Morgunblaðið - 27.02.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Það ætti ef til vill
ekki að koma á
óvart að einstak-
lingur látist eftir
nánast hundrað ára tilveru en
samt trúði ég því varla þegar
Guðrún, dóttir Eyjólfs og Svönu,
sagði mér að móðir hennar, góður
vinur okkar í áraraðir, hefði látist
þann 4. janúar og verið jarðsung-
in þann 30. janúar á 100 ára af-
mæli hennar. Því miður fór and-
látið framhjá okkur bræðrum og
fjölskyldum okkar og þykir okk-
ur öllum það mjög leitt að hafa
ekki getað fylgt þessari heiðurs-
Svanfríður
Þorkelsdóttir
✝ SvanfríðurÞorkelsdóttir
fæddist 30. janúar
1919. Hún lést 4.
janúar 2019.
Svanfríður var
jarðsungin 30. jan-
úar 2019.
konu síðasta spöl-
inn.
Þannig hagaði til
að foreldrar okkar
bræðra byggðu par-
hús í Akurgerði 34
ásamt þeim Svönu
og Eyjólfi sem
bjuggu í Akurgerði
36. Með fjölskyldun-
um tókst góð og
djúp vinátta sem
varði alla tíð. Faðir
okkar, Jónas Gunnarsson, og
Eyjólfur höfðu unnið saman í Síld
og fiski sem og móðir okkar, Sig-
ríður Þórarinsdóttir. Eyjólfur
var allt í öllu hjá Síld og fiski,
hann var verslunarstjóri og síðar
sölustjóri þegar fyrirtækið flutti í
Hafnarfjörð. Eyjólfur lést árið
2013 en þá hafði ég ekki aðstöðu
til að skrifa minningarorð um
hann svo mig langar til að minn-
ast hans hér líka.
Hjónin Eyjólfur og Svana áttu
stóran þátt í uppeldi okkar
bræðranna fjögurra, þau áttu
sjálf fimm börn svo það var oft
kátt á hjalla í Akurgerðinu. Hluti
þeirra var eldri en við bræður svo
það voru einna helst þau yngstu,
Guðrún og Guðmundur, sem við
tengdumst mest.
Guðrún var hress og ákveðin
stelpa sem vildi spila handbolta
með okkur strákunum og bíl-
skúrshurð foreldra hennar var
markið. Að spila við stelpu var
ekki sjálfgefið og Þórhallur bróð-
ir og nágranni okkar, Guðmund-
ur Stefánsson, börðust um það
hvort hún fengi að vera með eða
ekki. Án þess að segja hvor hafði
betur fékk Guðrún að vera með
og stóð sig eins og vænta mátti
með miklum ágætum. Guðmund-
ur var einn besti vinur Bergþórs
bróður og brallaði margt með
honum.
Í raun kynntist ég kannski
Eyjólfi betur en Svönu, ekki síst
þegar ég setti upp mína eigin
verslun og hann reyndist mér
ávallt mjög ráðagóður og leið-
beindi á allan hátt. Við fórum
saman til Kaupmannahafnar árið
1972, ásamt fjölda kaupmanna til
að skoða verslanir og fleira. Eitt
það besta sem Eyjólfur sagði mér
í þessari ferð var að gin og tónik
drykki maður bara í flugvélum og
hef ég haldið þá hefð síðan.
Svana var afskaplega mikil og
dugleg húsmóðir og nutum við
bræður oft góðs af því. Hún var
árrisul og dugleg að drífa sig út í
sólina og í sund. Hún og mamma
voru góðar vinkonur og héldu vel
utan um hópinn sinn. Mamma
tengdi oftar en ekki atburði við
fæðingar Svönu. Oft þurftu
Svana og Eyjólfur að þola hávaða
af völdum okkar bræðra, ekki síst
þegar foreldrar okkar voru úti á
landi, þá notuðum við tækifærið
og leyfðum tónlistinni að njóta
sín í botn ef svo mætti segja.
Þetta var ekki illa meint og þau
erfðu þetta aldrei við okkur.
Að lokum vil ég fyrir hönd okk-
ar bræðra og fjölskyldna okkar
senda börnum Svönu og fjöl-
skyldum þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Minningin um
sæmdarhjónin Eyjólf Guð-
mundsson og Svanfríði Þorkels-
dóttur lifir.
Gunnar Jónasson.
✝ Sigurður Þór-arinsson fædd-
ist í Vestmanna-
eyjum 14. septem-
ber 1934. Hann
lést í Reykjavík
22. janúar 2019.
Foreldrar hans
voru Þórarinn
Gunnlaugsson vél-
stjóri, f. 24. júní
1913, d. 3. mars
2002, og Jóhanna
Guðrún Sigurðardóttir, f. 7.
maí 1915, d. 14. maí 1987.
Systkini Sig-
urðar: Elísabet
Gunnlaug, f. 27.
nóvember 1936, d.
