorning
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
Í umræðunni um
fiskeldi á Íslandi er
mikið talað um nei-
kvæð áhrif sem hljót-
ast af því að eldisfiskur
sleppur og gengur upp
í laxveiðiár. Þessi um-
ræða endurspeglast í
áhættumati Hafrann-
sóknarstofnunar1).
Sumir kjósa að taka
mun dýpra í árinni og
fullyrða að ef eldisfiskur sleppi séu
endalok íslenska laxins handan við
hornið. Þrátt fyrir að ekki liggi nein-
ar beinar niðurstöður til grundvallar
slíkri túlkun ber þó auðvitað að fara
varlega. Á þetta bendir hinn þekkti
vísindamaður Kevin Glover í sam-
skiptum við Hafró í janúar síðast-
liðnum og sem fram kemur í svari
deildarstjóra Hafró við fyrirspurn
lektors við háskólann á Hólum. Sami
höfundur heldur áfram og bendir
réttilega á að verndun líffræðilegs
fjölbreytileika sé mikilvæg og að
hann beri að varðveita2). Þetta er
lykilatriði. Verndun líffræðilegs fjöl-
breytileika byggist á að ekki verði
neinar erfðabreytingar af manna
völdum.
Í umræðunni um slysasleppingar
er talað um að eldislax gangi í lax-
veiðiár, æxlist við lax sem fyrir er í
ánni og niðurstaðan verði laxar –
blendingar eldislaxa og villtra laxa –
sem séu ekki aðlagaðir viðkomandi
á. Athyglisvert er að þrátt fyrir að
fiskarnir séu ekki aðlagaðir ánni er
gert ráð fyrir því að þeir hrygni,
seiðin komist vel af og svo haldi
þetta áfram þangað til afkomendur
þessara laxa, verði í meirihluta; hafi
tekið yfir ána og ekkert blasi við
nema hrun náttúrulega laxastofns-
ins.
Á sama tíma er stunduð umfangs-
mikil fiskirækt í íslenskum lax-
veiðiám. Villtur lax er valinn nær
eingöngu út frá stærð, honum safn-
að, hrogn kreist út, frjóvguð og seið-
in alin í eldisstöðvum. Seiðunum er
svo sleppt sem gönguseiðum í ána til
að auka fiskigengd.
Markmið veiðirétthafa með slepp-
ingum á ræktuðum seiðum er að
rækta upp ár, það er að fjölga ein-
staklingunum sem ganga í árnar og
gera þannig árnar arðbærari fyrir
þá sem þær eiga eða leigja.
Ræktun á laxám og verndun
þeirra er ekki það sama. Ræktun
fylgja hættur, ekki einungis breyt-
ingar á erfðamengi villta laxins,
heldur einnig bein neikvæð áhrif á
lífssögu laxins og möguleikum hans
á að koma upp afkvæmum. Á þetta
hefur verið bent í fjölmörgum vís-
indagreinum og ber að taka alvar-
lega3).
Ef að markmiðum veiðirétthafa er
náð og fleiri laxar ganga upp í á til
hrygningar eykst þéttnin. Það hefur
í för með sér aukna samkeppni um
hrygningarsvæði og jafnframt
hættu á að svæði, sem búið er að
hrygna í, sé raskað.
Þetta leiðir af sér að hrognafjöld-
inn eftir klak er mun meiri en ef ein-
ungis væri sjálfbær stofn í ánni.
Eitthvað af hrognunum væri líkleg-
ast á óviðunandi klaksvæðum og
klektist ekki, en samt mætti búast
við mun meira klaki en væri við
sjálfbærar aðstæður. Nýklakin seiði
þurfa að éta og mikil þéttni þýðir
mikil samkeppni um fæðu sem getur
auðveldlega leitt til fæðuskorts með
hlutfallslega meiri afföllum en væru
við eðlilegar aðstæður.
Núverandi aðferðir við fiskirækt í
íslenskum laxveiðiám eru því mark-
visst að draga úr náttúrulegri fjöl-
breytni í ánum – minnka genafjöl-
breytni í laxastofnum og breyta
vistkerfum. Þetta er því dæmi um
landbúnað sem kallast fiskirækt en
ekki verndun náttúrulegs stofns.
Þetta er verulegt áhyggjuefni,
ekki síst í ljósi mikillar aukningar í
sleppingum seiða í ár á Íslandi 4,5).
