Morgunblaðið - 27.02.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 27.02.2019, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast þótt eitthvað blási á móti. Notaðu innsæið til að meta framhaldið í snúnu máli. 20. apríl - 20. maí  Naut Farðu þér hægt í skuldbindingum í dag og reyndar ættir þú að fresta öllu sem ekki þarf nauðsynlega að afgreiða á stund- inni. Líttu til baka og sjáðu hverju þú hefur áorkað. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þegar kemur að krossgötum er sjálfsagt að staldra við og velja framhaldið af kostgæfni. Ástarsamband sem þú ert í verður betra með hverjum deginum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Góðir straumar gærdagsins fljóta áfram inn í daginn í dag. Hversdagslífið sem hentaði þér svo vel passar nú engan veginn. Breyttu til. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Annríki þitt kallar á tíma fyrir slökun. Heilsan er það mikilvægasta. Þú ættir að fá tíma til að sinna áhugamálunum þegar líður á sumarið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er að mörgu að hyggja bæði innan heimilis og utan. Einhver ókunnugur gæti lagt fyrir þig verkefni sem virðist ein- falt í fyrstu en er það ekki. 23. sept. - 22. okt.  Vog Haltu áfram að skipuleggja þig betur. Vertu óhrædd/ur við að sækja kraft inn á við. Einhver í fjölskyldunni fer fram á skrítna hluti, reyndu að halda ró þinni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ættir ekki að reyna að gera hlutina upp á eigin spýtur í dag. Aðalmálið er að fylgja flæðinu eins og það kemur fyrir hverju sinni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Mundu að umgangast hug- myndir annarra af sömu virðingu og þú vilt að þeir sýni þínum verkum. Gerðu góðverk, það er svo gott fyrir sálina. 22. des. - 19. janúar Steingeit Rómantískustu stundirnar verða til án fyrirvara. Gamall vinur birtist upp úr þurru með sögu sem veldur þér heila- brotum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú stendur eins og klettur í öllu því róti sem í kringum þig er. Treystu þínum tilfinningum. Félagslífið er fjörugt og þú ert alls staðar velkomin/n. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það skiptir öllu máli að vera sam- kvæmur sjálfum sér og reyna ekki að blekkja sig hvað varðar takmörk í lífinu. Reyndu að forðast átök og reitt fólk. Íslensk veðrátta stendur undir nafniþessa dagana. Eina stundina rign- ir þannig að vatnið flæðir niður rúð- ur líkt og maður sé staddur inni í bíl á bílaþvottastöð, þá næstu brýst sól- in fram úr skýjum, sem hverfa eins og dögg fyrir henni. Ekki er langt síðan var frost og ófærð og vegum lokað, nú eru snjór og ís á hröðu undanhaldi og það þarf nánast að leita uppi klakabunkana í höfuðborg- inni. x x x Víkverji veltir fyrir sér hvort beyg-ingar nafnorða séu á undanhaldi í íslensku. Hann hefur áður vakið máls á því að iðulega séu nöfn versl- ana og fyrirtækja látin óbeygð í aug- lýsingum. Eitt dæmi eru auglýsingar frá Útilífi þar sem sagt er að eitthvað fáist „í Útilíf“. Ítrekað rekst Víkverji á að því sé sleppt að beygja nöfn íþróttafélaga. Stendur þá að lið hafi leikið gegn Breiðablik eða Snæfell, ekki Breiðabliki eða Snæfelli. Vík- verja er þessi beyging svo töm að hann á satt að segja í erfiðleikum með að hafa villuna eftir og setja orð- in óbeygð á blað. x x x Hér verður Víkverji reyndar aðgæta sín. Sennilega má hann ekki tala um villu í þessu sambandi. Til marks um það er að nokkuð er síðan farið var að líta orðið þágufalls- sýki hornauga og skal þess í stað tal- að um þágufallshneigð. Víkverji veit ekki hvort til er sérstakt orð yfir hneigðina til að hætta að beygja nafnorð, telur þó að langt sé í að beyging þeirra deyi alfarið út. x x x Víkverji man þá daga að heiti bíó-mynda voru ávallt þýdd á ís- lensku. Vissulega gátu þýðingar vak- ið spurningar og oft voru þær keimlíkar. Víkverji man eftir nokkr- um myndum sem fengu heitið Milli steins og sleggju. Nú er sjaldan haft fyrir því að þýða heiti mynda. Enska heitið er einfaldlega látið standa, nema um sé að ræða barnamyndir. Það er helst að heiti mynda, sem gerðar eru utan hins enskumælandi heims, séu þýdd. Ekki þykir hætt- andi á að láta heiti danskra mynda standa, hvað þá rússneskra. Víkverji saknar þýðinganna. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor- ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. (Sálm: 68.20) Á refilstigum,“ skrifar SigurlínHermannsdóttir á Leirinn. „Ég veit nú ekkert hvaðan þessi kom“: Ósköp lítt um útsaum veit en einn er refill traustur ef líta má þau herlegheit; harðangur og klaustur. Í nýrri vist – Ólafur Stefánsson skrifar: „Þegar spádómarnir hafa ræst og þeim brottviknu hefur ver- ið komið í skjól hjá Miðflokknum, lýsir Ólafur Ísleifs hrakhólagöngu þeirra félaga og segir þá hafa „hímt í höm“ einmana og kaldir. Píratar eru víst ekki bestu vinir klausturmanna og mætti kannski lýsa ástandinu á þinginu svona: Sunna Ævars sár og gröm, sveiflast lætur toppinn, er sér’ ún Ólaf híma’ í höm, með hor í nefi loppinn.“ Síðan kemur limra eftir Ólaf: Víst mundi hann fífilinn fegri, fraukurnar tilkippilegri; ár vas þá alda hjá Einsa kalda, og stúlkurnar stjörnum fegri. Gunnar J. Straumland yrkir á Boðnarmiði: Æviferil ærlegan aldrei skaltu trega. Ekkert virðist of né van, allt fer mátulega. Eftir liggja ævispor sem ei við breytum. Framtíðin er frjósamt vor með fyrirheitum. Mikið skemmtum við Ari Jósefs- son okkur yfir „Guðsmyndinni“ eftir Þorstein Erlingsson í mennta- skóla: Hægt fær enn þinn herra séð hvernig öllu er varið þó að guðsmynd þína með þú hafir illa farið. Kenna mun sitt mark á þér mannafaðirinn eini: stofn af vígtönn enn þar er og ögn af rófubeini. Alltaf þykir mér vænt um þessa stöku Þorsteins: Sjái ég unga silki-Hlín sitja fölva og hljóða, kannist hún við kvæðin mín kyssi ég hana rjóða. Og þessa: Það er líkt og ylur í ómi sumra braga; mér hefur hlýnað mest á því marga kalda daga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af vistaskiptum „þú mátt ekki reykja hér inni. ÞaÐ langar engan aÐ anda aÐ sér reyknum frá þér.” „ef þú átt einhvern aur skaltu næla þér í stól.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hitta með hjartanu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVERNIG GÁTU ALLAR BLÁBERJAMÚFFUR HORFIÐ AF YFIRBORÐI JARÐAR? HVÍ SPYRÐU MIG? ROP HVENÆR FÓRUM VIÐ SÍÐAST Á STEFNUMÓT? ÉG MAN ÞAÐ EKKI! OG HVAÐ SEGIR ÞAÐ ÞÉR? ÉG ÆTTI AÐ FARA TIL LÆKNIS?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.