Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.02.2019, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 Illa er komið þegar utanríkisstefna ríkis- stjórnarinnar er í höndum ESB og þjóð- inni aðeins boðið upp á eina niðursneidda með öllu frá Brussel eða beina leið til vítis. Íslandi má fórna fyrir EES-samninginn, landbúnaður og orku- auðlindir landsmanna er selt í hendur erlendra aðila og stjórnarskrárvörðu löggjafar- og dómsvaldi lýðveldisins fargað. Komast á hjá áliti lögfróðra manna og afsala lýðræði og lýðveldi í sneiðum í nafni heilagrar „frjálsr- ar“ verslunar. Utanríkisráðherra vill „lyfta um- ræðu um EES-samninginn upp á hærra plan en tíðkast hefur síðustu misserin“. (Guðlaugur Þór Þórðar- son, ávarp á málstofu 6. febrúar). Það er skiljanlegt miðað við þá af- stöðu ráðherrans, að eini valkostur- inn við EES-samninginn er að Ís- land gangi „í ESB með öllu því sem aðild fylgir“. Engum „dettur í hug að Ísland gæti upp á eigin spýtur náð samningi við ESB um sam- bærileg eða betri kjör en þau sem við njótum samkvæmt EES- samningnum“. Með þessari full- komnu uppgjöf gagnvart ESB dæmir utanríkisráðherrann sjálfan sig og ríkisstjórnina úr leik. Utan- ríkisstefna ríkisstjórnarinnar breytir íslenskum embætt- ismönnum í eftirlitsmenn með fljót- virkri innleiðingu á lögum ESB í ís- lenska stjórnsýslu. Hlutverk ríkisstjórnarinnar verður þvert á niðurstöðu lýðræðislegra kosninga að tryggja hagsmuni og völd Evr- ópusambandsins á Íslandi. EES- samningurinn er í höndum ríkis- stjórnarinnar eins og djásn Smja- galls – „Allt fyrir ekkert“- hringurinn. Utanríkisráðherrann telur EES-samn- ingnum til framdráttar að „um þriðjungur Ís- lendinga er fæddur eft- ir gildistöku samnings- ins og líklegt er að stór hluti landsmanna muni vart eftir lífinu fyrir til- komu EES“. Varla voru það rök þeirra sem fæddust eftir valdatöku nazismans, að þeir ættu að fylgja Hitler að málum eða rök Reykvík- inga fæddra eftir valdatöku gnarr- ismans að þeir ættu að kjósa Dag B. Eggertsson því þeir muni vart annað. EES-samningurinn er í dag orðinn eins og borgarstjórnar- meirihluti Reykvíkinga: Minna en ekkert fyrir allt. Utanríkisráðherrann lætur eins og ekkert hafi gerst sl. 25 ár og að dýrðarljómi ESB skíni skærar en áður. Guðlaugur Þór Þórðarson virðist ekki hafa frétt neitt af þús- und og einni kreppu ESB, sem er svo spillt að enginn fæst til að undirrita bókhaldið. Svindl óreiðu- manna hefur dregið löndin í suðri í örbirgð og fært Þýzkalandi ómæld- an evrugróða. Seðlabanki ESB hef- ur fulla hlöðu af verðlausum ríkis- skuldabréfum sem sögð eru eiga að vera bakhjarl peningaausturs í pyngjur fjárglæframanna. Afleið- ingarnar blasa við; atvinnu- og eignaleysi fólks og hagvöxtur við frostmark. Í ofanálag þvingar ESB aðildarríkin til að flytja inn fólk frá Afríku og Miðjarðarhafslöndum að meðtöldum íslömskum vígamönn- um sem leitt hefur til öldu hryðju- verka, manndrápa og skelfingar fyrir íbúana. Refsa á ríkjum sem spyrna við fótum, pólitískar hand- tökur réttlættar, lýðræðið fótum troðið og kjósendum stökkt á flótta. Nei verður valdboðið já og þeim hótað fallexi sem viðra „rangar“ hugmyndir. Bretar hæddir með boði um matarpakka – því hung- ursneyð ríki fyrir utan dyr ESB og útisvæðið skilgreint sem víti. Miðað við ofangreinda þróun þarf engan að undra að fyrrverandi stuðningsmenn EES-samningsins snúi við blaðinu og taki stöðu gegn stórríkinu sbr.: „Ég hef því misst það traust til ESB, sem ég bar – að óreyndu – til sambandsins, þegar við gegnum til samninga við ESB um EES.