Hér er því í raun og veru verið að
vinna gegn náttúrulegu vali. Eina
leiðin til að íslenskar laxveiðiár geti
talist náttúrulegar er að í þeim sé
ekki stunduð fiskirækt.
Þá eru ónefndar alvarlegar afleið-
ingar sem fiskirækt getur haft á lífs-
skilyrði annarra íslenskra laxfiska,
urriða og bleikju. Má þar nefna
byggingu laxastiga og því að hleypa
laxi inn á svæði þar sem einungis
þessar tegundir höfðu verið áður.
Framleiðslan á laxi eykst mikið, en
líffræðileg fjölbreytni hrynur.
Af náttúruverndarástæðum væri
mikilvægt að friða eina eða fleiri ís-
lenskar laxveiðiár fyrir inngripum af
öllu tagi, nema hóflegri veiði. Hér
væri því í raun verið að tryggja, ekki
ósvipað og gert hefur verið þegar
land hefur verið tekið undir þjóð-
garð, að íslenska laxveiðiáin með ís-
lenska laxinum fái að dafna og
þroskast án inngrips okkar mann-
anna. Að varðveisla líffræðilegs fjöl-
breytileika í stofni íslenska laxins
verði varin – hinn raunverulegi ís-
lenski genabanki.
Það á að vera skilyrði að fiskirækt
fylgi reglum er varða umhverfismat
svo tryggja megi að hverjar þær
breytingar sem eiga sér stað séu aft-
urkræfar – ekki ólíkt því og krafist
er þegar um framkvæmdir er að
ræða – hvort sem það er vegagerð
eða fiskeldi á landi eða í sjó. Ekki er
síst mikilvægt að upplýsingar um
fiskirækt, ræktun og sleppingu
seiða, séu opnar öllum almenningi.
Laxinn er jú eign þjóðarinnar eins
og fiskurinn í sjónum.
Þetta er mikilvægt atriði í ljósi
þess að landbúnaður verður seint
flokkaður sem náttúruvernd.
Heimildir:
1) https://www.hafogvatn.is
2) https://www.hafogvatn.is/is/ moya/news/
svor-vid-athugasemdum- er-luta-ad-
ahaettumati
3) www.pnas.orgcgidoi10.1073pnas.
1037274100
4) http://www.bb.is/2019/02/storfelldar-
seidasleppninga-i-laxveidar/
5) Morgunblaðið 20. febrúar, bls. 18.
Fiskirækt – náttúruvernd eða landbúnaður?
Eftir Þorleif
Ágústsson og
Þorleif Eiríksson
»Eina leiðin til að ís-
lenskar laxveiðiár
geti talist náttúrulegar
er að í þeim sé ekki
stunduð fiskirækt.
Dr. Þorleifur
Ágústsson Þorleifur Ágústsson er doktor í fiska-
lífeðlisfræði og Þorleifur Eiríksson er
doktor í dýrafræði.
Dr. Þorleifur
Eiríksson
Íslenska þjóðin er ekki stór á mæli-
kvarða heimsins, nánast eins og
krækiber á tunnubotni, í þeim
samanburði, en samt þurfum við að
leysa úr ýmsum málum líkt og aðrar
fullvalda þjóðir. Til þess þurfum við
fólk til að móta stefnu og taka
ákvarðanir. Við kjósum fulltrúa okk-
ar til Alþingis og þar eru myndaðar
ríkisstjórnir sem við ætlumst til að
komi sér saman um stefnu og fram-
fylgi henni. Við heimtum ekki að þar
séu einhverjir „churchillar“ á ferð,
sem leiði þjóðina gegnum eld og
brennistein og vinni helst heims-
styrjöld á hverjum degi, en við vilj-
um sjá stjórnmálamenn sem hafa
stefnu og hugsjónir og vilja til að
koma þeim í verk.
Stjórnmálamenn eiga að vera leið-
andi, líka stjórnarandstaðan, ekki
láta leiðast út í lýðskrum og popúl-
isma. Það veit ekki á gott þegar
skoðanakannanir verða skoðana-
myndandi og allra verst ef pólitík-
usarnir taka svo mikið mark á þeim,
að þeir renni á harðahlaupum undan
orðum sínum og stefnumálum við
minnsta goluþyt úr þeirri átt.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Leiðtogar óskast
Leiðtogar „Við viljum stjórnmálamenn sem hafa stefnu og hugsjónir.“