27. janúar 2017,
Grétar Guð-
laugur, f. 14.
ágúst 1941, og
Þórey, f. 4. ágúst
1945.
Sigurður var
þríkvæntur og
átti sex börn.
Útför hans fór fram 6. febr-
úar 2019.
Sigurður Þórarinsson eða
Sissi, eins og hann var jafnan
kallaður, lést eftir stuttan en
snarpan bardaga við krabba-
mein og fór útför hans fram í
kyrrþey að hans ósk.
Ég kynntist Sissa þegar ég
bjó í Eyjum um 1960. Þó að
aldursmunurinn væri tíu ár
batt djassáhuginn okkur
saman, en Sissi var einlægur
djassunnandi og lék á trommur
á flestum djammsessjónum
þegar ég bjó í Eyjum. Hann las
líka af rafmagninu og sat þá
stundum við eldhúsborðið
heima og við spjölluðum um
djass meðan mamma skenkti
kaffi. Það var ekki fyrr en ára-
tugum seinna að vinátta tókst
með okkur að nýju. Þá var
hann giftur þriðju eiginkonu
sinni, Borghildi Emilsdóttur,
og bjuggu þau í Garðabæ. Þau
höfðu bæði átt börn, en yndi
þeirra þar var Perla, íslenskur
hundur, og síðar Birta. Sissi
var lengi verkstjóri í frystihús-
um víða um land og hafði farið
til útlanda á námskeið í faginu.
Hann var útsjónarsamur og
laginn, þótti einhver besti flak-
ari og brýnari í Eyjunum og
einstakt snyrtimenni.
Tónlistarferill Sissa hófst
þegar hann var unglingur. Har-
aldur Guðmundsson trompet-
leikari flutti frá Reykjavík til
Eyja 1949, en hann var borinn
og barnfæddur þar. Þá var
helstur trommari í Eyjunum
Sigurður Guðmundsson, Siggi á
Háeyri. Hann var á síld fyrir
norðan þegar sextettinn var
stofnaður svo Sissi sat við
trommurnar þar til Siggi sneri
heim. Sissi var þó fullungur til
að leika á dansleikjum og
trommusettið hans samtíningur
úr öllum áttum.
Á vertíðum var spilað öll
kvöld og djammsessjónir á
sunnudögum. Reykvískir djass-
leikarar réðu sig í ballspila-
mennskuna, en helstu djass-
leikarar Eyjanna voru Guðni
Hermansen saxófónleikari og
Guðjón Pálsson píanisti. Þegar
Sissi hafði aldur til lék hann
m.a. í hljómsveit Árna Elfars í
Eyjum. Um 1958 var Rondó
sextettinn stofnaður undir for-
ystu Guðna Hermansen, mál-
arameistara og seinna eins
þekktasta listmálara Vest-
mannaeyinga. Flestir í sextett-
inum unnu hjá Guðna í máln-
ingunni og þegar sextettinn
fluttist úr Alþýðuhúsinu í Höll-
ina 1960 leysti Sigurður Sigur-
jón Jónasson, Nonni í Skuld, af
við trommusettið. Hljómsveitin
starfaði til 1964. Ýmsar upp-
tökur eru til með Sissa frá
þessum árum.
Eftir að Sissi flutti frá Eyj-
um gat hann lengi vel lítið
trommað, enda á ferð og flugi
um landið við verkstjórn. Hann
eignaðist frábært trommusett,
Sonor, og lánaði það oft ýmsum
erlendum djasstrommuleikur-
um er hér léku á tónleikum, s.s.
Louis Hayes, Lewis Nash og
Alex Riel. Sissi var ekki mikill
tungumálamaður, frekar en
flestir af hans kynslóð er ekki
gengu menntaveginn, en gaman
var að heyra hvað þeir Alex
gátu spjallað saman um
trommuleik.
Sissi spilaði oft með Árna Ís-
leifssyni, bæði á Djasshátíð
Egilsstaða og einnig í Dixiel-
andhljómsveit hans á árunum
2006-7.
Sissi varð fyrir þeirri ógæfu
að skipta þurfti um slagæð í
fæti hans og háði það honum
mikið við hljóðfæraleikinn svo
hann þurfti að hætta öllu
hljómsveitarspili, en hann
trommaði heima og hlustaði
mikið á djass, bæði af hljóm- og
mynddiskum, sem hann átti átti
dágott safn af.
Að leiðarlokum þakka ég
Sissa vináttuna og Jazzvakn-
ingu trommulánið.
Vernharður Linnet.
Sigurður
Þórarinsson
Það er með sökn-
uði og sorg sem við
kveðjum elskulegan
vin, Þorstein.
Það er gæfa á lífsleiðinni að
kynnast slíku góðmenni. Þor-
steinn hafði svo jákvæða nærveru
og var svo hjartahlýr og skemmti-
legur.