“ (Tómas I. Olrich Mbl. 14. feb. 2019). Eða: „Engin kvöð er skv. EES-samningnum að innleiða orkupakka ESB. Við höfum ekkert með orkumarkað ESB að gera, basta.“ (Jón Baldvin Hannibalsson, Útvarp Saga 18. febrúar 2019). Enn fremur: „Áhugaleysi ESB á samn- ingnum hefur til að mynda birst í því að í nýrri löggjöf ESB hefur brunnið við að EES-ríkin hreinlega gleymist … svo virðist sem emb- ættismenn sambandsins hafi misst áhugann á samstarfinu …“ (Skýrsla Hagfræðistofnunar, jan. 2018) Er allt gert til að lýðræðislega kjörnir embættismenn semji frá sér hagsmuni þjóðarinnar, sem síð- ar verður notað gegn Íslandi í málaferlum fyrir erlendum dóm- stólum. Það sæmir engum að auka báknið á kostnað skattgreiðenda til að innleiða lög ESB né að fela þá staðreynd að ESB brýtur gefin lof- orð. Leita þarf annarra leiða við samningsbrotum mótaðilans. Reynslan af Icesave sýnir að jafn- vel voldugur aðili sem ESB þarf að mæta í dómstól og standa fyrir sínu. Stjórnarskrá lýðveldisins er nú sem fyrr vörnin gegn ásælni er- lendra afla yfir þjóðinni. Leysa þarf Stjórnarráðið úr álögum og afnema stjórnaríhlutun ESB. Hvort heldur er um að ræða hráan sýklainnflutn- ing eða sölu aflátsbréfa um að Ís- land framleiði rafmagn með kjarn- orku og kolum, hvað þá orkupakka sem leiðir þjóðina sem ambátt til sölu á uppboðsmörkuðum erlendis, þá verður að stöðva valdatöku evr- ópska stórríkisins yfir litlu eyþjóð- inni okkar í N-Atlantshafi. Íslandi færi betur að fylgja vin- um okkar Bandaríkjamönnum og Bretum að málum og láta mikil- mennin í Brussel lönd og leið. „Allt fyrir ekkert“- samningurinn Eftir Gústaf Adolf Skúlason »Hlutverk ríkis- stjórnarinnar verð- ur þvert á niðurstöðu lýðræðislegra kosninga að tryggja hagsmuni og völd Evrópusambands- ins á Íslandi. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fyrrv. ritari Smáfyrir- tækjabandalags Evrópu og er smáfyrirtækjarekandi í Svíþjóð. 2. febrúar birtist í Morgunblaðinu grein- in „Eyðieyjarbrand- ari; eða hvar eru kennileitin?“ eftir El- ísabetu Jökulsdóttur. Hún fjallar þar um breytingar sem hafa orðið á Reykjavík á síðustu árum vegna þess hve mjög hefur verið byggt hvar sem auðan blett er að finna. Mig langar til að taka undir margt sem fram kemur í þessari grein. Elísabet vitnar í leigubílstjóra sem sagði við hana „ég sé ekki lengur Akrafjall og Skarðsheið- ina“. Þessi orð eru ekki út í bláinn. Falleg fjallasýn var lengi stolt Reykvíkinga, eins og fram kemur í viðkvæðinu „Akrafjall og Skarðs- heiðin eins og fjólubláir draumar“ í kvæðinu „Vorkvöld í Reykjavík“ eftir Sigurð Þórarinsson. En nú er orðið erfitt að sjá þessi fjöll úr miðbæ Reykjavíkur. Sérlega dap- urleg er breytingin sem orðin er á útsýninu ofan af Arnarhóli. Þaðan var lengi afar fagurt útsýni, bæði yfir miðbæ Reykjavíkur, höfnina og ekki síst til fjallanna þriggja, því Esjan, Skarðsheiðin og Akra- fjall blöstu þar við. Svo var útsýn- inu til Esjunnar spillt með því að byggja Seðlabankahúsið. Þá var Harpa byggð, sem er vissulega fal- legt hús og gagnlegt, en hefur einn galla vegna staðsetningarinnar: Skarðsheiðin hvarf á bak við hana. Þetta hefði nú kannski ekki gert svo mikið til ef við hefðum fengið að halda Akrafjalli eftir. En nú er Akrafjall horfið líka á bak við stór og drungaleg háhýsi og um leið út- sýnið yfir höfnina – þ.e.a.s. að mestu leyti, því reyndar er eftir svolítil glufa þar sem enn má sjá hluta af höfninni og sjónum. Ég vil biðja valdsmenn borgarinnar bæði nú og í framtíðinni að lofa okkur að halda þessari glufu eftir, þessu örlitla broti sem eftir er af útsýn- inu fagra af Arnarhóli. Háhýsin nýju skyggja líka á Hörpu og er það ekki vel til fundið að þrengja með stórum byggingum að húsi sem fengið hefur alþjóðleg arkitektaverðlaun. Þetta er ekki eina dæmið um slíkt, enda segir Elísabet í grein sinni að „öll okkar helstu hús“ séu að „hverfa vegna þéttingar byggðar“. Hún nefnir þar nokkur hús, meðal annars Út- varpshúsið, sem er að miklu leyti horfið á bak við nýbyggingar. Mig langar hins vegar til að nefna hús sem ekki er minnst á í grein Elísabetar, en er eitt sorglegasta dæmi seinni ára um það hve lítið tillit er tekið til umhverfis merkra húsa. Þetta er Nor- ræna húsið, sem reis í Vatnsmýrinni árið 1968, höfundarverk hins fræga finnska arkitekts Alvars Aalto. Lengi vel var húsið eins og gimsteinn í fal- legri umgerð, svo vel naut það sín þarna í náttúru Vatnsmýrarinnar. En svo fundu menn upp á þeirri smekkleysu að reisa Hús Nátt- úrufræðistofnunar svo að segja of- an í Norræna húsinu, stórt hús og órólegt í útliti svo að það truflar mjög umhverfi Norræna hússins. Ekki létu menn þessa eyðileggingu nægja heldur hefur hvert stór- hýsið eftir annað risið á bak við Norræna húsið svo nú er orðinn ógerningur að taka mynd af því einu í náttúrunni, eins og áður. (Frá sumum sjónarhornum hverf- ur Norræna húsið hreinlega inn í Hús Náttúrufræðistofnunar, eins og sjá má á mynd sem ég læt fylgja greininni.) Endalaust virð- ast menn sjá þarna nýja bygging- armöguleika svo ég óttast að það endi með því að líka verði byggt fyrir framan Norræna húsið og það hætti alveg að sjást. Og eitt af helstu kennileitum miðbæjarins, Stjórnarráðshúsið, á ekki heldur að fá að hafa rými í kringum sig, heldur á nú að troða húsi á bak við það. Það skal þó segjast eins og er að í tillögunni sem fékk 1. verðlaun í samkeppni um það hús er reynt að taka tillit til Stjórnarráðshússins og er sú til- laga hátíð hjá sumum sem í keppn- ina bárust og eru vægast sagt hörmulegar. En hvers vegna þarf endilega að byggja þarna? Og eru menn alveg hættir að skilja að ef merk hús eiga að njóta sín gengur ekki að þrengja að þeim á alla kanta með öðrum byggingum? Ofþétting byggðar Eftir Unu Margréti Jónsdóttur Una Margrét Jónsdóttir »Ekki létu menn þessa eyðileggingu nægja heldur hefur hvert stórhýsið eftir annað risið á bak við Norræna húsið. Höfundur er dagskrárgerðar- maður. umeh@simnet.is Dagana 14.-21. mars 2019 verða heimsleikar Special Olympics haldnir í Abu Dhabi og Dubai og þangað stefna 38 íslenskir keppendur. Þau munu taka þátt í tíu greinum, badminton, botsía, frjálsum íþróttum, áhaldafimleikum, golfi, keilu, knattspyrnu, sundi og í fyrsta skipti á Ísland fulltrúa í nútímafimleikum og lyftingum kvenna. Keppendur eru af Reykjavíkursvæðinu, Reykja- nesi, frá Selfossi, Akureyri og Bol- ungarvík. Tveir félagar frá Bolung- arvík keppa í „unified“ badminton þar sem fatlaður og ófatlaður keppa