Kynni okkar hófust fyrir mörg-
um árum og voru þá allt annars
eðlis í gengnum sameiginlegan
félagsskap.
Fyrir nokkrum árum fluttu þau
Þorsteinn og Jónína í næstu íbúð
við okkur og hófst þámikill sam-
gangur, kærleikur og góð vinátta.
Þorsteinn átti við mikinn
Þorsteinn
Hjaltason
✝ Þorsteinn Bern-harð Hjaltason
fæddist 17. júní
1939. Hann lést 8.
febrúar 2019.
Útför Þorsteins
fór fram 22. febrúar
2019.
heilsubrest að stríða
síðustu ár en hann
lét það ekki stoppa
sig, alltaf jákvæður
og byrjaði á: „Bless-
aður, eru ekki allir
hressir?“ Þorsteinn
var mikill listamað-
ur, tók upp vatnslita-
málun seinni ár og
kom þá aðdáun hans
á landinu í ljós, sem
honum tókst svo vel
að fanga. Mikill hestamaður og
lífskúnster.
Stærsta gæfa Þorsteins í lífinu
var Jónína og fjölskyldan.
Þorsteinn minn, við þökkum
þér gleði, jákvæðan huga og hlát-
ur yfir góðum sögum, sönnum og
ósönnum.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til Jónínu og fjölskyld-
unnar. Megi guð blessa ykkur og
styrkja á þessum erfiðu tímum.
Ásta Denise, Sverrir
Vilhelm Bernhöft.
Eiginkona mín, móðir, dóttir, systir,
mágkona og tengdadóttir, okkar ástkæra,
BERGLIND HALLGRÍMSDÓTTIR,
Sunnuvegi 25,
lést á heimili sínu föstudaginn 15. febrúar.
Útför Berglindar verður gerð frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 1. mars klukkan 13.
Eðvarð Jón Bjarnason Elsa Edda Eðvarðsdóttir
Ingibjörg Edda Ásgeirsdóttir Hallgrímur Jónasson
Jónas Hlynur Hallgrímsson
Ásgeir Örn Hallgrímsson Hanna Borg Jónsdóttir
Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGVELDUR ÁSTA HJARTARDÓTTIR,
Aðalstræti 97, Patreksfirði,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi
laugardaginn 23. febrúar. Inga verður
jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 2. mars kl. 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina
Unni á Patreksfirði.
Hjörtur Sigurðsson Sigríður Ólafsdóttir
Anna María Sigurðardóttir Björn Ágúst Jónsson
Ríkharð H. Sigurðsson Thiang Sithong
Sigurður Svanur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR ÖRN GESTSSON,
verkfræðingur,
Hjallavegi 27,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 28. febrúar klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á minningar- og húsnæðissjóð Ljóssins.
Hildur Björg Hannesdóttir
Björg Alfa Björnsdóttir Jón Grétar Gissurarson
Frosti Hallfríðarson Nicole Flanagen
Saga Ásgeirsdóttir
Juniper Ósk Frostadóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HEIÐAR BERGMANN MARTEINSSON,
Vogatungu 103, Kópavogi,
lést 24. febrúar.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 28. febrúar klukkan 11.
Guðríður M. Guðmundsdóttir
Marteinn Bergmann Heiðarsson
Guðmundur Ólafur Heiðarsson, Þórunn Ósk Sölvadóttir
Jóna Anna Heiðarsdóttir, Sigurjón L. Kjartansson
Heiðar Bergmann Heiðarsson, Sigrún Einarsdóttir
Herdís Matthildur Heiðarsdóttir, Viðar Víkingsson
Sigríður Sólveig Heiðarsdóttir, Valdimar Halldórsson
og afabörn
Ástkær faðir okkar,
RUNÓLFUR VALDIMARSSON
rafvirkjameistari,
lést á Landspítalanum 23. febrúar.
Útför hans fer fram frá Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 4. mars klukkan 13.
Valdimar Runólfsson
Ingibjörg Runólfsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ERLA SIGURVINSDÓTTIR,
hjúkrunarheimlinu Seljahlíð,
lést 22. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 1. mars klukkan 13.
Kjartan Reynisson Ásta Sigfúsdóttir
Sigrún Erla Reynisdóttir
og barnabörn
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall og útför móður okkar og
tengdamóður,
GUÐRÍÐAR BJARGEYJAR
HELGADÓTTUR
frá Austurhlíð í Blöndudal.
Helgi Sæmundsson Bjarney G. Þórarinsdóttir
Ásdís Sæmundsdóttir Gunnar Karl Guðjónsson
Sigríður Guðrún Friðriksd. Guðmundur Guðmundsson
Brynjólfur Friðriksson Jóhanna Helga Halldórsdóttir
Kristín Friðriksdóttir
Ólína Þóra Friðriksdóttir Eiríkur Jónsson