saman í liði en „unified“ opnar á ný tækifæri og er mjög spennandi kostur. Íþróttasamband fatl- aðra vinnur nú að því að fjármagna þátttöku en ÍF er umsjónaraðili starfsemi Special Olympics á Íslandi. Special Olympics- samtökin stofnaði Ken- nedy-fjölskyldan árið 1968. Markmið SOI er að standa að íþrótta- viðburðum fyrir fólk með þroskahömlun eða frávik en einnig eru sí- fellt fleiri greinar byggðar á keppni fatl- aðra og ófatlaðra (Unified). Sam- tökin hafa einnig verið mjög öflug í baráttu fyrir því er varðar aukin lífsgæði, menntun og heilbrigðismál. Árið 2019 er 30 ára afmælisár Special Olympics á Íslandi en frá upphafsárinu 1989 hafa 500 íslensk- ir keppendur fengið tækifæri til þátttöku í glæsilegum heimsleikum Special Olympics. Heitið Special Olympics er alþjóðaheiti og má aldr- ei þýða sem ólympíuleikar fatlaðra. Keppnisform er gjörólíkt og kepp- endur eru tilnefndir af aðild- arfélögum ÍF sem eiga að taka mið af mætingu, framförum og góðri fé- lagslegri hegðun. Árangur er því ekki viðmið þegar valið er á leika Special Olympics og því eiga allir sömu möguleika á að vera tilnefndir en lokaval tekur mið af kvóta Ís- lands í hverri grein. Heimsleikarnir verða stærsti íþróttaviðburður heims 2019. Þar verða 7.000 keppendur frá 192 þjóð- um að taka þátt í 24 íþróttagreinum. Flestir þekkja heim íþróttanna sem pýramída þar sem þeir sterkustu sigra. Pýramídanum er snúið á hvolf á leikum Special Olympics, enginn veit hver fær gullið. Raðað er í jafna úrslitariðla eftir styrkleika og marg- ir stíga í fyrsta skipti á verðlauna- pall. Fyrstu þrír fá verðlaunapening og aðrir fá verðlaunaborða. Það er því ekki árangur eða verðlaun sem hér á að vera fréttaefnið. Það sem er fréttnæmt er að á þessum leikum er byggt á því sem fjallað er um í hátíðarræðum að skipti mestu máli í tómstunda og íþróttastarfi barna og unglinga. Að falla í hópinn, vera hluti af hópi, upplifa gleði og aukið sjálfstraust, fá að njóta sín á eigin verðleikum og vera virkur þátttak- andi. Þarna er skapað umhverfi sem gerir öllum kleift að blómstra og upplifa styrkleika sína, fremur en veikleika. Því má segja að þetta sé „Sigurför fyrir sjálfsmyndina“. Íslenskur lögreglumaður verður í alþjóðlegum hópi lögreglumanna sem hlaupa kyndilhlaup fyrir leik- ana og bera eldinn á opnunarhátíð- ina. Um 90 aðstandendur munu fylgj- ast með leikunum en þeirra hlut- verk er þó fyrst og fremst að njóta ferðalagsins og vera í fríi. Margt hefur komið á óvart og margir keppendur hafa sýnt nýja hæfileika og styrk, þegar takast þarf á við ný verkefni án stuðnings aðstandenda. Samstarf við aðstandendur hefur verið einkar ánægjulegt og margar sögur hafa orðið til, þar sem lýst er þeim jákvæðu áhrifum sem þátttaka á heimsleikum Special Olympics hefur haft á sjálfsmynd keppenda. Keppandi á heimsleikum Special Olympics í LA 2015 setti hugsanir sínar í orð; „Hér tala allir við mann, hér er maður bara eins og hver annar, – þetta er lífið.“ 38 íslenskir keppendur stefna á heimsleika Special Olympics 2019 Eftir Önnu Karól- ínu Vilhjálmsdóttur » Þarna er skapað um- hverfi sem gerir öll- um kleift að blómstra og upplifa styrkleika sína, fremur en veikleika. Anna Karólína Vilhjálmsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og þróunarsviðs ÍF. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.